Morgunblaðið - 15.06.1986, Síða 1
104 SIÐUR
B
STOFNAÐ 1913
131. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR15. JÚNÍ 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flugvél
ferst í
Skotlandi
Port Ellen, Skotlandi. AP.
FARÞEGAFLUGVÉL frá flug-
félaginu Loganair flaug í fjalls-
hlíð er hún átti skammt eftir
ófarið til flugvallarins á eynni
Islay á Suðureyjum. Flugstjór-
inn, Christopher Brooks, beið
bana, aðstoðarflugmaðurinn og
9 farþegar af 15 slösuðust.
í brotlendingunni rifnaði hægri
vængur flugvélarinnar af og nefið
laskaðist illa, en flakið var heillegt
að öðru leyti og stigu flestir far-
þeganna, einnig sumir hinna slös-
uðu, út úr brakinu og gengu í átt
til byggða.
Býflugur
raska
flugi
Tókýó, AP.
VERULEG röskun varð á flugi
er býflugnager, sem i voru um
30.000 flugur, sveimaði inn yfir
flugvöllinn í Ósaka í gærmorgun.
Starfsemi flugvallarins komst
ekki í samt lag fyrr en eftir
margar klukkustundir, eftir að
skordýrafræðingar höfðu skotið
eitri á flugumar.
Flugnagerið sveif inn yfír flug-
völlin og nam síðan staðar yfir
flugbrautinni, nánast beint yfír
þeim stað sem flugvélar snertu
brautina í lendingu. Til þess að eiga
ekki á hættu að flugumar réðust á
flugfarþega var skipt um flugbraut
og hlutust seinkanir af öllu saman.
Sumar þotumar urðu frá að hverfa.
Tafir urðu einnig á brottflugi
flugvéla þar sem farið var að með
mikilli gát er farþegar stigu um
borð til þess að styggja ekki býflug-
umar. Var spenna mikil í flugstöð-
inni og andrúmsloftið magnþmngið
því óttast var að flugumar létu til
skarar skríða á hverri stundu. Menn
önduðu ekki léttar fyrr en sérþjálf-
aðir menn úr nærliggjandi borg,
Toyonaka, komu á vettvang og
stökktu flugunum á flótta.
Gæsir á Álftanesi á Mýrum
••
Oryggiisráð Sameinuðu þjóðanna:
Setning neyðarlaga í
Suður-Afríku fordæmd
Pretóríu, Lundúnum, Sameinuðu þjóðunum, Róm, AP.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóðanna hefur fordæmt setningu neyðar-
laga í Suður-Afríku „og handtökur þúsunda manna sem beijast gegn
kynþáttastefnunni". Jafnframt skorar ráðið á stjórnvöld að afnema
neyðarlögin og láta þá lausa sem handteknir hafa verið, „svo hægt
sé að minnast þess að tíu ár eru liðin frá fjöldamorðunum í Soweto,
án afskipta lögreglu eða hers“.
Frakkar ætla að leggja til nýjar
hömlur á innflutning á vömm frá
Suður-Afríku á fundi utanríkisráð-
herra Evrópubandalagsins, sem
verður á morgun, mánudag, að sögn
Claude Malhuret, ráðherra mann-
réttindamála. Sagði hann að bannið
myndi einkum ná til innflutnings á
landbúnaðarvömm. Ríki Evrópu-
bandalagsins hafa samþykkt að
loka sendiráðum sínum í Suður-
Afríku, 16. júní, en þá verða tíu ár
liðin frá uppþotunum í Soweto, sem
kostuðu hundmðir manna lífið.
Á blaðamannafundi sem ríkis-
stjóm Suður-Afríku boðaði til í
gær, sagði talsmaður stjómarinnar
að ofbeldi í landinu hefði ttiinnkað
um 35% miðað við það sem verið
hefði fyrir setningu neyðarlaga á
fímmtudag. Kom fram hjá honum
að fjórir blökkumenn hefðu látið
lífið undanfarinn sólarhring, þar af
einn fyrir hendi öryggissveita.
Ronald Reagan, forseti Banda-
ríkjanna og Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, hafa
bæði lýst sig andvíg efnahagsþving-
unum gegn Suður-Afríku, Sagði
Thatcher í gær að efnhagsþvinganir
gætu aukið á ofbeldið, auk þess sem
þær myndu kosta 120 þúsund Breta
atvinnuna, án þess að það væri
tryggt að endir yrði bundinn á
kynþáttastefnuna.
Heimsmeistarakeppnin í knattspymu:
Sextán liða úrslit-
in hefjast í dag
SEXTÁN liða úrslit á Heims-
meistarmótinu í knattspyrnu í
Mexíkó hefjast í dag með leik
Mexíkómanna og Búlgara og
verður leikurinn sýndur beint
í íslenska sjónvarpinu klukkan
18. Annar leikur verður einnig
í dag, leikur Sovétmanna og
Belga, og verður hann einnig
sýndur í beinni útsendingu síð-
ar í kvöld.
Sérfræðingar em á einu máli
um að lið Mexíkó og Sovétríkj-
anna séu sigurstranglegri. Sovét-
menn hafa komið mjög á óvart
í keppninni til þessa og leikið
mjög skemmtilega knattspymu
og Mexíkómenn leika á heima-
velli og em til alls Hklegir. Jafnvel
em þeir til sem spá þeim heims-
meistaratitlinum.
Leikimir í sextán liða úrslitun-
um verða allir leiknir fyrri hluta
þessarar viku. Á morgun eigast
við lið Brasilíu og Póllands og
Argentínu og Umguay, á þriðju-
dag leika Marokkó og Vestur-
Þýskaland og Ítalía og Frakkland
og á miðvikudag England og
Paraguay og Danmörk og Spánn.
MEXÍKÓMÖNNUM tókst
naumlega að sigra Belgíumenn
í riðlakeppninni 2—1 og er þessi
mynd frá þeim leik. Bæði þessi
lið keppa í 16 liða úrslitunum.
Hart barizt í ná-
vígi í Líbanon
Beirút. AP.
OFSALEGIR bardagar voru háðir á þremur stöðum í Líbanon í
gærmorgun og á hádegi höfðu 16 menn fallið og 98 særst. Á sumum
átakasvæðunum hefur verið barizt í návígi af linnulausri grimmd í
nokkra daga.
í borginni Mashgara í Bekadal
börðust hersveitir, sem annars veg-
ar em studdar af Sýrlendingum og
hins vegar írönum. Hefur ekki orðið
hlé á skothríðinni í þijá daga og em
hermenn sýrlenzkra þjóðemissinna
(SSNP) sagðir sækja fram. Barizt
var hús úr húsi. Kviknað hefur í
sumum þeirra og grúfir biksvart
reykjarský yfir borginni. Sveitir
shíta úr flokki Guðs, Hezbollah,
reyndu að vega upp mannfall í liði
sinu með árásum á stöðvar SSNP
í nærliggjandi þorpi, Aitanit, en
því svömðu sveitir SSNP með því
að umkringja og hefja skothríð á
borgimar Sohmor og Yohmor í
Bekadalnum.
Þá héldu amalshítar, sveitir
Nabihs Berri, dómsmálaráðherra,
uppi hörðum árásum á skæmliða
Frelsisfylkingar Palestínu (PLO) í
flóttamannabúðum í Beirút 27.
daginn í röð. Beittu amalshítar T-54
skriðdrekum og fallbyssum. Féllu 6
menn og 49 særðust.
Ennfremur bmtust út bardagar
við grænu línuna í morgunsárið, þar
sem sveitir krístinna manna og
múhameðstrúar skutust á.