Morgunblaðið - 25.07.1986, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
164. tbl. 72. árg.___________________________________FÖSTUDAGUR 25, JÚLÍ 1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rokkstjarna heiðruð
Rokkstjarnan Bob Geldof ásamt konu sinni Paulu fyrir utan
Buckingham-höll með tignarmerki þau er hann hlaut er Elisa-
bet Englandsdrottning veitti honum heiðursriddaranafnbót
á fimmtudag. Viðurkenningu þessa fékk hann vegna söfnun-
ar fjár til styrktar hungruðum Afríkubúum. Alls söfnuðust
um 100 milljónir dollara.
Kaunda
Geimvopnaáætlun Bandaríkjamanna:
sogn heimndarmanna hyggst
Bandaríkjastjóm fá Sovétmenn til
að samþykkja tilraunir með leysi-
vopn utan rannsóknarstofnana. Á
móti myndu Bandaríkjamenn fresta
framkvæmd geimvopnaáætlunar-
innar um fimm til sjö ár. Þar með
myndu Bandaríkjamenn í raun
skuldbinda sig til að virða sam-
komulag ríkjanna frá árinu 1972
sem kveður á um bann við tilraun-
um og staðsetningu vopna í
geimnum. Stjómvöld í Sovétríkjun-
um hafa hvatt til þess að bæði ríkin
virði ákvæði samnings þessa.
James A. Abrahamson, yfirmað-
ur geimvopnaáætlunarinnar, sagði
í sjónvarpsviðtali á miðvikudag að
10 ár myndu líða þar til Bandaríkja-
menn gætu hrint áætluninni í
frarnkvæmd.
Í Genf héldu bandarískir og sov-
éskir sérfræðingar áfram að funda
um SALT II-samkomulagið frá
1979 en svo sem kunnugt er af
fréttum hefur Ronald Reagan lýst
yfír að Bandaríkjamenn muni hætta
að virða samkomulagið um næstu
áramót sökum ítrekaðra brota Sov-
étmanna.
hellti sér
yfir Howe
Jóhannesarborg, Washington, AP.
KENNETH Kaunda, Zambíu-
forseti, jós sér yfir Sir
Geoffrey Howe, utanríkisráð-
herra Bretlands, erHowe kom
til Lúsaka í gær. í stað þess
að bjóða hann velkominn með
kurteisi, eins og venja er, las
hann yfir honum reiðilestur.
Sakaði hann Bandaríkjamenn
og Breta um samsæri um að
koma í veg fyrir viðskipta-
þvinganir gegn Suður-Afríku
og stuðla þannig að óbreyttu
ástandi þar.
Suður-afrískir stjómmálamenn,
sem andvígir eru aðskilnaðarstefn-
unni, gagnrýndu leiðtoga blökku-
manna fyrir að ræða ekki við
Howe. Hann kveðst enn reiðubúinn
til fundar við þá, en Desmond
Tutu, biskup, sagði tilgang heim-
sóknarinnai' að tefja fyrir við-
skiptaþvingunum og ítrekaði að
hann mundi ekki tala við Howe.
Howe sagðist kominn til Suður-
Afríku til að fylla stjómina hug-
móði til að efna til mikilla umbóta
og falla frá aðskilnaðarstefnunni,
sem mismunaði meirihluta íbúa
landsins, blökkumönnum. Eftir við-
ræður við Kaunda heldur hann aftur
til Suður-Afríku og ræðir þá m.a.
við Mangosuthu Buthelezi, leiðtoga
zúlu-manna.
Helen Suzman, fom fjandi að-
skilnaðarstefnunnar og þingmaður
Framsækna sambandsflokksins
(PFP), sagði það skammarlegt að
leiðtogar blökkumanna skyldu ekki
ræða við Howe. Hún sagði ástandið
í Suður-Afríku einkennast af því
að annars vegar teldu blökkumenn
frelsi innan seilingar og hins vegar
væri þar við lýði þvermóðskufull
ríkisstjóm.
Reagan sagð-
ur reiðubúinn
til samninga
Washington, og Genf, AP.
REAGAN Bandarikjaforseti er reiðubúinn að fresta fram-
kvæmd geimvopnaáætlunarinnar um fimm til sjö ár gegn því
að Sovétmenn samþykki auknar tilraunir með slík vopn, að
sögn ónafngreindra embættismanna í Washington. Sendimenn
Bandarikjastjórnar munu brátt snúa aftur frá Vestur-Evrópu
og Asíu og verður þá ákveðið hvort Sovétstjórninni verður
gert formlegt tilboð. Paul Nitze, sérlegur ráðgjafi Reagans
um afvopnunarmál, átti fundi með sendiherrum ríkja Atlants-
hafsbandalagsins í Briissel.
Hans Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýskalands,
sem nýlega var staddur í Moskvu,
segir Sovétmenn vilja koma á fundi
aðalsamningamanna stórveldanna
áður en samningaviðræðumar í
Genf hefjast í septembermánuði.
Perez de
Cuellar í
hjarta-
aðgerð
Samcinuðu þjóðunum, AP.
Javier Perez
de Cuellar,
framkvæmda-
stjóri Samein-
uðu þjóðanna,
gekkst undir
velheppnaða
hjartaaðgerð i
New York og er
búist við að
hann geti hafið
störf aftur eftir ____
nokkrar vikur. deCueííar
De Cuellar er 66 ára gamall og
hefur ferðast mikið að undanfömu
á vegum SÞ. í síðustu viku kom
hann úr 18 daga ferð til Evrópu
og Marokkó og átti að leggja af
stað f 10 daga ferð til Afríku sl.
þriðjudag og mæta á ráðherrafund
Einingarsamtaka Afríku í Addis
Ababa. Þar sem hann fann til mik-
illar þreytu fór hann í læknisskoðun
á mánudag, ferðinni var frestað og
hann fór í aðra skoðun á þriðjudag.
Var honum þá ráðlagt að fara í
kransæðaaðgerð og lagðist hann
inn á sjúkrahús á miðvikudag. Að-
gerðin tók rúma 5 klukkutíma og
sagði Francois Giuliani, talsmaður
Cuellar, að læknamir teldu horfur
sjúklingsins góðar, hann ætti að
geta lifað eðlilegu lífí og reiknað
væri með því að hann hyrfí fljótlega
til starfa aftur. Fimm ára kjörtima-
bili Cuellar lýkur í árslok og hefur
hann sagt að hann sækist ekki eft-
ir að halda starfínu áfram, en ekki
þvertekið fyrir að svo verði.
Peres segir fundinn
vera spor í friðarátt
SHIMON Peres, forsætisráðherra ísraels, sagði í gær að fundur
sinn með Hassan II Marokkókonungfi væri spor i átt til friðar í
Miðausturlöndum, þrátt fyrir ágreining um mikilvæg atriði.
Peres kvað fundinn hafa borið
drjúgan ávöxt, sem slíkur, vegna
þess að þar hefðu samskipti Araba
og ísraela verið rædd fyrir opnum
tjöldum og það yrði hvatning til
frekari viðræðna. Hassan er annar
Arabaleiðtoginn, sem ræðir opin-
berlega við ísraelskan forsætisráð-
herra.
Hassan og Peres gáfu í gær út
sameiginlega yfírlýsingu um fund-
inn. Þar sagði að viðræður leið-
toganna í Marokkó hefðu einkennst
af hreinskilni.
ísraelskir stjómmálamenn, bæði
af hægri og vinstri væng, voru ef-
ins um ágæti fundarins vegna þess
að þar hefði ekki náðst árangur.
Peres sagði fréttamönnum þegar
hann sneri aftur frá Marokkó að
ógemingur væri að leysa deilur,
sem staðið hefðu í 30 ár á einum
fundi. Hassan hefur sagt að fundur-
inn hafí ekki verið haldinn til að
semja frið eða fínna lausn, heldur
til að kanna alla möguleika.
Fundurinn hefur verið ákaft
gagnrýndur í öllum arabaríkjum
utan Egyptalands, þótt ekkert ríki
hafí gengið jafn langt og Sýrland,
sem sleit stjómmálasambandi við
Marokkó. Hussein Musavi, forsæt-
isráðherra írans, og fjölmiðlar í
Sýrlandi fullyrtu í gær að Hassan
hefði svikið araba og hans biði ekk-
ert annað en aftaka.
Símamynd/AP
Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, segir fund þeirra Hassans
konungs Marokkó hafa verið spor í rétta átt. Hassan hefur fengið
litlar þakkir frá flestum leiðtogum arabarikja en Peres segist hlynnt-
ur áframhaldandi friðarviðræðum.