Morgunblaðið - 25.07.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
11
Akkorðuleikur
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Akkorðuleikarinn Mogens Elle-
gaard hélt tónleika á vegum
N’ART hátíðarinnar að Kjarvals-
stöðum sl. miðvikudag og flutti
eingöngu nútímatónlist. Akkorð-
an (aecordeon) er eins konar
afbrigði af harmónikku, en er
ekki handheft af ákveðnu hljóm-
kerfi fyrir vinstri hendina, eins
og nikkan. Tónleikarnir hófust á
sónötu eftir rússneskan tónhöf-
und, Kusiakov, en öll önnur verk
á efnisskránni eru eftir danska
og norska tónhöfunda, er flestir
hafa samið verkin sérstaklega
fyrir Ellegaard. Eftir Per Nörgárd
var verk er nefnist Inngangur og
tokkata, ágætt verk og þar næst
prógramverk, í dýragarðinum,
eftir Niels Viggo Bentzon. Það
er eins konar stæling á Myndir á
sýningu, eftir Mussorgsky, með
göngustefi á milli þess sem ýmis
dýr eru skoðuð. Þetta er óttalega
þunnt verk og óinnblásinn sam-
setningur. Næst á efnisskránni
var svo skemmtilegt verk eftir
Sten Pade, er hann nefnir Udflugt
med omveje. í þessum „undan-
bragða-flótta“ má heyra staldrað
við ýmislegt úr eldri tónlist og
einnig skemmtilegar tóntiltektir
höfundarins. Þama gat að heyra
fallega tækni Ellegaards. Vagn
Holmboe átti þama sónötu, op.
143a og þar gat að heyra vand-
aða og mjög fallega unna tónsmíð,
einkum þrjá fyrstu kaflana, en sá
Qórði er fúga, er með einhverjum
hætti hljómaði undirrituðum sem
dauð og tilbúin tónlist. Næst
síðasta verkið var svo partíta eft-
ir Svein Hundsnes, leikandi verk
en tónleikum lauk svo með Flash-
ing for accordeon, eftir Ame
Nordheim. Leiftur Nordheims er
skemmtilega unnið verk, en aug-
ljóslega er leikið með ýmsa
möguleika hljóðfærisins til tón-
mótunar og einnig í víxlun
tónsviðsins, sem mætti nefna þvf
nafni sem þekkist í píanó-leik, að
„spila í kross". Þrátt fyrir að til-
raunin komi skýrt fram, er þetta
einnig góð tónlist á köflum og var
frábærlega vel leikin af snillingn-
um Mogens Ellegaard, sem og
reyndar öll verkin á efnisskránni.
Kvartettleikur
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Swedenborg-kvartettinn lék í
Norræna húsinu sl. þriðjudag og
flutti tvö verk, Kvartett nr. 1 eft-
ir Prókoféff og d-moll kvartettinn,
Dauðinn og stúlkan, eftir Schu-
bert. Fyrsti kvartettinn þykir eitt
af persónulegustu verkum Pró-
koféff og var verkið samið í
Ameriku og þar fyrst flutt árið
1931. Leikur Swedenborg-kvart-
ettins var fjörlegur og skýrlega
mótaður. Þó vantar að hljóð-
færaleikaramir séu það nærri því
að vera einleikarar, að samleikur
þeirra hafi þá syngjandi fegurð
sem nauðsynleg er í verkum eins
og d-moll kvartett Schuberts, sér-
staklega í öðmm þætti, þar sem
návist dauðans liggur víða falin í
undirröddunum. Þá var samleik-
urinn í aukasteflnu í fyrsta þætti
undarlega lífvana en Schubert
vinnur mjög mikið úr þessu fal-
lega syngjandi stefbroti. Það má
vera að þessi kvartett Schuberts
sé of oft leikinn og því sé hættara
á samanburði. Swedenborg-kvart-
ettinn er ekki svo góður að
hlustendur sperri eyrun en þokka-
lega góður, þó nokkuð misræmi
sé á milli radda og t.d. fyrsta fiðla
mun tóndaufari en aðrir meðlimir
kvartettins. En umfram allt vant-
aði sönginn í Schubert og þá
vantar mikið. Trúlega á skarpur
Ieikur og hrynsterkur vel við
hljóðfæraleikarana, eins og kom
fram í Prókoféff, en það vill oft
verða, ef of mikil rækt er lögð
við hrynferli, að þá tapist tilfinn-
ingin fyrir syngjandi, er felur í
sér annars konar hryn en mót-
orískur hrynur, sá sem nútímafólk
hristir sig eftir.
5 herb. íb. í Hafnarfirði
Til sölu. Björt og rúmgóð rishæð um 100 fm á góðum
stað í Kinnahverfi. Sérinng. Stórar s-svalir og geymslu-
loft. Tvöfalt verksmiðjugler. Bílskúr. Laus strax.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 50764.
6S--77-BS
FASTEIGINIAMIOI.UI\i
SVERRIR KRISTJÁNSSON
HÚS VERSLUNARINNAR 6. HÆD
LÖGM. HAFSTEINN BALDVINSSON HRL.
FASTEIGN ER FRAMTÍÐ
Vegna sæmilegrar
sölu undanf arið
vantar okkur allar stærðir eigna á söluskrá —
Sérstaklega góðar 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir
miðsvæðis — Góðar sérhæðir 120—150 fm í
Reykjavík eða Kópavogi — Lítil góð raðhús eða
einbýlishús á Stór-Reykjavíkursvæðinu og vand-
að stórt einbýlishús á stórri lóð innan borgar-
markanna, mjög traustur kaupandi — í flestum
tilfellum er um mjög góðar greiðslur og rýmileg-
an afhendingartíma að ræða — Höfum einnig
kaupanda að góðu skrifstofuhúsnæði 150—400
fm þar sem er góð aðkoma og bílastæði.
Akurholt — Mosf ellssveit
Til sölu ágætt einbýlishús ca 140 fm ásamt 35—
40 fm bílskúr. Allt á einni hæð. Ákv. sala.
Gjarnan skipti á minna raðhúsi í Mosfellssveit
eða góðri íb. í bænum.