Morgunblaðið - 25.07.1986, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
semi fyrir ferðamannaþjónustuna
væri því miklu heldur vegna þeirra
áhrifa, sem hryðjuverk hefðu á fólk.
Hér væri um óbein en ekki bein
áhrif að ræða og flugfélög þyrftu
að sannfæra farþega sína um að
allt sé gert til þess að koma í veg
fyrir óþægindi af þessari hættu.
I þessu sambandi kom fram á
blaðamannafundi, sem haldinn var
í tengslum við ráðstefnuna, að
nokkur bandarísk flugfélög krefðu
nú farþega sína um 5 dollara þókn-
un til þess að standa straum af
öryggisvörzlu farþega. Þessi flug-
félög eru m.a. PAN AM, TWA og
People Express og var þetta nokkuð
gagnrýnt af viðstöddum blaða-
mönnum, sem m.a. bentu á að
ísraelska flugfélagið E1 Al, sem
hefði mestu öryggisvörzlu í víðri
veröld, tæki enga þóknun fyrir.
Þetta 5 dollara gjald væri að auki
talsverður skattur þegar tillit væri
tekið til þess að ríkisstjórnin í Wash-
ington hefði hækkað flugvallarskatt
fyrir farþega, sem kæmu til Banda-
ríkjanna, úr 3 dollurum í 8 dollara.
Þannig þyrftu farþegar, sem flygju
með þessum bandarísku flugfélög-
um að greiða 13 dollara á meðan
farþegar annarra flugfélaga slyppu
með 8 dollara. Einn blaðamannanna
spurði, hvort ekki þætti sanngjarnt
að þeir, sem ferðuðust með leigubíl-
um í New York, greiddu 5 dollara
áhættuþóknun til leigubifreiðastjór-
ans þar sem það teldist áhættusamt
starf að aka leigubíl í þeirri borg.
Þeim, sem urðu fyrir svörum, fannst
þessi spurning útúrsnúningur.
En hvað sem þessu líður eru
Bandaríkin afskaplega skemmtilegt
land að heimsækja. Þau eru marg-
vísleg og þar er margt að sjá.
Bandaríkjastjórn er nú með sér-
staka herferð til þess að hvetja fólk
til að koma þangað og skoða þetta
mikla land undir einkunnarorðunum
„Discover America", sem voru
raunar yfirskrift „Pow Wow“-
kaupstefnunnar í Phoenix. En það
verður þó að segjast að heldur skýt-
ur það skökku við, að á sama tíma
og þessi áætlun þeirra um aukningu
ferðamannastraums til Banda-
ríkjanna skuli skattur á ferðamenn
hækkaður um 5 dollara og
bandarísk flugfélög taka að auki 5
dollara þóknun fyrir öryggisvörzlu.
Auk þess þarf enn að sækja um
vegabréfsáritun til þessa mikla ríkis
og spumingum um hvort bæri ekki
að aflétta því var svarað neitandi
og borið við að á tímum hryðju-
verka í flugvélum og ferðum milli
landa væri slíkt ekki tímabært.
Á tónleikum hjá
Glen Campbell
Ýmislegt var gert til skemmtunar
kaupstefnugestum á kvöldin þegar
menn voru hættir kaupum og sölum
á ferðum heimshoma milli. Kvöldið
fyrir opnun kaupstefnunnar vom
tónleikar í Sinfóníuhöllinni, sem
stendur við Civic Plaza. Þar lék
Glen Campbell og hljómsveit hans
sín heimsfrægu lög, en Campbell
er einmitt búsettur í Phoenix, flutt-
ist þangað fyrir 6 ámm. Söng hann
m.a. lagið „By the Time I Get to
Phoenix", „On the Road Again" og
fleiri lög við góðar undirtektir
áheyrenda. Gestgjafamir sögðust
ábyrgjast ógleymanlegt kvöld og
eitt er víst að Glen Campbell kom
sá og sigraði hjörtu áheyrenda,
einkum er inn á sviðið gekk 3ja ára
sonur hans og barði trommur í
síðasta laginu. Greinilega efnilegur
tónlistarmaður það. Eftir tónleik-
ana var síðan dansleikur með
veitingum og var dansað fram eftir
nóttu.
Eitt kvöldið var þátttakendum
boðið í þorp úti í náttúm „villta
vestursins" til þess að upplifa anda
þess, eins og gestgjafar höfðu á
orði. Stefnt var að þorpi utan við
Phoenix, en það lítur út eins og
þorp vom á þessum slóðum um
1880. Heimamenn tóku þar á móti
gestunum og allir fengu kúreka-
hatta að gjöf, sem raunar vom
búnir til í Mexíkó, fléttaðir eins og
mexíkanahattar, en lagið var kú-
rekalegt engu að síður. I aðalstræti
þorpsins var síðan sýndur byssubar-
dagi, „lögregluforingja" staðarins
og nokkurra bófa, sem kútveltust
eftir rykugri götunni, þegar „sérr-
í JÚNÍBYRJUN var haldin í
Phoenix í ríkinu Arizona í Banda-
ríkjunum alþjóðleg ferðakaup-
stefna, sem bar hið sérkennilega
nafn „Pow Wow“. Nafngift
kaupstefnunnar er afskaplega
bandarisk, en hún mun komin
úr indíánamáli og þýðir blaður
eða innihaldslaust tal. Þrátt fyrir
þessa skringilegu nafngift sóttu
kaupstefnuna um 3.000 ferða-
frömuðir og starfsmenn flug-
féiaga og ferðaskrifstofa víða
að úr heiminum, þar af um 300
blaðamenn og þá einkum þeir,
sem skrifa um ferðamál.
Kaupstefnan „Pow Wow“ er
haldin árlega. Síðastliðið ár vom
slíkar kaupstefnur haldnar í Seattle
og Los Angeles og á næsta ári verð-
ur kaupstefnan haldin í Atlanta í
Georgíu. Á þessari kaupstefnu í
Phoenix í Arizona vom fulltrúar
Flugleiða og nokkurra íslenzkra
ferðaskrifstofa. Frá Flugleiðum
vom Kolbeinn Pálsson sölustjóri og
Birgir Ólafsson deilarstjóri, en frá
ferðaskrifstofunum vom: íslaug
Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Ferðamiðstöðvarinnar, Helgi Jó-
hannsson, faramkvæmdastjóri
Samvinnuferða og Inga Engilberts,
sölustjóri Úrvals. Ennfremur sótti
kaupstefnuna Ingólfur Guðbrands-
son forstjóri Útsýnar.
Þrjú þúsund manns við
morgunverðarborð
Segja má að þessi kaupstefna
hafi verið nokkuð stór í sniðum og
var allt skipulag til fyrirmyndar,
sem sjá má af því, að öllum þátttak-
endum var fyrsta dag hennar boðið
til morgunverðar, alls um 3.000
manns, og fór sá snæðingur fram
sem verið væri að halda venjulega
veizlu. Þar flutti Ronald Reagan,
forseti Bandaríkjanna, tölu af tjaldi
og Robert L. Crandall, stjómarfor-
maður American Airlines, flutti
aðalræðuna við þessa opnunarhátíð
Civic Plaza í miðborg Phoenix í Arizona, þar sem Pow Wow kaupstefnan var haldin.
við morgunverðarborðið í Civic
Plaza í miðborg Phoenix.
Crandall ræddi í ræðu sinni um
umfang bandarískrar ferðamanna-
þjónustu og kom fram í ræðu hans,
að hjá hans fyrirtæki einu sé lagt
1.500 sinnum upp í flugferð á dag
og notaðar til þess 304 þotur. Hann
kvað áætlanir vera uppi um það,
að innan 5 ára muni American-
flugfélagið eiga 526 þotur og muni
farþegafjöldinn þá hafa tvöfaldast
frá því sem hann er nú, en á ári
fljúga nú um 20 milljónir manna
með American.
Samtals hefur þota í farþegaflugi
sig 14.000 sinnum til flugs í Banda-
ríkjunum á degi hverjum nú, en á
árinu 1984 er talið að einn milljarð-
ur Bandaríkjamanna hafi farið í
ferðalag um 160 km frá heimili sínu
á árinu. Ferðamannaþjónusta er
einn af aðalatvinnuvegum í 41 ríki
af 50 og velta hennar er talin hafa
verið 229 milljarðar Bandaríkjadala
eða 6% af þjóðarframleiðslu. Við
hana vinna 4,7 milljónir manna og
2,2 milljónir í tengdum greinum.
Laun námu samtals 51 milljarði
dala og 25,2 milljarðar voru greidd-
ir í skatta, bæði alríkisskatt og
skatta til einstakra ríkja.
Hryðjuverk og Chemo-
byl-slysið valda
erfiðleikum
Bandarísk flugfélög töpuðu um
hálfum milljarði dollara á fyrsta
árs§órðungi þessa árs og er hryðju-
verkastarfsemi og kjamorkuslysinu
í Chemobyl í Sovétríkjunum kennt
um. Bandarískur ferðamaður er
mjög var um sig og hann ferðast
ekki séu einhveijar blikur á lofti.
Þetta hefur stórum dregið úr ferð-
um bandarískra manna t.d. til
Evrópu á þessu ári og hefur haft
þær afleiðingar að hótel á megin-
landi Evrópu hafa staðið hálftóm
fyrir bragðið. Robert Crandall,
stjómarformaður American-flug-
félagsins, gerði hryðjuverkastarf-
semina að sérstöku umræðuefni og
sagði að á árinu 1985 hafi sex sinn-
um fleiri Bandaríkjamenn drukknað
í baðkeram heima hjá sér, en nem-
ur tölu þeirra er týndu lífí vegna
hryðjuverkastarfsemi um allan
heim. Hættan af hryðjuverkastarf-
Frá salnurn, þar sem kaupstefnan fór fram.
A ferðakaupstefnu
í Phoenix, Arizona