Morgunblaðið - 25.07.1986, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
Fasteignamat ríkisins:
Fasteignaverð er
þaðlægstaí 15 ár
Búist við hækkun í kjölfar nýrra lánareglna
FASTEIGNAVERÐ hefur að undanförnu verið með því lægsta, sem
mælst hefur í fimmtán ár og svo virðist sem biðstaða hafi verið á
markaðnum undanfama mánuði. Þetta kemur meðal annars fram í
Fréttabréfi Fasteignamats ríkisins, sem nýlega kom út. Þar segir
ennfremur að vænta megi hækkunar á fasteignaverði í kjölfar nýrra
útlánsreglna í húsnæðislánakerfinu.
Samkvæmt hinum nýju ákvæð- ekki við þessar aðgerðir. Menn virð-
hækka opinber húsnæðislán
mikið og útreikningar á lánsréttind-
um breytast. í fréttabréfi Fast-
eignamatsins segir m.a.: „Ekki er
auðvelt að sjá fyrir hvaða áhrif hin-
ar breyttu reglur muni hafa þegar
til lengri tíma er litið. Hin háa út-
borgun, sem tíðkast hér á landi,
gerir það að verkum að lánsíjár-
aukningin nýtist ekki eins vel og
ástæða væri tiL Auk þess mun hin
þunga greiðslubyrði ekki lagast
nema hjá takmörkuðum hópi kaup-
enda. Greiðslubyrðin stafar einkum
af bankalánum og eftirstöðvar-
lánum, en þeir lánsflokkar breytast
ast einnig hafa ofmetið þá nettó-
aukningu á lánsfé sem talað er um
að verði á markaðnum."
í fréttabréfínu segir ennfremur
að hinar nýju reglur muni koma
einstökum þjóðfélagshópum
misjafnlega til góða. Kaupgeta
fólks, sem sé að kaupa sína fyrstu
eign og hafi full lánsréttindi, muni
sennilega aukast verulega en hins
vegar sé skertur lánsréttur þeirra
sem eiga íbúðir fyrir og þurfa að
stækka við sig. Ljóst sé því, að
gera verði einhveijar hliðarráðstaf-
anir er snerti skammtímalánin á
markaðnum og greiðslukjörin.
Fyrirhugað áætlunarflug Lufthansa og
British Midland Airways til íslands:
íslensku flugfélög-
in eiga í vændum
harða samkeppni
— segir Kjartan Lárusson formaður
Ferðamálaráðs Islands
„ÞAÐ ERU ógnvekjandi fréttir að þessi sterkriku flugfélög, Luft-
hansa og British Midland skuli vera að íhuga að fara inn á markað
íslensku flugfélaganna. Ég óttast að samkeppnin geti haft mjög slæm-
ar afleiðingar fyrir Flugleiðir og Amarflug. En loftferðasamningar
eru gagnkvæmir, svo við þessu er ekkert að gera annað en bita á
jaxlinn og leita leiða til að mæta ógnuninni,“ sagði Kjartan Lárus-
son formaður Ferðamálaráðs íslands i samtali við Morgunblaðið.
Eins og fram hefur komið í frétt- hefja áætlunarflug næsta vor. Það
hafa þýska flugfélagið Luft- er veruleg ástæða til að óttast það.
hansa og breska félagið British
Midland Airways sýnt áhuga á að
hefja reglubundið áætlunarflug til
íslands; Lufthansa yfir sumarmán-
uðina, en British Midland hefur
sótt um leyfi fyrir daglegu flugi til
íslands allan ársins hring. Líkur eru
á að Lufthansa he§i flugið næsta
vor með að minnsta kosti vikulegri
áætlun á leiðinni Munchen-Diissel-
dorf-Keflavík. British Midland bíður
hins vegar eftir að bresk flug-
málayfírvöld afgreiði umsókn
félagsins um leyfi fyrir áætlunar-
flugi til íslands, en það leyfí hefur
fram til þessa legið ónotað í hirslum
British Airways. British Midland
hyggst fljúga á leiðinni London-
Glasgow-Keflavík.
Að sögn Kjartans Lárussonar er
hér um stór markaðssvæði að tefla:
Bretar og Vestur-Þjóðveijar eru í
hópi þeirra þjóða sem mest heim-
sækja ísland. Á síðasta ári komu
tæplega tíu þúsund ferðamenn frá
hvoru landi um sig til íslands.
Kjartan sagði að erfitt væri að
meta alvöruna að baki beiðni Brit-
ish Midland: „Mér skilst að það
félag eigi vanda til að sækja um
ónotuð leyfi British Airways — frek-
ar sem „hemaðarbragð" gegn
samkeppnisaðila, en endilega í þeim
tilgangi að nýta sér þau. En vafa-
laust liggur þó einhver alvara hér
að baki. Og ef af þessu verður er
stórt markaðssvæði í hættu, ekki
aðeins Bretland, heldur einnig
hugsanlega Amsterdam, því British
Midland býður upp á ódýrar ferðir
þangað.
Hvað Lufthansa varðar þá telja
kunnugir nokkuð víst að þeir muni
Óverðtryggð lán
á undanhaldi?
Um lánakjörin segir meðal ann-
ars í fréttabréfi Fasteignamatsins:
„Það sem af er þessu ári hefur
fasteignaverð hækkað lítið. Undan-
farið hálft annað ár hefur fasteigna-
verð farið lækkandi reiknað á föstu
verðlagi. í upphafí þessa árs hafði
verð fjölbýlishúsa í Reykjavík lækk-
að um tæplega fjórðung á fimmtán
mánuðum reiknað á þennan hátt. Á
fyrri helmingi yfirstandandi árs
hefur fasteignaverð mælt á föstu
verðlagi hins vegar sem næst stað-
ið í stað. Eftir að dró úr verðbólgu
í kjölfar kjarasamninga síðastliðinn
vetur hefur að mestu tekið fyrir
hækkanir í krónutölu. Sem dæmi
um það má nefna að meðalverð á
fermetra í fjölbýlishúsum í
Reykjavík var aðeins lægra í júní-
byojun en í mars. í mars var
söluverðið 26.244 kr./fm en 26.051
kr/fm í júní.
Útborgunarhlutfall hefur ekki
breyst á árinu svo orð sé á ger-
andi. Hins vegar hafa verðtryggð
lán, sem koma við sögu í fasteigna-
viðskiptum farið hækkandi. Þau
voru komin upp í liðlega 14% af
söluverði í vor. Það er mikil hækkun
frá því, sem var í upphafí ársins.
Óverðtryggð lán voru á hinn bóg-
inn óvanalega lág. Þau voru til
jafnaðar 13,8% af söluverðinu á
tímabilinu frá apríl til júní. Óverð-
tryggðu lánin hafa lítið breyst
undanfarin ár. Oftast hafa þau ver-
ið liðlega 16% af söluverði og
stundum hærri. Hingað til hafa þau
ekki farið niður fyrir 15%.
I kjölfar minnkandi verðbólgu
hækkuðu raunvextir á óverðtryggð-
um eftirstöðvarlánum mjög mikið.
Þeir eru nú almennt hinir hæstu
lögleyfðu og hafa ekki verið hærri
í áratugi. Upplýsingamar hér að
framan benda til þess að kaupendur
taki nú í vaxandi mæli verðtryggð
lán fram yfír óverðtryggð."
riJtli .
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Umferð ríðandi manna um hálendið hefur aukist stórlega síðustu
ár og er fólki ráðlagt að hafa með sér fóður fyrir hrossin þar
sem það fæst ekki keypt.
Þjónusta við hestamenn:
Hey selt á
Hveravöllum og
við Ströngukvísl
FRÁ ÞVÍ í byijun júlí hefur hey verið selt á þremur stöðum á
hálendinu en það er Landssamband hestamanna og Upprekstrar-
félag Eyvindarstaðaheiðar, sem hafa staðið fyrir þessari sölu.
Þessir staðir eru Hveravellir og gangnamannaskálarnir við
Ströngukvísl og Buga.
Ástæðan fyrir þessari heysölu
er sú, að sögn Guðmundar Ó.
Guðmundssonar framkvæmda-
stjóra LH, að margir sem ferðast
um hálendið á hestum halda að
hægt sé að gera ráð fyrir beit í
næturstað í áningarhólfum. Sagði
Guðmundur að umferð ríðandi
manna um hálendið hafi aukist
stórlega undanfarin ár og á fjöl-
fömum leiðum væri litla eða enga
beit að hafa þar sem margir hafa
áð.
Hesthúsið á Hveravöllum, sem
er í eigu Upprekstrarfélags Auð-
kúluheiðar, verður stækkað í
sumar og verður þá gert ráð fyrir
heygeymslu. Starfsfólk veðurat-
hugunarstöðvarinnar sér um
heysöluna þar, en við Ströngu-
kvísl er vörslumaður og sér hann
um heysölu þar og við Buga. Þá
sagði Guðmundur að vissulega
væri þörf á að selja hey víðar en
erfítt væri að koma því við á þeim
stöðum þar sem enginn er til stað-
ar til að afhenda heyið og taka
við greiðslu. Einnig benti hann á
að aldrei væri ofbrýnt fyrir mönn-
um að búa sig vel fyrir ferðir upp
á hálendið og hvatti hann þá sem
ekki væm vanir slíkum ferðum
að leita sér upplýsinga hjá þeim
sem hefðu reynslu af hestaferðum
um_ óbyggðir.
Á Skógarhólum hefur LH verið
með þjónustu eins og undanfarin
tvö ár og var haft eftir Gísla Jóns-
syni vörslumanni að þeim fjölgaði
stöðugt sem færu þar um.
í fyrsta lagi vegna þess að Luft-
hansa er þekkt og virt fyrirtæki sem
fólk treystir. í annan stað eru Þjóð-
veijar miklir þjóðemissinnar og
hafa því sterka tilhneigingu til að
versla frekar við eigið flugfélag en
útlent. í þriðja lagi má nefna að
Lufthansa getur boðið upp á sama
verð hvaðanæva frá Þýskalandi,
það er að segja ókeypis innanlands-
flug,“ sagði Kjartan.
Að mati Kjartans eru fleiri blikur
á lofti: „Mér segir svo hugur að
fleiri erlend flugfélög hafi hug á
Islandsflugi. Það er enginn vafi á
því að SAS fylgist grannt með því
uppbyggingarstarfi sem Flugleiðir
hafa unnið markvisst að í Skand-
inavíu. Það kæmi mér ekki á óvart
að innan tveggja ára verði SAS
komið þar inn í spilið. Og það mun-
ar um minna, því á síðasta ári komu
rúmlega 28 þúsund Skandinavar til
íslands. Það er því ljóst að íslensku
flugfélögin geta átt í vændum mjög
harða samkeppni á sfnum stærstu
mörkuðum í Evrópu," sagði Kjart-
an.
Kjartan sagði að vissulega myndi
þessi áhugi erlendu flugfélaganna
á íslandi stækka markaðinn og
þannig hugsanlega valda íslensku
flugfélögunum minni skaða en elia.
„En ísland er lítið markaðssvæði
og það verður engin stökkbreyting
í þessum efnum. Það gæti tekið
3—5 ár að auka ferðamanna-
strauminn það mikið að innlendu
flugfélögin geti haldið sínum hlut.
En þola Flugleiðir og Amarflug
slíkt samdráttartímabil? Mér er það
til efs,“ sagði Kjartan Lárusson að
lokum.
'0
Valgeir Gestsson formaður Kennarasambands Islands:
Kennarasambandið hefur
ekki fallist á sérsamninga
Morgunblaðinu hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing
frá Valgeirí Gestssyni, for-
manni Kennarasambands
íslands:
„í Morgunblaðinu sl. mið-
vikudag er viðtal við Indriða
H. Þorláksson, formann samn-
inganefndar ríkisins, með
fyrirsögninni: „Lítum svo á að
kennarar fallist á sérsamn-
inga hjá HÍK.“ Það er fullkom-
in ósvífni að sá embættismaður
sem gerst þekkir til samninga-
mála ríkisstarfsmanna skuli
halda því fram að undirskrift
aðalkjarasamnings feli í sér
samþykkt sérsamninga.
Aðalkjarasamningur Banda-
lags kennaraféíaga og ríkisins
sem undirritaður var sl. þriðju-
dag, er aðeins síðbúin stað-
festing BK á aðalkjarasamningi
BHMR, sem undirritaður var í
mars. Fjármálaráðherra ákvað,
einhliða, í febrúar að félags-
menn Kennarasambands Is-
lands skyldu taka laun
samkvæmt aðalkjarasamningi
BHMR og sérsamningum HIK
þar til samið hefði verið við
BK og KÍ. Aðalkjarasamningur
BK hefur það sögulega gildi
að vera fyrsti aðalkjarasamn-
ingur fyrir kennara og skóla-
stjómendur sérstaklega og
honum fylgir bókun sem felur
í sér fyrirheit um verkfallsrétt
fyrir félög kennara á næstunni.
Samningsréttarlög opinberra
starfsmanna kveða skýrt á um
samningsrétt einstakra félaga
í sérsamningum og hefur ríkið
hingað til viðurkennt þann
samningsrétt og jafnvel nýtt
hann vel sbr. nýgerða sérsamn-
inga við Landssamband Iög-
reglumanna.
Kennarasambandið hefur
ekki látið sérsamningaréttinn
frá sér með undirskrift aðal-
lq'arasamnings BK og því get
ég lofað Indriða að við eigum
margt órætt um laun kennara
er við setjumst við samninga-
borðið í næsta sinn. Ótrúlegt
er að óánægja kennara með
úrskurð kjaradóms hafi farið
framhjá Indriða og manna best
veit hann að með ákvörðun fjár-
málaráðherra í febrúar sl. þess
efnis að félagsmenn KÍ skyldu
taka laun samkvæmt sérsamn-
ingum HÍK, lækkuðu fjölmarg-
ir kennarar um einn til tvo
launaflokka. KÍ mun ekki stað-
festa úrskurð kjaradóms um
sérsamninga HIK sem sér-
samning KÍ.
Samninganefndir ríkisins og
KÍ hafa orðið ásáttar um að
fresta samningaviðræðum fram
í ágústmánuð. Svo virðist, sem
formaður samninganefndar
ríkisins líti á þær viðræður ein-
göngu sem formsatriði. Þar
erum við Indriði ósammála og
það ekki í fyrsta sinn.“