Morgunblaðið - 25.07.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
21
ítalía:
Sindona
f éll fyr-
ir eigin
hendi
Mílanó, AP.
SAKSÓKNARI, er stjórnaði
rannsókn á láti fjármála-
mannsins Michele Sindona,
hefur komist að þeirri niður-
stöðu, að um sjálfsvíg hafi
verið að ræða, að sögn ítölsku
fréttastofunnar ANSA.
Sikileyingurinn Sindona hafði
verið dæmdur í lífstíðarfangelsi
fyrir að fyrirskipa morð á banka-
endurskoðanda, er rannsakaði
fjánnálaafskipti Sindona.
í kaffibolla, sem hann hafði
fengið í fangelsinu, fundust leifar
af blásýrusalti og sagt var, að
fangavörður hefði heyrt Sindona
hrópa: „Þeir hafa gefið mér eit-
ur,“ áður en hann féll saman.
Hann lést tveim dögum seinna.
Talið var, að margir utan
múranna ættu Sindona grátt að
gjalda og var hans mjög vandlega
gætt í fangelsinu, m.a. með sjón-
varpsmyndavélum, en leifar af
blásýrusalti fundust við nánari
rannsókn í baðherbergi hans. Er
talið, að hann hafí sjálfur Iátið
smygla eitrinu inn til sín, en hann
hafði áður gert tilraunir til
sjálfsvígs.
Vetrartískan
1986-1987
Tískuhönnuðir eru fyrir
löngu farnir að hyggja að
vetrarfatnaði. Italinn Gian-
franco Ferre kynnti þennan
þrönga, síða, hvita og svarta
kvöldkjól með tilheyrandi
sjali á sýningu sinni í Rómar-
borg sl. þriðjudagskvöld.
Gengi gjaldmiðla
Bandaríkjadalur lækkaði nokkuð gagnvart flestum gjaldmiðl-
um, að undanskildu japanska jeninu. Staðan í bandarískum
vaxtamálum er talin óljós og voru viðskipti með rólegra móti.
Gull hækkaði í verði.
Sterlingspund kostaði 1,4910 frankar (6,9225), 2,4065 hollensk
dal (1,4873). Fyrir Bandaríkjadal gyllini (2,4100), 1.464,00 ítalskar
fengust 156,65 jen (155,95), h'rur (1.464,50) og 1,38875
2,1362 vestur-þýsk mörk kanadískir dalir (1,3895). Gull
(2,1405), 1,7235 svissneskir kostaði 348,50 dali únsan
frankar (1,7320), 6,8925 franskir (347,75).
Maður veginn
við bústað páfa
Róm. AP.
Róm, AP.
LÖGREGLAN á ítaliu skaut í gær til bana mann, sem henti plast-
poka úr bU sinum að bústaði Jóhannesar Páls páfa II. og reyndi
síðan að höggva til lögreglumanna með handöxi.
Maðurinn kom akandi í bifreið um.“ Síðar kom í ljós að í plast-
að bústaði páfa, Castel Gandolfo, pokanum var aðeins rusl.
sem er um 25 km utan við Róm. Maðurinn hélt svo áfram ferð
Þá fleygði hann böggli í átt að sinni í átt að Rómarborg, og elti
bústaðnum og hrópaði að lögreglu- lögreglan hann uppi. Stöðvaði mað-
mönnum, sem gættu bústaðar páfa: urinn þá bifreiðina og hljóp út með
„Þetta er handa ykkur og páfan- öxi í hendi. Reyndi hann að höggva
til lögreglumannanna, en þá skaut
einn lögreglumannanna hann til
bana. Að sögn yfirvalda hafði mað-
urinn, Roberto Porfili, átt við
geðræn vandamál að stríða
Talsmaður Vatíkansins sagði að
páfínn hefði verið í bústaðnum, en
honum hafi ekki verið kunnugt um
atburðinn, sem átti sér stað um kl.
4 að morgni.
Bretland:
Eftirlíking brúðarkjólsins
Azoreyja á miðvikudagskvöld, þar sem hundruð manna tóku á
móti þeim, héldu breska konungsfjölskyldan og um 300 útvaldir
gestir áfram að fagna brúðkaupinu á velþekktu hóteli í London.
í verslanir samdægurs
London, AP.
ER HERTOGAHJÓNIN af York voru á leið í brúðkaupsferð til
Giftingarathöfnin og atburðir
henni tengdir höfðu verið teknir
upp á myndbönd og voru þau sýnd
í veislunni. Hraðboði var einnig
sendur með slík myndbönd til
Heathrow-flugvallar svo brúðarp-
arið gæti tekið þau með sér.
Veislan þótti takast mjög vel og
sögðu margir veislugestir að sér-
staklega létt hefði verið yfír
Englandsdrottningu, er dansaði
af hjartans lyst fram yfír mið-
nætti. Faðir brúðarinnar mætti
ekki í boðið, þar sem hann kaus
að taka þátt í hátíðarhöldum, sem
efnt var til af þorpsbúum í heima-
þorpi hans, Dummer.
Lárviðarskáld Breta, Ted
Hughes, samdi ljóð í tilefni brúð-
kaupsins, en það hefur verið
hlutverk lárviðarskálda frá því á
17. öld. Ljóðið birtist í The Lon-
don Times á miðvikudag og
nefnist „The Honey Bee and The
Thistle", með tilvísan til skjaldar-
merkis Ferguson-ættarinnar.
Hunangsflugan og þistillinn voru
einnig notuð sem skraut á brúðar-
kjól Söru Ferguson, sem margir
höfðu beðið með eftirvæntingu
eftir að sjá hvernig yrði. Kjóllinn
var hannaður af Lindu Cieraeh
og hlaut einróma lof tískufröm-
uða. Saumaðir voru tveir kjólar
og mun annar prýða vaxstyttu
af Söru, sem er í Madame Tus-
saud-safninu og er reiknað með
að um 2 milljónir manna muni
koma að skoða hann þar næsta
árið. Eftirlíkingar af kjólnum voru
komnar í verslanir í London fyrir
lokun á miðvikudag og von var á
fleiri gerðum fljótlega. Ekki eru
þær gerðar úr jafnvönduðum efn-
um og hönnuður brúðarkjólsins
sagðist ekki skilja hvemig hægt
hefði verið að sauma eftirlíkingu
sem líktist hinum upprunalega
kjól á svo skömmum tíma. Reynd-
ar sagðist hún þess fullviss að
aldrei yrði saumaður kjóll sem
yrði nákvæmlega eins.
Við athöfnina í Westminster
Abbey vakti það eftirtekt að Sara
dró hring á fingur Andrew, en
venjulega ganga breskir karlmenn
ekki með giftingarhring. Tals-
maður í Bucking-hamhöll gaf þá
skýringu, að hefð væri fyrir því í
bresku konungsfjölskyldunni að
karlmennimir bæm slíka hringa,
t.d. væri það svo um Philip prins
og Karl ríkisarfa. Bresku dag-
blöðin fjölluðu flest um brúðkaup
Andrew Bretaprins og Söm
Ferguson í fimmtudagsútgáfum
sínum og vom þeirrar skoðunar,
að það hefði verið konungsfjöl-
skyldunni og þjóðinni allri til
sóma.
TOSHIBA
Ný og betri
MSX tölva
Kr. 10.700.
• Tölvunni fylgir
leiðbeiningabók
á íslensku
• Innbyggð ritvinnsla
Eigum einnig fjölbreytt úrval
•_af leikjum og forritum
fyrir MSX tölvur.
GóÖ tölva
- á góðu verði.
HANS PETERSEN HF
GLÆSIBÆ SlMI 82590
Veður
víða um heim
Lngst Hæst
Akureyri 8 rlgning
Amsterdam 12 19 rigning
Aþena 22 36 heiðskfrt
Barcelona 2S mistur
Berlín 13 18 skýjað
Brflssel 10 20 skýjað
Chicsgo 17 31 heiðskfrt
Dublln 8 17 skýjað
Feneyjar 25 þoku-
móða
Frankfurt 10 21 skýjað
Senf 17 290 skýjcð
Helslnkl 13 22 helðskfrt
Hong Kong 26 30 heiðskfrt
Jerúsalem 20 280 skýjeð
Kaupmannah. 13 þrumu-
veður
Las Palmas vantar
Ussabon vantar
London vantar
Los Angeles 18 29 skýjað
Lúxemborg 15 skýjað
Mataga 31 hálfskýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Miami 26 31 skýjað
Montreal 16 27 heiðskfrt
Moskva 11 20 skýjað
NetwYork 22 32 heiðskfrt
Osló 11 18 skýjað
Parfs 12 23 skýjað
Peklng 22 30 rigning
Reykjavfk 9 súld
Rfó de Janeiro 10 19 skýjað
Rómaborg 16 30 halðskfrt
Stokkhólmur 17 21 rigning