Morgunblaðið - 25.07.1986, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
>
AKUREYRI
Birgir
skipaður
prófastur
Akureyri.
SÉRA Birgir Snæbjörns-
son, sóknarprestur á
Akureyri, hefur verið
skipaður prófastur í
Eyjafjarðarpró-
fastsdæmi.
Séra Birgir tók við emb-
ættinu 15. júní síðastliðinn.
Skattur-
innum
helgina
Akureyri.
AKUREYRINGAR eiga von á
„glaðningi" inn um bréfalúg-
urnar eða í póstkassann um
helgina. Þá verða nefnilega
bomir út útsvarsseðlar í bæn-
um.
Allir eiga að vera búnir að fá
sinn seðil í hendumar á sunnu-
dagskvöld — það er að segja ef
þeir verða heima um helgina.
aimamyna/ öKapti naugnmsson
Þeir gátu að vísu brosað þessir erlendu gestir á Akureyri í gær - en voru engu að síður hund-
blautir þar sem blaðamaður rakst á þá í göngugötunni!
Regnkápurnar komu aðgóðum notum
Akureyrú
REGNKÁPUR mikils fjölda ferðamanna, sem
hingað hafa streymt í sólskinsleit undanfamar
vikur, komu að góðum notum í gær þegar rigndi
látlítið allan daginn og þokan huldi Vaðlaheiði
fram undir kvöld. Svalt var með votvirðinu og
var það talsverður munur frá deginum áður
þegar hér var að vísu sólarlaust en 19 stiga hiti.
Vegna þokunnar var ekki hægt að fljúga hingað
frá Reykjavík fyrr en kl. 17 en fyrr í gær flaug
Flugfélag Norðuriands eina ferð frá Egilsstöðum til
Akureyrar. Farþegi með því flugi, sem tíðindamaður
blaðsins hitti að máli, kvaðst hafa flogið í glaðasól-
skini frá Egilsstöðum og ekki séð rakan blett fyrr
en komið var yfír Mývatnssveit. Um kvöldmatarleyt-
ið var þokunni farið að létta og gert var ráð fyrir
að árdegis í dag væri komið besta veður í höfuðstað
Norðurlands.
Hj úkrunarfræ ðingar
felldu sérkjarasamning’
A Lilrmrri
INNLENT
Akureyri.
ÓÁNÆGJA hjúkmnarfræðinga
hér með kaup og kjör varð til
þess að nýgerður sérkjarasamn-
ingur þeirra við Akureyrarbæ
var felldur með fjögurra at-
kvæða mun á fundi í síðustu viku.
Samninganefnd hjúkmnarfræð-
inganna hér, sem em í Hjúkr-
unarfélagi íslands og eiga aðild
að BSRB, hafði mælt með samn-
ingnum.
„Það er fleira en eitt atriði sem
við settum fyrir okkur,“ sagði
Lögreglumenn funda
um kj arasamninginn
Akureyri.
SKIPTAR skoðanir voru um nýgerðan kjarasamning Lands-
sambands lögreglumanna og fjármálaráðuneytisins á
fjölmennum fundi norðlenskra lögreglumanna hér á Akur-
eyri á þriðjudagskvöldið. Afnám verkfallsréttar lögreglu-
manna var helsta gagnrýnisatriðið, að því er Felix
Jósafatsson, formaður Lögreglufélags Akureyrar, sagði í
samtali við blaðamann Morgunblaðsins.
Á fundinum voru lögreglumenn
af öllu Norðurlandi, alls nærri 40
manns, eða um helmingur allra
starfandi lögreglumanna á svæð-
inu. Þar kynnti Felix, sem á sæti
í stjórn Landssambands lögreglu-
y manna, samninginn og siðan voru
um hann almennar umræður.
„Margir voru ánægðir með kjara-
bætumar sem í samningnum
felast," sagði Felix, „en ýmsir urðu
til að gagnrýna einstök atriði hans
og þar vóg afnám verkfallsréttar-
ins þyngst. Að því leyti var þessi
kynningarfundur okkar mjög svip-
aður fUndinum á Hótel Sögu í
Reykjvík daginn sem samningur-
inn var undirritaður."
Fyrir fundinn hafði stjóm BSRB
óskað eftir að fulltrúi sambandsins
kynnti sjónarmið stjómar þess, að
sögn Felixar, en ekki varð úr að
sá fulltrúi kæmi norður. Lögreglu-
menn á Akuryri og öðrum stöðum
norðan heiða greiða atkvæði um
samninginn á fímmtudag og föstu-
dag í næstu viku, eins og aðrir
félagar í Landssambandi lögreglu-
manna.
hjúkrunarfræðingur einn í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins,
„þótt meginástæðan fyrir því að
samningamir voru felldir sé ein-
faldlega sú, að launin eru of lág.
Við miðum okkur við aðrar stéttir
í heilbrigðiskerfmu, sem hafa feng-
ið veralegar kjarabætur á undan-
fömum árum, eins og til dæmis
ljósmæður og sjúkraliðar. Launa-
munurinn er orðinn of lítill."
Samkvæmt samningnum, sem
felldur var, hefðu hjúkranarfræð-
ingar á Akureyri fengið fjögurra
launaflokka hækkun frá því í febrú-
ar og fram í september. Það er
einum launaflokk meira en náðist
fram í samningum HÍ í Reykjavík
en á móti kemur að tæplega eins
launaflokks starfsaldurshækkun,
sem hjúkranarfræðingar nutu fyrir
próf frá Hjúkrunarskóla íslands,
var felldur niður. Brúttóhækkunin
var þvi rúmlega þrír launaflokkar.
„Við töldum okkur vera að gera
stefnumarkandi samning með því
að ná jöfnuði milli okkar og há-
skólamenntaðra hjúkranarfræðinga
í BHM. Á okkur hafði verið 6-7%
munur, sem við töldum okkur vinna
upp með þessum samningi," sagði
Birna Sigurbjörnsdóttir, formaður
samninganefndar hjúkranarfræð-
inga á Akureyri, í samtali við blm.
Morgunblaðsins hér í gær. „Ég verð
að viðurkenna að ég er ekki mjög
ánægð með þessa niðurstöðu en nú
munum við að sjálfsögðu taka aftur
upp samningaviðræður við bæjar-
yfirvöld. Takist ekki nýir samningar
sé ég ekki annað en að deilan verði
að fara fyrir Kjaradóm."
Ef samningUrinn hefði verið sam-
þykktur hefðu byrjunarlaun hjúkr-
unarfræðings hér orðið um 34
þúsund krónur 1. september næst-
komandi, en þau era í dag tæplega
30 þúsund krónur. Að auki fá hjúkr-
unarfræðingar hér í fullu starfi 15
þúsund króna mánaðarlega staðar-
uppbót eftir fyrsta mánuð í starfi.
Sú uppbót greiðist ekki í sumarleyf-
ismánuði og sömuleiðis eru allar
fjarvistir dregnar frá henni.
Stjórn sjúkrastofnana Akur-
eyrarbæjar tók einhliða ákvörðun
um þessa uppbót til að reyna að fá
fleiri hjúkranarfræðinga til að vera
í fullu starfi því talsvert var um að
hjúkranarfræðingar væra í hálfu
starfí og ynnu annað hálft starf í
auka- og næturvinnu. „Staðarupp-
bótin hefur haft tilætluð áhrif, fleiri
hafa komið í fullt starf, en okkur
gengur erfíðlega að skilja hvers
vegna uppbótin má ekki vera hluti
af umsömdum launum,“ sagði Birna
Sigurbjörnsdóttir.
Norðurland eystra:
' Ekki útlit fyrir
kennaraskort
Akureyri.
AÐEINS tvær sveitarstjórnir
af 30 í Norðurlandskjördæmi
eystra hafa skilað upplýsing-
um um nýjar skólanefndir til
fræðsluskrifstofu umdæmis-
ins á Akureyri. Eftir sveitar-
sljórnarkosningarnar í vor
voru almennt kosnar nýjar
skólanefndir og munu fæstar
þeirra hafa komið saman enn.
„Ég vona að þetta sé merki
um að kennaraskortur sé ekki
alvarlegur og tilfínning mín er
sú, að það hafí ekki gengið mjög
illa að ráða í stöður, að minnsta
kosti ekki hér á Akureyri," sagði
Sturla Kristjánsson, fræðslu-
stjóri, í samtali við Morgun-
blaðið á Akureyri í gær. „Ef
kennaraskortur væri bagalegur
væru skólastjórar áreiðanlega
famir að reka á eftir skólanefnd-
um sínum en það lítur ekki út
fyrir að svo sé.“
Sturla sagði að enn gæti hann
ekki séð að nokkuð væri af-
brigðilegt við ástandið. „Þetta
er svipað frá ári til árs. Yfírleitt
er ráðið í 60-70% af kennara-
stöðum í maí og júní og svo er
lokið við að ráða í ágúst,“ sagði
hann.