Morgunblaðið - 25.07.1986, Side 34

Morgunblaðið - 25.07.1986, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 t Móðir mín, SIGRÍÐUR TÓMASDÓTTIR, Austurbrún 6, andaðist að morgni 24. júlí. Pótur Gfslason. t Sonur minn, SVAVAR MAGNÚSSON bifreiðastjóri, Fellsmúla 20, lést í Borgarspítalanum 22. júlí. Jóhanna Jónsdóttir. + Móöir mín, tengdamóðir og amma, BJÖRG EVERTSDÓTTIR, verður jarösungin laugardaginn 26. júlí kl. 14 frá Sauðárkróks- kirkju. Birgir Ágústsson, Anna Einarsdóttir og börn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRHILDUR SIGURÐARDÓTTIR frá Stóru-Fellsöxi, verður jarðsungin frá Innra-Hólmskirkju laugardaginn 26. júlí kl. 14.30. Sigurður Magnússon, Ólöf Sigurstelnsdóttir, Ingi Garðar Magnússon, Gráta Sigfúsdóttir, Sfmon Magnússon, Kristfn Kristjánsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Jón Axel Egilsson og barnabörn. + Sonur minn, faðir okkar og tengdafaöir, MAGNÚS ÞÓRÐUR ÁGÚSTSSON, Brimhólabraut 2, Vestmannaeyjum, sem lést 17. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudag- inn 25. júlí kl. 10.30. Viktorfa Guðmundsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Rúnar Magnússon, Haraldur Júlfusson. + Eiginmaöur minn, faðir okkar og tengdafaðir, ÁSBJÖRN JÓNSSON frá Deildará, Nýlendugötu 29, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni föstudaginn 25. júlí kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Kristrún Jónsdóttir, Jón Ásbjörnsson, Frföa Ásbjörnsdóttir, Halla Danfelsdóttir, Steingrfmur Baldursson. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu vegna fráfalls eiginmanns míns og stjúpa, SIGFÚSAR ELÍSSONAR, Austurbraut 6, Keflavfk. Sérstakar þakkir viljum viö færa Jóhanni Líndal, Hitaveitu Suður- Minning: Asbjörn Jónsson Fæddur 15. júní 1906 Dáinn 12. júlí 1986 Tengdafaðir minn, Ásbjöm Jóns- son, lézt í Borgarspítalanum að- faranótt laugardagsins 12. júlí eftir stutta en stranga banalegu. Tæpum mánuði áður hélt hann upp á átt- ræðisafmæli sitt í hópi fjölskyldu og vina og var hrókur alls fagnað- ar. Mun engan, sem þar var, hafa grunað, að hann bæri svo bráða feigð í bijósti. Og þó kom andlát hans okkur, sem áttum mest saman við hann að sælda, ekki með öllu á óvart. Við vissum, að hann var með alvarlegan hjartasjúkdóm og oft mjög þjáður, þó að hann léti lítið á því bera, væri allajafna glaður og reifur og gengi dag hvem að störf- um, eins og ekkert hefði ískorizt. Virtist lífsþróttur hans nær óskert- ur til síðustu stunda. Þá hjúkraði eiginkona hans honum með dæma- fárri umhyggju eftir að heilsa hans fór að bila. Átti það mestan þátt í, að honum auðnaðist að eiga svo langa og auðnuríka ævi. Asbjöm Jónsson fæddist á Deild- ará í Múlasveit í Austur-Barða- strandarsýslu. Foreldrar hans vom Jón Jónsson, bóndi þar, og kona hans, Ástríður Ásbjömsdóttir frá Kollsvík. Á Deildará — eins og víða við Breiðafjörð — var stundaður hefðbundinn landbúnaður með hlunnindum af æðarvarpi, selveiði, lundatelcju og sjávarfangi. Verzlun var sótt til Flateyjar, enda var Múlasveit eitt afskekktasta byggð- arlag á landinu um þessar mundir. Þeir Ásbjöm og Jón, yngri bróðir hans, sem seinna varð bóndi á Deildará, höfðu því margt að sýsla á uppvaxtarárum sínum bæði á sjó og landi, enda urðu þeir báðir harð- skeyttir veiðimenn. Á kreppuárun- um var Ásbjöm fengsæl grenja- skytta. Auk þess keypti hann yrðlinga, ól þá upp á Deildará og seldi refaskinn. Kom hann þannig undir sig fótunum Qárhagslega. Er þetta dæmi um hagsýni hans og hugkvæmni. Þótt Ásbjöm flyttist til Reykjavíkur, kvæntist þar, stofnaði heimili og eignaðist böm, sagði hann ekki skilið við æskustöðvam- ar. Um langt árabil fór fjölskyldan vestur að Deildará á hveiju sumri og dvaldist þar lengri eða skemmri tíma. Það var gaman að heimsækja þau hjónin, þegar þau komu úr þessum ferðum. Vestfirzk aðal- bláber með ijóma vom þá á borðum. Hafði húsbóndinn tínt þau, en beija- tínsla var íþrótt hans og yndi, enda engum fært að etja þar við hann kappi. Kom honum til góða að þekkja nánast hveija þúfu og hvem stein í heimahögunum. Hann hefði vel getað tekið undir með Jóni Helgasyni, þegar hann segin Löngum í æsku ég undi við angandi hvamminn og gilsins nið, ómur af fossum og flugastraum fléttaðist síðan við hvem minn draum. Ásbjöm kvæntist 1938 Kristrúnu Valgerði Jónsdóttur, dóttur Jóns bónda Jónssonar á Þóroddsstöðum í Ölfusi, síðar í Reykjavík, og Vigdísar konu hans Eyjólfsdóttur. Festu þau ungu hjónin kaup á hús- eigninni Nýlendugötu 29 í Reykjavík og hafa búið þar æ síðan. Af Nýlendugötu 29 sér vestur og norður yfir víðfeðman Faxaflóa og siglingaleið til Reykjavíkurhafnar. Var það útsýni Ásbimi einkar kært, enda tengdur sjó frá bemsku. Ásbjöm og Kristrún eignuðust tvö böm: Jón, heildsala og fiskút- flytjanda í Reykjavík, kona hans er Halla Daníelsdóttir og böm þeirra tvö, Ásbjöm og Ásdfs; Fríðu Valgerði, húsmæðrakennara, sem er gift undirrituðum. Synir okkar eru Baldur, Héðinn og Gunnar. í Reykjavík fékkst Ásbjöm við margt. Var sjómaður um skeið, rak refa- og minkabú og seinna svínabú, þar sem nú er Garðabær, keypti og verkaði grásleppuhrogn Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælia- og minningnrgreinar til birting- ar endurgjaldsiaust. Tekið er við greinum á ritstfórn blaðsins á 2. hæð i Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. gildir ef sálmur er birtur. Megin- regla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tekin til birtingar fmmort Ijóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð og með góðu línubili. nesja og NjaroviKuroæ. Hafdís Svavarsdóttir, Magnús Tobíasson. Lokað Lokað vegna jarðarfarar föstudaginn 25. júlí 1986 frá kl. 12.00. + Hjartans þakkir okkar til Hljómlistarfélags (sl. og sérstaklega Fiskkaup hf., Grandaskála, Reykjavík. búning og framkvæmd alls er við kom fráfalli og jarösetningu sonar okkar, SIGURBJARNAR INGÞÓRSSONAR, bassalelkara. Sömuleiðis alúðarþakkir okkar til allra þeirra skyldra og vanda- lausra er vermt hafa okkur með Ijúfum störfum hugar og handa og allra þeirra er sent hafa okkur hlýjar samúöarkveðjur, meö blómum og blessunaróskum. Guð biessi ykkur öll. Una Pétursdóttlr, Ingþór Sigurbjörnsson. Lokað Lokað vegna jarðarfarar föstudaginn 25. júlí 1986 frá kl. 12.00. Jón Ásbjörnsson, heildverslun, Grófinni 1, Reykjavík. til útflutnings o.fl. Síðustu árin keypti hann fisk af bátum, gerði að honum og seldi síðan í mötu- neyti og til fisksala. Hann líktist Bjarti í Sumarhúsum að því leyti, að það var honum afar mikils virði að starfa sjálfstætt og vera fijáls og öðrum óháður. Ég held, að hon- um hafi látið betur að vinna verkin sjálfur en að hafa fólk í vinnu. Hann var hamhleypa við öll störf, en þó vandvirkur. Hann reis jafnan árla úr rekkju og var oft búinn að skila dagsverki, þegar þorri borgar- búa var að skreiðast á fætur. Hann var mjög orðheldinn og áreiðanleg- ur í öllum viðskiptum. Ásbjöm efnaðist vel og hafði oft á lífsleið- inni talsvert fé handa á milli. Var það honum mikils virði. Hann hafði þó enga löngun til að safna auði. Hins vegar þótti honum gaman að geta veitt ættingjum og vinum, sem þurftu á hjálp að halda, fjárhags- lega aðstoð. Framan af ævinni spilaði Ásbjöm mikið bridge í tómstundum sínum. Tók hann oft þátt í keppni, og var sveit hans sigursæl. Ber íjöldi verð- launabikara á heimili hans því glöggt vitni. Á síðari áram las hann mikið, einkum bækur um mannlíf, atvinnuhætti og qomennsku við BreiðaQörð. Átti hann gott safn slíkra bóka og auk þess mörg önd- vegisrit íslenzkra bókmennta. Ásbjöm og Kristrún tóku alla tíð mikinn þátt í starfsemi Breiðfirð- ingafélagsins í Reykjavík og bára hag þess mjög fyrir bijósti. Eg kynntist Ásbimi nokkra eftir að ég fór að vera með dóttur hans. Hafði ég þó séð hann álengdar, en fannst þá og maðurinn ekki árenni- legur og forðaðist í lengstu lög að hitta hann. Þegar fundum okkar bar loks saman, varð mér ljóst, að ótti minn var algerlega ástæðulaus. Hann tók mér með mikilli vinsemd, og skynjaði ég strax hjartahlýjuna, sem mér fannst æ sfðan ríkasti þátturinn í eðli hans. Hann bjó yfir ótrúlega miklum persónutöfram, og öllum leið vel í návist hans. Ég held, að það hafi stafað af því, að hann var alltaf fyrst og fremst sveitapiltur að vestan, þó að hann byggi í áratugi í Reykjavík. Hann kom ævinlega til dyra eins og hann var klæddur, og öll sýndarmennska var honum víðs fjarri. Þegar synir mínir uxu úr grasi, varð það eitt helzta tilhlökkunarefni þeirra að fá að gista hjá afa og ömmu á Nýlendugötu. Þar vora þeir umvafðir hlýju og kærleika. Að leiðarlokum þakka ég tengda- föður mínum innilega fyrir sam- fylgdina. Þar var hann nær alltaf gefandi, en ég þiggjandi. Ég kveð hann svo með tveimur sfðustu erind- unum úr kvæði Tómasar Guð- mundssonar „I Vesturbænum", en þar hafa tengdaforeldrar mínir búið í hartnær hálfa öld: En þó að þagni hver kliður og þó að draumró og friður leggist um allt og alla, ber hjarta manns svip af sænum, sem sefúr framundan bænum með öldur, sem óralangt falla. Því særinn er veraldarsærinn, og sjálfur er vesturbærinn heimur, sem kynslóðir hlóðu, með sálir, sem syrgja og gleðjast, og sálir, sem hittast og kveðjast á strönd hinnar miklu móðu. Steingrímur Baldursson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.