Morgunblaðið - 25.07.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986 45
• Pétur Ormslev hefur leikið mjög vel f sumar og er maðurinn é bak við árangursríkan sóknarleik liðsins.
hefur því í raun bara verið ein staða
sem slegist hefur verið um. Hæstu
meðaleinkunn liðsins hefur Ágúst
Már Jónsson 2,91, Loftur Ólafsson
hefur 2,58, Gunnar Gíslason sömu
einkunn og Hálfdán hefur einnig
meira en 2,50. Aörir minna. KR-
ingunum hefur ekki gengið mjög
vel að skora í sumar, en Björn
Rafnsson hefur gert 4 mörk, Ás-
björn Björnsson 3 og aðrir færri.
KR-liðið á nú ekki lengur raunhæfa
möguleika á meistaratitli eða Evr-
ópusæti og fallhættan er líklega
ekki mjög mikil heldur. Það kæmi
því ekki á óvart þótt Gordon Lee
færi að leyfa yngri leikmönnum að
spreyta sig í leikjunm sem eftir
eru, því KR-ingar eiga mikinn fjölda
efnilegra leikmanna.
FH
FH-ingar hafa notaö 18 leik-
menn i deildinni í sumar og aðeins
fjórir þeirra hafa leikið alla leikina
12 — Ingi Björn, Henning Henn-
ingsson, Pálmi Jónsson og Ólafur
Jóhannesson. Tveir hafa leikið 11
leiki, tveir 10 leiki og tveir 9 leiki.
Henning Henningsson, miðvörður
liðsins, er stigahælstur leikmanna
þess með 2,83 stig, Gunnar
Straumland markvörður hefur 2,62
stig og Ólafur Kristjánsson og Ól-
afur Jóhannesson hafa einnig yfir
2,50 stig. Ingi Björn hefur skorað
mest fyrir FH í sumar eða sex
mörk. Tveir FH-ingar hafa gert 3
mörk hvor, Kristján Gíslason og
Hörður Magnússon, sem reyndar
gerði sín mörk öll í sama leiknum.
FH hefur leikið þokkalega í sumar,
stundum vel, en stundum ekki eins
vel og stórtapið gegn Fram var
líklega lágpunktur sumarsins.
Víðir
Víðismenn hafa að mestu haldið
sig við sömu leikmennina í sumar.
Hvorki meira né minna en átta leik-
menn hafa spilað alla tólf leikina í
deildinni, og tveir til viðbótar hafa
leikið þá alla nema einn. Og einn
hefur leikið níu leiki — svo það er
hreint ekki gaman að vera vara-
maður í Garðinum. Alls hefur liðið
notað 16 leikmenn i allt. Mark
Duffield er þeirra stigahæstur í
einkunnagjöfinni með 2,75 stig að
meðaltali, Daníel Einarsson hefur
2,72 stig og Guðjón Guðmundsson
er einnig með meira en 2,50 stig.
Víðismenn hafa aðeins skorað 9
mörk i sumar. Grétar Einarsson
hefur gert 4 þeirra og Guöjón Guð-
mundsson 3.
ÍBV
Vestmanneyingar hafa notað 21
leikmann í sumar. Aðeins einn,
Jóhann Georgsson, hefur leikið alla
leikina. Fimm hafa leikið 11 leiki,
1 tíu leiki og 3 níu leiki. Hæstu
einkunnir liðsmanna hafa þeir
Hörður Pálsson (2,71) og Þor-
steinn Gunnarsson (2,60) fengið.
Þaö er nokkuö sérkennilegt þegar
haft er í huga aö þeir eru báðir
markmenn liðsins og hafa leikið 7
leiki (Hörður) og 5 leiki (Jóhannes).
En ástæöan er líklega sú að mjög
hefur reynt á markmenn Eyjaliðs-
ins og þeir ekki staðið sig illa.
Karl Sveinsson, sem kom til liðs
við sitt gamla félag á miðju sumri
hefur 2,60 í einkunn eftir 5 leiki.
Aörir hafa minna en 2,50 stig að
meðaltali. Jóhann Georgsson hef-
ur skorað þrjú mörk fyrir liðið í
sumar og Bergur Ágústsson 2.
UBK
Blikarnirhafanotað21 leikmann
í sumar og þrír hafa leikið alla leik-
ina — Guðmundur Valur Sigurðs-
son, Magnús Magnússon og Jón
Þórir Jónsson. Tveir hafa leikið 11
leiki, fjórir 10 leiki og tveir 9 leiki.
Liðið hefur fengiö jafnar einkunnir
fyrir leiki sína, en það dettur niður
fyrir ÍBV vegna 0:7 tapsins fyrir
Val. Fyrir þann leik fékk liðið sam-
tals aðeins 14 í einkunn, næstum
því 10 stigum undir meöaltali sum-
arsins. Stigahæstir leikmannanna,
• Guðni Bergsson er efstur varnarmanna Vals i stigagjöfinni, en
Valsvörnin hefur aðeins létið & mörk í sumar. Hann á hér í návfgi f
leik gegn FH.
mmv
V
með um 2,40 stig hver eru mið-
verðirnir Magnús Magnússon og
Benedikt Guðmundsson, mark-
vörðurinn Örn Bjarnason og Jón
Þórir Jónsson. Jón Þórir er jafn-
framt markahæstur með 5 mörk,
en aðrir hafa ekki skorað fleiri
mörk en eitt hver. Blikarnir eru í
mikilli fallhættu en þeir eiga eftir
að leika við flest liðin í neðri hluta
deildarinnar og eiga því ennþá
góða möguleika á að halda sér í
deildinni.
Víðismenn grófastir?
Ef gul spjöld eru mælikvarði á
það hve grófa knattspyrnu lið spil-
ar þá er ekki vafi á hvaða lið hefur
þann vafasama vinning. Víðismenn
hafa fengið samtals 17 gul spjöld
það sem af er deildarkeppninni,
og einnig eitt rautt. Næstir koma
Skagamenn og Þórsarar með 14
gul spjöld, og eitt rautt hvort lið,
þá KR með 11 gul spjöld, FH-ingar
og Framarar með 10 spjöld,
Keflvíkingar með 9 spjöld (og eitt
rautt) en prúðustu liðin eru Vals-
menn og Blikar með sex spjöld
hvort lið. Þeir leikmenn sem fengiö
hafa rautt eru Sigurbjörn Viðars-
son, Þór, Valþór Sigþórsson ÍBK,
Sveinbjörn Hákonarson ÍA og Daní-
el Einarsson Víði. Sveinbjörn
Hákonarson ÍA fær þann vafasama
heiður að teljast annað hvort gróf-
asti eða kjaftforasti leikmaður
mótsins til þessa því hann hefur
fengið fleiri gul spjöld en aðrir ein-
stakir leikmenn — 5 talsins, auk
rauða spjaldsins.
Að lokum er hér staöan í mótinu
og listi yfir markahæstu leikmenn:
Staðan
Fram 12 9 2 1 27- - 7 29
ÍBK 12 8 0 4 15- -14 24
Valur 12 7 2 3 18- - 5 23
ÍA 12 5 3 4 19- -12 20
Þór 12 5 2 5 16- -21 17
KR 12 3 6 3 13- - 9 15
FH 12 4 2 6 17- -20 14
Víðir 12 3 3 6 9- -16 12
UBK 12 3 2 6 10- -21 11
ÍBV 12 1 2 9 10- -27 5
Og markahæstu leikmenn eru
þessir:
GuðmundurTorfason, Fram 13
Ingi Björn Albertsson, FH 6
Valgeir Barðason, ÍA 6
GuðmundurSteinsson, Fram 6
Óli Þór Magnússon, ÍBK 5
Hlynur Birgisson, Þór 5
Kristján Kristjánsson, Þór 5
Jón ÞórirJónsson, UBK 5
Sigurjón Kristjánsson, Val 5
• Óli Þór Magnússon hefur reynst Keflvíkingum vel í sumar, skorað fimm mörk og staðið sig vel. Hór er hann í þann mund að skora gegn Víði í leik í sumar.