Morgunblaðið - 25.07.1986, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 1986
47
Slæm varnarmistök
kostuðu FH bikarsætið
• Guðmundur Albertsson vann
bæði bikar og deild meft Vfking-
um á síðasta keppnistímabili.
Guðmundur hefur gengið í KR og
liðið stefnir á toppinn f vetur.
ÍBK varð f gærkvöldi síðasta
liðið til að tryggja sér sæti í und-
anúrslitum mjólkurbikarkeppn-
innar er liðið sigraði FH á
Kaplakrikavellinum f gærkvöldi
1-0. Liðið fylgir því Val, Fram
og ÍA f undanúrslitin og það eru
því fjögur efstu lið íslandsmóts-
ins sem enn halda sæti sfnu f
bikarnum.
Leikmenn ÍBK komu mjög
ákveðnir til leiks, vel studdir af
klappliði frá Suðurnesjunum. Þrátt
fyrir góð tök á leiknum náði liðið
ekki að skapa sér umtalsverð
marktækifæri í fyrri hálfleik ef und-
anskilið er markið sem kom eftir
slæm varnarmistök. Magnús Páls-
son hugðist þá senda knöttinn
aftur til Gunnars Straumland en
Óli Þór Magnússon komst inn í
sendinguna og lagði boltann út í
vítateiginn til Freys Sverrissonar
sem skoraði af öryggi.
Handknattleikur:
KR líklegt
til stórræða
— Guðmundur Albertsson
bætist í hópinn
GUÐMUNDUR Albertsson, lands-
liðsmaður, sem lék með Vfking-
um í fyrra, gekk til liðs við sína
gömlu fólaga f Vesturbænum í
gær og leikur því aftur með KR.
Guðmundur er fjórði leikmaður-
inn, sem hefur bæst í hóp KR-inga
á síðustu dögum. Hinir eru Hans
Guðmundsson, Sverrir Sverrisson
og Gísli Felix Bjarnason. Þessir
leikmenn koma til með að styrkja
KR mikið og liðið verður örugglega
í toppbaráttunni í vetur. Aðrir fjór-
ir leikmenn liðsins hafa verið valdir
til æfinga með unglingalandslið-
inu, þeir Þorsteinn Guðjónsson,
Páll Ólafsson, Konráð Ólafsson og
Guðmundur Pálmason.
Kristján Örn Ingibergsson, for-
maður Handknattleiksdeildar KR,
sagöi í gær í samtali við blaöa-
mann Morgunblaðsins að mikill
hugur væri í KR-ingum og kominn
væri tími til að liðið væri í hópi
þeirra bestu. „Ólafur Jónsson, hinn
nýi þjálfari liðsins, þekkir ekki ann-
að en velgengni. Hann gerir miklar
kröfur til leikmannanna og þeir eru
tilbúnir að leggja allt á sig til að
komast á toppinn. Efniviðurinn er
fyrir hendi og við lítum björtum
augum til keppnistímabilsins"
sagði Kristján Örn.
Heimamenn voru nálægt því að
jafna í annars tilþrifalitlum hálfleik.
Pálmi Jónsson skallaði framhjá frá
markteig eftir góða fyrirgjöf Viðars
Halldórssonar.
Það var öllu meira líf í heima-
mönnum í byrjun síðari hálfleiksins
en ekkert um umtalsverð færi.
Síðasti stundarfjórðungurinn bauð
hinsvegar upp á marktækifæri á
báða bóga. Freyr var nálægt því
að skora sitt annað mark er hann
komst framhjá Gunnari en hann
missti boltann of langt frá sér. Þá
skapaðist mikil þvaga upp við
mark ÍBK fimm mínútum fyrir leiks-
lok en Herði Magnússyni mistókst
að nýta sér færið. Síðustu mínútur
leiksins sótti ÍBK stíft og Ingvar
Guðmundsson var nálægt því að
innsigla sigurinn er hann náði að
leika á Gunnar markvörð, en hann
missti boltann út fyrir endamörk.
Lið Keflavíkur fer vaxandi með
hverjum leik og sigur liðsins í
gærkvöldi hefði vel getað orðið
stærri. Vörnin er án efa sterkasti
hluti liðsins með Einar Ásbjörn
sem aftasta mann. Þá vann Sig-
urður Björgvinsson ófá einvígin á
miðju vallarins og studdi auk þess
vel við bakið á sóknar- og varnar-
mönnum.
Lið FH var langt frá því að vera
heilsteypt. Leifur Garðarsson
komst þokkalega frá hlut sínum í
annars jöfnu liði en sérstaklega var
athyglisvert hve sóknarmenn liðs-
ins höfðu úr litlu að moða gegn
„Keflavíkurmúrnum".
Ólafur Sveinsson dæmdi þokka-
lega. Hann gaf eitt gult spjald,
Henning Henningssyni, FH, en þau
hefðu mátt vera fleiri.
-fros
ÍKvann
UMFG
ÍK VANN nauman sigur yfir
Grindvíkingum í gærkvöldi er liöln
mættust í 3. deildinni. Kópavogs-
liðið skoraði eina mark leiksins
og það var Þórhallur Gunnarsson
sem sá um að gera það.
Gult spjald á
formann KSÍ
ÞAÐ hefur verið stefna knatt-
spyrnudómarasambandsins að
elta ekki ólar við blaðaskrif og
umtal hverskonar. En undan-
farið hefur verið fjallað um
málefnl dómara af slfku þekk-
ingarleysi, að steininn tekur úr,
og er þess vegna gerð sú und-
antekning á að svara.
Dómaramál hafa verið í
brennidepli fjölmiðla nú undan-
farið og skal nú leiðrétt það sem
rangt hefur verið sagt um þessi
mál.
Formaður KS( gerir sig beran
aö slíkri vanþekkingu á málum
er snerta dómara, aö undrun og
óánægju hefur vakið hjá knatt-
spyrnudómarasambandinu. (
samtali við Morgunblaðið þann
19.7. er Ellert Schram formaður
KSÍ inntur álits á ferðakostnaði
dómara vegna þeirrar gagnrýni
sem fram kom í bréfi frá Stefáni
Gunnlaugssyni formanni KA deg-
inum áður. Segir Ellert m.a. að
viss ágreiningur sé milli KS( ann-
ars vegar og dómarasambands-
ins hins vegar um val á
dómurum, hæfnispróf og fleira.
Þessi fullyrðing formanns KS( (ef
rétt er eftir höfð) er röng. Þing
KSf haldið í Eyjum í fyrrahaust
komst að þeirri niðurstöðu að
málefni knattspyrnudómara
væru best komin hjá þeim sjálf-
um. Ennfremur er eftir Ellerti
haft að „Dómarasambandið ann-
ist niðurröðun dómara á leiki og
dómaranefnd KS( samþykki
síðan þær ákvarðanir." Þetta er
Ifka alrangt og í raun merkileg
fáfræði hjá formanninum.
Sú nefnd sem annast niður-
röðun dómara á leiki, og kallast
illu heilli dómaranefnd, er skipuð
þremur mönnum, 2 eru skipaðir
af KSf og 1 frá dómarasam-
bandinu. Þessi nefnd, en ekki
dómarasambandiö, raðar dóm-
urum niður á leiki og þessi nefnd
heyrir undir KS( en ekki dómara-
sambandið. Vonast ég nú til aö
óg þurfi ekki að sýna formanni
KSÍ fleiri gul spjöld vegna þessa
máls.
Hitt er svo aftur annað mál
að vissulega er talsverður kostn-
aður því samfara að senda
dómara landshluta á milli. En það
hefur alveg gleymst í þessari
umræðu að íþróttafélögin vel
flest hafa alveg vanrækt dómara-
málin með þeim afleiðingum að
nú eru t.d. aðeins fimm lands-
dómarar á Norður- og Austur-
landi, sem fullnægja þeim kröfum
sem gerðar eru, 3 A-dómarar (1.
deild) og 2 B-dómarar (2. deild).
Á þessu svæði eru Þór í 1. deild,
KA, KS, Völsungur og Einherji í
2. deild og KA í 1. deild kvenna.
Það segir sig sjálft að fá verður
dómara annars staðar frá á
svæðið þar sem stundum eru
tveir, þrír og jafnvel fjórir leikir á
Norðurlandi sama daginn.
F.h. stjórnar Knattspyrnu-
dómarasambands íslands,
Heimir Bergmann.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
• Freyr Sverrisson er hér kominn einn í gegnum vöm FH og fram
hjá Gunnari Straumland en hann náði ekki til boltans og ekkert varð
úr þessu annars ágæta marktækifæri.
KR vann
KR-ingar brugðu sór norður á
Akureyri til þess að leika við Þór
í 1. deild kvenna í gærkvöldi. Eft-
ir að seinka þurfti leiknum tals-
vert vegna þess hve seint
KR-ingar komu norður sökum
þoku á flugvellinum tókst að leika
leikinn og Vesturbæjarliðið skor-
aði þrjú mörk í fyrri hálfleik og
eftir það var ekki meira skorað í
leiknum.
Mörkin gerðu þær Margrét
Leifsdóttir og Kristrún Heimis-
dóttir sem skoraði tvö mörk.
Létthjá r
ÍA-konum
ÞAÐ var frekar auðveldur leikur
hjá Skagastúlkum í gærkvöldi er
þær fengu Haukana f heimsókn
upp á Akranes. Fjögur mörk f fyrri
hálfieik og þrjú f þeim síðari
þannig að lokatölur urðu 7:0 fyrir
Karítas Jónsdóttir skoraði þrjú
marka Skagastúlknanna og Ásta
Benediktsdóttir tvö en þær Sæunn
Sigurðardóttir og Kristín Reynis-
dóttir gerðu eitt mark hvor.
Liverpool kaupir
Frá Bob Hennessy, fróttaritara Morgunblaösins f Englandi.
LiVERPOOL keypti f gær Barry
Venison, fyrirliða Sunderland og
enska landsliðsins undir 21 árs.
Venison er 21 árs gamall og leik-
ur stöðu hægri bakvarðar og
þykir mjög efnilegur leikmaður.
Kaupverðið var 200.000 pund.
Fyrrverandi Liverpool-leikmaður
og núverandi framkvæmdastjóri
Glasgow Rangers, Graeme Sou-
ness, gerði í gær tilboð í Terry
Butcher og er tilbúinn að greiða
Ipswich 800.000 pund fyrir kapp-
ann. Forráðamenn Ipswich hafa
samþykkt kaupin en Butcher er
ekki enn búinn að gefa ákveðið
svar.
Knattspyrna:
Þrjú hraðmót
íHollandi
FYRR á þessu ári var aflátt leik-
banni enskra fólagsliða f Evrópu.
Þau máttu ekki leika á umráða-
svæði UEFA en nú mega þau
leika f æfingamótum þó svo þeim
sé enn meinuð þátttaka f Evr-
ópukeppnum. Ensku liðin hafa
nýtt sér þetta vel og f ágúst verða
þrjú hraðmót f Hollandi þar sem
lið frá Englandi eru meðal þáttt-
akenda f tveimur.
Fyrsta mótið verður í Rotterdam
og þar leika heimamenn, Feye-
noord, Werder Bremen, Santos frá
Brasilíu og Everton. Mót þetta
verður 1. til 3. ágúst.
( Eindhoven leika heimamenn,
Anderlecht, Mönchengladbach og
lið frá Brasilíu sem heitir Gremio.
Þetta mót er 9. og 10. ágúst og
dagana 8. og 9.ágúst leika Ajax,
Manchester United, Dinamo Kiev
og Botago frá Brasilíu og fer þetta
mót fram í Amsterdam.
Hér er tilvalið tækifæri fyrir ís-
lendinga sem verða á ferðinni í
Evrópu að líta á nokkur frægustu
lið Evrópu og sjá góða knatt-
spyrnu.