Morgunblaðið - 31.07.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
Lögreglan
leitaði að
fíkniefnum
FÍKNIEFN ADEILD lögreglunn-
ar í Reykjavík leitaði í tveimur
húsum í Reykjavík aðfaranótt
gærdagsins. Ekki fundust nein
fíkniefni, en lagt var hald á áhöld
sem notuð eru við neyslu fíkni-
efna.
Lögreglan sagði að grunur hefði
leikið á að fólk í húsum þessum
hefði fíkniefni undir höndum, en
eins og áður sagði fannst ekkert
við leitina. Sex voru þó fluttir á
lögreglustöð til yfirheyrslu, en var
sleppt að henni iokinni.
Veiðiþjófar
í Kollafirði
LÖGREGLUNNI í Hafnarfirði
var tiikynnt í gær að líklega
væri net í sjó í Kollafirði og var
óttast að það tilheyrði veiðiþjóf-
um sem væru á höttunum eftir
laxi. Lögreglan fann netið og
revndist þá vera einn sex punda
lax í því.
Það var um klukkan 19 í gær
að gæslumenn við laxeldisstöðina í
Kollafirði tilkynntu að þeir teldu sig
sjá net í sjó í Kollafirði miðjum,
undan Naustanesi. Lögreglan fékk
til liðs við sig mann úr björgunar-
sveitinni á Kjalamesi og flutti hann
lögreglumenn að netinu í gúmbát.
Reyndist þá vera einn lax í netinu,
sem sennilega er ýsunet. Gæslu-
menn laxeldisstöðvarinnar sögðust
hafa tekið eftir hvítum báti á firðin-
um að undanfömu, en settu farir
hans þá ekki f samband við veiði-
þjófnað.
Alltaf fjölgar
þeim sem
kærðir eru
SÍFELLT fleiri eru kærðir fyrir
of hraðan akstur því lögreglan
hefur verið við hraðamælingar
um allt land frá síðustu helgi. Á
þriðjudag voru 46 ökumenn
kærðir og 180 áminntir fyrir að
aka of greitt.
Sá hópur ökumanna sem kærðir
hafa verið fyrir of hraðan akstur
frá því að herferð lögreglunnar og
Umferðarráðs hófst stækkar því
stöðugt og nú hafa 358 verið kærð-
ir og 1.838 hlotið áminningu.
Lögreglan heldur áfram mælingum
næstu daga, enda er mesta ferða-
helgi landsmanna, verslunarmanna-
helgin, að nálgast.
Morgunblaðið/ J úiíus
Birgir Siguijónsson með símastrengi sem skemmdarverkamenn
hjuggu sundur á Hellisheiði nýlega. Ljósleiðarastrengurinn er til
vinstri. Taldi Birgir það hafa tekið viðkomandi hátt í tvo tima að
ná þeim í sundur.
Skemmdarverk unnin
á ljósleiðarastrengjum
SKEMMDARVERK hafa verið unnin á nýja Ijósleiðarastrengnum
sem verið er að leggja frá Reykjavík austur að Hvolsvelli, þar
sem hann lá i skurði skammt vestan við skiðaskála ÍR sunnan
við Skarðsmýrarfjall á Hellisheiði. Áætlað er að viðgerð kosti
um 200 þús. krónur.
Skemmdimar á strengnum
uppgötvuðust þegar starfsmenn
Pósts og síma mældu hann og
röktu bilunina að skemmdunum.
Strengurinn var lagður fyrir hálf-
um mánuði og lá ofan í skurði.
Strengurinn er yfirleitt plægður
niður en þar sem mikið er um
gijót er grafinn skurður og
strengurinn lagður þar í.
Á einum slíkum stað höfðu ljós-
leiðarastrengurinn og venjulegur
símastrengur sem er lagður með
honum, verið höggnir í sundur.
Ekki var búið að hylja strenginn
og þvi auðvelt að komast að hon-
um.
„Það er erfítt að ímynda sér
hvaða tilgangur liggur að baki
þessu verki," sagði Birgir Sigur-
jónsson, yfirdeildarstjóri línudeild-
ar Pósts og síma, þegar
Morgunblaðsmenn skoðuðu
skemmdimar. „Eftir verksum-
merkjum að dæma, giska ég á
að það hafi tekið skemmdarvarg-
inn allt að tvo tíma að sarga
strengina sundur.“
Málið er nú í höndum lögregl-
unnar á Selfossi, og RLR hefur
fengið strenginn til rannsóknar.
Einn starfsmanna Pósts og síma
varð var við rauðan Scout-jeppa
á þessum slóðum 21. júlí. Allír
sem hafa orðið varir við manna-
ferðir á þessum slóðum eru beðnir
að láta lögregluna í Ámessýslu
vita.
Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík:
Undirbúningur næstu
þingkosninga hafinn
STJÓRN fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík hefur
ákveðið að auglýsa eftir fram-
boðum til kjömefndar fulltrúa-
ráðsins vegna alþingiskosning-
anna sem framundan eru.
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, framkvæmdastjóri fulltrúa-
ráðsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hér væri
stigið fyrsta skref til undirbúnings
næstu þingkosninga. Hann kvað
verkefni kjömefndarinnar, að gera
tillögu til fulltrúaráðsins um skipan
framboðslista flokksins, ef prófkjör
væri ekki viðhaft, en þegar um próf-
kjör væri að ræða, væri kjömefnd-
inni ætlað að koma saman
prófkjörslista og gera tillögu um
framboðslista að prófkjöri loknu.
Gunnlaugur kvað það venju að
kjósa kjömefnd fulltrúaráðsins í
Reykjavík með góðum fyrirvara.
Kjömefnd vegna borgarstjómar-
kosninganna í maí sl. hefði verið
kosin í september í fyrra og próf-
kjör vegna kosninganna farið fram
í nóvember. Hann sagði að ákvörð-
un um prófkjör fyrir þingkosning-
amar hefði enn ekki verið tekin,
en það væri verkefni almenns fund-
ar fulltrúaráðsins.
Margeir einn efstur
MARGEIR Pétursson stórmeist-
ari er nú einn efstur á alþjóðlega
skákmótinu í Gausdal í Noregi
með 4 xh vinning. Hann vann
Bjarke frá Noregi í 5. umferð,
sem tefld var í gær. Margeir
hafði svart, en náði strax undir-
tökunum og Norðmaðurinn lagði
niður vopnin eftir 40 leiki.
Jafnir í 2.-3. sæti eru tékknesku
stórmeistaramir Jansa og Plachetk-
ha með 4 vinninga. Þeir tefldu
saman í 5. umferð og gerðu jafn-
tefli. Sex skákmenn koma svo á
hæla þeirra með 3‘/2 vinning. Karl
Þorsteins vann skák sína í gær og
hefur nú 3 vinninga. Þröstur Áma-
son vann einnig og er kominn með
2 vinninga, en Hannes Hlífar Stef-
ánsson tapaði og hefur því enn IV2
vinning.
Ráðherra gengur
gegn Skólamála-
ráði Reykjavíkur
Menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, setti á mánudag
Bjarna Daníelsson skólastjóra
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands (MHÍ). Á fundi sínum 16.
júlí sl. tók Skólamálaráð
Reykjavíkur afstöðu til umsækj-
enda um stöðuna að beiðni
Sverris. Atkvæði í ráðinu féllu
þannig að Torfi Jónsson, sem
hefur verið settur skólastjóri
undanfarin 4 ár, hlaut 4 at-
kvæði. Einn fulltrúa sat hjá. „Eg
er mjög undrandi á þessari
ákvörðun Sverris,11 sagði Einar
Hákonarson, fyrrverandi skóla-
stjóri MHÍ í samtali við Morgun-
blaðið. „Eg skil ekki af hveiju
ráðherrann tekur ekki tillit til
vilja fræðsluráðs í Reykjavík,
ekki síst þar sem borgin greiðir
tæpan helming kostnaðar við
skólann.“
Einar sagði að hann hefði ekki
fengið svar við því af hveiju starfið
hefði yfirleitt verið auglýst iaust til
umsóknar. Torfi væri búinn að vera
settur skólastjóri í ijögur ár og
hefði að sínu mati staðið sig mjög
vel. Ráðherra hefði því átt að skipa
hann nema gild rök mæltu gegn því.
Umsækjendur um stöðuna voru
sex, Bjami Daníelsson, Daði Guð-
bjömsson, Edda Óskarsdóttir,
Halldór B. Runólfsson, Ríkarð
Hördal og Torfi Jónsson. Þorbjöm
Broddason fulltrúi Alþýðubanda-
lags í skólamálaráði sagði að
ástæðan fyrir hjásetu sinni hefði
verið sú að hann treysti sér ekki
til að taka afstöðu nema eftir Iengri
umhugsunarfrest. Hinsvegar hefðu
aðrir í ráðinu ekki hikað við að
greiða atkvæði, og sagðist hann
skilja afstöðu þeirra.
I vor, eftir að skóla lauk, gekk
stuðningsyfirlýsing við Torfa Jóns-
son milli kennara við skólann. Að
sögn Braga Asgeirssonar kennara
skrifuðu nær allir þeir sem náðist
til undir hana. Undirskriftalistinn
var síðan sendur Sverri Hermanns-
syni, nokkru áður en ljóst var
hveijir sæktu um stöðuna.
Auglýsendur
athugið
Vegna verslunarmannahelg-
arinnar kemur Morgunblaðið
ekki út sunnudaginn 3. ágúst.
Næsta blað eftir helgina kem-
ur út miðvikudaginn 6. ágúst.
Ráðherrar fara
fram á 43 millj-
arða fjárveitingu
FJÁRLAGAGERÐ fyrir næsta
ár var á dagskrá fundar þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, sem
Bjór í Berki
VIÐ LEIT Tollgæslunnar um
borð f Berki NK 122 á þriðjudag
fundust 55 kassar af bjór. Skipið
var þá að koma frá Grimsby í
Englandi.
Fimm menn frá Tollgæslunni í
Reykjavík komu til Neskaupsstaðar
á þriðjudagsmorgun og fóm út í
skipið þar sem það lá undan landi
á Norðfirði. Leituðu þeir frá klukk-
an 10 um morguninn og næstu 6
tímana og fundu, eins og áður
sagði, 55 kassa af bjór.
hófst á Sauðárkróki í gær. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins hafa ráðherrar stjómarflokk-
anna farið fram á rúmlega 43
milljarða króna fjárveitingu á
næsta ári.
Sömu heimildir herma að stefnt
sé að því að afgreiða Ijárlög með
1,3 milljarða króna halla og að gjöld
ríkissjóðs verði 38,3 milljarðar. Enn
er ekki ljóst hvemig komið verður
á móts við beiðni einstakra ráðu-
neyta.
Á fundinum vom bankamál einn-
ig rædd og þá sérstaklega málefni
Utvegsbankans, en engar ákvarð-
anir vom teknar. Haldið verður
áfram að ræða fjárlög næsta árs
og bankamál á fundi þingflokksins
í dag.
Ráðherrarnir og handritin
FORMLEG lok handritamálsins fara fram við hátíðlega athöfn
á Þingvöllum á morgun, en í gær litu Bertel Haarder, kennslu-
málaráðherra Danmerkur, og Svemr Hermannsson, mennta-
málaráðherra, á handritin í Stofnun Arna Magnússonar. Á
myndinni fræðir Jónas Kristjánsson, forstöðumaður stofnunar-
innar, ráðherrann danska um handritin. Yfir axlir þeirra fylgist
menntamálaráðherra vel með og sendiherra Dana á íslandi,
Hans A. Djurhuus, er hægra megin við Haarder.