Morgunblaðið - 31.07.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
5
[
Starfshópur
um öiyg-gis-
mál ríkisins
RIKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum á þriðjudag að myndaður
skyldi starfshópur tO að fjaUa um leiðir tU þess að auka samstarf
þeirra ráðuneyta og stofnana er starfa með einhveijum hætti að
öryggismálum ríkisins.
Starfshópur þessi er skipaður
ráðuneytisstjórum dómsmálaráðu-
neytis og utanríkisráðuneytis,
skrifstofustjóra vamarmálaskrif-
stofu og lögreglustjóranum í
Reykjavík, undir forystu Baldurs
Möller, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóra, sem er fulltrúi forsætisráð-
herra.
I fréttatilkynningu frá ríkis-
stjóminni segir, að til þess sé ætlast
að starfshópurinn geri tillögur um
úrræði er stuðli að markvissu starfi
til að vinna gegn og uppræta ólög-
mæta starfsemi er skaðað gæti
íslenska ríkið og öryggi þess. Þá
er þess óskað að starfshópurinn
geri tillögur um samræmingu ráð-
stafana til eflingar innra öryggi í
stjómkerfinu. Telur ríkisstjómin
rétt að athugað verði með hvaða
hætti nágrannaþjóðir okkar, eink-
um Danir og Norðmenn, haga
öryggismálum sínum.
Starfshópur þessi á að skila nið-
urstöðum sínum til ríkisstjómarinn-
ar innan sex mánaða.
Atvinnumálanefnd Vestmannaeyja:
Þriggja mílna
landhelgi um-
hverfis Eyjar
Vestmannaeyjum.
Á NÆSTA fundi bæjarstjórnar
Vestmannaeyja verður væntan-
lega tekin afstaða til fram-
kominnar tillögu atvinnumála-
nefndar um sérstaka fiskveiði-
landhelgi við Vestmannaeyjar,
sem nái þijár sjómílur frá fjöru-
borði allra eyja og dranga.
Formaður atvinnumálanefndar,
Magnús H. Magnússon, fyrrverandi
alþingismaður, lagði tillöguna fram
í nefndinni og var hún þar sam-
þykkt og send bæjarstjórn til
afgreiðslu. Tillaga Magnúsar hljóð-
ar svo: „Atvinnumálanefnd sam-
þykkir að leggja til við bæjarstjóm
að hún óski þess við sjávarútvegs-
ráðuneytið, með vísun til 7. greinar
laga nr. 81/1976 um veiðar í fisk-
veiðilandhelgi íslands, að hið fyrsta
verði sett reglugerð sem banni allar
veiðar með flotvörpu og botnvörpu,
aðrar en húmartroll, í þriggja
sjómílna fjarlægð frá ijöruborði
allra eyja og dranga í Vestmanna-
eyjum. Þó verði þeim bátum, sem
nú em gerðir út frá Vestmannaeyj-
um og stunda botnvörpuveiðar og
hafa 400 hestafla aðalvél eða minni,
veitt árstíðabundin undanþága frá
þessu banni. Sú undanþága verði
endurskoðuð að tveimur ámm liðn-
um. Nefndin samþykkir að leita
umsagnar Vestmannaeyjadeildar
fiskifélagsins, útvegsbændafélags
Vestmannaeyja og sjómannafélag-
Börn í beltum
fá viðurkenning'u
FYRIR og um verslunarmanna-
helgina mun Umferðarráð og
lögreglan um allt land veita þeim
börnum er sitja i bílbeltum eða
barnabílstól viðurkenningu.
Um er að ræða kort með ferða-
leikjum og hollráðum, rissblokk og
Tópaspakka frá Nóa hf. Fyrirtækið
gaf þrjú þúsund Tópaspakka í þessu
skyni, en á loki þeirra er einmitt
ábending til fólks í bílum: „Spenn-
um beltin — sjálfra okkar vegna".
Nói hf. er einn þeirra aðila er ljáð
hefur umferðarmálum lið með því
að hafa þessi hvatningarorð á töflu-
pökkum sínum endurgjaldslaust
árum saman segir í fréttatilkynn-
ingu frá Umferðarráði.
anna í bænum áður en endanleg
ákvörðun verður tekin."
V I Ð
E I G U M
A L L T I
V E I Ð I -
FERÐINA
Með von
um góða
veiÖi um
verslunar-
manna-
helgina
Langholtsvegi 111 Ajy
104 Reykjavík ) 6870 90
Sem allir hafa beðið eftir
HÓFST í GÆR
VERSLUNUM
Toppsum-
arvörurá
mjög hag-
stæðuverði.
Einstakt
tækifæri til
hagstæðra
kaupa fyrir
aðalhelgi
sumarsins.
afsláttur
/V' /
ife'" ÉÍ
LAUGAVEGI 66 — AUSTURSTRÆTI 22 — GLÆSIBÆ. SIMI FRA SKIPTIBORDI 45800.
4^ Í^uMu.rMi 32