Morgunblaðið - 31.07.1986, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
13
Hvar sem þú ferðast
— þá farðu með gát
eftir Hannes Þ.
Hafstein
Þegar þessi vamaðarorð eru
skrifuð hafa 45 látið af slys-
förum hér á landi á móti 30 til
jafnlengdar á sl. ári. — í þeim
flokki sem kallast sjóslys og
drukknanir hafa 12 látist en 11
á sl. ári. t umferðarslysum hafa
orðið 17 banaslys en 12 á sama
tíma í fyrra.
í flugslysum hafa 8 manns lát-
ist en enginn á árinu 1985. Af
ýmsum orsökum hafa orðið 8
banaslys en 7 á sl. ári.
Þessar staðreyndir ættu menn
að hugleiða og festa sér vel í minni.
Sérstaklega þegar nú fer í hönd ein
mesta útivistar- og umferðarhelgi
ársins. Þúsundir ferðamanna leggja
leið sína út á þjóðvegina til hinna
fjölmörgu fögru staða, sem íslensk
náttúra geymir. Margir leita kyrrð-
arinnar á öræfum uppi og aðrir
þreyta kapp við sprettharðann fisk
í ám og vötnum. Hinir verða þó
fleiri, sem halda til mannfagnaða á
skipulögðum mótssvæðum, þar sem
fórnfús sjálfboðastörf hafa verið
innt af hendi til að búa sem best í
haginn fyrir þá er þangað sækja.
Því er það heilög skylda mótsgesta
að fara í einu og öllu eftir þeim
reglum, sem mótsstjórnir setja á
hverjum stað. Þær eru fyrst og
fremst settar til að skapa móts-
gestum vingjamlegt viðmót, meira
öryggi og gera dvölina ánægju-
legri. Margir eru þeir, sem eru að
leggja upp í sína fyrstu útilegu, og
eiga því margt ólært og óreynt.
Þeirra besta veganesti er að leita
ráða hinna reyndari um hagkvæm-
an klæðnað og öruggan útbúnað.
Ferðaáætlun og margvíslegur und-
irbúningur ferðarinnar er upphaf
hennar og hvemig slíkt til tekst er
forsenda ánægjulegra og farsælla
ferðalaga. Hollt er hveijum að hug-
leiða í upphafi fei-ðar hvað fyrir
kann að koma til þess að vera sem
best undir það búinn að mæta hinu
óvænta.
Ef ferðaáætlun breytist, önnur
leið valin, eða dvölin framlengd frá
því sem í upphafi var ætlað, þá
reynið ávallt að koma boðum þar
um til þeirra sem heima bíða. Það
er sjálfsögð tillitssemi og nærgætni
við sína nánustu, sem áreiðanlega
er þakksamlega þegin og kemur í
veg fyrir óþarfa áhyggjur og eftir-
grennslanir.
Á meðan dvalið er í útilegunni
er tjaldið heimili ferðamannsins og
tjaldstæðið garðurinn.
Frá mörgum hinna fegurstu
staða em sagðar miður fagrar sög-
ur um sóðaskap, spjöll á gróðri
jarðar og skemmdarverk á ýmsum
hlutum. Landvemd er hugtak, sem
allir ættu að tileinka sér. Göngum
vel um landið minnug þess að ill
umgengni, trassaskapur og hirðu-
leysi er augljós slysavaldur, hvar
svo sem er.
Alltof mörg slys og óhöpp hafa
hent, er rekja má til þekkingarleys-
is og vankunnáttu í meðferð
gastækja. Sinnið slíkum búnaði af
gætni og farið ávallt varlega með
eld, hvort heldur er inni í tjöldunum
eða utan þeirra. Mjög er nú í tísku
að nota ferðagrill til matseldar í
útilegunni og verður ávallt að gæta
fyllstu varúðar í meðferð þeirra.
Tryggja verður að þau séu stöðug
og forðast ber að úða eða sprauta
á viðarkolin eftir að þau taka að
sviðna. Augljós sprengihætta er því
samfara. Þótt nú ríki langir dagar
og bjartar nætur, tekur sumri fyrr
að halla en margur heldur og
síðsumarsrökkrið sest snemma að.
Handhægar luktir verða því ávallt
að teljast til fastabúnaðar í útileg-
unni á þessum árstíma.
Það hefur löngum þótt íþrótt góð
að renna fyrir fisk í ám og vötnum
og fara í bátsferðir um víðfeðm
fjallavötn. En oft er það svo að sjálf-
sögð aðgæsla og varúð gleymast í
ákafa veiðimennskunnar og gáska
stundargamans. Staðhættir og aðr-
ar aðstæður eru ekki metnar sem
skyldi og því hafa alvarleg slys af
hlotist. Veðráttan ísienska er um-
hleypingasöm og misvinda er jafnan
að vænta við fjallavötnin með
krappri vindbáru, sem litlum og
léttbyggðum bátum stafar hætta
af. Það er því að mörgu að hyggja
áður en ýtt er frá landi. Gangið úr
skugga um að bátur og vél séu í
fullkomnu lagi og annar nauðsyn-
legur búnaður ávallt meðferðis, árar
og ræði, tóg og austurtrog, einnig
ljós og flautur til merkjagjafa. Lát-
ið alla klæðast björgunarvestum og
ofhlaðið ekki bátinn af fólki eða
farangri. Hreyfíð ykkur sem minnst
og sýnið sérstaka varúð, ef skipta
þarf um sæti. Hvolfí bátnum þá
reynið að komast á kjöl og vekið á
ykkur eftirtekt. Hér geta mínútur
skipt máli svo köld sem íslensku
fjallavötnin eru. Þá verður að
áminna alla þá, sem eru við stjóm
hraðskreiðra báta að draga skilyrð-
islaust úr ferð þeirra, þar sem minni
fleytur em í nánd, segl- eða árabát-
ar.
Hin ört vaxandi og hraða umferð
ætti að vera okkur öllum mikið
áhyggjuefni svo stórra fóma, sem
hún krefst ár hvert, bæði í þéttbýli
og á þjóðvegum úti.
Eins og áður var að vikið hafa
þegar orðið 17 banaslys í umferð-
inni og hundmð slasast og margir
liggja örkumla í sjúkrahúsum og
komast aldrei til fullrar heilsu.
Hugleiðum þessar staðreyndir og
látum þær okkur að kenningú
verða. Hvatningu að auknu um-
ferðaröryggi. Hér þarf mikið átak,
samstöðu og samhug Qöldans,
hvers einasta vegfarenda. Akstur á
þjóðvegunum á að vera til hvíldar,
ánægju og afþreyingar. Hann
krefst aðgæslu og góðrar samvinnu
við aðra vegfarendur og að ekið sé
með jöfnum hraða. Góður ökumað-
ur miðar ávallt hraðann við aðstæð-
ur hveiju sinni. Og rétt er að
áminna þá ijölmörgu reiðhjóla- og
bifhjólamenn, sem fara um þjóðvegi
landsins að nota höfuðhjálma, og
klæðast ávallt yfírhöfnum í áber-
andi lit. Skiptir þar engu hvort
veður er þurrt og bjart eða skyggni
slæmt vegna þoku og súldar. Hið
sama ættu ökumenn bifreiðanna að
temja sér varðandi notkun ökuljósa.
Notkun þeirra skapar ótvírætt mik-
ið öryggi þegar ekið er um vegina.
Á þessum tíma árs eru flestir
fjallvegir orðnir færir og ferðir um
öræfaslóðir verða æ algengari.
Hvorttveggja er að fleiri og fleiri
leiðir um hálendið eru færar fólks-
bifreiðum og svo eru bifreiðir með
drifí á öllum hjólum miklu algeng-
ari í dag, en var fyrir nokkrum
árum. En hætturnar á hálendinu
eru ávallt hinar sömu og því þarf
að undirbúa slíkar ferðir vel og leita
upplýsinga hjá gagnkunnugum áð-
ur en lagt er af stað. Sérstaklega
verður að gæta varúðar og fyrir-
„Skyndihjálp er hin
fyrsta bráðabirgða-
hjálp, sem veitt er á
slysstað, með fáum og
fábrotnum hjálpar-
gögnum. Vel búinn
sjúkrakassi er því
ómissandi í ferðalagið.
Hafið slíkan búnað
ávallt tiltækan í bílnum
og bátnum, í tjaldinu
og sumarbústaðnum.“
hyggju þegar aka þarf yfír hin
fjölmörgu óbrúuðu straumvötn á
öræfaslóðum. Leggið aldrei út í
straumvötn á litlum aflvana bifreið-
um með illa varða vél og rafkerfí.
Hannes Þ. Hafstein
Treystið aldrei að óreyndu að hjól-
för sem liggja út í straumvötn sé
sönnun þess að þar sé greiðfært.
Kannið vöðin af fyrirhyggju og
kynnið ykkur botninn og straum-
lagið. Vert er að hafa í huga að
straumvötn skipta oft um farveg
og verða að skaðræðisfljóti á
skömmum tíma.
Skyndihjálp er hin fyrsta bráða-
birgðahjálp, sem veitt er á slysstað
með fáum og fábrotnum hjálpar-
gögnum. Vel búinn sjúkrakassi er
því ómissandi í ferðalagið. Hafíð
slíkan búnað ávallt tiltækan $
bflnum og bátnum, í tjaldinu og
sumarbústaðnum. Þegar komið er
á slysstað þá setjið upp viðvörunar-
merki svo aðrir sem leið eiga þar
um geti gert sér grein fyrir því,
hvað fyrir hefur komið og að þörf
sé á hjálp þeirra og aðstoð.
Þegar tilkynnt er um slys og
aðstoðar er óskað þá munið að til-
greina sem gleggst hvar slysstaður-
inn er — hvers eðlis slysið er —'
fjölda hinna slösuðu og hversu al-
varleg meiðsli þeirra eru. Greinið
frá nafni ykkar — hvar stödd —
hvaðan hringt og símanúmer. Bíðið
átekta svo hægt sé að ná til ykkar,
ef leita þarf frekari upplýsinga og
jafnframt til þess að hægt sé að
láta ykkur vita um væntanlega
hjálp og aðstoð, og í hveiju hún sé
fólgin.
Að lokum eitt, ágæta ferðafólk.
Forðist samneytið við Bakkus, sem
alltof oft hefur reynst óheill ferðafé-
lagi og verið orsök hörmulegra
slysa.
Slysavamafélag íslands óskar
ykkur öllum góðrar ferðar, ánægju-
legrar útivistar og hvetur til
varúðar á öllum leiðum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Slysavamafélags íslands.
SIYSAVARNAFEIAG ISLANDS
________NEVDARSlMI 91-27111
HJÁLPOGAÐSroÐ-LHT OG BJÖRGUN
SUMAR á Vesturlandi
Ferðafólk...
Allir vegir liggja til Rómar en leiðin vestur og norður um land, eða
suður liggur um Borgarnes. Og þar er Vöruhús Vesturlands.
Það er enginn vegur að telja upp það sem fæst í Vöruhúsinu. Við
segjum einfaldlega: Þar fæst allt í einni ferð.
Það sem gleymdist heima þegar lagt var af stað, maturinn til að
haldaferðinni áfram, allttil útivistar, smáhlutirtil að hafaofan af fyrir
börnunum og blöð og tímarit handa þeim fullorðnu.
Það borgar sig að I íta við í Vöruhúsinu. Þú átt hvort eð er leið hjá.
Vöruhús Vesturlands Borgarnesi sími 93-7200