Morgunblaðið - 31.07.1986, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
15
Betri
á plötu
Sveinbjörn I. Baldvinsson
NH0P-Tríó í Tjaldinu sl.
sunnudagskvöld.
Lokaatriði N’ART-hátíðarinnar
1986 var veglegt og vel sótt. Það
voru djasstónleikar með tríói
bassaheimsmeistarans danska,
Niels Henning 0rsted Pedersen.
Félagar hans að þessu sinni voru
þeir Palle Mikkelborg, trompet og
rafgræjur og Kenneth Knudsen,
hljómborð. Allir eru þessir þre-
menningar frægir í heimalandi
sínu fyrir margháttuð afrek á
sviði riþmískrar tónlistar. Þar fyr-
ir utan er svo NH0P auðvitað
heimsfrægur. Palle Mikkelborg er
líka pínu heimsfrægur eftir að
Miles nokkur Davis varð stórhrif-
inn af verki sem hann samdi Miles
þessum til heiðurs. En nota bene,
Miles þessi Davis er hvorki meira
né minna en Djasstrompetistinn
með ákveðnum greini og stórum
staf.
Á fræðimannabekk í Tjaldinu
sl. sunnudagskvöld vörðust menn
allra frétta og djasslandafræðileg-
ar staðsetningar á atriðum
kvöldsins voru í besta falli hafðar
í flimtingum. En hvað um það.
Þegar snjallir menn spila saman
getur útkoman aldrei orðið mjög
slæm.
Enda var ekki svo þetta kvöld.
Hins vegar mundi einhver segja
að tölvupoppið hafi nú eignast
giska öfluga bandamenn. Tónlist
þeirra þremenninga, sem öll var
frumsamin, einkenndist mikið af
öflugri synthesizer-notkun og
tölvutrommi.
Hin nýja „Samba petite" bassa-
leikarans var kærkomin hvfld frá
þessu. Hún var unun á að hlýða
og höfundurinn kvaðst þar
skemmtilega á við sjálfan sig og
fyrri verk sín. í öðru verki þetta
kvöld sannaði NH0P svo ekki
verður um villst að hann getur
spilað jafn hratt og besti tölvu-
bassi. Það var í miklu rafmagns-
verki eftir Mikkelborg.
Mikkelborg hefur komið sér
upp ansi skemmtilegum
hvíslhljómi á trompetið, en heldur
fannst mér elektrónikkinni fatast
flugið í spunanum. Sat þá eigand-
inn eftir með sárt ennið og komst
hvergi af eigin rammleik. Líklega
betri kompónisti en sólisti, Páll
af Mikluborg. Verk hans við mynd
eftir Degas var einn af hápunkt-
unum.
Kenneth Knudsen er víðkunnur
í dönsku poppi og djassrokki.
Hann er mikill hljómtæknifræð-
ingur og oft tápmikill við takkana.
Þegar tími gafst til átti hann veru-
lega áheyrilega leiki f sólóum
sínum. Ballaða hans „Heart to
Heart" var snotur og salsan,
„Song for Henry“, bráðlétt og
leikandi.
Hljómurinn í Tjaldinu var ekki
í fullkomnu lagi, enda ekki auð-
velt að eiga við svona miklar
græjur við þessar aðstæður. Það
gerðist ekkert það í tónlistinni
þetta kvöld sem komst nokkuð f
námunda við tóngaldur Masqual-
ero manna frá Noregi, viku fyrr.
Þá voru áhorfendur hins vegar
hálfu færri. Það gengur svona.
Það er svoleiðis með djass eins
og margs konar tónlist aðra að
sumt af honum nýtur sín betur í
tónleikasal en á plötu. Þetta á
ekki við um tónlistina sem HN0P,
Mikkelborg og Knudsen frömdu í
Tjaldinu. Hún hlýtur £ið vera betri
á plötu. Hún á það fyllilega skilið.
FRABÆR
AFELAGI
Létt reyktur kjúklingur er hið mesta hnossgæti og
ísfugl er fyrstur til að kynna þetta Ijúfmeti á íslenskum
matvælamarkaði.
Kjúklingurinn er gufusoðinn og léttreyktur, tilbúinn til
neyslu kaldur eða upphitaður.
Sérlega bragðgóður og frábær í ferðalagið.
Gleymdu ekki létt reykta kjúklingnum fyrir ferðina.
HEILIR KJÚKLINGAR • KJÚKLINGABITAR * UNGHÆNUR • KALKÚNAR • HELGARKJÚKLINGUR-VEISLUKJÚKLINGUR-BARBECUE BITAR-GRILL PARTY KJÚKLINGUR • KJÚLLETTUR • REYKTUR KJÚKLINGUR