Morgunblaðið - 31.07.1986, Síða 17

Morgunblaðið - 31.07.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986 17 Gúrkutíð í Sjónvarpinu Nokkurskonar hugleiðing eftir Þorgeir Þorgeirsson Nú heitir gúrkutíð á blaðamanna- máli. Atburðir fara varla á kreik fyren sumarleyfum lýkur. Pólitík gerist ekki fyren dag tekur aftur að stytta. Hún er einsog bakteríugróður sem kviknar í hauströkkrinu, dafnar í skammdegisdrunga og heltekur fólk á vorin líkt og útmánaðaslenið gamla. Ekki veit ég hvort þetta er slæmt. Þjóðveldið hrundi líka þóað pólitík væri þar einvörðungu stund- uð meðan björtust var nóttin. Það er einsog málefni þessarar þjóðar væru þar einvörðungu stund- uð meðan björtust var nóttin. Það er einsog málefni þessarar þjóðar ætli að þrífast jafnilla við rafmagnsljós nútímans og sólar- birtu fortíðarinnar. Engum gerir það hvorteðer til nema okkur sjálf- um. En í miðri þessari hvanngrænu gúrkutíð setur Ríkisútvarpið sjón- varp á stað umræður með titlinum „Siðferði í stjórnmálum" eða þann- egin sko. Við upphaf og endi Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson Konrad Lorenz: Noch kann man hoffen — Ein Konrad- Lorenz-Brevier. Herausgegeb- en von Heide von Berlepsch — Vorwort von Heinz Friedrich. Deutscher Taschenbuch Ver- lag 1986. Originalausgabe. Fyrir um 35 árum var Konrad Lorenz lítt kunnur, hafði þá sett saman rit um athuganir sínar á fuglum og lifnaðarháttum þeirra. Síðan hefur hver bókin rekið aðra og á sjöunda áratugnum varð hann heimskunnur fyrir bækur sínar um ástand lífríkisins og þær hættur sem steðja að mennskri tilveru. „Staða mannsins í al- heiminum" er deiluefni nú eins og fyrrum. Er maðurinn eitt dýr- ið af ótal dýrategundum, stjórnast hann einungis af hvötum og nátt- úrlegum þörfum, er hann óábyrg- ur gerða sinna? Eða er maðurinn „annars eðlis“ en hver önnur skepna? Konrad. Lorenz heldur því fram að allar lífverur séu fæddar með meðfæddum eigin- leikum, séu gæddar hæfni til þess að „læra“ og til „valfrelsis" innan þeirra marka, sem gerð og lífkerfi setur þeim. Lorenz telur að „mað- urinn“ sé bundinn samskonar kerfi. Því telur Lorenz það vera brýnast að vita hverjir hinir með- fæddu eiginleikar séu í stað þess að neita þeim sem staðreynd. í þessu kveri eru valdar ýmsar lykilhugmyndir Lorenz. M.a. „ ... maðurinn er dýr, en það er ckki rétt að hann sé aðeins dýr.“ Útgefendur skipta efninu niður í smákafla. Um hláturinn segir Lorenz: „ ... hundar sem gelta bíta oft, en maður, sem hlær skýt- ur aldrei.“ Ótti, hatur, árásar- girni, siðfræði, mannást og ást mannna á dýrum, menning, inn- ræting, maðurinn og tæknin, eyðing umhverfísins eru meðal fyrirsagna kaflanna. „Eins og leikþáttarins var andartak kveikt á tveimur af skærustu hugsanalömp- um háskólans okkar og brugðu þeir annarlegri birtu á sviðið þarsem saman hafði verið raðað (einsog gúrkum í kassa) fulltrúum út- varpsráðs, eða talsmönnum svokall- aðra pólitískra flokka hérálandi. Öllum þessum gömlu góðu, semsé, því svonefnd pólitísk um- ræða hefur fyrir löngu tekið á sig form ólæknandi sjúkdómsslens; hospítalisma öllu þó fremur. Því hospítalismi er víst ekki beinlínis sjúkdómur heldur örkuml sem stafa af stöðugum lækningaraðgerðum á meira og minna ímynduðum las- leika. Fyrst var semsé háskólaljósunum brugðið upp og svo fóru gúrkumar að tala. Það er mikið og lamandi kraftaverk þegar gúrkur fara að tala. Tal þeirra getur verið þónokk- uð safamikið á köflum en bragð- laust þó. Og safínn klístrast líka við alt sem nærri er. En þessar gúrkuumræður mintu undirritaðan fljótlega á það að nýlega sagði for- sætisráðherrann okkar setningu við blaðamann DV (eða blaðamaðurinn skrifaði minnstakosti eftir Steingrími), setningu sem eiginlega hefði átt að stífla alla pólitíska umræðu í landinu. Því hún orðar alt það sem pólitíkusar geta haft að segja um þessar mundir. En setningin var þessi: — Eg get náttúrlega ekki end- Konrad Lorenz skógurinn, þarf menningin tíma til þess að vaxa og blómgast, og hún getur eins og skógurinn, bmnnið upp og eyðst á ör- skammri stund.“ Um náttúm- skoðun segir m.a. „vísindamaður- inn er barn síns tíma og þeirrar menningar sem mótar hann.“ Meðan menning mótar hann er ekki hætta á ferðum, en ef svo er ekki þá er Frankenstein meðal vor. Lorenz er mótaður af kenn- ingum Kants og siðferðiskenning- um skynsemisstefnunnar, leiðarljós hans er trú hans á þró- unarkenninguna og meðfædda siðgæðisþörf mannsins. Þess vegna álítur hann að enn sé von um mannheima skynsemi og lífsvirðingar. Lorenz telur að ef grófasta tæknihyggja verði mótunarafl, geti svo farið að mannheimar stefni á þau mýrarljós, sem brenni þá upp að lokum. Þetta kver er ágæt hugvekja og einnig inngangskver að öðrum verkum Lorenz. urtekið annað en það sem ég hefi sagt áður. Er nokkru við þetta að bæta? Jú. Furðusvipnum sem kom á pólitík- usana okkar þegar heimspekipró- fessorinn tilkynti þeim að til væri siðferðilegur veruleiki bæði hér og líka í útlöndum. Það var nú meiri hissan. Ég heyrði á tal gamals sjómanns um daginn, líklega í útvarpinu. Þetta var maður að vestan og kom- inn á eftirlaun. Em þó bæði og hress til líkama og sálar. Hann var spurður hvað hann tæki sér nú fýr- ir hendur. — Ekkineitt! sagði hann. — Nú? sagði þá spuijandinn undrandi. — Ja, mér var aldrei kent að sauma út eða pijóna þegar ég var yngri og móttækilegri. — En þú gætir kanski róið og fengið þér í soðið. — Ja, það er nú það, sagði gamli maðurinn. Nú eru ÞEIR búnir að taka af okkur bæði sjávargæðin og landkostina. — Hvað áttu við? — Skilurðu það ekki? Og sannar- lega veitti okkur þó helst ekki af því að hafa þau gæði núna, væni minn. Fyrir sex árum vann hún tengdadóttir mín hérna í frystihús- inu og fékk þá sem svaraði sjö pottum af mjólk fyrir klukkustund- arvinnu. Nú vinnur hún þar enn, orðin náttúrulega margfalt afkasta- meiri en fær þó bara sem svarar tæplega þrem mjólkurpottum fyrir klukkustundarvinnuna. Og ég segi: ÞEIR em búnir að taka rúmlega ljóra sjöundu af kaupinu hennar svo ekki veitti mér af því að hafa ein- sog kvígu héma í gamla ijósinu mínu ellegar þá að damla mér útá svið öðmhvom að sækja okkur í soðið. Þetta var nú kölluð vestfírska lífsbjörgin hérna á kreppuárunum og fyr líka. En það er barasta bann- að. Við eigum ekki lengur þessi gæði lands og sjávar. Kvígunni yrði slátrað með valdi og ég fangelsaður fyrir róðrana. Það er kominn á þetta kvóti. Einhveijir menn sem hafa fengið það að léni. ÞEIR ráðska með þaðsem við áttum hér forðum daga. ÞEIR ráðska með kaupið Þorgeir Þorgeirsson „Það er einsog málefni þessarar þjóðar ætli að þrífast jafnilla við raf- magnsljós nútímans og sólarbirtu fortíðarinn- ar.“ okkar. ÞEIR ráðska með okkur sjálf einsog réttmæta eign sína. Mér komu þessi orð gamla mannsins þráfaldlega í hug undir gúrkuumræðum sjónvarpsins. Fyrst þegar minst var (í upphafi) á mál vesalings alþýðuleiðtogans sem orð- inn var svo farinn á taugum af því að semja um tíunda hlutann af sínum eigin launum til handa al- múganum að hann varð að biðja aðra burgeisa í enþá hærri tekjus- kölum að hjálpa sér til Flórída í burtu frá þessu öllu. Og svo þegar pólitíkusamir upphófu keðjusöng- inn langa um heiðarleik sinn: — Við látum þjóðarhag ganga fyrir bæði flokkshagsmunum og eigin hag, sögðu þeir allir hver uppí annan. Einsog Bakkabræður í sunndagsfötunum. Og reyndu að sýnast móðgaðir. Engum datt náttúrlega í hug að sputja að því hversvegna þjóðar- hagurinn væri þá í rúst en þeirra eigin hagur í blóma. Vitaskuld ekki. Á þeirri staðreynd hefði getað orðið sú skýring ein að þeir væru að vísu réttu mennimir tilað hugsa um eigin hag en vissulega rangir aðilar tilað hugsa um þjóðarhag. Og þvílíkt tal leyfíst ekki þarsem fulltrúar útvarpsráðs sitja í út- varpssal og taka sig út frammifyrir útvarpshlustendum og sjónvarps- áhorfendum sem enn hafa nokkurs- konar atkvæðisrétt í þessu stórkynduga þverpólitíska nútíma- lénsveldi sem gamli maðurinn einmmitt var að tala svo skilmerki- lega um. Enda hans orð sem einatt vitja mín í þessu samhengi. Þau em svo trúverðug eitthvað. Einhverra hluta vegna þótti heimspekiprófessornum vissra að ítreka það í lokin að siðferðilegur vemleiki væri til og nánar að segja með svipuðum hætti og tungumálið sem við líka eigum sameiginlega þó kunnátta þess og tilfinningin fyrir því sé þetta ótvíræða einka- mál hvers fyrir sig. Nema málleysingjanna vitaskuld. En segðu mér nú eitt, Páll Skúla- son. Getur ekki verið að það sé ennú meiri skyldleiki með þessu tvennu? Hversvegna kom þessi heyrnleysingjasvipur á gúrkufólkið undir ræðu þinni í lokin? Er það hugsanlegt að þessi sífeldi „pólitíski keðjusöngur": Ekki get ég endur- tekið/annaðen þetta sem ég sagði, sé einmitt tunga þeirra sem ekkert verulegt siðferði skilja? Getur það verið að skorinorð lýsing gamla mannsins sé á hinn bóginn tunga þess sem á sér siðferðilegan vem- leika og sálargmndvöll í tilvemnni? Getur það verið að rödd siðferðis- veruleikans sé það einföld og skýr að við þomm ekki að taka mark á henni? Nema þá í einrúmi og hvert fyrir sig. Getur verið að við séum bara farin að halda að siðlaust tómahljóðið í röddum gúrkufólksins sé það eina sem hlusta má á sameig- inlega afþví að þetta er það eina sem lengi hefur fengið að hljóma ofanaf viðurkendum leiksviðum al- mennra stjórnsýslumála. Getur það verið að við þurfum að kalla á Pavl- ov tilað skýra þetta siðferðilega vemleikaspursmál þjóðarinnar sem fjallað var um þarna í absúrdleikrit- inu seinast á dagskrá sjónvarpsins þriðjudaginn 22. júlí síðastliðinn? Gaman væri að fá svör við því. Þorgeir Þorgeirsson CARDINAL 964 Létt grafítspóla með þrýsti- rofa sem auðveldar að sldpta um línu. Innfelld lclemma til að festa línuna. Línan leggst jafnt á hjólið. NÝ HÖNNUÐ LÍNA AF GÆÐAHJÓLUM MEÐ ÝMSUM ATRIÐUM SEM EINFALDA VEIÐAR OG AUKA ÁNÆGJUNA AF ÞEIM. Héma hefur ABU notast við nýjustu framfar- ir í efni og tækniþekkingu. SAbu Garcia HAFNARSTRÆTI 5, REYKJAVIK. SÍMI 1676». Konrad Lorenz- kver

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.