Morgunblaðið - 31.07.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
23
skrárdeildir hafa unnið sámkvæmt
og í samræmi við ákvarðanir út-
varpsráðs um dagskrárefni.
Utvarpsstjóri var áður í útvárps-
ráði og hann veit mæta vel að
breyting í þessa veru á vinnutil-
högun í ráðinu hefur smám saman
verið áð gerast um ,skeið, en hún
hefur ekkert með ákvörðunarvald
ráðsins að gera.
Hlutverk og ákvörðun-
arvald óbreytt
Af orðum útvarpsstjóra í hljóð-
varpi en þó einkum í sjónvarpi 25.
júlí sl. hljóta hlustendur að hafa
ráðið að hlutur útvarpsráðs í stjóm
Ríkisútvarpsins hefði með útgáfu
reglugerðar verið skertur. Ráðið
væri svona meira „upp á punt".
Þetta er alrangt og skal að lokum
eftirfarandi tekið fram til skýringar
til viðbótar því sem þegar er sagt.
í 20. grein útvarpslaga segir svo:
„Útvarpsráð tekur ákvarðanir um
hversu útvarpsefni skuli haga í
höfuðdráttum innan marka fjár-
hagsáætlunar.
Ráðið setur reglur, eins og þurfa
þykir, til gæslu þess að fylgt sé
ákvæðum 15. gr. (Sú grein fjallar
um hlutverk og skyldur Ríkisút-
varpsins — innskot M.Á.E.)
Ákvarðanir útvarpsráðs um út-
varpsefni eru endanlegar. Útvarps-
stjóri getur þó stöðvað gerð þegar
samþykkts dagskrárefnis þyki sýnt
að það reynist fjárhagslega ofviða."
Eg bið lesendur að taka sérstak-
lega eftir setningunni: „Ákvarðanir
útvarpsráðs eru endanlegar."
í 18. gr. útvarpslaga segir m.a.:
„Útvarpsstjóri undirbýr og stjómar
framkvæmd dagskrár og gætir þess
að settum reglum um hana sé
fylgt."
Eg vek athygli á að útvarpsstjóri
undirbýr og stjórnar framkvæmd
dagskrár. Það skal hann gera sam-
kvæmt ákvörðunum sem útvarps-
ráð hefur tekið og em endanlegar.
Ég minni einnig á að útvarpsstjóri
gefur út reglur um fréttaflutning
að fengnu samþykki útvarps-
ráðs.
Ég legg á það áherslu að framan-
greind ákvæði em óbreytt frá fyrri
lögum. Staða útvarpsráðs hvað
varðar ákvarðanatöku er því
óbreytt. Starfshættir hafa hins veg-
ar breyst nokkuð með vitund og
vilja ráðsins, eins og fyrr sagði.
Vonandi misskilning’ur
Með öll þau atriði, sem hér hafa
verið rakin, í huga, te! ég það í
meira lagi undarlegt, að embættis-
maður sem lögum samkvæmt á að
framfylgja ákvörðunum útvarps-
ráðs skuli nota þær sex vikur sem
ráðið er í sumarleyfi svo rækilega
sem raun ber vitni til þess, annars
vegar að reyna með rangtúlkunum
að gera hlut ráðsins sem minnstan
í augum almennings, og hins vegar
að vinna gegn ályktunum þess í
fjölmiðli sem hann sjálfur stýrir.
Að yfirlögðu ráði nota ég orðið
misskilningur í fyrirsögn þessarar
greinar. Ég vil í lengstu lög vona
að um misskilning sé að ræða frem-
ur en ásetning.
Höfundur er varaformaður út-
varpsráðs og fyrrverandi formað-
ur útvarpslaganefndar.
Snyrtivöru-
getraun
UMBOÐSAÐILI svissneska
snyrtivöruf ramleiðandans Ju-
vena hér á landi, Snyrtivörur
hf., stendur fyrir léttri getraun
meðal kaupenda vörunnar.
Fá þeir afhentan bækling með
spumingum, þegar þeir kaupa vör-
una. Skilafrestur er til 30. ágúst
og dregið verður úr réttum lausnum
15. september. Fyrstu verðlaun em
ferð til Sviss, þar sem m.a. verður
skoðað fyrirtækið sem framleiðir
snyrtivömna. Önnur og þriðju verð-
laun em svo úttekt á Juvena-snyrti-
vömm.
Lengi lifir í gömlum glæðum
Hljómplötur
Sigurður Sverrisson
Accept —
Russian roulette -
Þeir kumpánar í Accept neyð-
ast til að viðurkenna að hug-
myndafátækt er farin að heija á
þá. Þótt Russian roulette sé um
flest býsna heilsteypt plata góðrar
sveitar á þungarokksvísu vantar
hana nauðsynlega það „bit“ sem
fyrri plötur Accept hafa búið yfir
í miklum mæli.
Sú staðreynd að ein allra besta
þungarokkssveit nútímans þjáist
af hugmyndafátækt — ekki svo
að skilja að þungarokkið sé eitt-
hvert útpælt tónlistarform — segir
manni ekki annað en það að þessi
tnlist er nú að upplifa svipað erfið-
leikaskeið og hún gerði á ámnum
. 1974—1979. En það mega menn
vitá, að hún á eftir-að rísa úr
öskustónmi á ný.'
Svo aftur sé vikið að plötu
Accept þá er það helst í laginu
Aiming high að Udo Dirkschneid-
er og menn hans ná sér vel á
strik. Annað er við og undir með-
allagi, a.m.k. á þeirra eigin
mælikvarða. Stjörnugjöf: ★ ★
Seigur sá
gamli
Rod Stewart —
Every beat of my heart
Þeir em seigir þessir gömlu.
Loksins þegar maður telur þá
dauða úr öllum æðum spretta
þeir fram úr skúmaskotunum —
aldrei betri en einmitt um þessar
mundir. Rod Stewart er eirin
þeirra gömlu sem enn em að.
Platá hans, Every beat of my
heart, er um flest gerð eftir gam-
alli forskrift rokkarans rámradd-
aða þótt síðari hliðin sé reyndar
nánast af rólegra taginu út í gegn.
Every beat of my heart og In my
own crazy way em bæði gullfalleg
lög á B-hliðinni og lög á borð við
Love touch og Another heartache,
bæði listasmellir, og Who’s gonna
take me home, rokkari eins og
þeir gerast bestir hjá Rod Stew-
art, staðfesta að sá gamli lifír enn
og það góðu lífí. Þetta er plata
fyrir alla rokkara sem em komnir
af yngsta skeiði. Stjömugjöf:
★ ★ ★
Nvtur sín best
íbio
Ymsir listamenn —
Tónlist úr weeks
Til þess að njóta tónlistarinnar
á þessari plötu þurfa menn eigin-
lega að hafa barið -hina mjög svo
ástríðufullu kvikmynd SP/2 weeks
augum. Þar er tónlistinni listiléga
raðað niður í samræmi við efnisat-
riði á þann hátt að áhrifamáttur
myndarinnar verður margfaldur
miðað við það sem annars hefði
orðið.
Hér er reyndar að fínna ýmis-
legt mjög gott og annað mun
lakara. í fyrmefnda hópnum em
lög á borð við You can leave your
hat on með Joe Cocker, This city
never sleeps með Eurythmics, og
Slave to love með Bryan Ferry.
Cannes Stewart Copeland er
snorturt en annað ekki eins gott.
Corey Hart sem og Devo hafa
gert mun betur en hér. Stjömu-
gjöf: ★ ★
Hvatning til þín og mín
Kæri lesandi.
Næsta helgi, verslunarmannahelgin, er
mesta umferöarhelgi ársins. Af því tilefni
drep ég niður penna til að ræða stuttlega við
þig uin umferðarmálin og slysahættuna. Um-
ferðarslysin og tjónatíðnin valda okkur öllum
vaxandi áhyggjum. Stöðugt hækka tölur um
árekstra, óhöpp, líkamsmeiðsl, örkuml og
dauðsföll. Þessi neikvæða þróun umferðar-
mála hrópar á okkur öll að sameinast í rót-
tæku átaki til úrbóta, sem snýr vörn í sókn.
Eg þarf ekki að segja þér, að það kostar
þjóðfélagið okkar umtalsverða fjármuni að
líkna slösuðum. Þú veist, að sjúkrahúskostn-
aðurinn rýkur upp ár frá ári af þessum sökum.
Endurhæfing þeirra sem slasast kostar dýr-
mætan tíma og peninga, svo ekki sé talað um
slysa- og örorkubæturnar til handa þeim sem
aldrei ná fullri heilsu á ný. Vinnutap er einnig
fjármunir, hvort sem það er tímabundið eða
varanlegt.
Þ’ú, eins og ég, þekkir mörg dæmi um
erfiðleika fólks sem slasast hefur, svo ekki sé
minnst á sorgir og sársauka þeirra sem misst
hafa sína nánustu af slysförum. Þú veist líka
allt um eignatjónið sem menn verða fyrir
vegna óhappa og slysa.
Það er skylda okkar allra að leggja okkar
af mörkum til að bæta umferðarmenninguna,
jafnt í þéttbýli sem strjálbýli. Það er hags-
munamál okkar allra að draga úr tjónatíðni og
fækka hörmulegum slysum. Förum því með
gát í umferðinni um helgina og framvegis. Við
verðum að draga úr of hröðum akstri. Við
megum ekki taka óþarfa áhættur í umferð-
inni. Það er skylda okkar að sýna fulla tillits-
semi og fara að settum reglum. Við megum
aldrei gleyma því að við, þú og ég, erum ekki
ein(ir) í umferðinni.
Ef við sameinumst öll í því að bæta um-
ferðina, drögum við um leið úr slysum og
tjónum. Það skilar sér fljótt í auknu öryggi og
vellíðan.
Að lokum vona ég að þú og þínir nánustu
hafið það gott um helgina.
M
eð bestu kveðj
u,
Það jafnast fátt á við slysalausa helgi.