Morgunblaðið - 31.07.1986, Page 26

Morgunblaðið - 31.07.1986, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986 Morgunblaðið/Einar Falur Skógræktarmenn frá Þelamörk ásamt íslenskum og norskum fararstjórum í Svartaskógi í Fossvogsdal. Norskir skógræktarmenn í heimsókn á Islandi - munu skoða skóglendi á fslandi og vinna að gróðursetningu og öðrum skógræktarstörfum NORSKIR skógræktarmenn eru um þessar mundir í heimsókn á íslandi til að kynna sér skógrækt og vinna við skógrækt vlðs vegar um landið. Norðmennirnir eru 37 talsins, en einnig eru með í för 12 skógræktarmenn frá hinum þremur Norðurlöndunum, fjórir frá hveiju. A sama tíma og þessi hópur dvelst hér, er jafnstór hópur íslendinga í Noregi. Auk þessa vinnuhóps, eru 16 stjómarmenn skógræktarinnar á Þelamörk staddir hér á landi til þesi? að kynna sér skógrækt á Islandi. Þessi skipti á skógræktarmönn- í Alviðru og vinna að gróðursetn- um milli Islands og Noregs hófust 1949 og hafa staðið síðan þriðja hvert ár. Skiptin hafa farið þannig fram, að að 50 manna hópur frá Noregi kemur hingað og jafn stór hópur fer til Noregs með sömu flug- vél og flytur norska hópinn. Hópnum er skipt í þrennt og fer hver hópur á sinn stað. 25 manns munu dveljast í húsi Landvemdar mgu og skógræktarstörfum á vegum Skógræktarfélags Ames- inga og Skógræktar ríkisins, 10 manns munu dveljast að Hreðavatni og Hvammi í Borgarfírði á vegum Skógræktar ríkisins og Skógrækt- arfélags Borgfirðinga og 15 manns munu dveljast í bændaskólanum að Hólum í Hjaltadal, á vegum bænda- skólans og Skógræktarfélags Skagfirðinga. Þeir Norðmenn, sem koma hing- að, eru meðlimir skógræktarfélaga víðs vegar um Noreg, og auk þeirra em einnig með í för 16 stjómar- menn skógræktarinnar á Þelamörk, en ástæðan fyrir komu þeirra er sú, að næsti hópur íslendinga, sem fer utan eftir þrjú ár, mun dveljast á Þelamörk. Að þessu sinni em í hópnum sem hingað kemur í fyrsta sinn einnig fulltrúar frá hinum Norðurlöndun- um þremur, en það er gert til þess að reyna að auka breiddina í þessum samskiptum. íslenski hópurinn fór á mánudag til Noregs og mun dveljast við skóg- ræktarstörf í Innri-Þrændalögum. Skógræktarfélög í Noregi skiptast á að taka á móti íslendingunum. Auk þess að starfa að gróðursetn- ingu, mun hópurinn ferðast víðs vegar um Noreg. Skógræktarfélög- in á íslandi eiga kost á því að senda fólk í ferðina og er fólkinu þar séð fyrir húsnæði, svo og fæði að hluta. Sama á við um hinn norska hóp hérlendis. Hinir norrænu skógræktarmenn komu til íslands aðfaranótt. mánu- dagsins og var þeim þá strax skipt upp í þijá hópa og fór hver vinnu- flokkur til síns staðar. Skógræktarmennimir frá Þela- mörk, auk fararstjóra frá hinum hópunum, sóttu heim Skógræktar- stöðina í Reykjavík og lóðsaði Vilhjálmur Sigtryggsson forstöðu- maður hópinn um staðinn. Norð- mönnunum leist afar vel á það sem þeir sáu af starfsemi Skógræktar- stöðvarinnar, en mesta athygli vakti þó hinn nýi ræktunarskáli, sem byggður er úr límtré. Að lokinni skoðunarferð um stöðina þáðu gest- imir veitingar hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Hinir norrænu skógræktarmenn munu, hver á sínum stað, aðallega vinna að gróðursetningu, grisjun og hreinsun frá plöntum. Reynslan af störfum Norðmanna mun vera mjög góð, enda em í för með þeim flokksstjórar, sem starfa daglega að skógrækt. Jafnhliða þessum skógræktarstörfum, munu gestirnir ferðast víðs vegar um landið, þar á meða! í Þórsmörk. Helgina 9.-10. ágúst koma svo allir hópamir til Reykjavíkur, og munu þar m.a. mæta til móttöku hjá borgarstjóra, Davíð Oddssyni. Norræn samvinna á sviði skógræktar Samvinna Norðurlanda á sviði skógræktar er með ýmsu móti. Skógræktarfélag íslands gekk formlega í Samband skógræktarfé- laga á Norðurlöndum 1974, en allt frá lokum síðari heimsstyrjaldar hefur gott samstarf verið við hin Norðurlöndin og þá sérstaklega Noreg. Nýlega var haldið skógræktar- þing í Finnlandi, þar sem mættir voru á annað þúsund fulltrúar á Norðurlöndum, þ. á m. íslandi. A þinginu var gerð samþykkt þess efnis að skorað var á öll ríki Evrópu að gera átak í mengunarvörnum, vegna skógardauða í Mið-Evrópu og jafnvel á Norðurlöndum. Einnig var þar ákveðið, að hvert land skyldi senda þessa ályktun í sendi- ráð sín erlendis, svo og erlend sendiráð í sínu heimalandi; með því er reynt að stuðla að því, að málið verði rætt á alþjóðlegum vettvangi, enda er þetta mál að mati þingsins vandamál allrar Evrópu. Þeir norrænu skógræktarmenn, sem til íslands hafa komið, hafa að sögn Huldu Valtýsdóttur for- manns Skógræktarfélags íslands almennt lokið upp einum munni um það að hér séu geysilegir möguleik- ar til skógræktar, en að sama skapi hefur þeim þótt gróðureyðingin víðs vegar um landið sorgleg. Félagar í Skógræktarfélagi íslands eru um 6.300 og er það hlutfallslega mun meira en á hinum Norðurlöndunum. Einnig eru félögin á Norðurlöndum öðru vísi upp byggð, þar eð þau byggjast meira upp á skógareigend- um. Þrátt fyrir að félögin á Norðurlöndum séu hlutfallslega fá- mennari en hér, eru þau mun öflugri fjárhagslega, og hefur skógrækt á Islandi oft notið stuðnings skóg- ræktarfélaga á Norðurlöndum. Hveragerði: Afmælissýning Steingríms STEINGRÍMUR SIGURÐSSON listmálari opnaði sína sextug- ustu málverkasýningu í gærkvöldi, í Eden í Hveragerði. Stendur hún til 10. ágúst. Sýninguna kveðst Steingrímur til- einka 20 ára atvinnumennsku „Sýninguna í Eden kalla ég „Tíma- mót“, en á henni eru 66 málverk, í sýningarskrá stendur 65, en ég var að ljúka við eitt sem ég kalla „Japanska fantasíu". 58 af þessum myndum eru nýjar. Ég er að reyna að gera úttekt á þróun minni í lífí og list,“ sagði Steingrímur í spjalli við Morgunblaðið. „Ég fæddist á Akureyri í apríl 1925, í Nautsmerkinu, ég hef sannfærst um það með árunum að stjömumerkin eru ekki tómt húmbúg. Foreldramir voru Sigurð- ur skólameistari Guðmundsson, málarakúnstinni. hann var Húnvetningur, og Hall- dóra Ólafsdóttir prófasts Finnsson- ar, af ætt Stefánunga og Finsena, og móðir hennar var Þómnn Ólafs- dóttir af Mýrarhúsaætt. Ég var strax með óróa í blóð- inu, mig dauðlangar alltaf til að ferðast, ég skrepp oftsinnis til út- landa, ekki samt til Mallorca o.þ.h. Ég fór til náms í enskum bók- menntum til Nottingham, en sneri heim eftir tvö ár, hálfkaraður, og gerðist blaðamaður á Tímanum. Thor Vilhjálmsson var samtíða mér þama á slóðum Hróa Hattar — við bjuggum hlið við hlið á stúdenta- garði. Það var lærdómsríkt fyrir báða. Hugurinn var á þessum tíma tekinn að hneigjast að málverkinu. Heima varð ég m.a. teiknikennari við MA. Mönnum hlýtur að hafa þótt ég sérkennilegur teiknikenn- ari, því ég var að reyna að fá nemenduma til að tjá einstaklings- eðli sitt. Ég vil ekki reyna að gera annað úr mönnum en þeir eru. Ferillinn eftir það var í blaða- mennsku og einnig hef ég skrifað bækur jöfnum höndum. Sú fyrsta, „Skammdegi á Keflavíkurfiug- velli“, kom út 1954. Það er lýsing á reynslu minni sem öryggisvörður á Keflavíkurflugvelli, en við vorum tengiliðir við amerísku herlögregl- una. Sama ár kom út „Fórur“, ritgerðasafn, og 1958 voru það „Sjö sögur", skáldlegra efni, 1967 var það „Spegill samtíðar" og 1983 „Ellefu líf“, lífbók Brynhildar Bjömsson Borger, sonardóttur Sveins forseta. Þá er ég með tvær bækur í undirbúningi, sem koma út áður en langt um líður. „Spegill fortíð- ar“ er bók þar sem horft um öxl, én „Lausnarsteinn" er einskonar skáldverk, Frá 1966 hef ég verið atvinnu- listmálari. í desember 1966 var fyrsta sýningin, í Bogasalnum. Síðan þá hef ég haldið 60 sýning- ar, þar af 10 í Eden í Hveragerði. Ég reyni að mála raunsæjar mynd- ir, málarinn verður að vera í tengslum við veruleikann. Ég held mikið upp á að mála myndimar á staðnum, halda áhrifum staðarins. Stundum lét ég það eftir mér þeg- ar ekki var fært út úr húsi að mála fantasíur og var það að vissu leyti hressing og gaf mér frelsi. Ég bý nú með sonum mínum tveim og tveim kisum. Ég á einnig eina dóttur, sem hefur tekið þátt í fegurðarsamkeppnum og haft gott af, því hún tapaði. Annars hef ég nú tekið upp mjög heilbrigða lifnaðarhætti, trimma og fer á skíði. Ég er hættur við Dionysos og tóbakið. Ef tóbakslöngunin grípur mig hreyfí ég mig bara. Þá stunda ég einnig bridds, billjarð og Hótel Borg í hádeginu til að fá mér skyr og rabba við félagana við stóra borðið."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.