Morgunblaðið - 31.07.1986, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
29
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Karpov veikti
peðastöðuna
í tímahraki
Skák
Bragi Kristjánsson
Kasparov byrjaði aðra ein-
vígisskákina í gær á sama hátt
og fyrstu skákina í síðasta ein-
vigi hans og Karpovs, en sá
síðarnefndi kom með nýjan
leik. Heimsmeistarinn virtist
óstyrkur og hugsaði svarleik-
inn lengi, og komst í fram-
haldinu út í örlítið hagstæðara
endatafl.
í framhaldinu lentu báðir kepp-
endur í tímahraki og þá veildi
Karpov peðastöðu sína of mikið.
Kasparov kom hrók inn í stöðu
andstæðingsins og vann peð. I
biðstöðunni hefur Kasparov góðar
vinningshorfur.
Helmingur einvígisins verður
tefldur í London, en seinni hlutinn
í Leningrad. Sigurvegarinn þarf
að vinna sex skákir eða hljóta
12'/2 vinning, þannig að skákimar
verða ekki fleiri en 24. Heims-
meistarinn, Kasparov, heldur
titlinum á jöfnu.
Undirbúningur meistaranna
fyrir þetta einvígi var ólíkur.
Kasparov tefldi einvígi við Miles
og Timman, en Karpov tefldi í
tveim mjög sterkum mótum. Ka-
sparov vann einvígin með ótrúleg-
um yfirburðum, og Karpov vann
bæði mótin örugglega.
Þegar Kasparov komst fyrst í
áskorendamót fyrir tæpum þrem
árum, var mikið rætt um, að hann
hefði enga reynslu í einvígistafl-
mennsku. Hann hefur greinilega
tekið þetta alvarlega, þvi hann
hefur ekki teflt annað en einvígi
síðan hann vann sterkt mót í Nik-
isic í Júgóslavíu í september 1983.
Hann hefur teflt 9 einvígi á þess-
um tíma, við Karpov (2), Timman
(2), Miles, Andersson, Hiibner,
Kortsnoj og Smyslov.
2. skákin:
Hvítt: Kasparov
Svart: Karpov
Nimzo-indversk vörn
1. d4 - Rf6,2. c4 - e6,3. Rc3-
í fyrsta einvígi kappanna lék
Kasparov jafnan 3. Rf3, en komst
lítið áleiðis í Drottningarind-
verskri vöm (3. — b6) eða
Drottningarbragði (3. — d5).
í öðru einvíginu lék Kasparov
3. Rc3 og gafst vel, svo hann
heldur sig við þann leik.
3. - Bb4, 4. Rf3 - c5,5. g3 -
Kasparov kom andstæðingi
sínum á óvart með þessu sjaldséða
afbrigði í fyrstu skák síðasta ein-
vígis og vann.
5. — Rc6, 6. Bg2 — d5,
Karpov er auðvitað viðbúinn
þessari byijun og kemur nú með
nýjan leik. í þeim þrem skákum,
sem þeir tefldu þetta afbrigði í
síðasta einvígi lék Karpov ávallt
6. — Re4. Einnig hefur verið leik-
ið 6. — Bxc3+ í þessari stöðu.
7. cxd5 — Rxd5, 8. Bd2 —
Hvítur á erfitt með að valda
bæði riddarann á c3 og peðið á
d4. Ekki gengur 8. Dd3 — cxd4,
9. Rxd4 — Rxd4, 10. Dxd4 —
Rxd3 og svartur vinnur. 8. —cxd4
). Rxd4 — Rxd4 10. Rxd5 —
Bxd2+ 11. Dxd2 - Rc6
Síðustu leikir voru allir þving-
aðir og nú kemur upp endatafl
sem er örlítið hagstæðara fyrir
hvít.
12. Rf4 - Dxd2+, 13. Kxd2 -
Bd7, 14. Hhcl - Ke7, 15. Rd3
- Hhc8, 16. Rc5 - Hab8, 17.
Hc3 - Rd8, 18. Hacl -
Kasparov tvöfaldar hrókana á
opinni línu eins og lög gera ráð
fyrir og nær yfirráðum jrfir c-
línunni.
18. - Bc6, 19. Rd3 - Bd7
Ekki gengur 19. — Bxg2 vegna
20. Hxc8 o.s.frv.
20. Re5 - Hxc3,21. Hxc3 - Be8
Eftir 21. - Hc8, 22. Rxd7 -
Hxc3, 23. Kxc3 — Kxd7 stendur
hvítur betur, þótt ólíklegt sé, að
hann geti unnið endataflið.
22. b4 -
Ekki 22. Hc7+ — Kd6 og svart-
ur vinnur mann.
22. - a6, 23. Be4 - h6, 24. a3
- f6, 25. Rd3 - Bc6, 26. Bxc6
- Rxc6, 27. Rc5 - Re5, 28. f4
- Rd7, 29. Rb3 - Kd6, 30. e4
- g5, 31. Ke3 - e5?!
Báðir keppendur eru komnir í
mikið tímahrak, og með síðustu
leikjum sínum hefur Karpov veikt
peðastöðu sína.
32. fxg5 — fxg5, 33. Ra5 —
Hvítur bindur svarta hrókinn
við að valda peðið á b7.
33. - g4, 34. Hc2 - h5, 35. Hcl
35. - b6?!
Eftir þennan leik kemst hvíti
hrókurinn inn í svörtu stöðuna og
veldur miklum usla. Spumingin
er hvort svartur geti varist því
mikið lengur, ef hann leikur ekki
35. — b6. Ekki gengur 35. —
Rf6, 36. Hc2 - Re7, 38. Hc5
með hótuninni 38. Rc4, og ef 36.
— b5,37. Hc6+ ásamt 37. Hxa6,
36. Hc6+ - Ke7,37. Rc4 - Hf8
Eini mótspilsmöguleiki svarts.
38. Ke2 - Hf3, 39. Re3 - Rf6,
40. Hxb6 - Rxe4, 41. Hxa6 -
og Karpov lék biðleik. Kaspasrov
á peð yfir og góðar vinningshorf-
ur, því hann á að auki tvö
samstæð frípeð á drottningar-
væng, sem erfitt verður að stöðva.
Biðskákin verður tefld áfram í
dag.
NÝTfSÍMANÚMER
Mikið kóka-
ínsmygl á
Spáni
Frá fréttaritara Morgunbladsins í
Barcelona, Jóni F. Arasyni.
Lögreglan í La Coruna á
Spáni handtók níu manns, sjö
Kolumbíubúa og tvo Spán-
verja, þann 25. þ.m., fyrir
smygl á 77,8 kilógrömmum
af kókaini i kólumbíska flutn-
ingaskipinu La Guajira.
Verðmæti smyglgóssins er
talið vera nálægt 170 milljónum
króna. Á eiturljdjamarkaðnum
má hæglega reikna með að loka-
verðið verði 700 milljónir króna.
Jenco kominn
á fund páfa
Washington, AP.
SÉRA Lawrence Martin Jenco kom í gær tíl Páfagarðs og fékk
þar áheyrn. Meðal annars færði hann páfa skilaboð frá mann-
ræningjunum, sem höfðu hann í gíslingu í tæpa 19 mánuði.
Ónafngreindir embættismenn í Washington hermdu á miðviku-
dag, að séra Terry Waite, sem er sérlegur sendimaður erkibisk-
upsins af Kantaraborg, hefði gegnt lykilhlutverki við að leysa
Jenco úr haldi.
Jenco vildi ekkert segja um
hver skilaboðin frá mannræningj-
unum væru, og sagði það vera
páfa að skýra frá því.
Embættismennimir sögðu að
William Casey, jrfirmaður CIA,
hefði engu fengið áorkað í Sýr-
landi, og kenndu þeir þvergirð-
ingshætti' þarlendra stjómvalda
um. Farouk Al-Sharaa, utanríkis-
ráðherra Sýrlands, vísaði hins
vegar á bug fréttum þess efnis,
að Casey hefði komið til Damask-
us til viðræðna um mál banda-
rísku gíslanna í Líbanon.
Aftur á móti vildu embættis-
mennimir gera þátt séra Waites
sem mestan. „Terry Waite gegndi
mikilvægu hlutverki, og ég tel að
hann hafi ekki hlotið þakkir sem
skyldi," sagði einn þeirra.
Priðja pósisjón
Jallatte öryggisskórnir eru svo léttir og þægilegir,
að ganga í þeim er sem ónægjulegur dans.
Þeir draga úr þreytu vinnudagsins og auka vellíðan.
Stól í tó er vernd gegn þrýstingi og höggi.
Stólþynna í sóla er vernd gegn nöglum og hvössum hlutum.
JALLATTE ER ALLT SEM ÞARF i
HINN DAGLEGA DANS
Skeifan 3h - Sími 82670