Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
31
ERLENT
Myndin sem talin er vera af
Cliarlotte Bronte.
Ljósmynd fund-
in af Charlotte
Bronte?
FYRIR skömmu bárust af því
fregnir að í Bretlandi hefði fund-
ist ljósmynd af Charlotte Bronte,
þeirri Bronte-systra, sem samdi
skáldsöguna Jane Eyre. Til þessa
hefur verið talið að engin mynd
væri til af Charlotte.
Myndin fannst í dánarbúi frú
Elizabeth Gordon, en hún ánafnaði
Bronté-félaginu nokkrum munum
úr því. Frú Gordon var varaforseti
félagsins um tíma.
Reyndar er engin endanleg sönn-
un fyrir því að myndin sé af
Charlotte, en ýmsar vísbendingar
og óbeinar sannanir benda ótvírætt
til þess að myndin sé af Charlotte
Bronté. Líklegast er talið að mynd-
in hafi verið tekin á brúðkaups-
ferðalagi Charlotte og brúðguma
hennar árið 1954, en vitað er að
hann lét taka af sér myndir þá.
Ólíklegt má telja að ekki hafí verið
tekin mynd af brúðurinni við sama
tækifæri.
Pólland:
Réttarhöldum
frestað yfir
Samstöðumanni
Varsjá, AP.
HERDÓMSTÓLL í Varsjá frest-
aði í gær réttarhöldum yfir
einum leiðtoga Samstöðu, sam-
taka hinna óháðu verkalýðsfé-
laga í Póllandi, Tadeusz
Jadynak, að sögn konu hans, en
hann hefur verið ákærður fyrir
samsæri um „að grafa undan
hinu sósíalíska þjóðskipulagi“.
Kona Tadeusz, María, sagði að
dómstóllinn hefði ekki gefið upp
ástæðu þess að réttarhöldunum var
frestað eða hvenær þau færu fram.
Skýrt var frá því í gær að haldið
væri áfram að sleppa föngum sam-
kvæmt nýjum lögum, sem kveða á
um skilyrta sakaruppgjöf fanga.
Að sögn pólsku fréttastofunnar
PAP hafa 775 fangar verið leystir
úr haldi að undanförnu, þar á með-
al 26, sem handteknir voru fyrir
pólitískar skoðanir sínar eða starf-
semi á vegum Samstöðu.
Um borð í Titanic
Norðursjór:
Mikill sam-
dráttur í olíu-
framleiðslu
Reagan sæmir Horowitz Frelsisorðunni
Bandaríkjaforseti og píanósnillingurinn Vladimir Horowitz leika hér á als oddi, ásamt eiginkonum sínum,
þeim Wöndu og Nancy. Um hálsinn ber Horowitz Frelsisorðuna, en það er æðsta viðurkenning, sem al-
mennum borgara getur hlotnast í Bandaríkjunum. Reagan sæmdi Horowitz henhi og lofaði þannig
hljómleikaför Horowitz til ættlands síns, og sagði hana pílagrímsferð í þágu friðar.
Titanic var um 46 þúsund tonn að stærð. Talið var að skipið ætti
að setja hraðamet í fyrstu ferð sinni yfir Atlantshafið og eftir
slysið komu fram ásakanir um að yfirmenn þess hefðu ekki tek-
ið nægilegt tillit til hættunnar af borgarisjökum.
þilfarið og bakborðssíðuna, þai
sem þeir sáu kýraugu meé
óbrotnu gleri. Þeir tóku eftir þvi,
að Titanic hafði brotnað í tvennt
rétt aftan við þriðja reykháf.
I þriðju ferðinni var Jason, sem
knúinn er eigin hreyfli, en stjóm-
að úr Alvin, sendur inn í skipið.
Hann fór niður glæstan stiga, þar
sem öll viðarþrepin voru löngu
horfin ofan í smádýr sjávarins.
Sama gildir um allan viðarútskurð
í skipinu, sem var víðfrægur. Hins
vegar höfðu ljósakrónur úr gleri
og kristal á öllum þilförum slopp-
ið óskemmdar, þótt ótrúlegt megi
virðast. Hvergi varð vart við jarð-
neskar leifar fólksins, en þær
hafa farið sömu leið og önnur
lífræn efni í skipinu.
Jason stóð sig vel í leiðangrin-
um. Hann fór eftir einu siglutrénu
upp í útsýnistunnuna, þar sem
hann rakst á óskemmt messing-
ljósker. Síðar leit hann inn um
gluggana á vistarverum yfir-
manna og leikfímisal skipsins brá
einnig fyrir. Hann gerði sömuleið-
is tilraun til að komast inn um
kýrauga á stjómborðssíðunni og
þaðan upp á gönguþilfarið, en
reyndist of digur.
Eitt sinn sat Jason fastur, en
stjórnendum hans um borð í Alvin
tókst með lagni að losa hann aft-
ur.
Þrátt fyrir eftirvæntinguna og
hrifninguna gleymdu vísinda-
mennimir því aldrei, að í rauninni
voru þeir að kanna fjöldagröf.
„Frásagnir þyrluðust um hug-
ann, - Smith skipstjóri stóð þama
og milljónamæringurinn Astor var
þama, og þarna hinum megin var
konum og börnum komið fyrir í
bátunum. Við minntumst hljóm-
sveitarinnar, sem hélt áfram leik
sínum, meðan fólkið hljóp upp og
London, AP.
FRAMLEIÐSLA olíu í Norðursjó
dróst mjög saman í júní, og hefur
ekki verið jafnlítil í þijú ár.
Þetta kom fram í skýrslu Hins
konunglega Skotlandsbanka á
þriðjudag. Dagleg framleiðsla olíu
í Norðursjó nemur nú um 2,2 millj-
ónum tunna, og hefur ekki verið
minni síðan í júní 1983.
Vegna samdráttarins, hækkandi
olíuverðs og fleiri þátta er virði
dagsframleiðslunnar nú minna en
*/s þess, sem það var í nóvember
1985.
Efnahagskreppa fram
undan í Bandaríkjunum?
Washington, AP.
PAUL Volcker, forseti banda-
ríska seðlabankans, hélt því fram
í gær, að hinn mikli viðskipta-
halli Bandaríkjanna kynni að
koma landinu í „erfiða og hættu-
lega aðstöðu".
Volcker sagði þetta á fundi með
bankanefnd fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, þar sem hann gerði
grein fyrir hugsanleikum möguleik-
um á því, að Bandaríkin væru nú
á ieið inn í efnahagskreppu.
Volcker tók það fram að þau
merki, sem venjulegast væru sam-
fara byijun á kreppu, væru ekki til
staðar nú. Hann lagði hins vegar
áherzlu á að efnahagslíf Banda-
ríkjanna væri nú miklu nátengdara
en áður efnahagslífi heimsins alls.
Fyrstu fimm mánuði þessa árs
var viðskiptajöfnuður Banda-
ríkjanna neikvæður um 13,9 millj-
arða dollara að meðaltali á mánuði.
Haldi svo áfram, þá verður við-
skiptahallinn 167 /nilljarðar dollara
alls á þessu ári. Á síðasta ári nam
viðskiptahallinn 148,5 milljörðum
dollara og hafði aldrei verið meiri.
Þessi mikli halli hefur í reynd
haft í för með sér kreppu í mörgum
iðngreinum í Bandaríkjunum, þar
sem sala á framleiðsluvörum þeirra
á heimamarkaði jafnt sem í öðrum
löndum hefur dregizt saman sökum
samkeppninnar frá framleiðendum
erlendis.
á 4.000
BANDARlSKIR köfunarsér-
fræðingar frá Woods Hole
hafrannsóknarstöðinni í
Massachusetts hafa að undan-
förnu farið margar ferðir í
dvergkafbát niður að flaki far-
þegaskipsins Titanic, sem
liggur á 4.000 metra dýpi und-
an strönd Nýfundnalands.
Titanic var á sinum tíma
stærsta skip heims. Það sökk í
jómfrúrferð sinni árið 1912,
eftir að hafa rekist á borgarís-
jaka og yfir 1.500 manns fórust.
Legstaður þeirra fannst í sept-
ember á síðasta ári. Bandarísku
leiðangursmennimir hafa tekið
fjölda ljósmynda og vídeó-
mynda af skipinu, m.a. með
vélmenni, á stærð við garð-
sláttuvél, sem sent var inn í
skipið.
Vélmennið Jason, sem tengt
var dvergkafbátnum Alvin með
taug, sendi vídeómyndir jafnóðum
til þriggjamanna áhafnar kaf-
bátsins. Með nokkrum óhugnaði
virtu leiðangursmenn fyrir sér
óskemmdar kristalljósakrónur,
„grýlukerti" úr ryði, er víða héngu
neðan úr loftum og stýrishjólið,
þar sem allt úr viði var löngu
horfíð, en messinghlutir gljáðu
sem nýir væru.
Haffræðingurinn Robert Ball-
ard, en hann fann Titanicá síðasta
ári, var einn leiðangursmanna og
lýsti fyrstu ferðinni í þessum leið-
angri svo, að er þeir nálguðust
hafsbotninn, hefðu þeir séð „vegg
úr stáli. Hann virtist vera enda-
laus í allar áttir".
Þeir sigldu fyrir egghvasst
stefnið, nafnið á bógnum sást
vart vegna ryðs, könnuðu fremra
metra dýpi
Ryðguð rafmagnsvinda á báta-
þilfari Titanic.
niður aðalstigann."
Jason hélt áfram að finna ýmsa
smáhluti eins og næturgögn,
kampavínsflöskur, stakan skó og
loks glæstan peningaskáp með
skjaldarmerki. Reynt var að opna
skápinn með fjarstýrðum armi
Alvins, en það mistókst.
Vísindamennimirvoru himinlif-
andi yfír frammistöðu Jasonar,
en bandaríski flotinn kostaði leið-
angurinn til að reyna hæfni
vélmennisins við djúphafsrann-
sóknir.
Á fréttamannafundi að leið-
angrinum loknum sagðist Ballard
telja útilokað, að hægt yrði að
lyfta Titanicup\) af hafsbotni.
Skipið væri mjög ryðgað og einn-
ig brotið, auk þess hefði hluti
þess grafist um 15 metra niður í
botnsandinn. Hann sagðist vona,
að myndir leiðangursmanna
dygðu til að svala forvitni fólks
og skipið fengi framvegis að hvíla
í ró. Byggt á Time.