Morgunblaðið - 31.07.1986, Page 34
m
.../ fjölskyldubúðum
Þessi snáði heitir Björn Þór Gunnarsson og unir hann sér hið
besta í fjölskyldubúðum lýðveldisins. Búðirnar eru opnar öllum
tii lengri eða skemmri dvalar og dagleg-ar ferðir fyrir þá sem
vilja búa í Viðey þessa viku en sækja vinnu í bænum.
— segir Roy „Fritz“ Eckert, sem sér um
teng'sl skátanna á landsmóti í Viðey
Roy „Fritz“ Eckert
læra bömin og það er fullorðna
fólkið sem á að gefa fordæmin.
Krakkar taka yfirleitt vel eftir, en
það þýðir ekki að skipa þeim fyrir.
Hér á mótssvæðinu tek ég t.d. sjálf-
ur upp það rusl sem ég sé liggja
fyrir framan tjöldin hjá krökkunum
en næsta dag gera þau það sjálf
því þau hafa lært af mér. Hinsveg-
ar ef maður fer t.d. út að keyra
með bömunum sinum og hendir
„ÉG HEF verið í skátahreyfing-
unni sl. 55 ár og ferðast um allan
heim tii að taka þátt í skáta-
starfi," sagði Roy „Fritz“ Eckert
í samtali við Morgunblaðið, en
blaðamaður hitti hann úti í Viðey
rétt eftir setningu 19. landsmóts
skáta þar sl. sunnudag. Hann var
klæddur skátabúningi sinum og
kom á landsmótið i Viðey til að
sjá um tengsl krakkanna á mót-
inu enda krakkar af mörgu
þjóðerni þar samankomnir. „Við
' viljum að þau kynnist vel. Ég er
með sýningu í farangrinum sem
ég ætla að setja upp i einu tjald-
inu hérna og geta mótsgestir þar
kynnt sér skátastarfsemi ann-
arra landa,“ sagði Roy.
Hann er Bandaríkjamaður sjálfur
og segist vera að nálgast 71. ald-
ursárið. „Ég hef ferðast til 120
landa og á tvö heimili, í Kalifomíu
í Bandaríkjunum og í Astralíu. Ég
er einnig meðlimur í Rotary-hreyf-
ingunni, en hún hefur einmitt í
** gegnum árin styrkt skátahreyfing-
una af alhug víða um heim, nema
hvað helst hér á íslandi. Ég hef
sótt nokkra Rotary-fundi hér á ís-
landi og líkar vel við þá menn sem
þar starfa. Ég tel það gott málefni
að styrkja skátahreyfinguna — ve-
rið er að þjálfa upp fólk til að gegna
foringjastöðum og hefur það marg-
sýnt sig að úr röðum skáta koma
bestir frammámenn.
Með réttum kennsluaðferðum
rusli á götuna út um bílrúðuna
myndu þau örugglega fara að for-
dæmi föður síns. Þessi aðferð er
kennd við Englendinginn Robert
Baden-Powell, sem stofnaði skáta-
hreyfinguna fyrir u.þ.b. 80 árum, —
í daglegu tali kölluð „show-and-
do“-aðferðin.“
Baden-Powell athugaði á sínum
tíma hvemig hin ýmsu þjóðfélög
byggðu upp karlmenn sína til að
taka við af eldri kynslóðum. Hann
uppgötvaði að hjá öllum þessum
mismunandi hópum var sama stefn-
an gegnumgangandi sem byggðist
upp á sýnikennslu, ekki fyrirlestrum
og skipunum. Hann sagði þetta
bestu aðferð til kennslustarfa og
fór svo að í byijun fjölmenntu kenn-
arar í skátaforingjastöðumar.
Roy Eckert var flugstjóri hjá Pan
Am-flugfélaginu í mörg ár, en sagð-
ist hafa þurft að stunda aukavinnu
með þar sem laun flugmanna hefðu
verið heldur lág í þá daga. Hann
starfaði sem sölumaður hjá banda-
rísku tryggingafélagi í 25 ár, en
er nú hættur því og hefur snúið sér
að innflutningi til Astralíu. „Ég hef
flutt reiðhjól frá Kína og selt til
Morgunblaðifl/Börkur
Unnið að uppsetningu sýningar á starfi skáta hvaðanæva úr heimin-
um.
Ástralíu sl. fímm ár, enda sjálfur
mikill hjólreiðaáhugamaður. Fyrir
tveimur árum hjólaði ég t.d. hring-
inn í kringum Island og ef ég er
ekki um borð í flugvél, þá er ég
hjólandi. Ég reyni eftir megni að
komast hjá því að nota bifreiðir.
Mér leiðist slík farartæki. Maður
hefur bókstaflega ekkert að gera á
meðan setið er í bfl. Konan mín,
Florence, sem nú er 69 ára, hjólar
oft með mér auk þess sem hún
syndir 2.000 metra á hveijum
morgni og slær mér við hvað það
snertir. Við hjónin eigum síðan eitt
áhugamálið í viðbót saman, sem er
dans, eða öllu heldur norður-
amerískur samkvæmisdans, en
hann gengur út á það að tvö pör
eða fleiri dansa saman undir
tvískiptum takti og skipta stöðugt
um mótdansara."
Frá íslandi heldur Roy til Aust-
urríkis þar sem hann tekur þátt í
landsmóti skáta og sagðist hann
verða fulltrúi íslands á því móti
enda meðlimur í skátafélaginu í
Kópavogi. Þá er á dagskrá skáta-
mót í Astralíu 29. desember nk.,
þar sem Roy ætlar m.a. að sjá um
hjólreiðaferð um Suður-Ástralíu og
í Ástralíu fer síðan alþjóðaskáta-
mótið fram um áramót 1987 til
1988 og má vænta þess að íslend-
ingar verði á því móti.
„Hef verið 55 ár í
skátahreyfingunm og
ferðast tíl 120 landa“
„Það
að
er mest gaman
detta ' “
FJÖLBREYTT dagskrá er á
skátamótinu og með vinsælli
póstum eru bjargsig og sigling-
ar. Þegar við komum þar að sem
verið var að síga klett niður í
fjöru var okkur tjáð að flestir
sem þarna hefðu spreytt sig þann
daginn væru byrjendur en kom-
ist þetta klakklaust eftir að hafa
þegið leiðsögn.
i sjoinn
Á siglingapóstinum, þar sem
hægt er að prófa róðrarbáta og
seglbretti, sagði Bjarki umsjónar-
maður að gengið hefði á ýmsu.
„Það hafa mest komið hingað stelp-
ur í dag, sumar þrælduglegar en
aðrar ekki eins góðar í að róa og
þær töldu sig vera, svo Hjálpar-
sveitin, sem er héma með okkur,
hefur haft nóg að gera við að elta
þær uppi og draga í land,“ sagði
Bjarki.
Seglbrettaleiðsögn var í fullum
gangi en fyrsti hluti hennar fer
fram í landi áður en þátttakendur
drífa sig í þurrgalla og prófa úti í
sjó. „Það er mest gaman að detta
í sjóinn," sögðu krakkamir þar sem
þau streittust við að halda jafnvægi
á brettunum við misjafnan árangur.