Morgunblaðið - 31.07.1986, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 31.07.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986 37 AKUREYRI Bæjarstjórn Akur- eyrar: Hitaveitan - yfirtaki húshitun Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti á fundi sínum síðastliðinn - þriðjudag að fela hitaveitustjóra og rafveitustjóra að leggja til breytingu á skipan húshitunar, sem miðast við að hitaveitan yfir- taki núverandi markað rafveit- « unnar á húsum með vatnshita- kerfi. Þetta er gert til þess að jafna hitastig í veitukerfi hitaveit- unnar, en það hefur verið mjög misjafnt að undanförnu og jafn- vel hefur þurft að gefa sérstakan afslátt á gjaldskrá vegna lágs hitastigs vatnsins. Sigurður J. Sigurðsson, einn bæj- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, er formaður stjómar veitustofnana Ak- ureyrar. Hann sagði í samtali við Mbrgunblaðið að samkvæmt lauslegri könnun væru á þriðja hundrað húsa með vatnshitaofna utan við veitu- kerfi hitaveitunnar og kjmt með rafmagni auk húsa í Gerðahverfi II, sem mörg væru með rafmagnsþi- lofna. Þetta ylli því, að hitastig á heita vatninu í bænum væri mjög misjafnt. Reynt hefði verið að leið- rétta það með sérstöku afsláttarkerfi, en jafnt hitastig til allra bæjarbúa væri mikið kappsmál stjómenda bæj- arins. Að mati tæknideildar veitu- stofnana væri það álitið vænlegast til árangurs að fyrrgreind hús kæmu inn í veitukerfi hitaveitunnar. Nú væri rafhitun örlitlu ódýrari en hitun með heitu vatni og þvi þyrfti að gera eitthvað til að fá fólk til að sam- þykkja þessar breytingar, öllum bæjarbúum til hagsbóta. Kostnaður við breytinguna væri enn óljós, en stefnan væri að kostnaður upphitunar með vatni yrði sambærilegur við ann- an húshitunarkostnað. Sigurður sagði ennfremur að víða í bænum væri hitastig vatnsins ójafnt vegna þess að heimtaugar væm of langar og eins vegna þess að sum hverfi byggðust seinna en búizt hefði verið við. Til greina kæmi að raf- veitan yfirtæki f staðinn einhver hús, til dæmis þar sem langar heimtaugar lækkuðu hitastig vatnsins. Ennfrem- ur kæmi til greina að stytta stofn- æðar. Ætlunin væri að byija á úrbótum fyrir þá verst settu og yrðu afsláttarreglur síðan endurskoðaðar f haust eða fyrrihluta vetrar, þegar vatnsnotkun ykist eftir sumarið og raunhæfur samanburður við sfðasta ár fengist. Hitaveita Akureyrar fær nú vatn frá Laugalandi í Eyjafirði, Hrafnagili og úr Glerárdal. Hitaveitan hefur einnig réttindi til vatnstöku á Reykj- um í Fnjóskadal og hefur verið að kanna svæðið við Laugaland á Þela- mörk. Sigurður sagði að með breyttu fyrirkomulagi á sölu hefði náðst gífurlegur spamaður á vatni og áæt- luð notkun hefði staðist undanfarið. Notkunin hefði á undanfömum miss- emm fallið úr 5 milljónum lítra í 3,5 milljónir eða nálægt því um 30%. % Vegna þess væri í nánustu framtíð ekki fyrirsjáanleg þörf á aukinni vatnsöflun, nema bærinn yxi hraðar en ráð væri fyrir gert. V.- Morgunblaöið/Hjörtur Gislason Á myndinni sést greinilega hversu litlu munaði að vörubifreiðin steyptist fram af brúnni. Á innfelldu myndinni er bilstjóri hennar, Markús Kristinsson. Eyjafjarðará: Vörubíll festist þvers- um á vestustu brúnni Engin slys á mönnum, bíllinn óskemmdur en brúin sigin um 2 sentimetra AkuréyrL ÞAÐ OHAPP varð á vestustu brúnni yfir Eyjafjarðará í gær, að vörubíll sem ekið var inn á brúna lenti að hálfu leyti út af henni og þversum. Engan sakaði en bOlinn lokaði veginum á þessum stað í rúma klukkustund og urðu þeir sem ætluðu sér þessa leið að taka á sig krók inn í fjörð til að komast Ieiðar sinnar. Óhappið varð rétt fyrir kl. 11 insson ökumaður bílsins sagði í árdegis. Bíllinn var að koma frá samtali við Morgunblaðið, að hann Þórshöfn, á leið til Keflavíkur með hefði ekið hægt inn á brúna, enda meltuverksmiðju. Markús Krist- kröpp beygja við brúarsporðinn. Hægra framhjólið hefði lent upp á brúarkantinn, og eftir það hefði hann ekki ráðið við bílinn, en náð að nema staðar áður en það varð um seinan. Bfllinn náðist af brúnni með aðstoð öflugs bflkrana og var nán- ast óskemmdur á eftir. Stórum vörubíl með krana var ekið út á brúna að hinum, og tókst honum að lyfta bflnum inn á brúna aftur. Menn óttuðust að brúin þyldi ekki þunga beggja bifreiðanna. Var því grannt fylgst með því hvort brúin sigi og mælingar vegagerðarmanna sýndu að brúin hafði sigið um 2 sentimetra, en brúin hélt. „Höfum ekkí áhuga á því að standa í stað“ — segir Krislján Jóhannesson, kvæmdastjóri DNG á Akureyri „VIÐ HÖFUM ekki áhuga á þvf að standa í stað og stækkun fyrir- tækisins liggur í loftinu. Hins vegar hefur það vaxið mjög hratt undanfarin misseri og við verð- um að fara varlega og jafna okkur á vaxtarverkjunum. Við reiknum með því að framleiða um 400 færavindur á þessu ári og velta um 40 milljónum króna,“ sagði Kristján Jóhannesson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins DNG á Akureyri, sem framleiðir sjálfvirkar tölvustýrðar færa- rúllur, í samtali við Morgun- blaðið. Kristján sagði að framleiðslan hefði gengið mjög vel, betur en menn hefðu þorað að vona. Allt sem hægt væri að framleiða væri selt. Fyrr á árinu hefði verið talsverður útflutningur til Færeyja og svo yrði væntanlega einnig í haust. í sumar hefði salan hins vegar aðallega ver- ið innanlands. Kristján sagði að um helgina væri von á færeyskum fram- Hörður Jónsson, en hann vinnur við samsetningu færibandanna. Kristján Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri umboðsmönnum hingað og þá réð- ist salan til Færeyja í haust líklega. Um aðra markaði sagði Krist- jáns, að Noregur væri afar áhuga- verður, en fyrirspumir hefðu borizt víða að úr heiminum, svo sem frá Grikklandi og Nýja-Sjálandi, en á báðum stöðunum væri markaður mjög stór vegna flölda smábáta, sem til stæði að endumýja. Enn- fremur hefðu sýnishom verið send til Bretlands og Bandaríkjanna. Þetta væru eiginlega stærri mark- aðir, en fyrirtækið réði við um þessar mundir. Hins vegar væri Noregur heppilegri svo og Græn- land með tímanum. Þess þyrfti að gæta við sölu tækja sem þessara að varahluta- og viðgerðarþjónusta væri hröð og góð, annars væri lítil tilgangur í sölunni. Loks gat Kristján þess að undan- farið ár hefði verið unnið að því að búa færavinduna út þannig að hana mætti nota sem línuspil. Sú vinna væri nú á lokastigi og væm sjó- menn mjög ánægðir með að fá tæki sem þeir gætu bæði notað sem línuspil og færavindu. Fyrirtækið DNG var stofnað um áramótin 1984 til 1985 og meðal helztu hluthafa eru Hampiðjar Eimskip, Nfls Gíslason og fleiri aðil ar. Braeðumir Davíð og Nfls Gísla synir hönnuðu vinduna upphafleg og sáu um framleiðslu og sölu, ei starfa nú báðir hjá fyrirtækinu. Hj fyrirtækinu starfa nú 25 manns. Blaðbera vantar í Oddeyrargötu og Glerárhverfi. Sérstaklega er óskað eftir fólki sem getur borið út fyrir hádegi allt árið. Upplýsingar hjá afgreiðslunni í síma 96-23905. Hafnarstræti 5, Akureyri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.