Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 31.07.1986, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986 fclk í fréttum semur sturtu fónkassa í annarri hönd, þegar annar nemandi vatt sér að honum og spurði hvort hann væri til í að spila með skólahljómsveitinni. „Ég kunni þá ekkert á saxófón" segir Richie og hlær, „en ég hélt að með því að þykjast kunna á hann, myndu stelpurnar fara að gefa mér hýrt auga. Áður en ég vissi af var ég búinn að sam- þykkja að spila í sveitinni og sat því sveittur fleiri nætur við að læra að leika á hljóðfærið" bætir hann við. Skólahljómsveit sú, sem hér um ræðir, kallaði sig „The Commodores" og varð hún fljót- lega æði vinsæl í fylkinu Alabama. Síðan færðu þeir félagar smám saman út kvíamar og urðu loks heimsfrægir. Það var svo árið 1982, sem Richie ákvað að reyna fyrir sér einn síns líðs. Fyrsta plat- an hans gekk æði vel, seldist í meira en fimm milljónum eintaka. Ekki var sú næsta síðri, því hún náði 16 milljónum eintaka. Nú er Lionel með þriðju plötu sína í smíðum, er reyndar orðinn á eftir áætlun. „Já þetta gengur hájf- erfíðlega" viðurkennir hann. „Ég vil ekki senda plötuna frá mér nema ég sé ánægður með hana og enn finnst mér vanta eitt gott lag, punktinn yfir i-ið. Annars held ég að þetta sé alveg að smella saman. Ég er kominn með laglínuna og aðaluppistöðuna í textann, á eiginlega bara eftir að krydda hvort tveggja svolítið. Síðan fer lagið í gegnum hið sígilda smábama-próf og standist það þá raun mun því þrykkt á plast" segir hann. Smábama- prófið felst í því að Richie kallar saman öll böm vina sinna og vandamanna og lætur þau hlusta á lagið. „Ef þau fara að dilla sér í takt við tónlistina, veit ég að lagið er grípandi og gott“ segir hann. „Ef þau hinsvegar hrífast ekki með, horfa bara út í loftið og nenna greinilega ekki að hlusta, þá get ég eins hent því í mslakörfuna. Böm em opin í eðli sínu og mun hreinskilnarí gagn- rýnendur en þeir fullorðnu" segir hann. „Ég veit að sumar vinnuað- ferðir mínar em einkennilegar, en þær virka og það er það, sem skiptir máli. Til að mynda á ég það til að fara í sturtu allt að fímm Lionel Richie söngva sína í Hjónin Brenda og Lionel Richie eru afskaplega ham- ingjusöm. „Það er þó fyrst núna, sem okkur finnst við tilbúin til að fara að eiga börn og stofna alvöru fjöl- skyldu“ segja þau. „Stundum kom lögin fyrirhafnarlaust, verða til í höfðinu á mér, án þess að ég viti af því sjálfur“ segir Richie. „En skáldagyðjan er duttlungafull og það kemur fyrir að ég vinn vikum saman að einu lagi. sinnum á dag, þegar ég er að semja lög. Sturtan hefur nefnilega reynst mér ótæmandi uppspretta fýrir Iög og ljóð. Ég hef alltaf sungið i sturtu, alveg frá því ég var lítill strákur. Það var samt ekki fyrr en fyrir nokkmm ámm, sem ég gerði mér grein fýrir því, að lögin sem ég raulaði undir bununni, vom raunvemlega ekki til. Þau verða til meðan á hrein- gemingunni stendur." Heimili Richie-hjónanna í Bel Air stendur vinum þeirra og vandamönnum ávallt opið. „Quincy Jones og Sheila E em meðal okk- ar nánustu vina“ segir Lionel, „og þau gista oft hjá okkur, ganga í ísskápinn ef þau lystir og láta eins og þau séu heima hjá sér. Þetta kunnum við vel að meta og höfum því ein þijú gestaherbergi í húsinu. Einnig eigum við okkur sumarbústað, sem við fömm í, þegar við viljum fá að vera í friði" segir hann. Ekki em þó allar hús- eignir hjónanna upptaldar því Richie festi nefnilega kaup á gömlu háskólaibúðinni sinni ekki alls fyrir löngu. Þar hefur hann innréttað allt eins og það var, er hann bjó þar fyrir áratug. „Ég er meira að segja með gömlu myndina af Jimi heitnum Hendrix uppi á vegg“ segir hann. „Há- skólaárin vom ljúfur tími og þegar ég kem í þessa íbúð finnst mér ég yngjast allur upp, endurlifí all- ar þær tilfínningar og kenndir sem þá bærðust innra með mér. Fyrir mér er íbúðin nokkurs konar helgistaður, minnisvarði um sak- leysi, einlægni og ofboðslega ást. Og svo mikið er víst að slíkur minnisvarði er vel þess virði að vera varðveittur" segir þessi stór- stjama, laga- og ljóðahöfundur- inn, Lionel Richie. Flest kvöld, um miðnæturbil stígur söngvarinn og lagahöf- undurinn Lionel Richie upp í bifreið sína og ekur stefnulaust út í náttmyrkrið. Hann setur spólu með óklámðum lagasmíðum í seg- ulbandstækið og raular með. Stundum veit hann ekki fyrr til en hann er farinn að syngja — textinn hefur komið af sjálfu sér — hann hefur samið ljóðið, án þess að vita af því sjálfur. Það kemur þó einnig oft fyrir, að skáldagyðja Riehie er ósamvinnuþýð, hann verður að vinna vikum saman við textagerð- ina. Ferill Lionels Richie hefur verið æði litríkur, hann á að baki fleiri topplög en nokkur annar: hefur samið og/eða sungið níu lög á níu ámm sem komist hafa á toppinn vestan hafs, þ.á m. lögin Still, Endless Love, Lady og All Night Long. Þrátt fyrir að Richie sé ungur að ámm, aðeins 36 ára gamall, hefur hann einnig hlotið fímm Grammy-verðlaun og nú síðast Óskarsverðlaun fyrir lagið „Say You, Say Me“ úr kvikmynd- inni „White Nights". En Richie er heppinn á fleiri sviðum en því, sem að starfmu snýr. Hamingjan hefur verið honum hliðholl í einka- lífínu, sem og í starfí. Hann hefur verið kvæntur konu sinni, Brendu Harvey-Richie í ein tíu ár, en böm eiga þau engin enn. — En hvert var upphafíð að frægðarferli Richie? „Ég ólst upp í Tuskegee, Alabama" upplýsir hann. „Faðir minn var kerfís- fræðingur að mennt og vann fyrir herinn, mamma hinsvegar skóla- stjóri — svo ég komst aldrei upp með neitt meiriháttar múður í æsku. Mamma hafði alla tíð mjög gott lag á að fá mig til að gegna sér. Hún útskýrði það fyrir mér að ég yrði að vera öðrum bömum til fyrirmyndar, svo að þau tækju eitthvert mark á henni. Einkunn- arorð þeirra beggja voru: „Mikil vinna, ágæt menntun og ströng siðgæðisvitund" — og í þeirra augum var það hinn mesti glæpur að nota ekki þá hæfileika, sem Guð hafði gefíð manni. Eftir á að hyggja, held ég að ég hafí feng- ið gott uppeldi, góðan grunn til að byggja á. Pabbi er mér líka sammála, hvað þetta varðar, því hann segir oft við mig: „Lionel, ég veit að þú munt aldrei geta endurgreitt mér að fullu, en þú gætir nú reynt." Hvað sem því líður þá vom foreldrar mínir langt frá þvi að vera sérlega tónelsk. Að lokinni skólaskyldu lagði Lionel stund á viðskiptafræði í heimavistarháskóla. Einn daginn var hann á gangi á grasflötinni fyrir framan skólann með saxó- Þeir Eric Clap- ton og Phil Collins (í bak- sýn) hafa reynst Lionel Richie afskap- lega vel, í gegnum tíðina. „Þeir mæta yfirleitt og hlusta á lögin, áður en þeim er þrykkt á plast“ segir Richie. „Eg tek lika mikið mark ágagnrýni þeirra, ber virðingu fyrir þeim sem lista- mönnum og veit að þeir vilja mér báðir vel. A ð sjá bjálkann í sínu eigin auga ví hefur stundum verið haldið fram, að sú manneskja, sem viðurkennir veikleika sína, sé í raun mun sterkari en hún heldur og vel má vera að töluvert sé til í því. Meðal þeirra, sem fúslega viður- kenna galla sína og misbresti er söng- og leikkonan Barbra Strei- sand. „Allt frá því ég steig fæti mínum fyrst á svið, hef ég átt í endalausum útistöðum við yfírmenn mína og samstarfsmenn," viður- kennir hún. „Ég er mjög ákveðin í skoðunum og læt ekki vaða yfír mig að einu eða neinu leyti. Stund- um hættir mér því til að bregðast of harkalega við vingjamlegum ábendingum, það veit ég vel. Ástæðan er hins vegar einfaldlega sú, að alla mína ævi hef ég verið í vamarstöðu. Ég þótti með ein- dæmum ófríð í æsku og það eitt, þótti í þá daga verra en að vera bæði nautheimskur og hæfíleika- laus. Fegurðin var eini mælikvarð- inn á manngildi fólks og þar af leiðandi varð ég alltaf undir í allri keppni, hvort heldur það var um athyglí eða ást. Ég gerði mér því æði snemma grein fyrir því, að ef ég ætlaði að ná einhverjum árangri í lífínu, þá yrði ég að leggja tvisvar sinnum harðar að mér en þær kyn- systur mínar, sem fegurri voru. Þetta er ástæðan fyrir þessu bijál- æðislega baráttueðli mínu. Auðvit- að vildi ég óska að ég gæti hamið mig stundum, bitið á jaxlinn og talið upp að tíu, áður en ég byija að æpa á fólk, en það hefur mér enn ekki tekist. Einhvem tíma var mér sagt að það kæmi með aldrin- Hún er þekkt fyrir frekju og yfirgang, sannkallað kjarnorku- kvendi. En skyldi hún róast með aldrinum? söng- og leikkonan Barbra Streisand. um, svo það má vera, að um sjötugt verði ég orðin ljúf eins og lamb,“ segir Barbra, en bætir svo við og brosir út f annað: „En fínnst ykkur það ekki svolítið ólíklegt?" Morgunblaðið/Bjami Þetta skyldi þó aldrei vera það sem koma skal — tólf hæða torf- blokkir? Torfhleðsla í Vatnsmýrinni Nei, nú detta okkur allar dauðar lýs varð okkur að orði er við komum auga á þessa duglegu drengi dunda sér við torfhleðslu einn daginn fyrir skömmu. Torfhleðsla er sennilega ein af fáum iðjum sem maður áleit örugglega heyra sögunni til. En á ekkert er að treysta, tískan er óútreiknanleg og hver veit nema framtíðarblokkim- ar verði einmitt eitthvað í ætt við bóndabæi forfeðranna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.