Morgunblaðið - 31.07.1986, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
53
Njáll á Bergþórshvoli
bregður sér í bæinn
eir stungu óneitanlega nokkuð
í stúf við umhverfið, leikaram-
ir, sem stöldruðu við í stórmarkaðn-
um, á leið sinni upp í Rauðhóla, á
dögunum. í fullum skrúða komu
þeir við í kjörbúðinni og dreifðu
kynningarbæklingum um hina at-
hyglisverðu sýningu, söguleikana
Njáls sögu, sem fram fer undir
berum himni. Er þá bar að garði,
hafði Brúðubíllinn rétt rennt úr
hlaði og því mikið um böm á bfla-
planinu. Störðu þau agndofa á þetta
fomeskjulega fólk, vissu vart hvað-
an á sig stóð veðrið. Einstaka kríli
hafði þó kjark til að hvísla „hæ“,
er þau gengu hjá, Njáll og Þór-
katla, auk allra hinna sögupersón-
anna. Ekki leið þó á löngu, uns
þeim varð það ljóst að þessir víga-
legu víkingar vom ekki vitund
hættulegir — þetta var bara ósköp
venjulegt fólk í furðulegum fötum.
Forvitnin gerði vart við sig, þau
fetuðu sig örlítið nær, þreifuðu og
þukluðu á fögmm fatnaði fom-
mannanna og klifmðu, sum hver,
upp í fang þeirra.
„Já, þeim fannst við dálítið ein-
kennileg," sagði Erlingur Gíslason,
sem fer með hlutverk Njáls í verk-
inu, sem sýnt hefur verið nú í sumar
uppi í Rauðhólum. „Við emm búin
að sýna sextán sinnum," upplýsti
hahn, „og eigum enn eftir tvær
sýningar. Þær verða báðar helgina
9.—10. ágúst nk. Aðsóknin hefur
verið alveg sæmileg, það sem af
er, þó svo vissulega ráðist hún mik-
ið af veðri og vindum. Annars
höfum við verið svona tiltölulega
heppin með veður — aðeins lent í
einni „kaldri" sýningu og annarri
æði „votri" bætti hann við.
En hvemig kom þessi sýning til?
„Ja, fyrirmyndimar em náttúmlega
fjölmargar," svaraði Erlingur. „Úti-
leikhús em vel þekkt fyrirbæri víða
um heim. Auk þess hafði þetta ver-
ið gert á Hólum í Hjaltadal fyrir
nokkm síðan, er Gunnar Eyjólfsson
setti þar upp verk um Jón Arason.
Hvað Njáls sögu snertir var ætlun-
in í fyrstu sú, að sýna verkið á
Þingvöllum, nánar tiltekið í
Hvannagjá, norður undir Bolabás.
Þegar til kom, vildi Þingvallanefnd-
in hins vegar ekki nota þjóðgarðinn
í þetta. Þá fundum við gjótu í Hafn-
arfjarðarhrauni og sóttum um leyfi
til að leika þar. Þrátt fyrir velvilja
bæjarstjómarinnar fékkst það ekki
og enduðum við því uppi í Rauð-
hólum. Sá staður er líka alveg
tilvalinn fyrir svona sýningar,"
sagði Erlingur. Hljómburðurinn er
svo góður að ópemunnendur em
nú alveg óðir í að komast í gjót-
una, og ljósamálin em í góðu lagi,
svo ekki sé nú meira sagt. Við emm
þvf bsestánægð með útkomuna, eft-
ir allt saman. Það hefur líka verið
regjulega gaman að taka þátt í
þessu og ekki kæmi þ'að mér á
óvart, þó svona útileikhús yrði ár-
viss viðburður, hér eftir."
Þátttakendur í sýningunni em
tólf talsins, en um uppfærslu verks-
ins sáu þau Helgi Skúlason og
Helga Bachmann.
Skúli Gautason í gervi Kára, Bryndís Petra Bragadóttir í hlutverki Hildigunnar, Erlingur Gíslason sem
Njáll og Guðrún Þórðardóttir í búnntgi JÞórkötlu við Miklagarð, ásamt ungum aðdáendum.
Sljörnur
setjast
að
snæðingi
Því hefur stundum verið haldið
fram, að samkeppnin milli
stjórstjama veraldar sé svo hörð
að öfúndin geri út um alla vináttu
þeirra í milli. En hvort svo sem vin-
átta þessa fólks er einlæg og traust
eða eingöngu byggð á kurteisi og
eiginhagsmunasemi virðast stjöm-
urnar vestan hafs vera æði mikið
saman utan vinnutíma. Söngvarar,
dansarar, leikarar og framleiðendur
halda hópinn, sjást oft saman á
alls kyns sýningum og samkomum
og er í flestum tilfellum ekki annað
að sjá, en að vel fari á með viðstödd-
um. Ekki alls fýrir löngu fóm þau
Elizabeth Taylor, Michael Jackson,
Lionel Richie og Mikhail Baryshni-
kov saman út á lífið, fóm fyrst að
sjá ballettsýningu eina í „The Amer-
ican Ballet Theatre" og snæddu
síðan saman á einum virtasta veit-
ingastaðnum í Los Angeles. Öll em
þau heimsfræg og vel fjáð og því
vaknaði sú spurning, er myndin af
hópnum birtist í blöðunum — hver
hefði borgað brúsann. Þeirri spum-
ingu var fljótlega svarað — sá
yngsti í hópnum, Michael Jackson,
gerði það, enda þekktur fyrir ör-
læti og vingjamlegheit — sannkall-
aður „sjentilmaður".
Trúlega myndu einhverjir snúa sér við á götu, ef þeir mættu þessu
föngulega fólki á rölti í Austurstræti. Vinirnir brugðu sér saman út
að borða fyrir sköinmu — hvert úr sinni áttinni — Michael Jackson,
Elizabeth Taylor, Lionel Richie og Mikhail Baryshnikov.
COSPER
— Þér segist hafa verið í pilsi þegar þér komuð. Við þekkj-
um nú það bragð.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu
mig meö heimsóknum, gjöfum og skevtum á
afmcelisdaginn minn 22. júni. Kcer kveÖja til
ykkar allra.
Hrefna Guðnadóttir,
Þórustöðum,
Vatnleysuströnd.
TERELYNBUXUR
kr. 995, 1090, 1195, 1495 og
terelyn/ull/stretch 1595
Nýkomnar riflaðar flauelsbuxur kr. 745 og
einnig svartar og gráar bómullarbuxur kr. 790.
Skyrtur kr. 435, 450, 485, 510 og 690 langar
og stuttar ermar.
Nærföt, sokkaro.fi. ódýrt.
Andrés
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22,
SÍMI 18250
Mánudaga: Frá Stykkíshólmi kl. 09.00
FráBrjánslækkl. 14.00
Til Stykkishólms kl. 18.00
fyrir brottlör rútu til Rvk.
Fimmtudaga: Samatimataflaog
mánudaga.
Föstudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00,
eftir komu rútu.
Viökoma I inneyjum.
Frá Brjánslæk kl. 19.30
Til Stykkishóims kl. 23.00
Þriöjudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00
eftir komu rútu.
Frá Brjánslæk kl. 18.00
Til Stykkishólms kl. 21.30
Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
Sigling um suðureyjar.
Frá Brjánslæk kl. 15.00
Til Stykkishólms kl. 19.00
Á timabilinu 1, júli til 31. ágúst
Miövikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00
Frá Brjánslæk kl. 14.00
Til Stykkishólms kl. 18.00,
fyrir brottför rútu.
Viðkoma er ávallt í Flatey á báöum leiöum.
Bílaflutninga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara.
Frá Stykkishólmi: Frá Brjánslæk:
Hjá afgreiðslu Baldurs Hjá Ragnari Guðmundssyni
Stykkishólmi, s.: 93-8120 Brjánslæk, s.: 94-2020.
Á tímabilinu 1. mai til 30. sept.
Á tímabilinu 1. júni til 31. ágúst
Nýja Kökuhúsid við Austurvöll
er nú einnig opid á fimmtudags-
kvöldum til kl. 23.00.
Kökugerdarmeistarinn (Konditorinn)
bakar sjálfur á staðnum hið
Ijúffengasta góðmeti