Morgunblaðið - 31.07.1986, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 31.07.1986, Qupperneq 58
ÍiíORGUNBLAÐÍÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986 jj Ef {xli Uilt -eJclci sjd mi^ beBa, á~ ( újölonum, ge-fSu mérþd 5ö þós.Kn' áster... .. .að finna að þú ert gift þínum besta vini TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reswved O 1386 Los Angetes Tlmes Synchcate Þessi hringing er örugg- lega til þín. Með morgunkaffínu Má bjóða þér kaffi eða á ég bara að skvetta því beint yfir borðstokkinn? HÖGNI HREKKVÍSI Skrjáfþurr vill að gert verði við sundlaugar á haustin og veturna. Ekki loka sundlaugnm á sumrin Skr|áfþurr hringdi: „Hvemig er það með yfirstjórn sundmála hér í borginni, verður alltaf að hafa einhvetja sundlaug lokaða þegar mest er að gera á sumrin? Núna er búið að loka Sundlaug Vesturbæjar og fyrr í sumar var Sundlaugin í Laugardal lokuð. Er ekki hægt að annast viðhald á sund- laugunum á haustin eða vetuma en ekki á sumrin þegar flestir fara í sund? Ég fer oftast í sund í Sund- laug Vesturbæjar en verð núna að fara út á Seltjamames eða upp í Laugardal ef ég ætla í sund í úti- sundlaug. Fyrir utan óþægindin sem hljót- ast af þessu er varla á aðsóknina í þessar laugar bætandi. Nuddpott- urinn í Laugardalnum hefur til dæmis verið svo þéttsetinn í þau skipti sem ég hef komið þangað eftir breytingamar að engan veginn hefur verið hægt að hafa ánægju af því að sitja í honum. Beini ég því þeim tilmælum til þeirra sem fara með þessi mál að þeir reyni að komast hjá því að loka Didda skrifar: „Mig langar til að skrifa nokkur orð til Ólafs sem hringdi í Velvak- anda 13. júlí sl. og lýsti ánægju sinni yfír að framhaldsmyndaflokk- urinn _,,Hótel“ væri nú að hætta! Kæri Ólafur og allir aðrir sem hafa hringt eða skrifað í Velvakanda og sagt eitthvað um efni sjónvarpsins. Það er alveg óþarfí að hringja eða skrifa og lýsa óánægju yfir þessu eða hinu. Sjónvarpið sýnir efni sem það nær í. Ef það myndi hætta að sundlaugunum á sumrin eða út- skýri hvers vegna það er nauðsyn- legt.“ sýna Dallas, Hótel, fótbolta og þetta eða hitt sem allir kvarta yfír þá væri svo lítð í sjónvarpinu að það yrði næsta kvörtunarefnið í dag- blöðin. Ég kvartaði nú ekki þó að mér fyndust flestar ef ekki allar beinu útsendingarnar af fótboltan- um í HM í Mexíkó alveg drepleiðin- legar þegar þær stóðu yfir og ég skrifa það strax að ég er ekki að kvarta núna yfir þessum fótbolta. Jæja í lokin vil ég þakka sjónarpinu fyrir ágætt efni síðast liðin ár.“ Hættið þessum eilífu kvörtunum Yíkveiji skrifar Um þessar mundir er mikið um fréttir í blöðunum — bæði í Morgunblaðinu og öðrum blöðum — um líflega laxveiði víðs vegar um landið. Út af fyrir sig er allt gott um það að segja en Víkveiji sér þó ástæðu til að hafa orð á tveimur þáttum þessa máls. Annar er sá, að leigutakar ánna telja sér mikinn hag í því að koma fréttum um mikla laxveiði á framfæri. Með því telja þeir sig leggja grundvöll að því að geta haldið uppi verði veiðileyfanna. Stundum gengur þessi sölumennska í formi frétta- miðlunar svo langt, að leigutakar telja það sérstakt móðgunarefni við sig, ef sagt er frá mikilli veiði í öðrum ám eða á öðrum veiði- svæðum í sömu á. Samkeppnin segir víða til sín! Hinn þáttur málsins snýr að veiðisögunum, sem birtast í Morg- unblaðinu og öðrum blöðum. A þessu sumri hefur laxveiði verið óvenju mikil og fréttir birtast um einstaklinga — sérstaklega ráð- herra og bankastjóra — sem veiða tugi laxa í hverri á, sem þeir koma í. Hvaða æði er þetta?! Eru lax- veiðar íþrótt eða er þetta spuming um aflamagn? Eins og allir vita, hefur sá hugsunarháttur verið ríkur í okkur Islendingum, að sá fiskiskipstjóri, sem kemur með mest afíamagn að landi sé mestur en ekki sá sem kemur með beztan afla að landi. Ef svo fer fram sem horfír kemur að því, að einhver tekur að sér að krýna aflakóng laxveiðimanna á hveiju ári! XXX Víkveiji hefur orðið þess áþreifanlega var undanfamar vikur, að almenningsálitið hefur verið að breytast í sambandi við hvalveiðar. Énginn vafí er á því, að hvalfriðunarmenn áttu sér marga stuðningsmenn á íslandi í fyrra t.d. þegar þessi mál voru mjög til umræðu. Og það er líka ástæða til að ætla, að margir landsmenn hafí haft efasemdir um réttmæti þess að stunda hvalveið- ar áfram í vísindalegum tilgangi. En nú má víða heyra, að þetta er að breytast og að fólki finnst vemdunarsjónarmiðin vera að ganga út í öfgar. Að mati Víkveija er ástæðan fyrst og fremst van- þóknun fólks á framkomu Banda- ríkjastjómar í málinu. Henni hefur sennilega tekizt að snúa mörgum í aðra átt en til stóð. XXX A Igær birtist hér í blaðinu at- hyglisvert samtal við Bjöm Vemharðsson, sem hefur átt í úti- stöðum við Húsnæðismálastofnun vegna vaxtagreiðslna. Bjöm telur að stofnunin hafí tekið of háa vexti af ákveðinni tegund lána. Svo virð- ist sem stofnunin hafí viðurkennt sjónarmið Bjöms að einhveiju leyti, þar sem skrifstofustjóri hennar segir í samtali við Morgun- blaðið í gær, að vextir verði lækkaðir en aðeins frá gjalddögum í nóvember á síðasta ári og frá gjalddögum á þessu ári. Bjöm Vemharðsson telur, að þessi ákvörðun sýni slíkan valdhroka að hann eigi ekki annan kost en að kæra stofnunina fyrir okur. Nú ætlar Víkveiji ekki að setjast í dómarasæti í þessu máli en óneit- anlega sýnist það undarlegt, ef stofnunin á annað borð viðurkenn- ir rök fyrir vaxtalækkun, að hún skuli þá ekki jafnframt endur- greiða oftekna vexti. XXX Víkveija hefur borizt svohljóð- andi bréf frá Jes Einari Þorsteinssjmi: „Kæri Víkveiji. Ég þakka þér kærlega fyrir grein þína um sundlaugamar í Laugardal, sem birtist í Morgunblaðinu 19.7. sl. Það er mikil uppörvun að lesa skrif þar sem fram kemur skiln- ingur á mikilvægi mótunar umnhverfís okkar. Með beztu kveðjum." Víkveiji þakkar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.