Morgunblaðið - 31.07.1986, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
Reykjavíkurmaraþon 27. ágúst:
Hápunkturinn f skokki og trimmi
sumarsins hjá öllum landsmönnum
Reykjavíkurmaraþon fer fram kepptu hlauparar frá 12 löndum, hb
triAio oinn ennmirianinn Oit fbctir frá V-bi/ckalflnHi RrotlanHi
Reykjavíkurmaraþon fer fram
í þriðja sinn sunnudaginn 24.
ágúst nk. Það markmið var sett
við upphaf fyrsta hlaupsins að
ná til sem flestra sem stunda
einhverja útivist og heilsurœkt.
Með því að bjóða upp á keppni
í skemmtiskokki og hálfmara-
þonhlaupi auk maraþonhlaups-
ins getur fólkið valið sér
vegalengd við hæfi. Reykjaví-
kurmaraþon er því jafnt vett-
vangur heilsubótarskokkarans
sem langhlauparans.
Flestir eiga það sameiginlegt
að hafa ánægju af því að hlaupa
með fjöidanum og hrífast af
stemmningunni sem ríkir. í millj-
ónaborgum eins og t.d. New
York skapa áhorfendur sem fylgj-
ast með hlaupinu á götum úti
ólýsanlegt andrúmsloft. Þó við
séum ekki að tala um milljónir
hér á íslandi þá er augljós vakn-
ing á þessu sviði svo sem sjá
mátti á geysigóöri þátttöku í
Afríkuhlaupinu í vor. Takmarkið
er að Reykjavíkurmaraþon verði
hápunktur í skokki og trimmi
sumarsins hjá öllum landsmönn-
um, því þó maraþonið beri nafn
Reykjavíkur er það hugsað sem
hátíð allra landsmanna.
Alþjóðlegt hlaup
Reykjavíkurmaraþon er al-
þjóðlegt hlaup. í hlaupinu í fyrra
kepptu hlauparar frá 12 löndum,
flestir frá V-Þýskalandi, Bretlandi
og Bandaríkjunum, og má búast
við enn fleirum í hlaupið í ár.
Fæstir þeirra flokkast í hóp af-
reksíþróttamanna, hér er frekar
um að ræða fólk sem hleypur
fyrst og fremst ánægjunnar
vegna og hefur gaman af aö ferð-
ast til nýrra staða í sumarleyfinu.
Reykjavíkurmaraþon er með
aukaaðild að alþjóðasamtökum
maraþonhlaupara, AIMS, og hef-
ur sótt um fulla aðild. Við það
tekur Reykjavíkurmaraþon sér
ýmsar skyldur á herðar því mjög
ákveönar reglur eru um ýmiss
framkvæmdaatriði, t.d. mælingu
hlaupaleiðarinnar. En með því að
vera fullgildur aðili að AIMS hefur
Reykjavíkurmaraþon skipað sér á
bekk með öðrum alþjóðlegum
maraþonhlaupum sem fram fara
um allan heim ár hvert.
Þjálfun
Það er talsverð þrekraun að
hlaupa maraþonhlaup og enginn
skyldi reyna slíkt án þess að
hafa þjálfað vel áður. Hálfmara-
þonhlaup er eins og nafnið segir
hálf maraþonvegalengdin, eða
21 km, og er hálfmaraþonhlaupið
mjög verðugt takmark til að
stefna að fyrir þann sem hlaupiö
hefur reglulega í lengri tíma.
Skemmtiskokkið er innan við 7
• Frá upphafi fyrsta Reykjavíkurmaraþonslns árift 1984.
km og allir sem eitthvað hreyfa
sig reglulega ættu að ráöa við
þá vegalengd meö því að hver
og einn ákvarði hraða miðað við
getu. Það er takmark þeirra sem
standa að Reykjavíkurmaraþoni
aö fá fólk til að stunda reglu-
bundna þjálfun. Við ráðum
kyrrsetufólki frá því aö sketla sér
í gallann og taka þátt án alls
undirbúnings, því oft er kappið
það sama og fyrr þegar formið
var e.t.v. eitthvað betra. Reynið
frekar að hrista af ykkur slenið
og stunda reglulegar æfingar,
helst tvisvar til þrisvar í viku, og
muna að fara bara nógu rólega
af staö. Það er að mörgu að
hyggja í sambandi við þjálfun og
útbúnað fyrir langhlaup og hér í
blaðinu verður leitast við að gefa
fólki góð ráð þann tíma sem eft-
ir er fram að hlaupi. Innan
skamms verður birt skráninga-
reyðublað og ýmsar frekari
upplýsingar um hlaupið.
2. flokkur:
öðru sæti fyrir síðasta keppnisdag.
Hann lék fyrsta daginn á 85 högg-
um og var þá í 5. sæti, síðan lék
hann á 80 höggum og komst þar
með í annað sætið, og í gær lék
hann á 85 höggum og er því sam-
tals á 250 höggum.
Þriðji Suðurnesjarhaðurinn í
toppsætunum er Ógmundur M.
Ögmundsson. Hann lék á 88 högg-
um á mánudaginn og var þá í
11 .-17. sæti. Á þriðjudaginn bætti
hann skor sitt um heil tíu högg, lék
á 78 höggum, og komst þar með
í þriðja sæti en í gær hermdi hann
eftir félögum sínum og lék einnig
á 85 höggum. Þrír efstu menn léku
sem sagt allir á 85 höggum í gær.
Tómas Baldursson úr Golfklúbbi
Grindavíkur er í fjórða sæti á 252
höggum. Eftir fyrsta daginn var
hann í 6.-10. sæti á 87 höggum,
komst í sjötta sæti á þriðjudaginn
með því að leika á 83 höggum og
í gær lék hann enn betur, eða á
82 höggum, og er nú í fjórða sæti
á 252 höggum.
Bernharð Bogason frá Eskifirði
er í fimmta sæti með 255 högg.
Hann er því sex höggum á eftir
Jóni sem er í fyrsta sæti. Bernharð
hefur leikið á 84-90-81 höggum
og eru það talsvert miklar sveiflur
á milli daga.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með siðasta deginum hjá þessum
köppum í dag. Þeir eru örugglega
allir staðráðnir í að gera sitt besta
til að hreppa fyrsta sætið og Jón
er alls ekkert á því að láta það af
hendi. Málin skýrast um kvöld- »
matarleytið í kvöld því þá ættu
síðustu menn að Ijúka keppni.
SIGRÍÐUR
ENN FYRST
Sigríöur B. Ólafsdóttir frá
Húsavík er enn með forystu í 2.
flokki kvenna þó svo hún sé nú
komin niður í fimm högg. Eftir
fyrsta dag keppninnar hafði hún
tíu högga forystu á Gerðu Hall-
dórsdóttur úr GS sem nú er í öðru
sæti. Hvort þessi forysta nægir
Sigríði kemur í Ijós í kvöld en ekki
er ólíklegt að hún fari með sigur
af hólmi í þessum flokki.
Sigríður hefur leikið á 97-100-
98=295 höggum en Gerða hefur
verið í stöðugri sókn, lék fyrst á
107 höggum, þá 98 og í gær á 95
eða samtals á 300 höggum. Björk
Ingvarsdóttir úr Keili og Krissine
Eide úr Nesklúbbi eru jafnar í þriðja
til fjórða sæti, hafa báðar leikið á
303 höggum. Björk á 104-95-
104=303 höggum en Kristine á
107-97-99=303 höggum.
Jóhann Rúnar fyrstur
en margir fylgja fast á eftir
ÞAÐ VIRÐIST ætla að verfta
skemmtilega jöfn og spennandi
keppni í 1. flokki karla á lands-
mótinu í golfi er marka má skor
manna á fyrsta keppnisdegi
sínum sem var í gær. Jóhann
Rúnar Kjærbo úr GR hefur foryst-
una, en hann lék á 80 höggum í
gær.
Jóhann Rúnar lék vel í gær eins
og sést á skorinu hjá honum enda
á hann ekki langt að sækja hæfi-
leika sína í golfinu því hann er
sonur Þorbjarnar Kjærbo sem varð
íslandsmeistari árin 1968—80 og
leikur kappinn enn í meistaraflokki.
Gunnlaugur Jóhannsson úr
Neskúbbi er í öðru sæti og hefur
hann aðeins slegið kúluna einu
höggi oftar en Jóhann Rúnar, eða
81 sinnum. í 3.-6. sæti eru fjórir
kappar sem allir hafa slegið 82
högg. Þetta eru þeir Sigurður
Hólm úr Keili, Rúnar Gislason úr
GR, Guðmundur Bragason úr GG
og Árni Jónsson úr GA.
1. flokkur:
ÞAÐ VERÐUR örugglega hart bar-
ist og fast slegið á síðasta
keppnisdegi 2. flokks karla á
landsmótinu sem er í dag. Eftir
þrjá daga hefur Jón P. Skarp-
héðinsson úr Golfklúbbi Suður-
nesja enn forystuna en tveir
félagar hans úr GS fylgja fast á
hæla honum og það getur allt
gerst f dag.
Jón náði forystunni á þriðjudag-
inn er hann lék á 81 höggi en eftir
fyrsta dag mótsins, mánudaginn,
var hann í 2.-3. sæti á 83 höggum.
I gær lék hann síðan á 85 höggum
og hefur því alls notað 249 högg
þessa þrjá daga.
Lúðvík Gunnarsson úr GS er í
Morgunblaðið/Einar Falur
• Gunnlaugur Jóhannsson úr Nesklúbbi er f öðru sæti f 1. flokki á
landsmótinu í golfi eftir fyrsta dag keppninnar.
Heimamenn raða
sér í efstu sætin fyrir
síðasta keppnisdag
Sigríður hefur enn örugga forystu hjá konunum