Morgunblaðið - 31.07.1986, Page 62
62
> —
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
-K
Skrásett vörumerki Coca Cola
McEnroe byrjaður
að leika tennis
TENNISKAPPINN skapstóri, John
McEnroe, lék sinn fyrsta leik eftir
tœplega sex mánaða hlé um
síðustu helgi og lék hann þá við
Ivan Lendl sem er talinn besti
tennisleikari heims um þessar
mundir. Lendl vann 6-4, 3-6 og
7-6 (7-4) og átti ekki í mjög mikl-
um erfiðleikum.
„Ég var allt of lengi að komast
í gang í þessum leik en þetta kem-
ur allt saman þegar ég kemst í
leikæfingu," sagði McEnroe eftir
leikinn. „Mór fannst ég leika ágæt-
lega þegar tillit er tekið til þess
viö hvern ég var að leika og að
ég hef ekki snert spaða í hálft ár,“
bætti hann síðan við.
„John verður ekki lengi að kom-
ast í sitt gamla form. í dag lék
hann nokkuð vel en gerði sig sekan
um að klúðra auðveldum boltum,
nokkuð sem hann gerði ekki þegar
hann var í leikæfingu. Hann kemst
• John McEnroe
fljótlega á toppinn aftur," sagði
Lendl um leik McEnroe. Þess má
geta að Ivan Lendl hefur unnið 100
leiki af síðustu 106 sem hann hef-
ur spilað. Hreint ótrúlegur árangur
hjá honum.
Úrslit íkvöld
ÚRSLITALEIKIRNIR í Myllumót-
inu ítennis fara fram í Þrekmið-
stöðinni f Hafnarfirði í kvöld og
hefjast leikirnir f einliðaleik karia
og kvenna klukkan 19, en í tvfliða-
leik klukkan 21.
Mótið byrjaði fyrir hálfum mán-
uði og hófu 38 þátttakendur
keppni. Áður en úrslitakeppnin
hefst í einliðaleik í kvöld gefst
áhorfendum kostur á að vinna sér
inn fullan poka af brauði og kökum
með því að taka þátt í tennisbolta-
þraut, sem felst í því að slá
tennisbolta ofan í tunnu.
Aðgangseyrir aö úrslitakeppn-
inni er enginn, en Myllan gefur
vegleg verðlaun til keppninnar.
Dómarar fá
viðurkenningu
Knattspyrnudómarar á Suður-
nesjum hafa nú eitthvað að keppa
að. Útvegsbanki íslands í Keflavík
hefur ákveðið að gefa afreksbikar
fyrir dómara. Hann skal veittur
þeim knattspyrnudómara sem
ieggur mesta rækt við starfið,
sýnir áhuga og dugnað, og vinnur
sér og dómarastarfinu álitsauka.
• PiKunum 16 í danska fimleikaflokknum er sitthvað tii lista lagt.
Fimleikará Selfossi:
Danskur flokkur
sýnir i kvöld
DANSKI fimleikaflokkurinn AAG
GYM TEAM frá Arhus er staddur
hér á landi á leið sinni til Kanada
og Bandaríkjanna. Þeir verða
með sýningu í íþróttahúsi Selfoss
( kvöld kl. 20.00 ásamt fimleika-
fólki frá Gerplu Kópavogi.
AAG fimleikaflokkurinn er fræg-
ur 15 manna fimleikahópur sem
farið hefur vía. Þeir komu til ís-
lands 1980 og eru því íslensku
fimleikafólki að góðu kunnir.
Sýningardagskrá þeirra er mjög
fjölbreytt og ætti að höfða til
flestra meö skemmtilegu samspili
af íþróttum og dansi, fimleikum
og list.