Morgunblaðið - 31.07.1986, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. JÚLÍ 1986
63
Morgunblaðið/Bjarni
• Svava Tryggvadóttir bjargar á síAustu stundu f landsleiknum f,
gœrkvöldi.
Handknattleikur:
Kristján
í bann?
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fróttaritara
Morgunblaösins f Vestur-Þýskalandi.
SAMKVÆMT áreiðanlegum
heimildum hafa ekki náðst samn-
ingar milli Hameln og Gummers-
bach varðandi félagaskipti
Kristjáns Arasonar og á Kristján
á hættu að verða útilokaður frá
æfingaleikjum og deildarleikjum
næstu 6 mánuði.
Hameln vill fá miklar greiðslur
fyrir Kristján og hafi hann ekki
skriflegan samning um að hann
sé laus frá félaginu getur það kraf-
ist 6 mánaða banns. Myndi það
ná jafnt yfir æfingaleiki sem deild-
arleiki og kæmi sér illa fyrir Krist-
ján, sem yrði þá af fyrri hluta
Bundesligunnar.
Góðurfyrri hálfleikur
ÍSLAND og Vestur-Þýskaland
léku á Laugardalsvellfnum í gær-
kvöldi og eftir góðan fyrri hálfleik,
máttu íslensku stúlkurnar sætta
sig við 5:0-tap, en staðan f hálf-
leik var 1:0.
íslensku stúlkurnar áttu í fullu
tré við andstæðingana í fyrri hálf-
leik, börðust vel og fengu ágæt
marktækifæri. Besta færj þeirra
kom á 8. mínútu þegar Ásta M.
Reynisdóttir gaf góða stungusend-
ingu á Kristínu Arnþórsdóttur, en
Rosemari Neuser varði skot henn-
ar. Þarna fór gott færi forgörðum.
Á 12. mínútu mistókst íslensku
stúlkunum að hreinsa frá eftir
hornspyrnu, knötturinn barst til
Christel Klinzmann sem skoraði
örugglega 1:0. Skömmu síðar
komst Martina Voss inn fyrir
íslensku vörnina, en Erna Lúðvíks-
dóttir varði glæsilega.
íslenska liðið gaf eftir í seinni
hálfleik og þær þýsku gengu á lag-
ið. Á 44. minútu varði Erna vel,
Landsmótið
á myndbandi
FORRÁÐAMENN landsmótsins
slá ekki slöku við í sambandi við
framkvæmd mótsins. Þeir láta
taka alla keppnina upp á mynd-
band og síðan er hugmyndin að
fjölfalda efnið þannig að klúbbar
og einstakligar geti keypt lands-
mótsspóluna og skoðað sig og
aðra þar.
Það vakti athygli í keppninni í
gær að þeir sem annast upptökur
þessar sáust á sjó úti við mynda-
töku. Báturinn sem þeir félagar
voru á heitir Happasæll og eru
eigendur bræðurnir Sigurður og
Rúnar Hallgrímssynir. Þeir lánuðu
GS bátinn til þess arna en þeir
bræður eru meðlimir í GS og eins
og allir aðrir í klúbnum vilja þeir
leggja sitt af mörkum til þess að
allt verði eins gott og frekast er
kostur.
3. flokkur:
Högni skaust
í fyrsta sætið
ÞAÐ URÐU heldur betur breyting-
ar á lista efstu manna í 3. flokki
karla á Landsmótinu í gær. Högni
Gunnlaugsson úr GS skaust þá f
fyrsta sætið en hann var f 2.-4.
sæti eftir tvo daga ásamt þeim
Sigurbirni Bjarnasyni, GR, og
Hirti Kristjánssyni úr GS. Högni
hefur leikið betur og betur með
hverjum deginum og ef hann
heldur því áfram þá getur ekkert
komið f veg fyrir sigur hans í 3.
flokki.
Högni lék fyrsta daginn á 90
höggum, bætti sig um sex högg
næsta dag og í gær fækkaði hann
höggunum enn um tvö þannig að
syrpan hans lítur þannig út: 90-
84-82=256 högg. Fallega gert hjá
honum.
Þremur höggum á eftir Högna
er Sigurbjörn Bjarnason úr GR
með 259 högg. Hann lék fyrsta
daginn á 91 höggi og var þá í 12.
sæti, 83 högg notaði hann á þriðju-
daginn og komst þá í 2.-4. sætið
en í gaer brá hann sér í annað
sætið með því að leika á 85 högg-
um.
Rúnar Valgeirsson úr GS er
þriðji með 262 högg (89-89-84).
Fjórði er Jóhannes Jónsson úr GR
á 263 höggum. Fyrsta daginn not-
aði hann 88 högg, þá 90 og í gær
85 þannig að það virðist allt vera
á réttri leið hjá honum. Steinar
Sigtryggsson úr GS og Guðmund-
ur Ó. Guðmundsson úr GR eru
jafnir í 5.-6. sæti með 264 högg.
Steinar lék á 88-87-89 en Guð-
mundur á 98-86-80 höggum.
Guðjón Einarsson úr Grindavík,
sem hafði forystuna eftir tvo fyrstu
dagana, er nú kominn í 14.-19.
sæti. Það gekk ekkert upp hjá
honum í gær og þegar kúlan loks-
ins komst ofan í síðustu holuna
hafði hann slegið hana 101 sinni
en hina tvo dagana lék hann á 87
og 86 höggum þannig að munurinn
er gífurlega mikill. Hann er nú á
274 höggum, 18 höggum á eftir
Högna, en fyrir daginn í gær hafði
Guðjón eitt högg á þá sem komu
næstir honum.
hélt ekki knettinum, sem barst til
Heidi Mohr og hún skoraði 2:0.
Eftir þetta virtist allur þróttur
úr íslensku stúlkunum og á 52.
mínútu skaut Silvia Neid að marki,
knötturinn fór í Laufeyju Sigurð-
ardóttúr og inn. Skömmu síðar
skoraði Martina Voss snyrtilegt
mark og Elke Richter innsiglaði
stórsigur með marki á 74. mínútu
eftir sendingu frá Voss.
íslenska liðið lék vel í fyrri hálf-
leik, en úthaldið og kraftinn vantaði
í seinni hálfleik. Erna Lúðvíksdótt-
ir, Ásta M. Reynisdóttir, Halldóra
Gylfadóttir, Arna Steinsen og
Kristín Arnþórsdóttir voru bestar.
S.G.
Kristján Einarsson:
Gengið
mjög vel
„ÞETTA hefur allt saman
gengið mjög vel fyrir sig og
í rauninni verið furðu spakt,“
sagði Kristján Einarsson yfir-
dómari landsmótsins í golfi í
gær.
„Þó get ég ekki kvartaö yfir
aðgerðarleysi því það hefur
verið þó nokkuð að gera við
að leiðbeina mönnum um ýmis
smáatriði sem þeir hafa ekki
verið alveg klárir á, en það
hefur ekkert stórvægilegt ver-
ið að,“ sagði Kristján.
Ragnar lék
manna best
ÞEGAR búið var að leika í 18
klukkustundir i Leirunni í gær
komst síðasti keppandinn í hús.
Það er ekki allstaðar hægt að
leika svo til allan sólarhringinn á
þessum árstíma og því þykir
þetta sjálfsagt merkilegt þó svo
kylfingar hér á landi séu öllu van-
ir. Ragnar Ólafsson úr GR er með
forystu f meistaraflokki karia, lék
f gær á 74 höggum en staða ann-
ara keppenda er þannig:
Magnús Jónsson, GS, 77
ÚlfarJónsson, GK, 78
NM-drengja:
Tapígær
ÍSLENSKA drengjalandsliðið í
knattspyrnu tapaði 4:0 fyrir
sterku liði Dana i gær á NM í
Danmörku, en staðan var 1:0 í
hálfleik. Danir höfðu mikla yfir-
burði i leiknum og unnu verð-
skuldaðan sigur.
Á morgun leika íslendingar gegn
Færeyingum, sem Svíar unnu 2:0
i gær, og gegn Norðmönnum á
laugardaginn, en þeir unnu Finna
2:1 í gær og þykja líklegastir sigur-
vegarar á mótinu.
Sigurður Pótursson, GR, 79
Gunnar Sigurðsson, GR, 79
ívar Hauksson, GR, 79
Jón H. Karlsson, GR, 79
Hilmar Björgvinsson, GS, 79
Það má sjá að sumir hafa kom-
ið mikið á óvart með því að raða
sér í hóp fremstu manna og það
kemur ekki síður á óvart að sjá
ekki á þeim lista nöfn nokkurra
manna sem búast heföi mátt við
að væru í hópi bestu kylfinga
landsins. Það er þó of snemmt að
afskrifa nokkurn því kapparnir eiga
eftir að leika 54 holur.
í meistaraflokki kvenna hefur
Jóhanna Ingólfsdóttir úr GR foryst-
una en hún lék í gær á 86 höggum.
Steinunn Sæmundsdóttir, GR, lék
á 88 höggum og yngsti képpandi
mótsins, Karen Sævarsdóttir úr
GS, lék á 89 höggum og er f þríðja
sæti. Ásgerður Sverrisdóttir úr GR
er í fjórða sæti á 91 höggi og ís-
landsmeistarinn frá því í fyrra,
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR,
er fimmta á 92 höggum.
í 1. flokki kvenna er Alda Sigurð-
ardóttir úr Keili með níu högga
forystu en hún lék á 85 höggum í
gær. Ágústa Guðmundsdóttir úr
GR er á 94 og þær Aðalheiður
Jörgensen og Guðrún Eiríksdóttir,
báðar úr GR, eru næstar á 100
höggum.
Blaðamenn íhættu
ÞEGAR blaðamenn fylgdust með
gengi manna á 3. braut á iands-
mótinu í gær, hinni illræmdu
Bergvik, fékk einn þeirra golf-
bolta í sig en slapp þó við meiðsli
vegna þess að kúlan kom f harð-
an hlut sem var í vasa blaða-
mannsins.
Rétt við Bergvíkina er hóll einn
mikill og sátu blaðamenn þar í
mestu makindum þegar einn
þeirra sér að bolti er á leiðinni til
þeirra, ekki þó frá Bergvíkurteign-
um, en þá var allt orðið um seinan.
Boltinn lenti í einum þeirra en sem
betur fer meiddist enginn.
|jh *
SACHS
Högg
deyfar
V-þýsk
gæöavara
pí
kking
pgyNS1-^
þUÓN1
USTA
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670