Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 187. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins Svifið í loftbelg LOFTBELGUR sveif yfir Reykjavík í gærmorgun og var útvarp- 1 lenti drekanum heilu og höldnu á Ánnannsvellinuin við Sigtún. að beint úr honum á rás 2. Ferðin fékk nokkuð óvæntan endi, I Á bls. 2 er sagt frá loftbelgsferðinni en á bls. 4 er sagt frá því belgurinn lenti á þaki stórhýsis O. Johnson og Kaaber við I dagskrá flugdagsins, sem er í dag, og Lesbókin I dag er að mestu Sætún. Þessi mynd var tekin af belgnum úr vélknúnum svifdreka I helguð 50 ára afmæli Flugmálafélagsins, sem haldið er hátíðlegt en skömmu síðar bilaði vél drekans en Kári Guðbjörnsson flugmaður I um þessar mundir. Norska utanríkismálastofnunin: Kína — Sovét: Átöká landa- mærum Moskvu, Tókýó, AP. TALSMAÐUR sovéska utanríkis- ráðuneytisins staðfesti í gær á óbeinan hátt þá frétt í japönsku dagblaði að í fyrra mánuði hefðu sovéskir hermenn skotið til bana kinverskan landamæravörð. Sagði hann að „nú væri allt með kyrrum kjöruni" á landamærun- um. Japanska blaðið Yomiuri Shimb- un skýrði frá því f fyrradag og bar fyrir sig kínverska heimildarmenn, að 12. júlí sl. hefðu 13 sovéskir hermenn skotið úr Iaunsátri á þrjá kínverska landamæraverði og tvo óbreytta borgara sem voru við landamæraeftirlit í Yili Kazakh- fylki í Kína. Felldu sovésku her- mennimir einn kínversku landa- mæravarðanna, særðu annan og tóku höndum báða óbreyttu borgar- ana. Gennady Gerasimov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, sagði aðeins þegar hann var inntur eftir þessarí frétt að „nú væri kyrrt orðið á landamærum ríkjanna". Miklar árásir á Wau-borg Aukin hemaðarupp- bygging á Kolaskaga Óslé, AP. EKKERT lát er á hernaðarupp- byggingu Sovétmanna á Kola- skaga sem liggur að Finnlandi og Noregi. Eru þeir nú að koma þar upp nýrri stöð fyrir kafbáta af gerðinni Typhoon en þeir eru búnir kjarnorkuvopnum. Kem- ur þetta fram í skýrslu frá Norsku utanríkismálastofnun- inni. I skýrslunni segja sérfræðingar Norsku utanríkismálastofnunar- innar, Norðmaðurinn Johnny Skorve og Finninn Tomas Ries, að myndir teknar úr Landsat-gervi- hnettinum „staðfesti nýlegar vangaveltur“ um að ný stöð fyrir Typhoon-kafbáta, sem eru þeir stærstu í heimi, væri í byggingu á Kolaskaga. Af myndunum má auk þess ráða að hluti stöðvarinnar sé grafínn inn í berg og að margar eldflaugastöðvar séu til vamar. Af Landsat-myndunum sést einnig nýr og mjög stór flugvöllur á suðurhluta Kolaskaga. Eru flug- brautimar 4.600 metra iangar og þykir það benda til að þær séu ætlaðar nýjum, langfleygum sprengjuflugvélum af gerðinni Blackjack en þær geta flogið heimsálfa í milli. Norska utanríkismálastofnunin var stofiiuð árið 1959 og vinnur að sjálfstæðum athugunum á utan- ríkis- og öryggismálum, þróunar- aðstoð og alþjóðlegum efnahags- málum. Sovésk sprengjuþota af gerðinni Blackjack. Nairohi, Kenya, AP. UPPREISNARMENN í Suður- Súdan skýrðu frá því í gjær að þeir hefðu þá í annað sinn beitt fallbyssum og öðrum stórskota- liðsvopnum gegn borginni Wau. Útvarpsstöð uppreisnarmanna í Suður-Súdan sagði í gær að gerð hefði verið hörð hríð að borginni Wau og mikið tjón orðið á hergögn- um stjómarhersins og mannvirkj- um. Sendinefnd frá Alþjóða Rauða krossinum er nú í Wau sem er mið- stöð hjálparstarfsins í Suður-Súdan og kemst ekki frá borginni vegna hemaðarins. Þær upplýsingar fengust í gær hjá íslenska Rauða krossinum að Sigríður Guðmundsdóttir hjúkr- unarkona sem er í Súdan á hans vegum væri nú stödd f borginni E1 Fasher um mitt vestanvert landið og utan átakasvæðanna. Sjá grein Önnu Bjarnadóttur „Barist um síðustu brauðmol- ana í Súdan“ á bls.22. Afvopnunarráðstefnan í Stokkhólmi: Deilt um „lokuðu“ svæðin Stokkhólmi, AP. PÓLSKA sendinefndin á afvopn- unarráðstefnunni í Stokkhólmi lagði í gær fram málamiðlunartil- lögu um eftirlit með heræfingum og hefur hún fengið dræmar und- irtektir. Varsjárbandalagsríkin vilja ekki samþykkja eftirlit á „lokuðum" svæðum og er hætt við að samkomulag geti strandað á þvi. Fulltrúar vestrænna þjóða kváð- ust mundu skoða pólsku tillöguna „gaumgæfilega" en haft er eftir ein- um vestrænu fulltrúanna að tiilagan sé aðeins ein tillagan enn „til að hindra eftirlit með heræfingum en ekki auðvelda það“. Tillaga Pólveija er um að tilkynnt verði um heræfíng- ar sem 18.000 hermenn eða fleiri taka þátt í og að heimilt verði að fylgjast með sumum þeirra en ekki öllum. Annað sem kann að koma í veg fyrir samkomulag um þetta efni er hin svokölluðu „lokuðu svæði" en þau eru mjög víðáttumikil í Sov- étríkjunum og Austur-Evrópu. Allt að tveimur þriðjungum Austur- Þýskalands eru t.d. „lokaðir" í þess- um skiiningi og þessi svæði vilja Varsjárbandalagsríkin undanskilja eftirliti. Fulltrúar vestrænna þjóða segja að ef lokuðu svæðin verði ekki verulega skert séu hugmyndir um raunverulegt eftirlit út í bláinn. Afvopnunarráðstefnan í Stokk- hólmi hófst í janúar árið 1984 og lýkur eftir tæpar fimm vikur. Sjá frásögn Benedikts Grön- dals, sendiherra í Svíþjóð, af Stokkhólmsráðstefnunni á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.