Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986 3 Mikil rækjuveiði hjá Vestfjarðabátum ísafirði. MJÖG GíÓÐ úthafsrækjuveiði hefur verið í sumar á miðum Vest- fjarðabáta. Að sögn Arnar Kristinssonar hjá Niðursuðuverksmiðj- unni á ísafirði hefur aflinn verið jafn og góður síðan bátarnir komust á veiðslóðina í kantinum norður af Homi. Þar lá ís yfir fram eftir sumri, en er nú horfinn. Á meðan var aðallega veitt á Kolbeinseyjarsvæðinu, en þar var afli tregari eða um 6—7 lestir á bát eftir 5—7 daga veiðiferð. Út af Horainu hafa þeir verið að fá 15—17 tonn í svipað löngum túrum. Tveir bátar hafa farið á veiði- svæðið við Langanes, þar hefur einnig verið góður afli, en rækjan þar mjög smá eða niður í 390 stk. í kíló á meðan vestursvæðið hefur gefið 140 stk. í kg sem er mjög g ott. Yfírleitt hefur verið unnið í öll- um rækjuverksmiðjum á ísafírði, 10 tíma á dag í allt sumar og auk þess hafa verið unnar aukavaktir og stundum um helgar. Þannig var t.d. unnið alla verslunar- mannahelgina í Rækjuverksmiðj- unni Vinaminni. Nú nýlega byrjaði Rækjuverk- smiðjan hf. að pilla rússarækju. Á meðan verður unnið á vöktum alian sólarhringinn og er jafnvel reiknað með að það verði gert fram eftir hausti. Útlit er fyrir að engar rækjuveiðar verði í Isa- fjarðardjúpi í haust og hugleiða því menn að halda stærri bátunum og togurunum úti til rækjuveiða í vetur. Nóg kvenfólk er til vinnu, en erfiðlegar hefur gengið að ráða karlmenn til starfa. Theódór Nordquist hjá O.N. Olsen hf. tók í sama streng. Hann sagði að greinilega væri miklu meiri rækja nú en í fyrra, þrátt fyrir meiri sókn. Hann lagði áherslu á að aðgæslu væri þörf áður en kæmi til ofveiði. Rækjuverksmiðjumar reyna nú í vaxandi mæli að fá stóm togar- ana til veiða, t.d. aflaði togarinn Ásþór frá Granda hf. í Reykjavík fyrir O.N. Olsen hf. í vor og eru vonir bundnar við áframhaldandi samstarf. Þá landaði Bergey VE og Runólfur SH hjá Rækjuverk- smiðjunni og von er á Vest- mannaey í haust. Auk þess er Hafþór og fleiri togarar nú á Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Mikil atvinna fylgir rækjuveiðunum. Á myndini sem tekin var í ísafjarðarhöfn er verið að landa úr rækjubát auk þess sem unn- ið er að veiðarfæraviðgerðum og annarri þjónustu við stóran flota rækjubáta. rækjuveiðum. öllu afskipað nánast vikulega á Þeim bar saman um að gott erlenda markaði. verð væri á rækjunni núna og er Úlfar Dagskrá íslenska sjónvarpsf élagsins í burðarliðnum: Kvikmyndir á hverju kvöldi — útsendingar frá 17.30—01.00 daglega ÍSLENSKA sjónvarpsfélagið byrjar útsendingar í lok september og er undirbúningur að því I fullum gangi. Flest starfsfólk hefur verið ráðið og drög að dagskránni liggja fyrir. „Dagskráin er í grófum dráttum þannig að útsendingar hefjast á virkum dögum klukkan 17.30 á bamaefni, síðan verður spennuþátt- ur, þá fréttir, síðan aðalframhalds- þátturinn og síðan teiknimynd," sagði Jón Óttar Ragnarsson í sam- tali við Morgunblaðið. „Klukkan 21.00-01.00 verður síðan brengluð útsending, það er að segja eingöngu fyrir okkar áskrifendur og verður dagskráin samsett af framhalds- þáttum, nýlegum kvikmyndum og sjónvarpsmyndum sem ekki hafa verið sýndar hér. Um helgar standa þessar útsendingar til 01.30 auk þess sem bamaefni verður sýnt fyr- ir áskrifendur á laugardögum og sunnudögum frá 8.00-11.00. Þetta er það sem við byrjum á. Dagskrárstjóri okkar, Jónas R. Jónsson, velur efnið að mestu leyti Ný símstöð í Kef lavík JÓN A. Skúlason, póst- og síma- málastjóri tók fyrstu skóflustungu nýs póst- og símstöðvarhúss í Keflavík föstu- daginn 15. ágúst sl. Húsið mun rísa á mörkum Keflavíkur og Njarðvíkur. Heildar- stærð þess að flatarmáli verður 851 fermetri. Samið hefur verið við lægstbjóðanda um byggingu húss- ins, Svein og Þórhall sf. í Keflavík. Tilboð þeirra hljóðaði upp á rúmar 18 milljónir króna. © INNLENT og höfum við lagt mikla vinnu í dagskrárgerðina. Auðvelt hefur verið að fá gott sjónvarpsefni, enda óplægður akur. Efnið er aðallega bandarískt og breskt en við leggjum okkur sérstaklega fram við að fá einnig efni frá öðmm menningar- svæðum. Fréttimar eru eina efnið sem við vinnum en önnur innlend þáttagerð verður framanaf eingöngu með styrkjum frá utanaðkomandi aðilum og erum við opnir fyrir öllum hug- myndum í þá átt. Fyrirtæki fá þama tækifæri að vinna í þessum miðli og gera eitthvað skapandi. Reynsl- an mun skera úr um hversu þrótt- mikill þessi hluti verður en við höfum fundið mikinn áhuga hjá fyrirtækjum að taka þátt í inn- lendri þáttagerð. Þá höfum við einnig áform um samstarf við er- lenda aðila, sjónvarpsstöðvar og kvikmyndaver, við framleiðslu á menningarefni byggðu á íslenskum efnivið og kvikmyndað hér. Nátt- úrulífsmyndir, heimildarmyndir og jafnvel leiknar myndir. Við höfum hvorki reynslu né bolmagn enn sem komið er til að gera á eigin spýtur almennilegar kvikmyndir og sjáum þetta sem stökkpall til að geta gert þetta á eigin vegum síðar og teljum svona samstarf einu leiðina til að ýta úr vör þessum dýrasta þætti í dagskrárgerðinni. Undirbúningur hjá okkur hefur gengið eftir áætlun og er að koma á þetta heildarmynd. Tæknihliðina, allt frá þýðingum upp í útsending- ar, mun íslenska myndverið sjá um, en þar er Ragnar Guðmundsson framkvæmdastjóri og er það aðeins brot af starfsemi þess fyritækis sem sér um textun, Qölföldun á mynd- böndum og margt fleira. Yfir markaðsdeildinni, sem sér um aug- lýsingar, áskrift og útvegun styrktaraðila, verður Sighvatur Blöndahl,. núverandi blaðafulltrúi Amarflugs. Fréttamenn verða ráðnir síðast og standa viðræður yfír en flest skrifstofufólk og tækni- fólk erum við komnir með.“ HEKLU-BILASALURINN er opinn író kl. 13 til 17 laugardag og sunnudag 23. ■ 24. ágúst PAR GEFUR AÐ LÍTA FARARTÆKI FRAMTÍÐARINNAR UNDRABÍLINN FRÁ MITSUBISHI MP-90X Feröamáti íramtídariimar: □ Leiösagnarkeríi tengi gervitungli □ Stjórnkeríi sem tekur miö aí öllum umhveríisþáttum □ Útlitshönnun sem minnir á geimíar^ NOTADLR BÍLAR: Bflasalan BJALLAN veröur opin á sama tima TÖLVUVÆDD BÍLAVTÐSKJPTI HEKIA HF Laugavegi 170-172 Simi 695500

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.