Morgunblaðið - 23.08.1986, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 23.08.1986, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986 Minning: Guðrún Guðlaugs dóttir, Ingólfi Fædd 1. apríl 1911 Dáin 11. ágúst 1986 Hún Gunna frænka er dáin. Grétar bróðir flutti mér fréttina. Eg vissi að hún var mikið veik, aðeins spurning um nokkra daga, en samt... hjá mér var sumar og sól, lífið svo sterkt og dauðinn svo fjarri. Hún Gunna frænka var dáin. Mér þótti vænt um Gunnu frænku. Við áttum ekki skap sam- an, þegar bæði höfðu meiningu. Fyrir mér var hún ímynd Snæfríðar íslandssólar holdi klædd. Hún var reyrinn sem bognar, en brotnar ei. „Er hún loks dáin,“ sagði ég við Grétar bróðir. Ég drúpti höfði, sorg- in tók við en jafn snögglega kom gleðin: „Nú eru þau saman á ný Gunna og Olafur. Hann er búinn að bíða lengi og einhvern veginn hafði ég á tilfinningunni að hún hafi verið búin að bíða lengi líka.“ Ólafur og Gunna voru mínir aðr- ir foreldrar. . . Ekkert fólk var betra að sækja heim. Þau voru ráða- góð með eindæmum. Ég man eitt sinn er ég var ungur að árum að ég varð undir í útistöðum. Ég hljóp heim til Gunnu frænku og sagði farir mínar ekki sléttar. Hún horfði á mig nokkra stund og sagði svo fast og ákveðið: „Það skiptir ekki máli hversu oft þú ert sleginn niður heldur hvað þú ert fljótur að standa upp aftur.“ Engin orð hafa orðið mér meira leiðarljós. Guð blessi minningu Gunnu frænku, hún var góð manneskja. Guðl. Bergmann Ástkær móðursystir er látin. Gunna í Ingólfi eins og hún var alltaf kölluð er persónugervingur alls þess besta, sem ég þekki. Góð- vildin, umhyggjan og yndislegt viðmót, ásamt uppörvandi afstöðu til alls og allra, voru hennar líf. Enginn fór hnugginn af hennar fundi. Gunna bjó einnig yfir frábærri kímnigáfu, geislandi hlátur hennar bar vott um engiltæra lífsgleði, sem ekkert fékk haggað. Mörg uppgefin sál fékk kraft á hennar fundi. Fyr- ir mér var hún sem ljós gæskunnar inn í tvísýna veröld, eðallunduð, hugrökk, næm og traust. Þau börn, sem auðnan hefur fært ástríka foreldra, ömmu og afa eru á gæfunnar vegi. Móðuramma mín og mamma Gunnu var einasta foreldraforeldri mitt, sem ég fékk nokkru sinni að kynnast. Við slíkar aðstæður auk föðurmissis verður móðurhlutverkið ennþá mikilvæg- ara og skyldfólk og vinir koma í auknum mæli inn í myndina. Amma var yndisleg og einstök og dætur hennar fengu það besta frá henni. Gunna var elsta systirin og við lát ömmu kom hún þegar í hennar stað. Leiða öll systrabömin til gæfu og hamingju. Ekkert minna. Mörg- um okkar tók hún strax á móti við fæðingu, sum okkar fól hún algóð- um Guði með tárin í augunum. Alltaf var Gunna þar í fjölskyld- unni, sem mest á reið. Hún blundaði aldrei á verðinum. Síminn hringdi. Gunnu hafði dreymt eitthvað um nóttina. Var vitað hvemig þessum eða hinum leið. Afmælisdagur. Pakki frá Gunnu. Systur og mágar, systra- böm og makar, bamabörn og bamabamaböm, kunningjar og vin- ir. Allir nutu þessarar stórkostlegu vemdar. Sjálfsagt þekkja þetta all- ir, fjölskyldur eiga svona verndar- dýrlinga. En fyrir þá sem njóta þess er þetta einstakt, persónulegt og elskulegt, — gefur lífínu gildi. Gunna eignaðist aldrei böm sjálf og hún var ákaflega fínleg kona. í rauninni var hún veikburða að sjá, enda hafði hún marga hildina háð við sjúkdóma. Á yngri ámm þótti hún með fegurstu konum og bar það alltaf með sér. Hún hafði gam- an af því að skemmta sér og gat vafíð ólíklegasta fólki um fíngur sér á hinn undursamlegasta hátt. Ofsa- menn urðu sem lömb í hennar viðurvist, enda heyrði ég hana bók- staflega aldrei segja styggðaryrði um nokkum mann. Fyrir mér var hún Auður djúpúðga, Bergþóra og Snæfríður íslandssól í einni per- sónu. Gunna eða Jóna Guðrún Guð- laugsdóttir var fædd í Hvammi á Landi 1. apríl 1911, elsta dóttir hjónanna Guðríðar Eyjólfsdóttur og Guðlaugs Þórðarsonar frá Króktúni á Landi. Sama ár fluttist hún með foreldrum sínum að Götu í Holtum, þar sem Guðlaugur stundaði kennslu með búskapnum. í Land- sveitinni var hann annálaður fjall- og vatnamaður. í Götu fæddust systur hennar tvær næsta ár, Guðný og Guðríður, tvíburar. For- eldrar bændahöfðingjans Siguijóns Sigurðssonar í Rafholti tóku Guðríði í fóstur fýrsta árið og hefur Sigur- jón oft minnst þeirrar heimsóknar með gleði við mig. Ári seinna fluttist Gunna með fjölskyldu sinni að Vatnsnesi í Grímsnesi, þar sem þau bjuggu til ársins 1925, þegar þau keyptu Tryggvaskála á Selfossi. í Vatns- nesi fæddust tvær dætur í viðbót árið 1918, Guðbjörg og Bryndís, einnig tvíburar. uuu Guðlaugur var þekktur for- söngvari í kirkjum úr Landsveitinni og Holtunum og nú gerðist hann einnig organisti í Mosfells- og Klausturhólakirkjum í Grímsnesinu. Sat í hreppsnefnd, var umboðsmað- ur Brunabótafélagsins og fyrsti formaður Ungmennasambandsins Skarphéðins, sem hann stofnaði m.a. með vini sínum Skúla Gunn- laugssyni frá Kiðabergi, stórbónda f Bræðratungu í Biskupstungum. Tryggvaskáli var keyptur árið 1925, sem áður segir, og skömmu síðar byggir Guðlaugur húsið Ing- ólf, sem nú er Eyrarvegur á Sel- fossi. Einnig reisir hann stóra salinn við Skálann. Nokkrum árum síðar skall heims- kreppan yfír með öllum sínum voðaþunga. Allur rekstur var í járn- um og margir misstu allt sitt, þóttust reyndar hólpnir að hafa of- an í sig og sína. Þetta voru erfíð ár í Tryggvaskála, þótt Guðlaugur stundaði alltaf búskap með hótel- rekstrinum. Greiðasala datt niður, kostgangaramir gátu ekki borgað og aðeins útsjónarsemin og nýtnin til bjargar. „Þið eigið að leysa hnút- ana, ekki skera á þá,“ sagði Guðlaugur við unga sveitunga sína af Landinu í heimsókn í Tryggva- skála, sem lá á að leysa einhver snæri utan af böggum. Þetta er ennþá fleygt fyrir austan, en dæt- urnar ungu námu lífssannindin. í Tryggvaskála voru mörg vin- áttuböndin hnýtt. Örþreytt fólk kom af Hellisheiði og þáði viðurgjöming, og bændur á leið í kaupstaðarferð gistu. Vegagerðarmenn höfðu að- setur þar og Póstur og sími voru með aðstöðu í húsinu. Efnt var til dansleikja um helgar, sem fólk sótti víða að, og sumir áttu næstum sitt annað heimili í Skálanum. Höfð- ingja bar að garði, tigna, fræga en misjafna eins og gengur. Þeirra vinsælu var lengi minnst. Geir Zoéga vegamálastjóri og Eiríkur Einarsson, alþingismaður frá Hæli, voru meðal þeirra. Árið 1939 dó Guðlaugur og Guðríður tók alfarið við rekstri Skálans með dætmm sínum. Gunna og systumar stóðu sig eins og hetj- ur og nú máttu hendur aldeilis standa fram úr ermum, því heims- styijöldin síðari brast á og landið fylltist allt af hermönnum. Systumar giftust nú hver af ann- arri og stofnuðu heimili. Gunna kynntist lífsfömnaut sínum, Ólafí Kristmundssyni laganema frá Kol- beinsá í Hrútafírði. Foreldrar hans vom Kristmundur Jónsson, kaup- félagsstjóri á Borðeyri og síðar stjómarráðsfulltrúi í Reykjavík, og kona hans, Sigríður Ólafsdóttir frá Kolbeinsá. Ólafur hafði hrakist frá námi vegna hinnar ægilegu veiki, berkl- anna. Eftir að hafa verið höggvinn, eins og það var kallað, þrisvar, náði hann þeirri heilsu að geta starfað hjá skólabróður sínum, öðl- ingnum Páli Hallgrímssyni sýslu- manni Ámesinga, sem fulltrúi á sýsluskrifstofunni á Selfossi. Heimilin taka nú ailan tíma systr- anna, Skálinn er seldur 1942 og 1948 deyr Guðríður. Gunna og Ólaf- ur setja nú heimili sitt í Ingólfí. Systrabömunum fjölgar og allir eignast annað heimili hjá Gunnu. Eftir að Skálinn var seldur vann Gunna alltaf úti. í Kaupfélagi Ár- nesinga, Selfossbíó, mötuneytinu við Búrfell, á Þingvöllum og í mötu- neyti Gagnfræðaskóla Selfoss. í rauninni féll henni aldrei verk úr hendi. Árið 1968 dó Ólafur eftir lang- vinn veikindi, þar sem Gunna stóð við hlið hans til hinstu stundar. Heimilishaldið breyttist hjá Gunnu. Systir hennar Guðbjörg hafði búið lengi hjá henni með syni sína tvo, Magnús og Guðlaug Ægi Magnús- syni. Þeir höfðu verið við nám í Reykjavík on fluttust nú aftur aust- ur með fjölskyldur sínar. Síðustu árin bjó Gunna svo á Öldmnar- heimili Selfoss _að Grænumörk. Gunna og Ólafur höfðu mikil áhrif á öll þau ungmenni, sem þeim tengdust. Þótt þeim yrði ekki sjálf- um barna auðið áttu öll systrabörn- in sitt annað heimili hjá þeim. Sérstaklega var þeim annt um menntun þeirra og allan andlegan Minning: Margeir Sigurðsson frá Flatatungu Fæddur 2. nóvember 1906 Dáinn 7. ágúst 1986 í dag verður jarðsettur frá Hvals- neskirkju Margeir Sigurðsson. Margeir var fæddur að Flatatungu í Akrahreppi í Skagafírði. Foreldrar hans vom Sigurður Guðmundsson og Ingibjörg Jónsdóttir sem bjuggu nær alla sína tíð á Sauðárkróki og vann faðir hans þar sem verkamað- ur. Margeir fór 16 ára gamall á sína fyrstu vertíð til Vestmannaeyja og í 15 vertíðir stundaði hann sjó frá Vestmannaeyjum. En á sumrin var hann á síldveiðum. Árið 1930 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sínu Elínóru Þórðardóttur frá Reykjavík. Þau munu hafa kynnst á vertíð í Vestmannaeyjum. Þau eignuðust 9 böm og eru átta þeirra á lífí öll uppkomin, en einn son, Sigurð, misstu þau fyrir nokkmm ámm. Þau hjón bjuggu á Sauðárkrók allt til ársins 1944: Eins og annarra erfiðismanna hefur lífsbaráttan ver- ið hörð og erfið — vetrarvertíðir í Eyjum og Grindavík, síld á sumrin og veran á heimilinu hjá fjölskyld- unni því lítil. Þó vann Margeir á haustin við fláningu í sláturhúsinu á Sauðárkróki. Árið 1944 fluttist §ölskyldan til Sandgerðis. í Sandgerði varð Mar- geir fljótlega yfirbræðslumaður hjá Miðnes hf. Ég kynntist Margeiri á Alþýðusambandsþingum endur fyr- ir löngu. Þetta var ákaflega Ijúfur maður í allri umgengni, hugsjóna- maður og ákaflega einlægur verkalýðssinni. Manni leið vel í ná- vist hans. Ég held að Margeir hafi ekki gegnt neinum trúnaðarstörfum í verkalýðsfélögum þegar hann var á Sauðárkrók, enda fjarri heimili sínu megin hluta ársins. En þegar Verkalýðs- og sjómannafélag Mið- nesshrepps var stofnað í núverandi mynd 1949 var hann kosinn í fyrstu stjóm þess. Ég held að hann hafi verið samfellt í stjóm þess þar til hann fluttist til Reykjavíkur 1965. Hann gegndj öllum störfum í verka- lýðsfélaginu, hann var meðstjóm- andi, ritari og varaformaður félagsins og formaður þess á árun- um 1961-1963. Margeir Sigurðsson var hægui' maður og yfírlætislaus, góðlyndur ogjafnlyndurog vinsæll af vinnufé- lögum sínum. Stjórnarstörf í verkalýðsfélagi í litlu þorpi, þar sem vinnudagur er langur og strangur geta verið ákaf- lega slítandi og þreytandi.: Það hefur alltaf þurft hugsjónamenn til að Ieggja á sig slík ólaunuð störf eftir langan vinnudag með stóra fjölskyldu, en slíkur maður var Margeir. Hann var í öllum samn- inganefndum félagsins og öllu hinu daglega amstri, sem hvorki skapa fræjgð né frama. Árið 1962, þegar hann var for- maður félagsins, fór félagið í mál út af túlkun á kjarasamningum síldarsjómanna. Flestum á óvart vann félag Margeirs þetta mál. Þetta þýddi að tekjur síldarsjó- manna í Sandgerði jukust um 3 milljónir króna þetta ár. Eftir að þetta litla félag hafði unnið þennan sigur komu stærri og öflugri félög og náðu þessum bættu kjörum fyr- ir sjómenn. Þessi forysta Margeirs sýndi að maðurinn var harðgreind- ur, fylginn sér og mjög ályktunar- hæfur. Þó Margeir væri hæglátur hélt hann ákaflega fast og vel á málum og hefur án efa oft lent í hörðum útistöðum við atvinnurek- endur staðarins. Verkafólk í Sandgerði á þessum hógværa manni ákaflega margt að þakka. 1965 flytst hann til Reykjavíkur og stundaði hér ýmis verkamannastörf og um tíma hús- vörslu. Þá gekk hann í Dagsbrún og sat fyrir Dagsbrún a.m.k. eitt Alþýðusambandsþing. Og hann sat í trúnaðarráði félagsins. Á þessum tíma sköpuðust á milli okkar sterk vináttubönd, hann var einn af þess- um mönnum sem maður leitaði svo oft álits og ráða hjá. Hann var svo þroska. Ósjaldan var hringt og spurt hvemig hefði gengið á þessu eða hinu prófinu eða hvort fjár- hagurinn væri ekki í það tæpasta. Ólafur hafði verið frábær náms- maður, dux og semidux í sínum bekk og Inspector Scholae var hann eitt árið í Menntaskólanum á Akur- eyri. Hann unni æðri menntun, fagurfræði, skáldskap, sagnfræði og þó sérstaklega íslandssögunni. Sjálfur var hann óþreytandi fræðari og hafði alltaf tíma fyrir unga vini, sem langaði að ræða málin. Sjálf- sagt hefur hann oft fundið fyrir undirrituðum, sem var síspyrjandi, en aldrei var lát á þolinmæðinni. Sérstaklega var kært á milli föður míns og hans enda stutt úr Stranda- sýslu í Norðurárdalinn. Selfossbær umbreyttist algjör- lega í lífí Gunnu. Nýfermd fluttist hún í pláss, sem taldi 5 hús. Selfoss- bæina tvo, Landsbankann, Sigtún °g Tryggvaskála. Nú er Selfossbær glæsilegur kaupstaður, höfuðborg Suðurlands með fjögur þúsund íbúa. Þessari þróun tengdist Gunna enn frekar því hún þekkti alla í hinu vaxandi þorpi og sérstaklega var náin vinátta á milli allra gömlu fjöl- skyldnanna á Selfossi. Mörg mál bar á góma og flest stóru málin á Selfossi voru nánast fjölskyldumál Gunnu. Bryndís systir hennar giftist Grími E. Thoraren- sen, elsta syni Egils Thorarensen, kaupfélagsstjóra Kaupfélags Ár- nesinga. Mjólkurbú Flóamanna, Kaupfélag Ámesinga ásamt upp- byggingunni í Þorlákshöfn vom allt mál, sem Egjll barðist fyrir, og brann ekki síst á þeim, sem næst honum stóðu. Grímur var t.d. inn- kaupastjóri Kaupfélagsins og síðar kaupfélagsstjóri. Einnig var Egill í stjóm Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og Osta- og smjörsölunn- ar en ótrúlega stutt er í það, að afurðir þessara fyrirtækja voru engin hversdagsvara í Reykjavík. Þessi holla fæða á vissulega sinn þátt í vexti og viðgangi höfuð- borgarinnar. Menn geta líka rétt ímyndað sér Selfoss án þessara öflugu fyrirtækja eða byggðaþróun á Suðurlandi yfirleitt án þeirra. Gunna var ákaflega opin fyrir allri umræðu, hvort sem það vom þjóðmál almennt eða hrein fagur- fræði, listir og vísindi. Pabbi hennar var mikill sjálfstæðismaður í pólitík og setti sig aldrei úr færi að ræða stjómmál við gesti sína í Tryggva- skála. Sérstakt yndi hafði hann af að ræða þetta við frændur sína og vini úr Rangárþingi og heyrðist þá oft vel til manna, því bændur og bændasynir em fylgnir sér, en hart var gengið eftir að þeir játuðust sjálfstæðisstefnunni. Mamma Gunnu, Guðríður, var elst barna Eyjólfs Guðmundssonar einlægur og falslaus, en jafnframt vitur. Fyrir nokkrum arum lenti hann í bifreiðaslysi og náði aldrei heilsu eftir það. Síðustu árin vom honum þjáningarfull og oft erfið. Ég hef oft veitt því athygli að sjómenn og þeir sem dvelja lang- dvölum frá heimilum sínum verða mjög oft ástríkir heimilisfeður. Margeir lét sér ákaflega annt um konu sína og níu böm þeirra hjóna. Nú eru bamabörn þeirra orðin 27 og fædd em mörg barnabarnabörn. í dag verður hann jarðsettur frá Hvalneskirkju. Útför hans fer fram kl. 2. Sandgerði var honum jafnan kær. I dag kveðjum við þennan erfiðisvinnumann — foreldrar hans voru fátækt erfiðisvinnufólk, kom- ungur fór hann í sjóróðra til Vestmannaeyja og allt það erfiði og strit sem hann þurfti að leggja á sig er ómælt. En hann átti góða konu og níu böm, sem hann unni og lagði allt á sig fyrir. Barátta hans í verkalýðshreyfingunni var barátta fyrir meira réttlæti og betra mannlífi. Eftirlifandi konu hans og börnum þeirra öllum óska ég blessunar og að þau fái að njóta í lífinu starfa föður síns. Fari Margeir Sigurðsson vel, það var gott að eiga hann að vini. Guðm. J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.