Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986 25 Þj óðkirkj ufyrirkomulagið er íslensku þjóðinni farsælast eftir herra Pétur Sigurgeirsson biskup Kristnir menn eru íbúar tveggja heima. Þeir lifa í tímabundnum heimi á jarðríki og jafnframt í eilífu Guðs ríki. í báðum þessum heimum hafa þeir skyldum að gegna. Eng- inn gaf skýrari vitnisburð um þetta en Kristur er hann sagði: „Gjaldið þá keisaranum það, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.“ (Matt, 22. 21) Þó að báðir heimar hafi sérstöðu tengjast þeir hvor öðrum í því lífi, sem við lifum, því að sami er skap- ari beggja. Reglur eða fyrirmæli um það, hvernig þessir heimar skuli samtengjast, er ekki hægt að finna í orðum Jesú. Form og skipulag þar að lútandi velja kristnir menn sér á hverjum tíma í þjóðfélagi, sem þeir lifa í. Lúther var hugleikið samband heimanna tveggja. Hann segir: „Sálin er ekki undir keisara sett. Hann getur hvorki kennt henni né leiðbeint, hvorki deytt hana né lífgað, hvorki leyst hana né bundið, hvorki dæmt hana né sakfellt, hvorki haldið henni né sleppt, en þó hiyti svo að vera, ef hann hefði vald til að bjóða henni eða setja henni bönn. Yfirvaldið á að gæta köliunar sinnar. Presturinn skal gæta köllunar sinnar. Hver maður skal þjóna Guði í embætti sínu. Ekkert starf er öðru fremra. Ekk- ert er öðrum störfum auðveldara." Fyrir Guði hefur kristinn maður ábyrgð á lífi sínu og annarra gagn- vart samvisku sinni og trú. Hér nægir að minna á baráttu Lúthers, er sannfæring hans skyldaði hann til þess að hlýða Guðs orði, eins og það orð upplýsti samvisku hans. Það var Lúther mjög á móti skapi, að kirkjan gerðist þýlynd við yfir- völd. Hann benti oft á, að i boðum kirkjunnar getur reynt á það að lögum og trúrænum viðhorfum lendi saman: „Og vér eigum alls ekki að spyija að, hvort þeir muni reiðast og draga sverð sín. Því að fagnaðarerindið á ekki að vægja neinum, heldur átelja rangindi hvers manns. Presturinn er settur til að vera ráðgjafi furstans." (Ro- land Bainton. Þýð. Guðmundur Óli Ólafsson: Marteinn Lúther.) Yfir- valdið og presturinn eiga hvor á sínu sviði að gæta köllunar sinnar. Ef yfirvaldið er ekki kristið, er eins- ætt að skilja ber ríki og kirkju að. Þar sem yfirvaldið er einlægur kirkjunnar maður, þá tengjast ríkin tvö eðlilegum böndum vegna sam- eiginlegra sjónarmiða. Kirkjan metur aðstoð ríkisins til þess að opna almenningi aðgang að blessun trúarinnar. Enda er þá grundvöllur kirkjunnar hinn sami og þjóðfélags- ins og betri grundvöll getur enginn lagt. Lúther orðaði þetta þannig: „Ríki Krists táknar þann huga og það hátterni, sem andi Krists kemur til leiðar í mönnum, svo að þeir þurfa þá hvorki lög né sverð." Frelsi kristins manns byggist á því, að hann leggur af fúsum vilja sjálfur á sig skorður frelsisins, boð þess og bönn. Trúin, samviskan og þegnskapur sameinast í að gjalda keisaranum það sem keisarans er og Guði það sem Guðs er. Með ákvæðum 62.-64. greinar stjómarskrárinnar er fengin augljós viðurkenning íslenska ríkisins á stöðu kirkjunnar í þjóðfélaginu, að hún er sjálfstæð stofnun, sem nýtur verndar og stuðnings ríkisvaldsins. í stjómarskránni er ekki að finna sams konar ákvæði um neina aðra stofnun þjóðfélagsins. Stjómarskip- unarlög landsins kveða þannig skýrt á um sambandið milli ríkis og kirkju, að kirkjan er ekki ríkis- stofnun í sama mæii og aðrar ríkisstofnanir, heidur þjóðkirkja, sem starfar sjálfstætt á grundvelli kenningar sinnar og hefur eigið sjálfsforræði í köllunarstarfi sínu. Ríki og kirkja á íslandi eiga sam- leið og samvinnu. Það kemur fram í ákvæði stjómarskrárinnar, sem rekja má til ársins 1874, þegar fyrst er fjallað um hin sérstöku málefni aðist fyrir tveim árum, 104 ára. Þau eignuðust 5 dætur. Lengst af voru þau í skjóli dóttur sinnar Aðalheiðar og manns hennar Stef- áns Siggeirssonar. Aðalheiður hefir verið foreldmm sínum mikill styrkur svo ekki sé fastar að orði kveðið. Skyldi hún ekki vera eina konan á landinu sem hefír haldið upp á þrjú 100 ára afmæli, fyrst ömmu sinnar, síðan föður og loks móður sinnar? Ingibjörg hefir sagt mér margt frá sinni löngu og farsælu ævi og í vor sagði hún mér eftirfarandi draum, sem hana dreymdi fyrir 66 ámm. Sagði hann tvisvar og skeikaði í engu. „Það var skömmu fyrir páska 1920, en þá átti ég heima á Kárs- stöðum í Helgafellssveit, en þar höfðum við Sigurður Magnússon eiginmaður minn og dætur búið frá 1915, að mig dreymir eina nóttina að mér finnst koma til mín í baðstofuna ókunnugur huggulegur og yfirbragðsfallegur maður, vel vaxinn og { meðallagi stór. Hann er með pakka í hend- inni og um leið og hann heilsar mér kunnuglega segir hann: „Mikið hefir mér alltaf þótt leiðin- legt að þú skulir ekki hafa átt betri kjör að búa við en þú hefir átt. Ég ætla þó að reyna að.sjá um að þú fáir betra ljós í baðstof- una þína,“ (þar var 10 lína lampi sem hékk í ijáfri baðstofunnar). Tekur hann svo utan af pakkan- um, stígur upp á stól og réttir sig upp í mæni og tekur lampann niður en setur f hans stað þennan faliega og verklega 3. álma lampa, gylltan og skrautiegan. Bar hann miklu meiri birtu en hinn og var ég undrandi yfir þessari fallegu gjöf og birtunni sem kom í bað- stofuna hjá mér. Síðan fer maðurinn. Rétt eftir páska fæ ég pakka. Það er þá hugvekjubók séra Har- alds Níelssonar sem um það leyti vakti mikla athygli og mikið var lesin. Var ég ekki í vafa um að þetta væri þýðing draumsins. Sú sem sendi mér þennan pakka var vinkona mín Guðrún Þorkelsdóttir en hún hafði verið hjá okkur hjón- um um veturinn sem kom til af því að við höfðum verið saman þjónustustúlkur fyrir mörgum árum hjá Sigurði Thoroddsen verkfræðingi. Hún hafði kynnst fyrir nokkru manni sem hún varð hrifin af og fór það svo að hún varð ófrísk, en þá var önnur kona komin í spilið sem svo maðurinn giftist og er það önnur saga. Þá skrifar Guðrún mér og biður um að fá að koma til okkar og ala bamið þar. Ekki gat ég neitað henni um þá bón og því kom hún og átti um veturinn dreng hjá okkur sem skírður var Ólafur. Viidi Guðrún jafnvel skilja drenginn eftir hjá okkur en það var ekki hægt enda heimili okkar hjóna orðið mann- margt. En það verð ég að segja að gjöf- in frá henni Guðrúnu var mér mikils virði. Ég stalst til að grípa hveija stund til að lesa bókina og næsti sunnudagur fór mikið í lest- urinn, enda lá við að ég gleymdi mér, en þessi lestur var mér sönn lífsuppspretta. Ég hefi alltaf dáð séra Harald Níelsson og mikið af honum lært eins og fleiri.“ Árni Pétur Sigurgeirsson Hirðisbréf herra Péturs Sig- urgeirssonar biskups til presta og safnaða á íslandi, Kirkjan er öllum opin, birt- ist í vikunni. Þar er meðal annars rætt um samband ríkis og kirkju í kaflanum: þjónusta ríkisins. Vegna þeirra umræðna, sem um það mál hafa orðið undan- farið eftir fund norrænna biskupa á sænsku eyjunni Gotlandi birtir Morgunblað- ið fyrrgreindan kafla hirðis- bréfsins hér í heild með góðfúslegu leyfi biskups. íslands, þar á meðal þjóðkirkju. Sérstaða íslensku þjóðkirkjunnar byggist á því, að um 92% þjóðarinn- ar tilheyra henni, en um 97% játa evangelísk-lútherska trú. Á grund- velli þess er uppbygging þjóðlífsins sameiginlegt viðfangsefni ríkis og kirkju. Þó að hér sé um tvo sjálf- stæða aðila að ræða, sem hvor um sig hefur sitt sérstaka hlutverk að vinna eins og orð Jesú um keisar- ann og Guð gefa til kynna, þá er mikilvægt að gagnkvæmur stuðn- ingur og samvinna takist. Það er köllun kirkjunnar að færa mönnum Guðs ríki, að líf kirkjunnar „verði súrdeig, sem sýrir allt þjóðlífíð, öll heimsins ríki“. (Þórarinn Böðvars- son, Kirkjublaðið 1894.) Að framgangi þessarar fyrirætl- unar miðar vemd og stuðningur ríkisins við kirkjuna. „Með stuðn- ingi sínum við kirkjuna er bæði átt við liðsinni í andlegum og menning- arlegum málum og svo í fjárhags- legum efnum. Hið fyrra lýsir sér í því, að ríkið heldur uppi aka- demískri kennslu í guðfræði og mælir svo fyrir, að kristin fræði séu kennd í ýmsum skólum landsins, sbr. og stuðning við Lýðskólann í Skálholti. Þá heldur ríkið uppi kennslu í kristnum fræðum fyrir kennara í bamaskólum og öðrum skólum, þar sem kristin fræði era kennd. Með helgidagalöggjöfinni slær ríkið skjaldborg um helgidaga þjóðkirkjunnar í allríkum mæli.“ (Armann Snævarr: Kirkjuréttur (handrit).) Öðra hvora hafa verið uppi um- ræður um ákvæði stjómarskrárinn- ar um hlutdeild ríkisins í stuðningi sínum við þjóðkirkjuna. Gísli Sveinsson fyrrv. forseti sameinaðs Alþingis og sýslumaður um langt skeið iýsti skoðun sinni á þvf máli: „Samkvæmt stjórnarskánni á ríkis- valdið að styðja og vemda þjóðkirkj- una. Það er að skilja: Ríkið, ríkisheildin á að halda uppi kirkju og kennidómi alls landsins, nema stofnuð séu önnur slík félög utan þjóðkirkjunnar og fái viðurkenn- ingu.“ (Gísli Sveinsson, tímaritið Bjarmi 1934.) Oft er minnst á eignir kirkjunn- ar. Þar er komið að máli í samskipt- um ríkis og kirkju, sem á sér langa sögu og er margslungið. Að ýmsu leyti er erfitt að ráða fram úr hver stáða þeirra er í dag. Eigi að síður er nauðsynlegt að geta gert sér grein fyrir því, hveijar séu eignir kirkjunnar, sem ríkið hefur haft umsjón yfir, og hvemig á þeim hefur verið haldið. Í árslok 1982 skipaði dóms- og kirkjumálaráð- herra kirkjueignanefnd, sem var falið „að gera könnun á því, hveijar kirkjueignir hafi verið frá fyrri tíð og til þessa dags, hver staða þeirra hafi verið að lögum, og hvemig háttað hafi verið ráðstöfun á þeim.“ Kirkjueignanefnd hefur skilað fyrri hluta álitsgerðar, sem er mjög ítarleg. í áliti nefndarinnar segir: „Hin mikilvægasta niðurstaða nefndarinnar, sem fram kemur í þessum hluta álitsgerðarinnar, veit að eignarréttarlegri stöðu kirkju- jarðanna nú í dag... Kemur þar m.a. fram, að jarðeignir, sem kirkj- ur hafa átt og eigi hafa verið seldar frá þeim með lögmætri heimild eða gengið undan þeim með öðram sam- bærilegum hætti, era enn kirkju- eignir. Þar er því ekki um ríkiseignir að ræða, enda þótt á síðari áram hafi hins vegar gætt nokkurrar til- hneigingar í þá átt að telja eignir þessar með ríkisjörðum." (Álitsgerð kirkjueignanefndar, fyrri hluti 1984.) Von mín er sú, að könnunin, sem senn er lokið, leiði til þess, að eign- ir kirkjunnar geti skapað henni tekjustofna er hún þarf nauðsyn- lega á að halda til þess að geta sómasamlega stutt hina fijálsu kirkjulegu starfsemi í landinu, skv. lögum um kristnisjóð, og séð fyrir fjárþörf við yfirstjóm kirkjunnar mála og til nauðsynlegra fram- kvæmda. Á síðari tímum hefur orðið mikil aukning á starfsemi þjóðkirkjunnar. Það hefur valdið meiri og meiri umsvifum í samskiptum ríkis og kirkju, sem af hálfú ríkisins er í umsjá dóms- og kirkjumálaráðu- neytisins. Jafnframt því, sem ég þakka ánægjuleg og gagnleg sam- skipti við kirkjumálaráðherra og ráðuneyti hans, læt ég í Ijós þá ósk og von, að tillögur Kirkjuþings um sérstakt kirkjumálaráðuneyti nái fram að ganga. Það ráðunejrti færi og með málefni annarra trúfélaga í landinu. Undir það ráðuneyti heyrðu þau mál, er kirkjuna varða, en dreifðust ekki eins og nú milli ráðuneyta. Þannig er því háttað á hinum Norðurlöndunum. í Dan- mörk var slíkt ráðuneyti stofnað 1916. Á meðan þessi tilhögun nær eigi fram að ganga, er nauðsyn- legt, að sá fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, sem hefur kirkjumálin með höndum, þurfi ekki að sinna öðram málaflokkum. Eftir að sú breyting varð á, að Kirkjuþing kemur árlega saman til að fjalla um málefni kirkjunnar, tel ég sjálfsagt, að mörg þeirra mála, sem nú era í höndum löggjafar- valdsins, heyri beint undir Kirkju- þing. Á fjárlögum ríkissjóðs fyrir þetta ár fara 0,43% af heildarútgjöldum ríkisins til kirkjumála. Þar eru launagreiðslur til sóknarpresta stærsti liðurinn, en geta ber þess, að þeir gegna og ýmsum embættis- skyldum fyrir ríkið. Kirkjustjómin þarf að veija umtalsverðum tíma til þess að standa á verði um að framlög til kirkjunnar séu í sam- ræmi við fjárþörf hennar, en þar vill því miður verða misbrestur á. Þó met ég drengileg viðbrögð og stuðning við kirkjuna af hálfu stjómvalda, þegar á reynir. Vegna þessara athugasemda vil ég taka skýrt fram, að þær draga á engan hátt úr þeirri skoðun minni, að þjóðkirkjufyrirkomulagið er íslensku þjóðinni farsælast. Á meðan allur þorri landsmanna er þjóðkirkjufólk, era núverandi tengsl ríkis og kirkju þjóðarheildinni fyrir bestu. Ég er ekki sama sinnis og sumir kirkjunnar menn á hinum Norðurlöndunum, að kirkjuleg deyfð og sitt hvað, er úrskeiðis fer, sé kirkjuskipuninni að kenna. Þjóð- kirkjan hefur ytri sem innri möguleika til að vera lifandi, starf- andi kirkja, eins og hver önnur kirkjudeild, og síst minni tækifæri. En þau þarf að nota betur. Þótt ég hafi lagt áherslu á þátt ríkisins að styðja kirkjuna skv. ákvæði stjórnarskrárinnar, þá er víðs flarri mér að draga úr hlut- deild safnaðanna og kirkjufólksins við það að leggja fram sinn skerf til hinnar kirkjulegu starfsemi. Fijáls framlög sóknarfólks hafa alla tíð tengst tilbeiðslu og guðsdýrkun. Það er rétt og tilhlýðilegt að bera fram gjafir sínar og fómir við guðs- þjónustur. Og það skiptir ekki máli, hvort í hiut á þjóðkirkja eða fríkirkja. Kirkjan er í eðli sínu fóm- arþjónusta hinna einstöku safnað- armeðlima, sem á að koma fram í verki. „Guð elskar glaðan gjafara." (2. Kor 9:7) Þar sem ég þekki til í kirkjum annarra landa, fara messugjörðir þannig fram, að einn liður messunn- ar er fómargjöfin. Hún er fram borin af hveijum sem til messu kemur. Við munum eftir athygl- inni, sem Kristur vakti á fómargjöf- unum í musterinu í Jerúsalem. „Jesús settist gegnt ijárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. Og hann kallaði til sín læri- sveina sína og sagði við þá: „Sannlega segi ég yður, þessi fá- tæka ekkja gaf meira en allir hinir, er lögðu í fjárhirsluna. Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum, en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alia björg sína.““ (Mark. 12. 41—44.) Hér er það fómin í fram- laginu, sem Jesús metur mest. Öðru hvora fara fram almennar safnanir við anddyri kirkna í sambandi við messur, þegar um er að ræða sér- stök málefni til líknar eða hjálpar. En kirkjur um víða veröld hafa þátt fómargjafanna sem einn lið messunnar. Mér hefur komið til hugar, hvort einhver söfnuður væri fús til að gera tilraun í þessa átt, t.d. um ákveðið tlmabil kirkjuárs- ins. Sjálfur reyndi ég þennan kirkjusið { helgihaldi á annað ár við framhaldsnám mitt í Sameinuðu lúthersku kirkjunni í Ameríku. Ný- lega var ég við messu í Reykjavík þar sem staddir vora nokkrir út- lendingar. Þeir sögðu: „Við viljum gefa kirkjunni, hver tekur á móti okkar framlagi?" Fólk, sem venst þessum kirkjusið, telur hann sjálf- sagðan í guðsdýrkun sinni. Eigi má ég skilja svo við fjár- framlög safnaðarfólks, að ég minnist ekki á framtak og fómir við kirkjubyggingar. Sú saga er sérkafli í safnaðarþjónustu á ís- landi. Það er mikið ánægjuefni, hve sumir söfnuðir og einstaklingar hafa á sig lagt við kirkjubygging- ar. — Kynni mín af þeim áhuga og samstarfsvilja hafa minnt mig á ritningarorðið: „Því hvar sem fjár- sjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera.“ (Matt. 6:21). Enda þótt söfnuðir hafi getað komið kirkjum sínum upp án stuðn- ings hin opinbera, þá er mér Ijóst að ákvæði stjómarskrárinnar nær og til þessara framkvæmda. Að því marki stefnir nýtt framvarp um kirkjuyggingar, sem afgreitt hefur verið frá kirkjuþingi og bíður þess enn að vera lagt fram á Alþingi. Ríki og kirkja hafa gagnkvæm- um skyldum að gegna I samstarfi til heilla fyrir þjóðina. Máltækið segir, að skynsemin setji lög en samviskan framfylgi þeim. Ekki verða þessir eiginleikar þó aðskild- ir, hvorki við lagasmíði né löghlýðni. Á þeim sameiginlega granni er kristin menning og trú borin uppi. Svo þarf áfram að vera um ókomna daga. Stuðningur og þjónusta ríkis- ins er þjóðkirkjunni mikilvæg og þeirri siðmenningu, sem ríkti hefur { landinu í þúsund ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.