Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.08.1986, Blaðsíða 42
42 MQRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST'1986 áster... VvA, .. .að skoða minningabókina hennar TM Reg. U5. Pat Otf —aH rtghts teserved e 1986 Los Angeies Tlmes Syndicate Með morgunkaffínu Ég er of þreytt til að hátta! HÖGNIHREKKVÍSI Hvalkjötsveislan mikla H.G. skrifar: „í Velvakanda 13.8. kvarta „sjónvarpsglápendur" útaf ógeð- felldum auglýsingamyndum, m.a. blóðugum iíkamsleifum dýra. Svo er spurt hvort glápendur megi kannski eiga von á að sjá framsókn- arráðherra nagandi hvalspik. ur. Ráðherra leit semsé á Halldór borðfélaga sinn nokkuð undirfurðu- legur eins og hann vildi segja „Einn fyrir hann Stjána." Halldór glotti við: „Einn fyrir hann Grínpís, Steingrímur minn.“ Fylgjum nú fordæmi ráðherra okkar, étum hval í öll mál meðan endist, í þágu vísindanna. Á meðan HvalQall lækkar kann þó svo að fara að Villilambafjall hækki, Hvítnautafjall og Baula. Þau lækka kannski aftur þegar næst þarf að hagræða vísitölunni." Merkar greinar um lífríki og lífshætti Ónei, ekki urðum við þeirrar ánægju aðnjótandi. En Þjóðviijinn bætti úr brýnni þörf, bauð baráttu- mönnum Hvals hf. og vísindanna í hvalkjötsveislu með drykkjarföng- um ríflegum, sem sjálfsagt var. Er Þjóðviljanum óskað til lukku með það að vera orðinn okatækur mál- svari stjómarinnar í hvalaátsmálinu ásamt fréttamönnum sjónvarps og útvarps. Veislustaður var samt ekki nógu vel valinn. Áhrifameira hefði verið að ráðherrar okkar, Halldór og Steingrímur, hefðu fengið sér bita af hráum hval á sjálfu planinu. En hrár hvalur er mesta lostæti að sögn þeirra sem um það báru vitni í sjónvarpinu. í forgrunni hefði þá mátt vera mynd af sundurskomu hvalshræi, svipað því sem sjónvarp hefur verið svo hugulsamt að sýna okkur síðustu vikumar. Enda þótt ráðherrar prísuðu mjög hvalkjötið í veislu Össurar og co., þá sýndist svipurinn á Steingrími ekki sérlega ánægjuleg- Ásgeir skrifan „Ég vil þakka Jóni Þ. Árnasyni fyrir þær merku greinar, sem hann hefur skrifað í Morgunblaðið mörg undanfarin ár undir heitinu „Lífríki og lífshættir". í greinum Jóns fer saman frumleg hugsun og hnit- miðuð framsetning. Mér finnst sérstök ástæða til að benda lesend- Þóra hafði samband við Velvak- anda og sagðist hafa verið að vinna við Ljósafosslaug um verslunar- mannahelgina. Þá vildi svo illa til að 6 til 8 ára gamall drengur týndi úrinu sínu sem hann var með í um á síðustu grein Jóns, sem birtist þann 20. þessa mánaðar. í henni er að finna óvægna lýsingu á sjálfs- dýrkun og upphafningarþörf manna, sem m.a. má rekja til Guðs- trúar. Greinin er í senn ógnvekjandi og raunsönn lýsing á mannlegu eðli. Ég þakka Jóni Þ. Ámasyni og hvet hann til áframhaldandi skrifa." svartri ól. Úrið fannst ekki fýrr en hann var farinn en hann hefur ekki vitjað þess síðan. Biður hún dreng- inn eða aðstandendur hans að hafa samband í síma 99-2649. Úr fannst í Ljósafosslaug Víkverji skrifar Mikil breyting hefur orðið á starfsemi kvikmyndahúsanna nú á síðustu ámm. Fyrir nokkrum árum skiptu kvikmyndahúsin á höf- uðborgarsvæðinu á milli sín stærstu bandarísku kvikmyndaverunum í sátt og samlyndi. Það gat síðan tekið góða kvikmynd tvö til þrjú ár að berast til landsins og ísland var þá endastöð kópíunnar sem hingað barst því kópían er auðvitað ónýt þegar búið er að texta hana á íslensku. Með þessu fyrirkomulagi fengu kvikmyndahúseigendur myndina fyrir lítið. Nú eru breyttir tímar. Ekki er til dæmis óalgengt að sjá auglýsing- ar í fjölmiðlum hér frá kvikmynda- húsunum um glænýjar kvikmyndir áður en byrjað er að sýna þær í nágrannalöndunum og stundum er meira að segja auglýst fyrsta frum- sýning kvikmyndar í Evrópu. Ymsar ástæður eru fyrir þessari breytingu — en ætli því verði þó neitað að breyting á markaðnum með aukinni samkeppni eigi hér stærstan hlut að máli. Fjölsala kvik- myndahús hafa verið að ryðja sér til rúms og þeim fylgir meiri eftir- spum, aukin þörf fyrir kvikmyndir. Myndbandamarkaðurinn hefur líka knúið kvikmyndahúseigendur til að vera fyrr á ferðinni með myndir en áður, því ella eiga þeir það á hættu að einhver úrvalsmyndin sem þeir eiga réttinn á, sé komin í almenna leigu hjá myndbandaleigunum. Loks verður því varla á móti mælt að tiltölulega nýr aðili sem rekur stórt og mikið kvikmyndahús í nálægð við sum íjölmennustu hverfi borgarinnar en stendur utan samtaka kvikmyndahúseigenda, hefur hleypt talsverðum sam- keppnisanda í þessa grein og átt á sinn hátt þátt í því að kvikmyndir berast nú fyrr til landsins en þær gerðu. Hins vegar verður ekki séð áð kvikmyndahúsum í borginni sé að fækka af völdum samkeppninnar nema síður sé. Að vísu orðið eig- cndaskipti á nokkrum húsanna en aðrir taka þá við og reka húsin áfram, þótt rekstrarformið kunni að vera með eitthveijum öðrum hætti. XXX Ymsar skyldur hvíla á forsvars- mönnum fyrirtækja og stofn- ana hér á landi sem annarsstaðar og þeir verða að koma fram í nafni embættis síns með ýmsum hætti. Víkveija er hins vegar til efs að önnur eins manndómsraun hafi ver- ið lögð á margan embættismanninn og sú sem flugmálastjóri mátti tak- ast á við nú á dögunum — að stökkva út úr þyrlu sem farþegi í fallhlíf. í tilefni af flugmáladeginum er eðlilegt að Pétur Einarsson hafi átt erfitt með að neita áskoruninni og hann lét sig hafa það. Víkveiji getur ekki annað en tek- ið ofan fyrir flugmálastjóra af þessu tilefni. XXX Ahugamaður um jasstónlist hafði samband við Víkveija og vildi lýsa ánægju sinni með að 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar skyldi vera slitið með veglegum jasshljómleikum. Með því hefði jass- inum verið sýndur sá sómi sem honum bæri. Hins vegar hafði hann á orði að veigamikill misbrestur hefði orðið á framkvæmd þessara tónleika, þar eð engum blásara var gefínn kostur á að koma þar fram. Jassáhugamaðurinn fullyrti að við íslendingar ættum mjög frambæri- lega blásara á sviði jasstónlistarinn- ar og því skaði að ekki skuli hafa heyrst tónn frá neinum þeirra á umræddum tónleikum. „Þótt gítar- ar og píanó séu í sjálfu sér ágæt sólóhljóðfæri í jassi, jafnast ekkert á við góðan saxófónleik. Það er sko raunveruleg sveifla," sagði þessi ágæti maður og nefndi nöfn nokk- urra valinkunnra saxófónleikara máli sfnu til stuðnings.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.