Morgunblaðið - 23.08.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986
Athugasemd frá O.
Johnson og Kaaber
hf. vegna frétta
um kaffimál
í Morgunblaðinu hinn 21. ágúst sl. og í hádegisfréttum ríkisút-
varpsins hinn 19. ágúst sl. var skýrt frá niðurstöðu rannsóknar á
kaffiinnflutningi fyrirtækisins. Er frásögn fréttamanna fyrst og
fremst byggð á bréfi rikissaksóknara til rannóknarlögreglu ríkisins
frá 18. ágúst 1986. í því bréfi er frá því skýrt að rannóknin hafi leitt
í Ijós að fyrirtækið hafi nýtt alla afslætti með löglegum hætti. Jafn-
framt er talið hugsanlegt að forráðamenn fyrirtækisins hafi gerst
sekir um refsiverðan verknað varðandi verðlagsmál og ef svo væri
yrði ekki unnt að koma yfir þá refsinsu vegna fyrningar sakar.
Fyrirtækið fellst ekki á að sú
niðurstaða sé rétt að refsiverður
verknaður hafi verið framinn í fyrir-
tækinu. Skal eftirfarandi tekið fram
í því sambandi:
1. Ekki kemur fram i niðurstöðu
ríkissaksóknara að um er að
ræða verðútreikninga og skýrsl-
ur tveggja sjálfstæðra fyrir-
tækja. Annars vegar er um að
ræða verðútreikninga fyrirtækis
okkar, sem gerðir eru um leið
og innflutningur hráefnis á sér
stað. Er í þeim útreikningum
tekið fram að þeir séu ekki end-
anlegir. Hins vegar er um að
ræða verðútreikninga Kaffí-
brennslu O. Johnson & Kaaber
hf. Kaffíbrennsla O. Johnson &
Kaaber hf. sendi sjálfstæða
Athugasemd
frá Manfreð
Vilhjálmssyni
Morgunblaðlnu hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá
Manfreð Vilhjálmssyní, arkitekt:
22. ágúst 1986
Hr. ritstjóri.
Vegna skrifa í einu vikublaði
borgarinnar um tengsl mín við Þor-
vald S. Þorvaldsson, einn dóm-
nefndarmanna í samkeppni um
nýbyggingu Alþingis, vil ég vinsam-
legast fara þess á leit við þig, að
blaðið birti eftirfarandi tilkynningu,
sem kom í Lögbirtingarblaði nr. 78:
„Það tilkynnist til fírmaskrár
Reykjavíkur, að þann 1. apríl 1984
hætti Þorvaldur S. Þorvaldsson
störfum hjá fírmanu Arkitektar
Manfreð og Þorvaldur sf. Fyrirtæk-
ið hefur ekki starfað frá sama tíma,
er hætt starfsemi og óskast því
tekið út af fírmaskrá. Reykjavík
15. mars 1986.“
verðútreikninga til verðlagsyfír-
valda eins og aðrar kaffibrennsl-
ur, byggða á þeim kostnaði, sem
kaffíbrennslan hafði. Voru verð-
útreikningar þessir svo og
verðútreikningar annarra kaffí-
brennslna í landinu fyrirliggj-
andi þegar verðlagsyfírvöld tóku
ákvörðun um verð á kaffí. Allir
afslættir, sem komu í hlut Kaffí-
brennslu O. Johnson & Kaaber
hf. komu fram í verðútreikning-
um félagsins. Það er því ekki
rétt sem haldið er fram í bréfí
rikissaksóknara að afslættir að
fjárhæð 1.458.061 bandarískra
dala hafí ekki komið fram í verð-
útreikningum á kaffí. Aðfínnslur
ríkissaksóknara eiga aðeins við
um þann hluta afsláttanna, sem
komu i hlut O. Johnson & Kaab-
er hf., en fyrirtækið taldi sér
heimilt að skipta framangreind-
um afsláttum meðal annars af
þeim sökum að fyrirtækið lagði
aðeins 4% á innflutt hráefni í
stað 8%, sem heimilað var af
verðlagsyfírvöldum.
2. Öll kaffíinnkaup eru með heimild
gjaldeyrisyfírvalda greidd með
víxlum í erlendum gjaldmiðli.
Voru afslættir dregnir frá við
uppgjör á innkaupunum um leið
og þeir lágu fyrir og var viðkom-
andi greiðslubanka gerð grein
fyrir þeim. Vegna mikilla breyt-
inga á gengi á þeim árum er
rannsóknin náði til, urðu einnig
breytingar á verðútreikningum
Kaffíbrennslunnar vegna geng-
istaps, sem lagðist við innkaups-
verð hráefnisins. Komu
breytingar þessar einnig fram í
verðútreikningum Kaffíbrennsl-
unnar.
3. Verðlagsstofnun hefur fengið
allar upplýsingar um þau mál-
efni sem framan hefur verið lýst.
Hafa forráðamenn fyrirtækisins
því verið í góðri trú um að starfs-
hættir fyrirtækisins væru í
samræmi við lög.
Jafnframt kom fram í sama viku-
blaði að teiknistofur okkar Þorvald-
ur S. Þorvaldssonar væru „hlið við
hlið“. Teiknistofa mín er á Berg-
staðastræti 52 en stofa Þorvaldar
á Borgartúni 3 hér í borg.
Með þökk,
Manfreð Vilhjálmsson,
arkitekt.
Sigurður Jónsson
flugmaður látinn
SIGURÐUR Jónsson flugmaður
(Siggi flug) lést í fyrrinótt, 76
ára að aldri. Sigurður var hand-
hafi fyrsta flugmannsskírteinis
sem gefið var út hérlendis og
vann lengst af starfsævi sinnar
að flugmálum. Eftirlifandi kona
hans er Guðbjörg Siguijónsdóttir
og eignuðust þau fjögur bÖrn.
Sigurður fæddist á Eyrarbakka
18. febrúar 1910. Foreldrar hans
voru Jón Sigurðsson verslunarfull-
trúi og Karen Frímannsdóttir.
Sigurður hélt ungur til Þýskalands
í flugnám og tók þar próf 1930 sem
atvinnuflugmaður. Hann var flug-
maður hjá Flugfélagi íslands árin
1930-31 þegar það var lagt niður
í þáverandi mynd. Á árunum 1932-
45 stundaði Sigurður ýmis störf,
og var meðal annars flugmaður hjá
Flugfélagi íslands endurreistu árin
1941-42.
Sigurður var skipaður skrifstofu-
stjóri flugmálastjóra 1945 þegar
það embætti var stofnað. Síðan
fulltrúi flugmálastjóra við loftferða-
eftirlit ríkisins, auk þess að gegna
stöðu flugmálastjóra í fjarveru
hans. Árið 1956 var Sigurður skip-
aður framkvæmdastjóri loftferða-
eftirlits ríkisins og gegndi því starfí
til ársins 1974.
Sigurður var formaður Félags
flugmálastarfsmanna 1950-51 og
Ljósmynd/Snorri Snorrason
Hér sést Halldór Beck fljúga flugvélinni TF-Kav, af gerðinni Tiger Moth, yfir Reykjavík á af-
mælisdegi borgarinnar fyrir 40 árum, 18. ágúst 1946.
Flugdagurinn í dag
FLUGDAGUR verður haldinn í dag, laugardag,
og hefst flugsýning á Reykjavíkurflugvelli kl.
14. Lokadagur sýningarinnar Flug ’86 i skýli
nr. 1 á flugvellinum er í dag og verður sýningin
opin frá kl. 14 til 17.
Stytta af Agnari Kofoed Hansen verður afhjúpuð
í skýli 1 kl. 13:30 í dag, en 50 ár eru nú liðin frá
því hann var skipaður flugmálaráðunautur ríkis-
stjómarinnar. Eftir minningarathöfnina hefst svo
flugsýning og munu erlendar flugsveitir sýna list-
flug, auk þess sem aðrar flugvélar verða til sýnis á
flugvellinum. Er þeim sem hug hafa á að fylgjast
með því sem fram fer í háloftunum, bent á að útvarp-
að verður beint frá flugsýningunni á rás svæðisút-
varps Reykjavíkur (90,1 FM) og öðru hvoru á rás tvö.
Flug ’86 hefur verið opin almenningi síðan á
þriðjudag, en í skýlinu hafa ýmis félög sem tengj-
ast flugi kynnt starfsemi sína. Utan dyra eru
flugvélar af ýmsum gerðum til sýnis og alla dagana
hefur farið fram flugsýning. Sviffíugmenn hafa sýnt
listir sínar auk fallhlífastökkvara og svifdrekaflug-
manna. Þýsk flugvél af gerðinni Domier hefur vakið
sérstaka athygli fyrir lipurð í flugtaki og listflugi
og veður hún áfram til sýnis í dag.
Fyrir 40 árum var haldinn flugdagur á afmæli
Reykjavíkurborgar, 18. ágúst, og voru þá einnig
margs konar flugvélar til sýnis. Að sögn Snorra
Snorrasonar, flugmanns, hófst flug'dagurinn með
því að íbúar Reykjavíkur voru vaktir fyrir hádegi
með miklum látum þegar hópur smáflugvéla flaug
lágflug yfír bæinn til að minna á flugsýninguna síðar
um daginn. Á meðfylgjandi mynd sést flugvél af
gerðinni Tigermoth fljúga yfír Reykjavíkurflugvöll
þann dag, en myndina tók Snorri á gamla kassa-
myndavél úr annarri slíkri vél. Alls voru Tigermoth-
vélamar þtjár og skömmu eftir að myndin var tek-
in, tók sú í miðið, sem var í eigu Svifflugfélagsins,
bakfallslykkju (loop) undir stjóm Halldórs Beck.
Samtímis veltu hinar tvær flugvélamar sér í hring
(roll), en við stjómvöl þeirra sátu Jóhann Markússon
og Anton Axelsson, flugkennari hjá Cumulus flug-
skólanum, en báðar flugvélamar voru í eigu skólans.
Anton sýndi einnig listflug á tvíþekju af gerðinni
Stearman. Snorri var í flugnámi á þessum tíma og
á því 40 ára flugafmæli innan skamms.
Skylduaðild að BISN og SINE:
„Valdið er Sverris“
— segir Ragnhildur Helgadóttir
„MÉR FINNST að fólk eigi að
vera aðilar að þeim félögum, sem
það sjálft vill og öðrum ekki,“
sagði Ragnhildur Helgadóttir
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra í samtali við Morgun-
blaðið þegar hún var innt álits á
þeirri ákvörðun Sverris Her-
mannssonar menntamálaráð-
herra að draga af námslánum
þeirra sem eru í sérskólum eða
við nám erlendis félagsgjald til
BÍSN (Bandalag islenskra sér-
skólanema) eða SÍNE (Samtök
íslenskra námsmanna erlendis).
Ragnhildur afnam þessa skyldu-
aðild á sinum tíma.
ritari flugráðs 1960-73. Hann var
sæmdur Fálkaorðunni 1960 og
gerður að heiðusrfélaga í Félagi
íslenskra atvinnuflugmanna 1953.
„Mér fínnst enn fremur að ekki
eigi að taka félagsgjald af námsláni
nema námsmaður vilji það sjálfur.
Það á ekki að nota opinbert fé sem
varið er til Lánasjóðs íslenskra
námsmanna til þess að borga fé-
lagsgjald í félög sem það ef til vill
kærir sig ekki um að vera aðili
að,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir
fyrrum menntamálaráðherra. Um
ákvörðun Sverris vildi Ragnhildur
ekki tjá sig að öðru leyti en því að
hans væri valdið; „þetta er hans
ákvörðun."
Ákvörðun Ragnhildar á sínum
tíma hafði þær afleiðingar í för með
sér fyrir BÍSN og SÍNE að tekjur
þeirra af félagsgjöldum minnkuðu
um helming. Hjá SÍNE hafði þessi
ftjálsa félagsaðild þau áhrif að þeim
námsmönnum erlendis sem lán fá
hjá lánasjóðnum fækkaði um 50%.
Hlutfall þetta er núna 60% og sagði
formaður SÍNE, Bjöm Rúnar Guð-
mundsson, að hann hefði ekki
ástæðu til að ætla annað en það
hlutfall hefði haldið áfram að
hækka. Bjöm kvaðst vera ánægður
með ákvörðun Sverris enda myndi
hún hafa í för með sér sterkari fjár-
hagslega stöðu félagsins. „Mér
fínnst sjálfsagt að ríkið tryggi okk-
ur á þennan hátt fjármagn úr því
að það á annað borð ætlast til þess
að við höfum fulltrúa í stjóm lána-
sjóðsins og séum á annan hátt í
hagsmunagæslu fyrir námsmenn."
„Ég tel þett vera mikið skref
aftur á bak,“ sagði Vilhjálmur
Egilsson formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna í samtali við
Morgunblaðið. „Hagsmunasamtök
námsmanna ættu sem mest að lúta
lögmálum fijálsra félagasamtaka
og tel ég það best fyrir þau sjálf.
Þá þyrftu forystumenn félaganna
að sýna félagsmönnum að vert sé
að borga félagsgjöldin. Þess vegna
eru meiri líkur til þess að þeir sinni
hagsmunum félagsmanna betur
þegar aðildin er ftjáls en að öðrum
kosti lfklegt að þeir eyði tíma sínum
til þess að sinna allt öðru.
Staða þessara samtaka sýnir að
nægjanlega margir námsmenn telja
þess virði að greiða til þeirra félags-
gjöld og svo virðist sem þessi félög
séu í sókn frekar en hitt og skyldu-
aðild því óþörf."
Vilhjálmur taldi að það sama
ætti við um Stúdentaráð Háskóla
íslands; skylduaðild væri þar óæski-
leg og óþörf.
Athugasemd:
„Fylgjandi varn-
arsamstarf inu og
hef alltaf verið“
— segir Richard Björg-
vinsson bæjarfulltrúi í
Kópavogi
RICHARD Björgvinsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórn Kópavogs hafði samband
við Morgunblaðið og vildi koma
eftirfarandi á framfæri:
„í viðtali við mig um samþykkt
bæjarstjómar Kópavogs á endur-
skoðun samskipta við Bandaríkja-
stjóm, sem birt var í Morgunblaðinu
á föstudag, fínnst mér afstaða mín
til sjálfs vamarsamstarfsins ekki
koma nægilega skýrt fram. í þess-
ari tillögu undanskil ég vamarsam-
starfíð enda er ég því fullkomlega
fylgjandi og hef alltaf verið,“ sagði
Richard Björgvinsson.