Morgunblaðið - 23.08.1986, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGÁRDÁGUR 23. ÁGÚST 1986
11
+
AF ERLENDUM VETTVANGI
Gert að hrefnu á Árskógssandi fyrir nokkrum árum.
Hvalsaga frá
Bandaríkjunum
Fyrir skömmu birtist í bandaríska blaðinu The New York Tim-
es grein eftir Thomas W. Netter um hvalveiðimál og koma
Islendingar nokkuð við sögu. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi
mál fá umfjöllun í jafnvíðlesnu blaði og fer greinin hér á eftir,
lítiliega stytt:
■
Starfsmenn alþjóðlegra nátt-
úruvemdarsamtaka óttast nú
að hvalveiðibannið, sem taka átti
gildi í ár, muni reynast ómerkt
vegna „svívirðilegra" brota nokk-
urra ríkja.
Á undanförnum vikum hafa
nokkrar hvalveiðiþjóðir, svo sem
Islendingar, Norðmenn og Suð-
ur-Kóreubúar tilkynnt að þær
hyggist stunda hvalveiðar í
„vísindaskyni", samkvæmt al-
þjóðahvalveiðisamningi þeim er
gerður var 1946. Hugtakið hval-
veiðar í „vísindaskyni" hefur verið
lýst af umhverfisverndarmönnum
sem „smugu nægilega stórri fyrir
hvalveiðiskip".
Japan og Sovétríkin hyggjast
virða hvalveiðibannið innan nokk-
urra ára og hafa þegar dregið úr
veiðum, enda hafa stofnar minnk-
að og þrýstingur á alþjóðavett-
vangi aukist.
Bandaríkjastjórn hefur stutt
bann við hvalveiðum í ágóða-
skyni, en margir verndunarmenn
hafa orðið fyrir vonbrigðum með
þá ákvörðun hennar að beita Is-
lendinga og . Norðmenn ekki
refsiaðgerðum, en enn hefur ekki
verið ákveðið hvað gert verðui- í
málum Suður-Kóreubúa. Sam-
kvæmt bandarískum lögum má
stjórnin beita þau ríki, sem ekki
virða fiskveiðisamninga, refsiað-
gerðum, sem felast í því að
innflutningur á fiski frá viðkom-
andi ríkjum er heftur og réttur
þarlendra skipa til veiða í banda-
rískri lögsögu skertur.
Ilvalfriðunarmenn segja að
sumir hvalastofnar, svo sem
hrefna á Norðaustur-Atlantshafi,
séu í bráðri hættu vegna ofveiði.
„Ég óttast að hið alþjóðlega
samkomulag um hvalveiðibann sé
að liðast í sundur,“ sagði í yfirlýs-
ingu Charles De Haes, aðalfram-
kvæmdastjóra World Wildlife
Fund (WWF). „Nýleg yfirlýsing
Islendinga um að þeir hyggist
drepa hvali í svokölluðu vísinda-
skyni og selja afurðirnar til
minkabúa og annarra loðdýrabýla
er hneykslanleg sniðganga á hval-
veiðisáttmálann."
Aðaldeilan snýst um eina grein
í hvalveiðisáttmálanum, en í henni
stendur að hægt sé að stunda
takmarkaðar hvalveiðar í vísinda-
skyni, enda sé afurða fyrst og
fremst neytt á heimamarkaði.
Verndunarmenn segja að tii-
kynning íslensku ríkisstjórnarinn-
ar hinn 6. ágúst, um að 120
hvalir yrðu veiddir á ári og að af
þeim 4.000 tonnum af hvalkjöti
sem fengjust af skepnunum yrði
51/írþess neytt innanlands, sé út
í hött, þar sem árleg neysla Islend-
inga hafi til þessa verið um 200
tonn. Helsta lausn Islendinga
virðist felast í því að nota þau
1.800 tonn, sem af ganga, til
þess að fóðra loðdýr. „Ég fyllist
hryllingi við tilhugsunina, því hér
sitja vísindin ekki í fyrirrúmi,
heldur er hér lagt út í einhveijar
„vísindarannsóknir“ til þess eins
að halda áfram hvalveiðum í
gróðaskyni," segir Peter Kramer,
framkvæmdastjóri verndunar-
deildar WWF.
Verndunarmenn viðurkenna að
þörf sé á hvalarannsóknum, en
þeir minna á að þegar hafi meira
en ein milljón hvalskrokka verið
ristir, það sem af er þessari öld.
Þeir segja að meira máli skipti
að eftirspurn eftir hvalkjöti sé
gífurleg í Japan, en hvalkjöt er
þar dýrara en úrvals nautakjöt.
Margar hvalategundir eru nú
friðaðar vegna útrýmingarhættu,
en óttast er um margar tegundir,
sem enn eru veiddar, svo sem
hrefnu. Telja sumir vísindamenn
að Atlantshafsstofn hennar sé nú
aðeins um 30.000 til 40.000 dýr.
Elizabeth Kemf, ritstjóri mál-
gagns WWF, segir að hrefnu hafi
fækkað svo á þeim miðum, sem
norskir hvalveiðimenn sækja, að
þrátt fyrir að hvalveiðivertíðin
1986 hafi veríð lengd um tvær
vikur hafi þeim ekki tekist að
veiða þau 400 dýr, sem þeir máttu
Hvalskurður í Hvalfirði.
veiða samkvæmt kvóta og hafi
þeir aðeins veitt 379 hrefnur.
Hvalverndunarsinnar segja að
ástandið sé vissulega ekki afleitt
þar sem Sovétmenn hafi sagst
ætla að hætta hvalveiðum 1987
og Japanir 1988. Spurningin er
þó sú hvað verður um hvalkjöts-
markaðinn í Japan. „Á því veltur
allt,“ segir Kramer, „því ef mark-
aðurinn er ekki lengur fyrir hendi,
er hvalveiðum í auðgunarskyni í
raun lokið.“
Þrátt fyrir að WWF hafi skorað
á japönsk stjórnvöld að banna
verslun með hvalkjöt, í hvaða til-
gangi sem skepnurnar séu veidd-
ar, þá standa litlar vonir til þess
að Japanir verði við þeim óskum
fyrr en 1988.
Frammámenn WWF segja að
samtökin hafi þróað rannsóknar-
aðferðir á hvölum, sem ekki feli
í sér að drepa þurfi dýrin. Þeir
hafa bent stjórnvöldum í löndum
eins og íslandi, Noregi og Japan
á þessar aðferðir og reyna að fá
þau ofan af hvalveiðum í vísinda-
skyni.
„Skýra verður frá tilraunum til
þess að fara í kring um hvalveiði-
bannið,“ segir fyrrnefnd Kemf.
„Á meðan hvalir eru drepnir í
nafni vísinda og skrokkar þeirra
svo seldir er hvalveiðibannið stað-
lausir stafir."
VERKSMIÐJU
H-hÚSÍð
AUÐBREKKU-KOPAVOGI §
Opió: 10-19 virkadaga/10-17á laugardögum
NÝTT SÍMANÚMER '
69-11-00
4