Morgunblaðið - 23.08.1986, Síða 36
36
IfH TSÚOÁ .££ RllDAnfl/í)M/vl OffíA.igVfúOffD^
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986
fclk f (2i
fréttum : 'k.
Judge Reinhold
___ CQTYlhlofld Vl^Ív»lril‘fÁlc Afl* llAT'T'QTYIQTl'nC Leikstjórar eru í miklum metum hjá hrokagikknum Judge Reinliold,
SCllllmUillU IIUI IVUI/U19 Uj^ OCl 1 CUIICIIIIIÐ enda er hann kvæntur einum slíkum, Carrie Frazier.
Víst er til bæði fyndnara og feg-
urra fólk en hann Judge
Reinhold, jafnvel hæfileikaríkari
herramenn, en engu að síður hefur
hann nú slegið í gegn sem geysigóð-
ur grínleikari, vestan hafs. Eftir að
hafa leikið í einum fímm myndum,
án þess að vekja nokkra athygli,
var honum boðið hlutverk hins sljóa
fylgisveins Eddie Murphy í mynd-
inni „Beverly Hills Cop“ og kom
sem slíkur æði mörgum til að hlæja
dátt um allan heim. Nýjasta afrek
piltsins er myndin „Ruthless
People", þar sem hann leikur mann-
ræningja sem rænir hertogafrú
einni, afskaplega fínni (Bette Midl-
er) og krefst himinhárra upphæða
fyrir að láta hana lausa. Heldur
betur hitnar þó í kolunum þegar í
ljós kemur að eiginmaðurinn
(Danny DeVite) er himinsæll með
hvarf konu sinnar og vill síst af
öllu fá hana aftur heim. Allt virðist
benda til þess að myndin muni ná
geysilegum vinsældum og það má
því með sanni segja, að aðeins sé
að rofa til fyrir Reinhold. Hann sér
nú fram á betri tíð með blóm í
haga - og vonandi betri stöðu í
bankabókinni. „Judge hefur mikla
hæfíleika, á því leikur enginn vafí,“
segir framleiðandi myndarinnar,
Jeffrey Katzenberg. „Hann er langt
frá því að vera fullkominn, rétt eins
og flestir aðrir - en galla sína undir-
strikar hann á afar krúttlegan hátt,
er pínulítið vandræðalegur í allri
sinni framkomu á hvíta tjaldinu."
Ýmsir hafa haldið því fram að
frægðin hafí stigið Reinhold hættu-
iega til höfuðs, hann sé of málgef-
inn, kunni ekki að gæta orða sinna,
þegar blaðamenn eru annars vegar.
Hvort sem þetta er nú satt, eður
ei, þá hefur maðurinn ákveðnar
hræðilega grimmar," segir hann.
Trúlega er Reinhold þó vægnari í
dómum sínum um kvikmyndaleik-
stjórana, því hann giftist nefnilega
einum slíkum fyrir réttu ári síðan.
Sú heitir Carrie Frazier og er 31
árs að aldri.
Judge Reinhold er sonur lög-
fræðingsins Edward Reinhold og
konu hans, Reginu. „Samband okk-
ar mömmu hefur alltaf verið mjög
náið, en pabba kunni ég aldrei vel
við,“ segir hann. „Hann var strang-
ur faðir og alltof formfastur. T.d.
þurfti ég alltaf að panta viðtalstíma
hjá honum, ef ég þurfti að ræða
einhver mál við hann. Það var óbrú-
anlegt bil á milli okkar alla tíð, en
hann var virðulegur karlinn, það
má hann eiga,“ bætir hann við.
„Judge er vissulega hrokagikk-
ur,“ segir leikkonan Meg Tilly, sem
lék á móti honum í myndinni „Off
Beat“, „en hann er líka skemmti-
lega hreinskilinn. Hann er sam-
bland af hrottafengnu ruddamenni
og heiðarlegum herramanni - og
þar sem það falla ekki allar konur
fyrir glassúrhjúpuðum glansgæjum
- þá höfðar hann til kvenfólksins,"
bætir hún við. Um gagnrýni þessa
segir Reinhold: „Ruddi er ég ekki,
því síður gegnumsýrt góðmenni.
Ég er eitthvað svona mitt á milli.
Ég geri kröfur, kyngi ekki hveiju
sem er og kann að setja hnefann í
borðið, gerist þess þörf. Af mikilli
reynslu hefur mér nefnilega lærst
að maður getur aldrei gert öllum
til hæfís og með því að vera góður
og ljúfúr býður maður aðeins upp
á að aðrir traðki á manni." - Sann-
kallað hörkutól, leikarinn Judge
Reinhold.
skoðanir og liggur ekki á þeim. Um
mótleikara sinn, Eddie Murphy,
segir hann t.d.: „Hann er afskap-
lega lokaður, hræðilega feiminn um
leið og gamanleikaragríman er tek-
in af honum." Kvikmyndatökumenn
eru ekki hátt skrifaðir hjá herran-
um, hann segir þá huglausar
gungur upp til hópa. I gegnum
tíðina hefur Reinhold verið orðaður
við fjöldann allan af leikkonum, en
sjálfur segist hann ekki bera fyrir
þeim nokkra virðingu. „Þær eru
allar sjálfumglaðar dekurdúkkur,
svo mikið veit ég fyrir víst. Ég hef
verið með Qölmörgum leikkonum
og allar eru þær svo uppteknar af
sjálfum sér að þær sofa bókstaflega
með spegilinn í hendi sér. Það er
langt síðan ég hætti að leggja lag
mitt við þær, ákvað það árið 1980
að forðast þær eins og heitan eld.
Þær eru nefnilega ekki aðeins til-
litslausar heldur hreint út sagt
í góðum félagsskap. Það falla ekki allar konur fyrir glassúr-hjúpuðum glans-gæjum og vissulega
nýtur Judge Reinhold góðs af þvi.
Systkini
sjást eftir
sjötíu ár
ungsdrengsins, skyndilega frægð
og frama eða langþráðu endurfund-
ina, eiga það nefnilega til að rætast
í raunveruleikanum. Um þetta get-
ur kona ein, Odny Larsen að nafni,
hæglega borið vitni, því ekki alls
fyrir löngu fékk hún bréf frá bróð-
ur sínum, sem hún hafði þá ekki
séð í ein 70 ár, hvorki meira né
minna. Eins og gefur að skilja hafði
Odny gengið út frá því að bróðir
hennar væri löngu látinn og því brá
henni heldur betur í brún er hún
skyndilega fékk frá honum bréf,
sem bar kanadískan póststimpil.
„Þetta er stórkostlegasti viðburður
lífs rníns," sagði Odny, er hún tók
á móti bróður sínum á flugvelllinum
í Osló. „Síðast þegar ég sá Walther
var ég aðeins ársgömul hnáta og
man ég því lítið eftir honum. í huga
mér heftir hann hinsvegar alla tíð
verið mikil hetja, en aldrei óraði
mig fyrir því að ég ætti eftir að
hitta hann aftur. Það eina, sem
að er staðreynd að stundum
er lífið sjálft lyginni líkast.
Gömlu góðu ævintýrin um ævilanga
hamingju prinsessunnar og kot-
„Einu erfiðleikamir eru tungu-
^01016^810,“ segir Odny Larsen,
sem hér sést ásamt bróður
sínum Walther konu hans Tanju
og eiginmanninum Öivind
Larsen.
háir mér nú er málakunnáttuleysið.
Walther talar nefnilega enga
norsku og ég afskaplega litla ensku.
Samræður okkar fara því að mestu
leyti fram á fíngra- og merkjamáli,
auk þess sem bamabörn mín hafa
reynst afar hjálpleg við túlkunina,“
segir Odny. Walther fór til Kanada
árið 1918 með afa sínum. „Þá var
ég aðeins sex ára og er það ferða-
lag því æði þokukennt í huga mér.
Það eina sem ég man, er að þegar
við lögðum úr höfn grétu allir há-
stöfum, en af hveiju skildi ég ekki
þá,“ segir Walther, sem nýlega kom
í heimsókn til systur sinnar í Nor-
egi, ásamt eiginkonunni Tanju.
„Það var í kjölfar skilnaðar foreldra