Morgunblaðið - 23.08.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986
37
Skemmtístaðuriim
„Stringfellows“
Pað var mikið um dýrðir er
skemmtistaðurinn Stringfellows
hélt upp á sitt sjötta afmæli nú á dög-
unum. Múgur og margmenni var þar
samankominn til að halda daginn há-
tíðlegan og mátti þar, meðal annars,
sjá mörg æði þekkt andlit. Mestu at-
hyglina vakti þó söngvarinn Prince,
þar sem hann mætti til leiks með nýja
dömu uppá arminn, enga aðra en fyrir-
sætuna Jackie St. Clair. Prince
kynntist stúlkutetrinu áðeins tveimur
kvöldum fyrr í samkvæmi, sem haldið
var honum til heiðurs eftir hljómleika
hans í borginní. „Ég veit að það hljóm-
ar heldur hjákátlega, þegar maður,
eins og ég, segist hafa orðið ástfang-
inn við fyrstu Sýn,“ segir Prince, „en
engu að síður, er það satt. Ég féll
bókstaflega kylliflatur fyrir Jackie."
Eins og við mátti búast dunaði dansinn
hjá Stringfellows fram á rauða nótt
og það var ekki fyrr en fór að birta
af degi, sem þau skötuhjú Prince og
Jackie yfirgáfu staðinn hönd í hönd.
Fyrir utan fýrirsætustörfin hefur
Jackie sér það helst til frægðar gert,
að hafa verið unnusta Andrew Ridge-
ley, fyrrum heimings Wham-dúettsins.
Af poppstjörnunhi Prince er það ann-
ars helst að frétta áð hann hefur
undanfarna mánuði unnið að upptök-
um á kvikmyndinni „Under the Cherry
Kevin O’Donde, bróðir popp-
stjörnunnar Boy George, þótti
mörgum svipa til Eltons gamla
John.
okkar, sem ákveðið var að Walther
færi með afa, vestur um haf,“ upp-
lýsir Odny. „Reyndar var áætlað
að við myndum fylgja þeim eftir
síðar meír, en einhverra hluta vegna
varð aldrei neitt úr þeim áformum.
Sambandið milli þessara tveggja
fjölskyldufylkinga varð svo æði
slitrótt með tímanum - ósamkomu-
lag og leiðindi." Bæði höfðu þau
Odny og Walther þó reynt að nálg-
ast hvort annað, en svo einkenni-
lega vildi til að bæði höfðu þau
röng heimilisföng undir höndum.
„Ég var aldrei fyllilega sáttur við
þessi málalok," segir Walther, „og
ákvað því að gera eina tilraun einn.
Og viti menn, nú voru upplýsingam-
ar réttar og bréfið komst til skila."
„Ég gleymi honum sennilega seint,
svipnum á henni Odny, þegar hún
opnaði bréfið,“ segir eiginmaður
hennar, Öivind Larsen. „Hún ger-
samlega missti stjóm á sér, hoppaði
og skoppaði um alla íbúð og síðan
hún frétti að hann væri á leiðinni
hingað í heimsókn hefur hún vart
verið viðræðuhæf.“ Walther, sem
kominn er á eftirlaun, segir óráðið
hvenær hann snýr aftur til Kanada.
„Pyrst ég er loks búinn að finna
fjölskylduna, ætla ég að njóta þess
að vera með henni í a.m.k. nokkra
mánuði. Síðan geri ég mér vonir
um að þau komi og heimsæki okk-
ur, vestur um haf, seinna meir,“
segir Walther og lítur kankvís á
systur sína, sem kinkar ákaft kolli
og brosir breitt. — Já, ævintýrin
gerast enn.
Skötuhjúin Prince og Jackie St. Clair yfirgefa samkvæmið rétt fyr-
ir sólarupprás. , ,
Moon“, sem að mestu Ieyti er tekin í
Frakklandi. Mótleikkona hans í þeirri
mynd er breska að ætt og uppruna
og heitir Francesca Annis. I nýlegu
viðtali, sem Daily Express átti við
hana, segir hún Prince lítinn saman-
rekinn nagg, sem líti afar stórt á
sjálfan sig. „Allan tímann meðan við
vorum í Frakklandi var Prince um-
kringdur lífvörðum frá morgni til
kvölds," segir Francesca. „Það má vel
vera að í Ameríku sé þess þörf, en
þarna var þetta alveg fáránlegt. Þess-
ir kraftakarlar æddu svo um allt og
æptu út í loftið: „Haldið ykkur í hæfí-
legri fjarlægð." Þetta besta við þetta
allt saman var, að það var bókstaflega
enginn, sem gerði minnstu tilraun til
að nálgast drenginn," segir hún.
En hvað um það — aftur snúum við
okkur að afmælisveislu Stringfellows.
Þar var bróðir Boy George, Kevin
O’Dond, t.a.m. meðal gesta og vakti
hann mikinn fögnuð viðstaddra fyrir
skrautlegt útlit í meira lagi. Sam-
kvæmisklæðnaður þeirra félaga í
hljómsveitinni „Singue, Sigue Sputnik"
sló þó allt annað út, þeir voru stífmál-
aðir í framan, hár þeirra í öllum
regnbogans litum og stóð að sjálfsögðu
allt upp í loft. Að sjálfsögðu var svo
fagnaðurinn festur á fílmu og birtum
við hér nokkrar myndir af fyrmefndum
samkvæmisgestum.
Já, skrautlegir í meira lagi, það er heldur vægt til orða tekið. Með-
limir sveitarinnar „Eigue, Sigue Sputnik“ voru alveg í banana-stuði
i sex ára afmælisveislu skemmtistaðarins Stringfellows.
COSPER
9527
COSPER
— Að hugsa sér, við Steingrímur Hermannsson erum
fæddir í sama stjörnumerki.
Skúffukaka I.
Bakað í ofnskúffunni
Það er fljótlegt að baka kökur í ofnskúffunni og skera svo í
hluta á eftir. Slíkar kökur þurfa helst að vera nýbakaðar, en það
er einnig hægt að setja þær nýbakaðar í frysti og geyma til
síðari nota. Uppskriftirnar sem hér fylgja eru norskar og tvær
kökurnar heita því undarlega nafni „Mor Monsen".
Skúffukaka I
(Mor Monsen)
6 egg
225 gr smjörlíki
225 gr sykur
225 gr hveiti
1 tsk. lyftiduft
rifínn börkur af einni sítrónu
Til skrauts
75 gr kúrenur
100 gr möndlur
50 gr perlusykur
Eggin eru aðskilin og hvítumar
eru stífþeyttar. Smjörlíki og sykur
þeytt vel saman, eggjarauðunum
bætt út í ásamt hveiti, lyftidufti
og sítrónuberki. Eggjahvíturnar
settar varlega saman við. Deigið
er sett í smurða ofnskúffu eða
annað stórt mót, yfír er stráð
brytjuðum kúrenum, möndlum og
perlusykri. Bakað í 20 mín. við
200°C skorin í tígla þegar er orð-
in köld.
Skúffukaka II
(Mor Monsen)
300 gr smjörlíki
300 gr sykur
8 egg
300 gr hveiti
1 tsk. lyftiduft
rifínn börkur af einni sítrónu
Til skrauts
100 gr kúrenur
100 gr möndlur
50 gr perlusykur
Smjöriíki og sykur hrært vel
saman, eggin aðskilin og rauðum-
ar settar saman við, síðan þurr-
efnin og börkurinn. Stífþeyttar
eggjahvítumar settar varlega
saman við. Brytjuðum kúrenum,
möndlum og perlusykri stráð yfír.
Bakað í ca. 30 mín. neðst í ofni
við 175°C og kakan skorið í tígla
þegar hún er orðin köld.
Hunangskaka
8 egg,
400 gr sykur
400 gr hunang
2 tsk. kanill
1 tsk. neg^ull
’/2 tsk. pipar
1 tsk. hjartasalt
500 gr hveiti
rifínn börkur af einni sítrónu
Hunangskaka
Eggin eru aðskilin, eggjarauð-
umar hrærðar með sykri þar til
þetta er orðið létt og ljóst, þurr-
efnunum og hunangi bætt saman
við og að sfðustu stífþeyttum
hvítunum (bætt varlega saman
við). Deigið sett í smurða
ofnskúffu eða stórt mót, bakað í
miðjum ofni við 175 ° C í ca. 45
mín. Kakan látin kólna í mótinu
en síðan hvolft, skorin í sneiðar
og borin fram með smjöri.
Hunangskakan geymist vel í
frysti.
Heimilishom/Bergljót Ingólfs-
dóttir
Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig á
sjötiu ára afmœlisdegi mínum 5. ágúst með
gjöfum, skeytum ogblómum og sérstakar þakk-
ir til tengdadóttur og sonar.
Þórdis Guðmundsdóttir,
Rauðarárstig 40.
STARFSFÓLK
GRANDA HF.
Við byrjum aftur mánudaginn 25. ágúst
að afloknu 3ja vikna sumarleyfi.
GRANDI HF