Morgunblaðið - 23.08.1986, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986
Sund:
Heimsmet
SYLVIA Gerasch frá Austur-
Þýskalandi bœtti eigift heimsmet
í 100 metra bringusundi á heims-
meistaramótinu f Madrid á
fimmtudagskvöld. Hún synti
vegalengdina á 1:08,11 mín. og
bætti gamla metift um 18 hundr-
uftustu úr sekúndu.
• Erik Mathiesen
Met þátttaka
1209 þátttakendur eru skráðir
í Reykjavíkur-maraþonið sem
fram fer á morgun, sunnudag og
eru það tvöfalt fleiri en í fyrra.
Yngsti keppandinn er 6 ára og
sá elsti 70 ára og keppir hann í
maraþoni. Hlaupið hefst í Lækjar-
götu kl. 12.00. Keppt verftur í
þremur hlaupavegalengdum,
maraþonhlaupi (42,195 km), hálf-
maraþoni (21 km) og skemmti-
skokki (7 km).
í fyrra voru þátttakendur rúm-
lega 500. Þá tóku þátt 110 útlend-
Knattspyrna:
Enska deildin hefst í dag
— Liverpool hefur titilvörn sína gegn Newcastle
Frá Bob Hennessy, fróttaritara Morgun-
blaAsins í Englandi.
EFTIR sumarleyfi og kaup og söl-
ur hjá mörgum félögum hefst
enska knattspyrnan í dag. Margir
spyrja sig hvort Liverpool vinnl
tvöfalt í ár eins og á síftasta ári
en það hafa verift litlar sem eng-
ar mannabreytingar hjá liftinu og
er Kenny Dalglish enn við stjóm-
völinn.
Nú er Ijóst afi lan Rush verður
með Liverpool í vetur þrátt fyrir
að hann hafi verið seldur til Juvent-
us á Italíu, en ítölsk lið mega ekki
nota nýja útlendinga fyrr en næsta
keppnistímabil. „Ég mun ekki
hugsa um Juventus í vetur, aðeins
reyna að leika vel fyrir Liverpool,"
sagði lan Rush. Liverpool mun
hefja titilvörn sína gegn Newcastle
í dag á útivelli. Svo gæti farið að
meistararnir yrðu að vera án Bruce
Grobbelaar, markvarðar, sem
meiddist í leiknum gegn Everton
um Góðgerðarskjöldinn um
síðustu helgi. Grobbelaar hefur
leikið 317 leiki frá því hann kom
til liösins 1981. Ef hann leikur ekki
í dag er þetta fyrsti leikurinn sem
hann missir af síðan hann kom til
félagsins og mun Mike Hooper þá
taka stöðu hans í markinu.
Everton leikur gegn Notthing-
ham Forest í dag. Liðið byrjar þetta
keppnistímabil með töluvert
breyttu liði frá því fyrra. Meiðsli
hafa hrjáð leikmenn og er talið að
Howard Kendall verði án sex fasta-
mann í dag. Gary Lineker, marka-
hæsti leikmaður deildarinnar í
fyrra hefur skilið eftir sig stórt
skarð í herbúðum Everton en við
hans hlutverki á að taka Adrian
Heath sem hefur verið varamaður
og ekki náð að festa sig í liðinu.
Kendall hefur opnað buddu sína
og keypt nokkra góða leikmenn
• Tveir af marksæknustu leikmönnum ensku 1. deildarinnará siðasta
keppnistfmabili, þeir Mark Hughes og Gary Lineker, leika nú meft
Barcelona á Spáni.
eins og Dave Watson frá Norwich
City fyrir eina milljón punda í vik-
unni. Howard Kenall sagði um
möguleika Everton í vetur „þetta
verður mjög erfitt og fyrir utan Liv-
erpool er ekki hægt að afskrifa lið
eins og Manchester United, Ars-
enal eða Tottenham, sem bæði
hafa fengið til sin nýja fram-
kvæmdastjóra og er þyrstir í að
ná árangri."
Manchester United, sem hefur
verið þekkt fyrir að eyða miklu fé
í kaup á nýjum leikmönnum, hefur
ekki opnað buddu sína í sumar.
Liðið hefur hins vegar selt Mark
Hughes til Barcelona og Alan Braz-
il, sem fór til Queen Park Rangers.
United mætir Arsenal á útivelli í
fyrstu umferð í dag.
Arsenal og Tottenham Hotspur
gera sér miklar vonir með tilkomu
nýrra framkvæmdastjóra og
áhangendur liðanna eru langeygir
eftir meistaratitli. Tottenham vann
bæði deild og bikar 1961 og Arsen-
al tíu árum seinna. Bæði liðin hafa
ekki unnið til titla síðan þá. Totten-
ham hefur fest kaup á skoska
landsliðsmanninum, Richard Go-
ugh, sem stóð sig mjög vel á HM
í Mexíkó og getur leikið allar stöð-
ur í öftustu víglínu. Tottenham
mætir Aston Villa á Villa Park.
Watson til Everton
Frá Bob Hennessy, frétteritara Morgun-
blaðsins í Englandi.
EVERTON keypti í gærkvöldi
varnarmanninn Dave Watson frá
Norwich City fyrir 1 milljón
punda.
Watson er sterkur varnarmaður
og hefur leikið 6 landsleiki fyrir
Englendinga, Hann er 25 ára og
byrjaði feri! sinn hjá Liverpool, en
náði ekki að komast í aðalliðiö.
Everton hatði áður boöið Nor-
wich 750 þúsund pund í kappann
fyrr í vikunni sem Norwich afþakk-
aði. Það gekk svo saman hjá
félögunum í gærkvöldi og mun
Watson væntanlega leika með
Everton á laugardaginn ef hann
kemst í gegnum læknisskoðun í
dag.
e Dave Watson
ingar en nú verða þeir um 170.
Mesti fjöldinn tekur þátt í
skemmtiskokkinu, þar eru um 900
keppendur skráðir. í hálfmaraþoni
verða 196 keppendur þar af eru
28 konur. í maraþonhlaupinu eru
106 keppendur skráðir og þar af
9 konur og koma þær allar erlend-
is frá. Útlendingar eru í miklum
meirihluta í karlaflokki í maraþon-
hlaupinu og koma þeir frá Banda-
ríkjunum, Frakklandi, Bretlandi,
Nýja-Sjálandi, Svíþjóð, Skotalandi,
írlandi og Spáni.
Afhending keppnisgagna í
hlaupið fer fram hjá Ferðaskrifstof-
unni Úrval, Pósthússtræti 13, milli
kl. 9 og 16 í dag, laugardag. Kepp-
endur verða síðan að vera mættir
að rásmarki kl. 11:40 á morgun
og verður startað stundvíslega kl.
12:00. Að loknu hlaupi kl. 17 fer
fram verðlaunaafhending í Lækjar-
götu og um kvöldið verður
Maraþonhátíð í Broadway. Allir
sem Ijúka keppni fá verðlaunapen-
ing, sérstakan Reykjavíkurmara-
þon-pening, auk þess fá sigurveg-
arar í hverju hlaupi bikar. Þessi
verðlaun eru gefin af Morgun-
blaðinu.
Drykkjarstöðvar verða á u.þ.b.
5 km fresti. Þar verður boðið upp
á vatn og sérlagaða íþróttadrykki.
Læknir og hjúkrunarlið verður til
reiðu meðan á hlaupinu stendur
og verður til aðstoðar er hlauparar
koma í mark.
Þetta er í þriðja sinn sem
Reykjavíkur-maraþon fer fram. í
fyrsta hlaupinu 1984 tóku 220
manns þátt og yfir 500 í fyrra og
nú yfir 1200. Þetta hlaup hefur
greinilega öðlast fastan sess í
íþróttaiðkun landsmanna og er
skokkáhuginn greinilega á uppleiö.
Búast má við að Reykjavíkur-
maraþonmet Sigurðar Péturs
Sigmundssonar frá 1984, 2:28,57
klst. verði í hættu í hlaupinu nú.
Því meðal þátttakenda verða
Andrew Daly frá Skotlandi, sem á
best 2:15,21 og írinn, Billy Gallagh-
er, sem á best 2:17,42. íslandsmet
Siguröar Péturs er 2:19,46 og setti
hann það í Berlín 1985. I hálf-
maraþonhlaupinu er vitað um
ágæta breska hlaupara sem eru
þar sigurstranglegir þó bestu
íslensku hlaupararnir eigi e.t.v.
möguleika gegn þeim.
jHoi
cmhd
Góðkunnur Norðmaður
í Reykjavíkur-maraþon
GÓÐUR norskur hlaupari, Erik
Mathiesen, verftur meftal kepp-
enda í Reykjavíkurmaraþoni, en
hann kemur hingað til þátttöku á
vegum Nike-umboðsins, Austur-
bakka hf. Hann hefur áftur keppt
hór á landi, fyrir áratug, og setti
þá vallarmet í 1500 metra hlaupi
f Laugardal.
Mathiesen var einn bezti milli-
vegalengdahlaupari Norðurlanda
fyrir tæpum áratug. Hann kom
hingað til lands sem slíkur í boöi
Frjálsíþróttasambands Islands
árið 1976 og keppti á Reykjavík-
urleikunum. Þar háði hann harða
baráttu við Kenýumanninn heims-
þekkta, Josh Kimeto, í 1500 metra
hlaupi og sigraði á 3:45,7 mínút-
um, sem er bezti árangur, sem
náðist á aðalleikvanginum í Laug-
ardal. Mathiesen er hérlendis m.a.
í viðskiptaerindum en skellir sér í
Reykjavíkurmaraþonið á morgun.
Hann keppir þar í hálfu maraþoni,
eöa 21 km. Hann á um 3:40 í 1500
metrum og 14:07 mín. í 5 km.
• Mikil þátttaka verftur í Reykjavíkurmaraþoninu sem hefst á morgun. Hlaupið hefst í Lækjargötu kl.
12.00. Þessi mynd var tekin í upphafi hlaupsins f fyrra.
Reykjavíkurmaraþon 1986: