Morgunblaðið - 23.08.1986, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 1986
'47
■SS
'i
ass
IS^iSSp™r:‘
ísssaHssss^srfr
H -Sg^ggww
^m**00 SSSSSe^MM
«9Í mB Méké ni*i rS?- *®vmW ÉM^-MÉkéé WmMí I
Morgunblaðið/Einar Falur
•ÍR-ingar jafna hér metin en það dugði ekki í gœr því Fylkismenn skoruðu annað mark f sfðari hálfleikn-
um og unnu þar með leikinn.
Missir ÍR af 2. deild?
— töpuðu í gærkvöldi fyrir Fylki
SVO gæti farið að Fylkir hafi gert
vonir ÍR-inga um sæti í 2. deild
að ári að engu f gærkvöldi er
Árbæingar unnu Breiðhyltinga
með tveimur mörkum gegn einu
á gervigrasvellinum f Laugardal.
Fylkismenn urðu fyrri til að
skora. Þeir fengu hornspyrnu en
ÍR-ingum tókst að spyrna frá mark-
inu en boltinn kom aftur inní og
nú náði Baldur Bjarnason að
sneiða hann í hornið nær og koma
sínum mönnum yfir. Þetta var á
6. mínútu leiksins.
Halldór Halldórsson náði að
jafna á 18. mínútu fyrir ÍR. Hann
skallaði í netið eftir homspyrnu.
Sigurmark ÍR gerði Örn Hlöðvers-
son á 78. mínútu og enn var
skallaði í netið eftir homspyrnu.
„Ég lofa ykkur því að ef Fylkir
vinnur þennan leik þá verðum við
uppi,“ sagði Víðir Sigurðsson lið-
stjóri ÍK úr Kópavogi í upphafi
síðari hálfleiks en hann lék áður
meö Kópavogsbúum og þeir hafa
einmitt verið í baráttunni um sigur
í deildinni við ÍR-inga í sumar.
Með þessum sigri Fylkis vænk-
ast hagur ÍK. Þeir voru tveimur
stigum á eftir ÍR fyrir leikinn í gær
og ef þeir vinna í dag og um næstu
helgi þá eru þeir uppi og Víðir lof-
aði því að svo yrði. ÍR-ingar eru
auðvitað ekki sammála Víði. Þeir
ætla að vinna sinn siðasta leik og
vonast til að ÍK tapi stigi í þeim
tveimur leikjum sem eftir eru. Ef
liöin verða jöfn að stigum þá kemst
ÍR áfram í 2. deild á hagstæðara
markahlutfalli.
Leikurinn í gær var nokkuð fjör-
ugur. ÍR-ingar virtust þó ekki hafa
nógu mikinn áhuga á að vinna
hann. Fylkir sótti meira þar til þeir
höfðu skorað. Þá sótti IR en eftir
að þeir jöfnuðu drógu þeir sig til
baka og virtust sætta sig við jafn-
teflið. Sigurmarkið kom síðan á 78.
mínútu og þá tóku ÍR-ingar aftur
til við að sækja en þaö var orðið
of seint.
Naumursigur
en þriú stig
GARÐSVÖLLUR, 1. deild:
Vídir-Valur: 0:1 (0:0)
Mark Vals: Sigurjón Kristjánsson á 69.
mínútu.
Dómari: Óli Ólsen og dæmdi ágætlega.
Áhorfendur: 670.
EINKUNNAGJÖFIN:
VÍÐIR: Jón Örvar Arason 3, Klemens Sæ-
mundsson 2, Björn Vilhelmsson 2, Vilhjálmur
Einarsson 2, Ólafur Róbertsson 3, Daniel Ein-
arsson 3, Guðjón Guðmundsson 2, Vilberg
Þorvaldsson 2, Gísli Eyjólfsson (vm. á 46.
min.) 2, Guðmundur Knútsson 2, Helgi Bents-
son (vm. á 69. min.) 2, Grétar Einarsson 3,
Mark Duffield 3.
Samtals: 27
VALUR: Guðmundur Hreiðarsson 3, Sigurjón
Krístjánsson 4, Ársæll Kristjánsson 2, Guðni
Bergsson 3, Hilmar Sighvatsson 3, Valur Vals-
son 3, Ingvar Guðmundsson 2, Bergþór
Magnússon 2, Magni B. Pétursson 2, Þorgrím-
ur Þráinsson 3, Ámundi Sigmundsson 3.
Samtals: 30.
Valur sótti mun meira fyrstu
mínúturnar en fljótlega jafnaðist
leikurinn og liðin skiptust á um að
sækja en sóknarlotur Vals virkuðu
þó mun hættulegri. Er liða tók á
hálfleikinn hertu Valsmenn sókn-
ina og skapaðist þá oft hætta við
Víðismarkið.
Sigurjón Kristjánsson átti hörku
skot af vítateig á 20. mínútu, en
rétt yfir. Tveimur mínútum síðar
fékk Hilmar Sighvatsson knöttinn
á vítateig og skaut í blá hornið
niðri en Jón varði í horn. Skömmu
síðar komst Ámundi upp að mark-
teig, aðþrengdur að vísu, en skaut
beint á Jón markvörð. Guðni
Bergsson fékk gullið færi þegar
hann fékk boltann aleinn á mark-
teignum en skot hans fór hátt yfir
markið.
Enn áttu Valsmenn góð færi.
Ámundi skaut þá úr miðjum víta-
teignum en Jón varði mjög vel.
Sigurjón komst upp undir enda-
mörk og skaut rétt utan mark-
teigslínunnar en enn varði Jón.
Víðismenn fengu aukaspyrnu
rétt fyrir leikhlé og af um 30 metra
færi skaut Daníel Einarsson hörku
skoti gegnum varnarvegg Vals en
Guðmundur var á réttum stað og
varði.
Valsmenn hófu leikinn með
stórskókn en Víðismenn vörðust.
vel. Hilmar átti lúmskt skot úr miðj
um vítateig en Jón varði enn einu
sinni. Er líða tók á leikinn jafnaðist
hann nokkuð og áttu Víðismenn
þá nokkrar góðar sóknarlotur.
Eina mark leiksins skoraði þó
Sigurjón Kristjánsson fyrir Val á
69. mínútu. Eftir mikla pressu á
Víðismarkið og skot í stöng barst
knötturinn til Sigurjóns rétt utan
markteigs og hann skoraði með
föstu skoti algjörlega óverjandi fyr-
ir Jón í marki Víðis.
Eftir markið tóku Víðismenn til
við að sækja meira en gestimir og
áttu þá nokkur færi. Guðjóri skaut
góðu skoti frá vítateig en Guð-
mundur varði glæsilega. Grétar
fékk gott færi á markteignum eftir
mistök varnarmanna. Skot hans
var beint á Guðmund og þaðan
yfir markið. Fleiri urðu mörkin ekki
og líklega hafa það verið mistök
Víöismanna í þessum leik aö leika
of stífan varnarleik.
Eðvarðjðinn við að
Islandsmet
setja
HANN gerir það ekki endasleppt
hann Eðvarð Þór Eðvarðsson
sundkappi úr Njarðvfk á heims-
meistaramótinu í sundl f Madrid.
f gær setti hann nýtt íslandsmet
f 100 metra baksundi er hann
synti á 57,84 sekúndum f
B-úrslitakeppninni.
Völler skoraði
er Bremen vann
Frá GuAjónl Arngrímssyni, blaðamannl Morgunblaðalns f Þýskalandi.
ÞRÍR leikir voru í þýsku 1. deild-
inni í knattspyrnu f gærköldi en
restin af þriðju umferðinni verður
leikin í dag.
Werder Bremen sigraði Kaisers-
lautern með einu marki gegn engu
og það var enginn annar en Rudi
Völler sem skoraði mark heima-
manna og er þetta fyrsta mark
hans í deildinni frá því í nóvember
á síðasta ári.
Frankfurt vann Núrnberg einnig
með einu marki gegn engu í gær.
Eina mark leiksins geröi landsliðs-
maðurinn Thomas Berthold með
góðu skoti beint úr aukaspyrnu.
Nýliðar Homburg gerðu jafntefli
á heimavelli við Schalke. Mark
heimamanna skoraði pólski lands-
liðsmaðurinn Vojicki en þeir keyptu
hann nýlega til liðsins. Mark
Schalke gerði Olaf Thon rúmri
mínútu eftir að leiktíminn var lið-
inn. Mark engu að síður og liðin
skiptu því stigunum.
Staðan í
1. deild
Valur
Fram
ÍBK
ÍA
KR
Vfðir
Þór
FH
UBK
ÍBV
Markahæstu menn eru:
Guðmundur Torfason, Fram 15
Valgeir Barðason, ÍA g
Sigurjón Kristjánsson, Val g
Ámundi Sigmundsson, Val 6
Grótar Einarsson, Víði 6
Guðmundur Steinsson, Fram 6
Ingi Björn Albertsson, FH 6
Óli Þór Magnússon, ÍBK 6
16 11 2 3 28:6 35
15 9 4 2 30:11 31
15 9 1 5 21:20 28
15 7 3 5 26:16 24
15 5 7 3 17:10 22
16 5 4 7 19:19 19
15 5 4 6 18:25 19
15 4 3 8 20:31 15
15 3 3 9 12:31 12
15 1 3 11 14:36 6
Eðvarð setti á dögunum glæsi-
legt Norðurlandamet í 200 metra
baksundi eins og við skýrðum frá
og í gær setti hann íslandsmet.
Góður árangur hjá honum.
í gær náði Eðvarð sér ekki alveg
á strik í undanrásunum og komst
ekki í A-úrlsitin. Hann náði þó að
komast í B-úrslitnin, synti á 58,08
sekúndum, og í úrslitakeppninni
varð hann annar á 57,84. Eðvarð
varð sem sagt í 10. sæti í 100
metra baksundi.
Gamla metið átti Eðvarð auðvit-
að sjálfur og var það sett fyrir ári
síöan á Evrópumeistaramótinu. Þá
synti hann á 57,92 sekúndum.
Þessi met eru miðuð við 50 metra
laug en besti tími Eðvarðs, og jafn-
framt íslandsmet í 25 metra laug,
er 56,26 sekúndur og það setti
hann í aprfl á þessu ári.
Ragnheiður Runólfsdóttir keppti
í gær í 200 metra fjórsundi og var
hún talsvert frá íslandsmeti sínu.
Eðvarð keppir aftur í dag og þá í
fjórsundi en keppninni lýkur um
helgina og íslensku keppendurnir
koma heim á sunnudagskvöldið.
KA klúbburinn í Reykjavík biður alla
KA menn sunnan fjalla að mæta á leik
Selfoss
KA
á Selfossvelli í dag kl. 14.00.
Hvetjum KA til sigurs!
Stjórn KA klúbbslns í Reykjavík.
Kaplakrikavöllur
FH
ÞOR
í dag kl. 14.00