Morgunblaðið - 03.09.1986, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.1986, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 V öruskiptaj öf nuður: vanda fiskvinnslunnar: Hagstæður um 415 milljónir kr. í júlí V ÖRU SKIPTAJÖFNUÐURINN við útlönd var hagstæður um 415 millj. kr. í júlímánuði sl. Fluttar voru út vörur fyrir 4.045 millj. kr. en inn fyrir 3.629 millj. kr. fob. Á fyrstu sjö mánuðum ársins hafa verið fluttar út vörur fyrir 25.225 millj. kr. en inn fyrir 21.992 millj. kr. fob. Vöruskiptajöfnuðurinn var því hagstæður um 3.232 miilj. kr. á tímabilinu. I frétt frá Hagstofu Islands segir jafnframt að verðmæti vöruutflutn- ingsins hafi verið 13% hærra á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjáv- arafurðir voru röskir þrír fjórðu hlutar alls útflutnings og voru 14% meiri en á sama tíma í fyrra. Ut- flutningur á áli var 10% meiri en í fyrra og útflutningur kísiljáms var 27% meiri en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þá var út- flutningsverðmæti annarrai vöru 3% meira en í fyrra. Vínútsalan: Verðmæti vöruinnflutningsins fyrstu sjö mánuði ársins var 1% minna en á sama tíma í fyrra, reikn- að á föstu gengi og skiptir miklu að vöruinnflutningur álverksmiðj- unnar var minni en í fyrra. Verðmæti innflutnings til stóriðju, innflutnings skipa og flugvéla svo og olíuinnflutnings fyrstu sjö mán- uði ársins, var samtals 32% minna en í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þessir innflutningsliðir eru jafnan breytilegir frá einu ári til annars, en séu þeir frátaldir reynist annar innflutningur vera um 10% meiri en í fyrra. Reykvíkingar ------------------ keyptu mest Ríkisstjórnin vegna MorgunblaoiO/Fétur Johnson Prinsinn hafði stuttan stanz KARL Bretaprins hafði 20 mínútna viðdvöl á Reykjavíkurflugvelli í gærdag. Þota prinsins lenti laust eftir klukkan 13. Prinsinn hafnaði boði um kaffi en fór þess í stað í stutta göngu- ferð um vallarsvæðið. Hann var á leið til Boston og Chicago í Bandaríkjunum. ÚTSALA Áfengis- og tóbaks- verzlunar ríkisins á léttum vínum fór vel af stað í gær, að sögn Þórs Oddgeirssonar hjá ÁTVR. Til dæmis seldist megnið af léttu vínunum sem voru á boðstólum í útibúinu við Lindargötu hér í Reykjavík, en eitthvað mun þó vera eftir af kampavínum, og örlítið magn af öðrum tegundum. Utsalan var einnig í öllum útibú- um ÁTVR úti á landi, að útibúinu á Akureyri undanskildu, en þar var salan ekki með sama hraða og hér í Reykjavík. Þór sagði þó að tals- vert hefði saxast á þær birgðir sem á boðstólunum voru úti á landi. Þessar víntegundir verða á boðstól- um í útibúunum, þar til þær eru uppseldar, eða að þær verða kallað- ar inn til ÁTVR á nýjan leik. Vínútsalan í fuilum gangi í Lind- argötuverzluninni í gær. Heimilar Byggðastofnun erlenda lántöku að upphæð 300 milljónir Til endurlána til fyrirtækja sem eru með erfiða lausafjárstöðu en réttu megin við núllið TILLAGA Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra þess efnis að ríkisstjórnin heimili Byggðastofnun á lánsfjárlögum 1987 erlenda lántöku að upphæð 300 miiljónir króna, sem endurlánaðar verði fisk- vinnslufyrirtækjum með erfiða lausafjárstöðu, var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Forsætisráðherra segist gera sér vonir um þessar aðgerðir verði til þess að rétta af rekstur 15 til 16 fiskvinnslufyrirtækja í Iandinu, þó að ennþá sé vafamál hver afdrif þeirra fiskvinnslufyrirtækja verða, sem í hvað verstri stöðu eru, eða með mjög neikvæða eiginfjárstöðu. „Það er mat Byggðastofnunar á lánsfjáráætlun 1987 heimild til stjórnin beita sér fyrir því að heimild til lántöku verði veitt á lánsfjáráætl- un þessa árs.“ Forsætisráðherra sagði jafn- framt að nokkur fiskvinnslufyrir- tæki hefðu verið flokkuð í svokallaðan fyrsta flokk, en það væru fyrirtæki sem ættu við minni- háttar greiðsluvanda að stríða. Viðskiptabankarnir og Byggða- stofnun hefðu tekið að sér að sér að leysa vanda þeirra með skuld- breytingu og þess háttar, án þess að til annarrar fyrirgi-eiðslu kæmi. að þessi fyrirgreiðsla, ásamt skuld- breytingu ríkisbankanna, muni fara langleiðina með að rétta af rekstur þeirra fyrirtækja, sem enn eru réttu megin við strikið," sagði forsætis- ráðherra í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Hann sagði jafnframt að frekari viðræður þyrftu að eiga sér stað við eigendur þeirra fyrirtækja sem enn verr væru stödd, en vissulega væri til þess ætlast að einhvetjir fjármunir kæmu þeim einnig til góða af þess- um 300 milljónum króna. Tillaga forsætisráðherra er svo- hljóðandi: „Ríkisstjómin mun beita sér fyrir því að Byggðastofnun fái að taka að láni allt að 300 milljón- ir króna, eða jafnvirði þess í erlendri mynt. Fé þetta skal endurlánað fískvinnslufyrirtækjum í því skyni að bæta lausafjárstöðu þeirra, eða endurlánað eigendum flskvinnslu- fyrirtækja til aukningar á eigin fé fyrirtækjanna. Þar sem fjárhagsvandi margra fiskvinnslufyrirtækja er nú mikill beinir ríkisstjómin því til Seðla- banka íslands að hann hlutist nú þegar til um að útvega Byggða- stofnun þann hluta af lánsfénu sem hún þarf í þessu skyni á árinu 1986. Fé þetta mun endurgreitt Seðla- bankanum 1987, enda mun ríkis- Hjólbarði sprakk á Arnarflugsþotu: Flugsljórinn nauð- hemlaði í flugtaki HJÓLBARÐI sprakk á Arnar- flugsþotu í flugtaki á flugvellin- um í Jedda í gær. Flugstjórinn gat hætt við flugtak og þegar hann nauðhemlaði vélinni fór loft af öllum hjólbörðunum, tíu talsins. Tvær bremsur eyðilögð- ust í átökunum. í þotunni voru Öll ákærðu voru sýknuð að fullu í útvarpsmálínu 249 pílagrímar á leið til síns heima í Alsír. Gengu farþegar og áhöfn heil frá borði. Við frum- skoðun flugvirkja á þotunni kom ekkert athugavert í ljós. Þotan er af DC-8-gerð, og ber skrásetningarnúmerið TF-ISA. í áhöfn hennar eru fjórir íslendingar. Að sögn Ómars Olafssonar, flug- rekstrarstjóra, sinna fimm þotur pflagn'mafluginu. Ein þeirra er varavél og hefur hlaupið í skarðið þegar þota hefur bilað eða þarfnast skoðunar. Pílagrímafluginu lýkur 9. september og bjóst Ómar ekki við því að truflun hlytist af þessu óhappi. SAKADÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær tíumenningana sem ákærð- ir voru fyrir að hafa haft forgöngu um að starfsmenn Ríkisútvarpsins stöðvuðu með ólögmætum hætti útsendingar hljóðvarps mánudaginn 1. október 1984 og hófu ekki útsendingar sjónvarps þá um kvöidið. Það voru forsvarsmenn „Frétta- útvarpsins" og Félags fijálshyggju- manna sem kærðu starfsmenn Ríkisútvarpsins fyrir ætlað brot gegn 176. grein almennra hegning- arlaga með því að leggja niður vinnu og stöðva útsendingar á veg- um Ríkisútvarpsins. Ríkissaksókn- ari ritaði rannsóknarlögreglustjóra bréf hinn 9. október 1984, þar sem honum var falið að hefjast handa um opinbera rannsókn á sakarefn- um. Skyldi rannsókn m.a. beinast að því hveijar voru orsakir þess að útsendingar Ríkisútvarjisins stöðv- uðust 1. október, hveijir stöðvuðu þær og að frumkvæði hverra, hveij- ir hafi lagt niður vinnu og hvað hafí farið milli þeirra einstaklinga er réðu stöðvun og útvarpsstjóra áður en, um leið og eftir að útsend- ingar voru stöðvaðar. í svari útvarpsstjóra við fyrir- spurnum rannsóknarlögreglu kom fram að hann hefði hvorki rétt né skyldu til að sitja fundi hagsmuna- samtaka starfsmanna. Sé því forganga á fundum þeirra honum ókunn. Þá segir útvarpsstjóri að starfsfólk á neyðarvakt hafl umyrðalaust og óáreitt tekið til starfa þegar í stað er útsendingar hættu. I bréfum starfsmanna til útvarpsstjóra kom fram, að þeir legðu niður vinnu vegna þess að þeir hafi ekki séð sér fært að sinna störfum sínum þar eð laun þeirra höfðu ekki verið greidd hinn 1. október. í niðurstöðum Sakadóms Reykja- víkur segir að ákærðu hafi fullyrt að þau hafi viljað knýja á um greiðslur starfslauna, sem ógoldin voru og að þeirra mati fallin í ein- daga. Asetningur þeirra hafl ekki beinst að því að raska útvarps- rekstri og þau hafí ekki unnið spjöll á tækniútbúnaði Ríkisútvarpsins. Þá hafí þau ekki reynt að koma í veg fyrir að aðrir, sem ekki lögðu niður vinnu, gætu starfrækt útvarp- ið. Ekkert hafi komið fram því til styrktar að ákærð hafl haft for- göngu um að starfsemi útvarjisins stöðvaðist. Þess hafi ekki verið far- ið á leit við þau að þau hæfu störf að nýju og öryggisvakt starfsfólks hafl verið hjá Ríkisútvarjiinu allan tímann. Taldi dómari því að ekki yrði talið að ákærð, sem fæst unnu við beinar útsendingar, hafi með því verknaðar- eða aðgerðarleysi sínu að sitja heima brotið refsiá- kvæði 176. greinar almennra hegningarlaga, en í henni er skil- yrði refsiábyrgðar að truflun sé valdið með ólögmætum verknaði. Dómari taldi því að sýkna bæri ákærðu af öllum kröfum ákæru- valds í málinu og dæma ríkissjóð til að greiða sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun Páls Arnórs Pálssonar, hæstaréttarlögmanns, skipaðs vetjanda' ákærðu. Ármann Kristinsson, sakadóm- ari, kvað upp dóminn. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hjá ríkissak- sóknara um það hvort dóminum verður áfrýjað til Hæstaréttar af hálfu ákæmvaldsins. Háskólabíó: Ókeypis að- gangur stúdenta afnuminn STÚDENTUM við Háskóla ís- lands verður ekki lengur veittur ókeypis aðgangur að kvikmynda- sýningum Háskólabíós, sam- kvæmt ákvörðun stjórnar Háskólabíós er gekk í gildi 30. ágúst sl. „Ástæðan fyrir þessu er sú, að stjórnin tók þessa ákvörðun. Við ræðum ekki stjómarfundi í dag- blöðum," sagði Friðbert Pálsson, forstjóri Háskólabíós, er Morgun- blaðið innti hann eftir ástæðum þess að þessi áragömlu réttindi stúdenta hafa nú verið afnumin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.