Morgunblaðið - 03.09.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.09.1986, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 Skáksamband Islands: Sala Reykjavíkur- gnllmerkis til styrkt- ar ólympíuliðinu í TILEFNI af þátttöku íslands í ólympíuskákmótinu í Dubai 14. nóvember næstkomandi, hefur Bárður Jóhannsson grdlsmiður boðið Skáksambandi Islands að njóta ágóða af sölu gullmerkis, sem hann hefir unnið í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Skáksamband Islands hefir til- kynnt þátttöku sína í óiympíuskák- *' mótinu og verður lið íslands væntanlega hið sterkasta, sem tek- ið hefur þátt í ólympíuskákmótinu til þessa, en liðið skipa stórmeistar- amir Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Jón L. Amason, Mar- geir Pétursson og Guðmundur Siguijónsson ásamt alþjóðlega meistaranum Karli Þorsteins. Fjáröflun er nú að hefjast hjá Skáksambandinu vegna þátttök- unnar á mótinu. Gefíð verður út sérstakt Ólympíublað og leitað verður til einstaklinga og fyrir- tækja, sem stutt hafa skákhreyfíng- una í áranna rás. Fyrsta skrefíð í þessari söfnun er sala Reykjavík- . urgullmerkisins. Hér er um að ræða emélerað 14 karata gullmerki og verða einungis framleidd 500 stykki af því. Verð merkisins er 4.800 krónur og annast Skáksambandið dreifíngu þess. Merkið er til sýnis í versluninni Björk í Bankastræti. Bárður Jóhannsson hefur áður stutt við bakið á Skáksambandi Morgunbladiö/Júlíus Bárður Jóhannsson (t.v.) og Þráinn Guðmundsson með gullmerki Reykjavíkur, sem selt er til að fjármagna þátttöku íslands í ólympíu- skákmótinu. Einungis 500 eintök verða seld af gullmerkinu. íslands, en á árinu 1972 færði hann félaginu miklar tekjur með sláttu minnispeninga um einvígi þeirra Fischers og Spasskys. „Við hefðum farið á hausinn, ef Bárðar hefði ekki notið við,“ sagði Þráinn Guð- mundsson forseti Skáksambands- ins. Nú þegar hafa verið seld um 50 merki og hlaut Davíð Oddsson borg- arstjóri það fyrsta. „Það er von okkar, að sem flestir bregðist hér vel við og slái tvær flugur í einu höggi með því að kaupa þetta fal- lega merki, sem væntanlega verður safngi’ipur, _ og styrkja um leið Ólympíulið Islands í skák og skák- hreyfínguna,“ sagði Þrínn Guð- mundsson að endingu. „Svikamyllan“ í Bíóhöllinni BÍÓHÖLLIN hefurnú hafíð sýning- ar á spennumyndinni „Svikamyll- an“ eða „Raw Deai“, eins og hún nefnist á frummálinu. Myndin er frá Bandaríkjunum, glæný og leik- stjóri er John Irving, sem m.a. hefur áður leikstýit myndinni „Dogs of War“. í aðalhlutverki er kraftajöt- uninn Arnold Schwarzenegger og leikur hann fyrrum starfsmann FBI, alríkislögreglunnar banda- rísku, sem komist hefur upp á kant Blómasala Hjálp- rædishersins FYRSTI blómasöludagur Hjálpræðishersins er í dag, en hermenn Hjálpræðishers- ins hafa um árabil selt blómamerki í september til styrktar starfi sínu og munu gera það nú dagana 3. til 5. september. Agóðinn af sölu merkjanna rennur til styrktar vetrarstarfs Hjálpræðishersins, einkum meðal bama og unglinga. I frétt frá Hjálpræðishemum segir að á undanfomum ámm hafí sölufólki verið ágætlega tekið og merkin selst vel. Von- ast Hjálpræðisherinn til þess að svo verði einnig í ár. Arnold Schwarzenegger í hlut- verki sínu í „Svikamyllunni“. við kerfíð, en er fenginn til aðstoð- ar við að ráða niðurlögum sérlega harðskeyttra bófa í Ohieago, gegn loforði um að endurheimta sitt fyrra starf. Berst viðureignin víða og að sjálfsögðu kemur að tilþrifamiklu lokauppgjöri. Framleiðandi „Svikamyllunnar" er Martha Schumacher og leikarar í helstu hlutverkum, auk Schwarz- éneggers, eru Kathryn Harrold, Darren McGavin, Sam Wanamaker, Paul Shenar, Steven Hill og Ed Lauter. þróttafélögin Ösp og Björk keppa hér í boccia. .■%, *»*' Sólheimaleikarnir: íþróttafélagið Ösp vann flest verðlaun Reynir Pétur Ingvarsson og Guðjón Sigmundsson, framkvæmda- stjóri, tala hér við rás 2 í beinni útsendingu. Reynir Pétur var hinn hressasti og sagðist að sjálfsögðu ætla að ganga lengsta hringinn, 24 km. DAGANA 29. til 31. ágúst síðastliðinn voru lialdnir Sól- heimaleikarnir að Sólheimum í Grímsnesi. Þessir leikar voru stórviðburður i félagslífi fatl- aðra hér á landi og áttust þar við okkar fremstu menn í íþróttum fatlaðra í dag. Alls tóku 130 íþróttamenn, víðsveg- ar að af landinu, þátt i leikun- um. Við setningu leikanna afhenti Sigurður Magnússon, formaður Iþróttasambands Islands, Iþrótta- félaginu Gný fána ÍSÍ og Reyni Pétri Ingvarssyni, göngugarpi, styttu af göngumanni. Fjórir trompetleikarar úr Lúðrasveit verkalýðsins léku síðan lag samið Reyni Pétri til heiðurs á Akur- eyri, er hann kom þar við á íslandsgöngu sinni. Reynir Pétur setti loks Ieikana fonnlega. Á fyrsta keppnisdegi Sólheima- leikanna var keppt í boecia, borðtennis og sundi. Átta keppendur vom í borð- tennis og sex félög tóku þátt í boccia- og sundkeppnunum. Það var íþróttafélagið Ösp úr Reykjavík sem hlaut flesta vinn- inga á mótinu og hlaut að verð- launum veglegan bikar, Ægishjálminn, gefínn af Lions- klúbbnum Ægi, en hann gaf öll verðlaun 'a leikunum. Um kvöldié var síðan haldinn dansleikur og mikil flugeldasýning, sem Hjálp- arsveit skáta í Hveragerði sá um. Á sunnudeginum voru göngur 5 km, 10 km, 15 km og 24 km og tóku um 200 manns þátt í þeim. Allir sem tóku þátt í göngunum fengu viðurkenningar- skjal. Þátttökugjald í göngunum var 500 krónur og fara allar tekj- ur í byggingu íþróttaleikhússins, sem nú fer senn að verða lokið. Þegar er búið að taka hluta íþróttaleikhússins í notkun en enn er miklu verki ólokið og fjáröflun í fullum gangi. Leikunum lauk með Stuð- mannaballi um sunnudagskvöldið. „Miðað við allan þann undir- búning sem lagður var í þetta gekk þetta mjög vel,“ sagði Guð- jón Sigmundsson framkvæmda- stjóri Sólheimaleikanna í samtali við Morgunblaðið. „Það sem vakti fyrir okkur, sem stóðum að þessu, var að allir þeir sem tækju þátt í leikunum færu ánægðir í burtu að þeim loknum. Eg held að það hafí tekist þrátt fyrir mjög leiðin- legt veður. Rigningin reyndi endanlega á samheldni starfs- fólkins og skipulagið í kringum þetta. Við förum héðan með verð- mætt veganesti og verðum mun betur í stakk búin til að taka á svipuðum verkefnum seinna meir. Þetta voru mjög ánægjulegir leik- ar og við viljum þakka þeim aðilum sem hafa sýnt okkur þá velvild að aðstoða okkur eða styrkja við framkvæmd þeirra." íþróttaleikhúsið á Sólheimum í Grímsnesi. Tónleikar í Norræna húsinu Tónlistarmaðurinn Hörður Torfason mun halda tónleika í Norræna húsinu á fimmtu- daginn og hefjast þeir kl. 20:30. Hörður er búsettur erlendis og kemur til landsins gagngert til að halda tónleikana, en hann hélt afmælistónleika í Austur- bæjarbíói á sama degi í fyrra. Hörður er talinn meðal frum- kvöðla í ljóða- og vísnasöng hérlendis, en fyrsta hljómplatan með tónlist af þessu tagi kom út árið 1971. Forsala aðgöngumiða verður í bókaverslun Lárusar Blöndal, en miðar verða einnig seldir í Nor- ræna húsinu fyrir tónleikana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.