Morgunblaðið - 03.09.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 03.09.1986, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 Hússtj órnarkennsla fyrr og nú og gildi hennar — eftir Bryndísi Stein- þórsdóttur Þann 4. júlí sl. birtist samnefnd grein, áhugaverð og tímabær, eftir Gerði Pálsdóttur, hússtjómarkenn- ara við Verkmenntaskólann á Akureyri. Aðalefni greinarinnar var þróun náms í hússtjórnar- skólum og óleyst vandamál, sem brýn þörf er á að leysa farsæl- lega heima í héruðum og hjá forráðamönnum menntamála. Þá var einnig fjallað um heimil- isfræði í grunnskólum, nám i hússtjórnargreinum í fjölbrauta- og menntaskólum og mat á námi í hússtjórnarskólum til styttingar á námi í áfangakerfi framhalds- skóla. Einnig nauðsyn þess að nám í hússtjórnarskólum gefi réttindi til hærri launa úti í at- vinnulífinu. Að höfðu samráði við höfund greinarinnar mun ég í stuttu máli gera nánari grein fyrir áðurnefnd- um þáttum og þeirri þróun sem átt hefur sér stað á síðastliðnum árum. Heimilisfræði í grunn- skólum (hér áður fyrr nefnd matreiðsla) Með grunnskólalögunum 1974 varð heimilisfræði skyldunámsgrein jafnt fyrir pilta sem stúlkur, en stundafjöldi var sá sami og áður þó að nemendum fjölgaði um helm- ing. Kennt var eingöngu í 7. og 8. bekk en boðið upp á valnám í 9. bekk og voru margir ósáttir við þá ráðstöfun. Á síðari árum hefur námið orðið fjölbreyttara. Undir- stöðuþættir í næringar- og holl- ustuháttum, matreiðslu, fram- reiðslu og hreinlætisfra?ði hafa verið og eru stærstu þættir náms- greinarinnar, en nú er lögð aukin áhersla á neytendafræðslu, híbýli og búnað, vinnuskipulag, slysa- hættur, orkusparnað og umhverfís- vernd Stefnumörkun er skilgreind í markmiðum Aðalnámskrár grunn- skóla, heimilisfræði, fráárinu 1977, sem nú er í endurskoðun eins og aðrar námskrár grunnskólans. Árið 1978 var settur námstjóri í heimilis- fræði við grunnskóla og jafnframt skipaði Menntamálaráðuneytið starfshóp honum til aðstoðar. Starfshópinn skipuðu fulltrúar fag- félaganna og kennarar af mismun- andi skólastigum. Meðal fyrstu verkefna hópsins var að gera tillög- ur um skipan náms í heimilisfræði í neðri bekkjum grunnskólans. í auglýsingu um skiptingu kennslu- stunda milli námsgreina frá 1979 voru námsgreininni ætlaðar 4 stundir á skólaári í 1.—6. bekk. Hver nemandi átti þá að eiga þess kost að koma tvisvar sinnum tvo tíma í heimilisfræði á skólaári. Yngri barna kennsla í heimilisfræði hlaut góðan hljómgrunn og nú hef- ur kennslutíminn verið aukinn og er sem hér segir, skv. nýrri auglýs- ingu um skiptingu kennslustunda frá því í apríl 1984: 1. og 2. ár: 0,5—1 vikustund hvert námsár. 3., 4. og 5. ár: 1 vikustund hvert náms- ár. 6. ár: 1,5—2 vikustundir. 7. ár: 2 vikustundir. 8. ár: 1,5 vikustund- ir. 9. ár er valnám. Vegna eðlis námsgreinarinnar og til að nemendur geti fengið raunhæf verkefni er gert ráð fyrir að greinin sé kennd hluta úr skólaári eða hálft skólaár í senn, þannig að samfelld- ur stundaíjöldi nemenda verði 2—4 vikustundir, eftir því um hvaða ald- urshópa er að ræða. Verk- og listgreinar eru ennþá í vali fyrir nemendur 9. bekkjar þrátt fyrir að ákvörðun hafi ve- rið tekin um skólaskyldu þessa aldurshóps. Vonandi verður þess ekki langt að bíða að verknám og bóknám verði metið að jöfnu svo hægt verði að ganga út frá ákveð- inni grunnþekkingu allra nemenda í verk- og listgreinum jafnt og bók- námsgreinum, bæði fyrir nemend- uma sjálfa og sem viðmiðun fyrir framhaldsskólann. Það er í anda gildandi grunnskólalaga að meta Bryndís Steinþórsdóttir * „I umræðum um hús- stjórnarskólana hefur því ekki verið veitt verðskulduð athygli að eitt meginverkefnið undanfarin ár hefur verið námskeiðahald.“ VAREFAKTA tr vottofb dönsku ncytefldastofminarinnar um eiginleika vara, sem framleiðendur og innflytjendur geta sent hetni til prófunar, ef þeir vilja, med öðrum oröum, ef þeir þoral EKTA DÖNSK GÆÐIMEÐ ALLT Á HREINU - fyrir smekk og þarfir Noröuriandabúa - gædi á gódu veröl! þorir og þolir KALOAR STADREYNDIR um það sem mill skiptir, svo sem kxllsvl}, frystigetu, einangrun, styrk- leika, gangtíma og rafmagnsnotkun. Hátúni 6a, sími (91) 24420 verknám og bóknám að jöfnu. Kannanir á stöðu námsgrein- arinnar sýna að alltof margir nemendur viðsvegar um landið fá enga eða skerta kennsiu í heimilis- fræði þrátt fyrir jákvæða afstöðu skólastjóra. Til þess að unnt sé að koma á kennslu í greininni virðast stærstu vandamálin vera skortur á skiptistundum, húsnæði og kennur- um. Á þessum árum hefur nemendum gefist kostur á fjölþættara náms- efni og Kennaraháskóli íslands hefur gefið heimilisfræðikennurum kost á endurmenntunamámskeið- um þar sem m.a. er fjallað um námsefni, kennslutækni, tengsl við aðrar námsgreinar, svo og nýjungar sem efst eru á baugi hveiju sinni. Nám í heimilisfræði kemur ekki í stað náms í framhaldsskól- um fremur en í öðrum greinum grunnskólans. Hér er aðeins um lágmarks grunnþekkingu að ræða og því þörf á fjölbreyttu framhaldsnámi. Námsframboð í hús- stjórnargreinum í fjölbrauta- og menntaskólum Á undanfömum árum hefur verið gefinn kostur á valnámi í mat- reiðslu og mynd- og handmenntum í nokkmm fjölbrauta- og mennta- skólum. í Qölbrautaskólanum í Breiðholti hefur mynd- og hand- mennt einnig verið í kjama (skyldu- námi). Skipulagðar hafa verið sérhæfðar námsbrautir, má þar nefna: Grunnnámsbraut mat- vælagreina (eins árs nám) sem veitir m.a. undirbúning fyrir samn- ing hjá meistara í matreiðslu og framreiðslu. Brautin er skipulögð í samvinnu við Hótel- og veitinga- skóla íslands, viðurkennd af Iðn- fræðsluráði og öðlast nemendur, sem lokið hafa grunnnámi, einnig sjókokkapróf. Matartæknanám er skipulagt í samvinnu við stjómendur mötu- neyta heilbrigðisstofnana. Náms- tími er tvö ár í skóla og 34 vikur á vinnustað (í mötuneytum heil- brigðisstofnana). Heilbrigðisráðu- neytið hefur gefið út reglugerð um námið og veitir starfsréttindi. Að námi loknu eiga matartæknar að annast matreiðslu sérfæðis, svo og önnur matreiðslustörf. Matarfræðinganám er tveggja ára nám og einnig skipulagt í sam- vinnu við stjórnendur mötuneyta heilbrigðisstofnana, með hliðsjón af sambærilegu námi á Norðurlönd- um (menntun „ökonoma"). Bóklegt nám fer fram í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti en verklega námið á ríkisspítölum eða öðrum viður- kenndum heilbrigðisstofnunum. Inntökuskilyrði eru t.d.: a) Matar- tæknapróf. b) Hússtjórnarkennara- próf, sveinspróf í matreiðslu, B.Ed.-próf frá Kennaraháskóla ís- lands með heimilisfræði sem val- grein. Stúdentspróf. Nám umsækjenda undir b-lið er metið samkvæmt áfangakerfi. Gildir hið sama um umsækjendur með aðra menntun. Að námi loknu á nemandi að hafa öðlast hæfni til að stjórna mötuneytum heilbrigðisstofnana. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur brautskráð 50 matartækna. Fýrstu nemendur öldungadeildar í matartæknanámi hófu nám sl. haust og verða væntanlega fyrstu matarfræðingamir brautskráðir frá FB vorið 1987. Þess skal getið að mikil þörf er á áðumefndum starfs- stéttum á vinnumarkaðnum. Fleiri sérhæfðar námsbrautir sem falla inn í fjölbrautakerfið eru til umræðu. Nánari upplýsingar um námsframboð í hússtjórnargreinum í fjölbrauta- og menntaskólum má finna í Námskrá handa framhalds- skólum frá 1986 og námsvísum skólanna. Mat á námi sem fram fer í hússtjórnarskólum í auglýsingum frá hússtjómar- skólum er þess oft getið að námið sé metið sem hluti af matartækna- námi og gilda um það nám sömu reglur og annað nám sem metið er inn í áfangakerfí fjölbrautaskóla. Það skal tekið fram að í Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti er bóknám og verknám metið að jöfnu. Mat á námi í hússtjórnarskól- um nýtist best þegar sótt er um hliðstætt nám í áfangakerfi. Ós- amræmi í námi og námstíma gerir matið oft erfitt viðfangs þegar stytta á sérhæft nám og geri ég ráð fyrir að það sama gildi þegar meta á kunnáttu nemenda sem sækja um valgreinina heimilisfræði í kennaranámi. 1 kjarasamningum Starfs- mannafélagsins Sóknar er nám frá hússtjórnarskólum metið til launahækkunar þar sem mennt- unin nýtist í starfi. Fólk með próf frá hússtjórnarskólum er eftirsótt til margs konar starfa á vinnumark- aðnum. í umræðum um hússtjómar- skólana hefur því ekki verið veitt verðskulduð athygli að eitt megin- verkefnið undanfarin ár hefur verið námskeiðahald. Boðið hefur verið upp á mismunandi löng námskeið (dag- og kvöldnámskeið) í ýmsum greinum sem tengjast heimilishaldi, s.s. matreiðsiu, fatasaumi, vefnaði o.fl. Námskeiðin hafa verið vinsæl og vel sótt af körlum og konum, ungum sem öldnum. í mörgum hússtjómarskólum hefur einnig ver- ið kennd heimilisfræði fyrir nemendur grunnskólans, svo og valnám og réttindanám fyrir fram- haldsskólanemendur. í hverju fræðsluumdæmi er nauðsynlegt að gefa kost á fjöl- þættum námskeiðum, bæði i þágu einstaklingsins og atvinnulífsins, má þar nefna t.d. lieimilishjálp, ferðamannaþjónustu og heimili- siðnað. Hvaða skólastofnanir eiga að annast þann þátt ef hússtjórnar- skólarnir með sérmenntuðu kennaraliði og vel búnu húsnæði til verknámskennslu verða lagðir niður og húsnæðið tekið til ann- arra nota? Höfundur greinarínnar starfaði i Menntamálaráðuneytinu sem námstjóri i heimilisfræði á árun- um 1978—1985 en er nú sviðsstjórí á matvælasviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.