Morgunblaðið - 03.09.1986, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKÚDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
Atlantshaf sbandalagið:
65 þús. menn æfa
varnir Evrópu
Casteau, Belgíu, AP.
ÞANN 12. september munu hermenn frá fimm aðildarríkjum Atlants-
hafsbandalagfsins hefja umfangsmiklar heræfingar i Danmörku og
Vestur-Þýskalandi. Talið er að um 65.000 menn taki þátt í æfingun-
um en þeim lýkur 7. október.
Yfirherstjóm Atlantshafsbanda-
lagsins í Evrópu gaf út tilkynningu
um æfingamar í gær. Þar sagði
að tilgangurinn með þeim væri sá
að tryggja að hersveitir frá Dan-
mörku, Vestur-Þýskalandi, Hol-
landi, Bandaríkjunum og Bretlandi
væru ávallt í viðbragðsstöðu.
Fyrirliggjandi áætlanir um flutn-
inga á mönnum á hergögnum á
óvissu- og átakatímum til Norður-
og Mið-Evrópu verða m.a. æfðar.
Æfingar þessar eru liður í árlegum
haustæfíngum Atlantshafsbanda-
lagsins, sem ná allt frá Norður-
Noregi suður til Tyrklands.
Æfíngarnar, sem hefjast nú í
september, kallast „Varðstaða ’86“
(Bold Guard ’86). Sem fyrr sagði
munu 65.000 menn taka þátt í þeim
en auk þess verður notast við 150
þyrlur, 2.400 vélknúin ökutæki, 150
flugvélar og 20 skip.
Afganistan:
Skæruliðar í
sókn í Herat
Tilbúnar í stríðið
Styrjöldin milli írans og íraks hefur nú staðið í sex ár og er talið, að eigi færri en 350.000
manns hafi fallið þar. íranir halda því fram, að „lokasóknin" sé hafin. Þar í landi er hervæðing-
ing alger og nær hún til allra hópa þjóðfélagsins. Mynd þessi sýnir sveit kvenna vopnaðar vélbyssum,
albúnar til þátttöku í stríðinu.
Persaflóastríðið:
Islamabad, AP.
SKÆRULIÐAR múhameðstrúarmanna í Afganistan hafa náð hluta
borgarinnar Herat á sitt vald, í þriðja sinn í sumar. Háðu þeir harða
bardaga við stjórnarhermenn og Sovétmenn er beijast með sljómar-
liðum.
Vestrænir stjómarerindrekar er
ekki vilja láta nafna sinna getið,
segja að skæruliðar hafi eldri hluta
borgarinnar á valdi sínu, en stjóm-
arhermenn og bandamenn þeirra,
Sovétmenn, ráði nýja hlutanum og
flugvellinum. Herat, sem er í um
130 km. fjarlægð frá landamærum
Afganistan og Iran, var áður þriðja
stærsta borg landsins, en er nú illa
farin vegna hinna hörðu bardaga
er þar hafa geisað. Margir borgar-
búanna hafa flúið til höfuðborgar-
innar Kabúl, eða yfír landamærin
til íran. Afgönsk stjómvöld halda
því fram, að íranskir hermenn hafí
reynt að aðstoða fólk á flótta til
Iran, en verið reknir til baka yfír
landamærin.
Bardagar halda áfram í nágrenni
við Kabúl og í borginni sjálfri.
Heimildarmenn segja 100 hafa lát-
ist er vopnageymsla sprakk þar í
loft upp í síðustu viku, en ríkis-
stjómin segir að ekkert manntjón
hafí orðið.
Hörðustu bardagar
frá þvi í júnímánuði
íranir segjast hafa fellt 3.000 menn
Nicosia, AP.
ÍRANIR segjast hafa náð mikil-
vægri radarstöð íraka á sitt vald
og hafa gereyðilagt þijár her-
Ítalía:
Minnisvarði um aldamóta-
stj ór nley singj a bannaður
OPINBER minnismerki má
ekki reisa til minningar um
hryðjuverk, hversu fjarlægt,
sem það kann að vera. Sú er
alténd skoðun ítalska dómarans
Giovanni Panebianco, sem
bannaði 25. ágúst að sett yrði
upp stytta úr marmara í minn-
ingu stjómleysingjans Guetano
Bresci skammt fyrir utan bæ-
inn Carrara í héraðinu Tosc-
ana. Bresci _ þessi skaut
Umberto I. Ítalíukonung til
bana árið 1900.
Dómarinn gerði tuttugu bæjar-
stjómarmönnum í Carrara og
tveimur embættismönnum stjóm-
arinnar viðvart og sagði að
dómsrannsókn yrði látin fara fram
vegna þess að þeir greiddu því
atkvæði að styttan yrði reist á
landi í eigu hins opinbera. Fimm
yfírlýstir stjómleysingjar sóttu
um að reisa styttuna og fengu
þeir svipaða tilkynningu frá
Panebianco. Þessir 27 menn eiga
á hættu að verða lögsóttir fyrir
að réttlæta glæp Brescis.
Borgin Carrara er fræg fyrir
marmaranámur sínar, en hún var
einnig vagga anarkistahreyfing-
arinnar á Italíu. Og þar eru menn
enn skírðir nöfnum á borð við
Ideale og Libertario. Samband
ítalskra anarkista hefur enn höf-
uðstöðvar sínar í borginni, þótt
þar séu nú aðeins tveir anarkista-
kjamar eða -sellur (skráðar sem
menningarklúbbar) og félagar í
þeim flestir hátt á sjötugsaldri.
Hugsjón stjómleysingjanna í
Carrara er nú lítið annað en hug-
ljúfar minningar nokkurra aldr-
aðra verkamanna úr marmara-
námunum.
Litli anarkistakirkjugarðurinn
fyrir utan Carrara er orðinn svo
snar þáttur í umhverfi bæjarins
að bæjarstjómarmenn töldu að-
eins formsatriði að leyfa stjóm-
leysingjunum að reisa vængjaðan
minnisvarða um konungsmorðið,
sem þeir kalla „framlag Brescis
til frelsis". Bæjarstjómarmenn-
imir ályktuðu sem svo að það
væri vandkvæðum bundið að
fremja konungsmorð á Ítalíu á
vorum dögum þar sem Ítalía væri
nú lýðveldi. Enginn bæjarstjóm-
armannanna bjóst við því fjaðra-
foki, sem sigldi í kjölfarið.
Kvenmaður í bæjarstjóminni
sagði dómara í Carrara að hún
hefði greitt atkvæði með því að
styttan yrði reist í þeirri von að
bærinn yrði fegurri. Panebianco
og Oscar Luigi Scalfaro innan-
ríkisráðherra láta sér fátt um
fagurfræðilegar vangaveltur
fínnast. Scalfaro kveðst ætla að
áfrýja til ríkisráðsins, sem er
valdameira en bæjar- og sveitar-
stjómir, til þess að koma í veg
fyrir að minnisvarðinn verði reist-
ur í kirkjugarðinum.
Heimild: The Economist.
stöðvar í norðurhluta landsins.
Hin opinbera fréttastofa írana
segir að 700 hermenn frá írak
hafi verið felldir. Útvarpið í
Bagdad sagði í stuttri frétt að
íranir hefðu náð radarstöðinni í
AI-Amiq en kvað hermenn íraka
„mæta óvininum af hörku".
Umrædd radarstöð er vel búin
tækjum og sögðust íranir nú hafa
náð yfirráðum í lofti og á legi í
norðurhluta Persaflóa.
IRNA, hin opinbera fréttastofa
írana, sagði flugvélar þeirra hafa
sökkt freigátu úr flota íraks. Þá
sagði einnig að stórskotalið í suður-
hluta íran hefði gert árás á hafnar-
borgina Umm Qasr.
írakar segjast hafa fellt og sært
þúsundir írana í bardögum á norð-
ur-vígstöðvunum. I tilkynningu frá
herstjóminni sagði að flugsveitir
íraka hefðu grandað fímm írönsk-
um þyrlum og gert harðar sprengju-
árásir á skotmörk í íran.
IRNA segir að 3.000 hermenn íraka
hafí verið felldir síðustu tvo sólar-
hringa. Arás þessa nefna Iranir
„Karbala-2“. Shítar telja borgina
Karbala í Irak heilaga og segjast
íranir ekki munu hætta sókninni
fyrr en þeir hafa náð borginni á
sitt vald. Karbala er um 230 kíló-
metra vestur af landamærum
ríkjanna tveggja. A 7. öld háðu ólík-
ir trúflokkar múhameðstrúarmanna
blóðuga bardaga um borgina.
Bardagamir síðustu vikuna era
hinir hörðustu frá því að Iranir
hófu sókn sem þeir nefndu „Kar-
bala-l“ í júnímánuði.
Átta menn úr
KGB hand-
tóku Daniloff
Moskvu, AP.
BANDARÍSKI blaðamaðurinn Nicholas Daniloff skýrði konu sinni
frá því í gær, að 8 menn úr sovézku leyniþjónstunni hefðu ráðist á
sig og handtekið, eftir að sovézkur kunningi hans hafði látið hann
hafa tösku, sem átti að geyma úrklippur úr blöðum. Þar reyndist
þó vera um leyniskjöl að ræða.
Mortimer B. Zuckerman, stjórn-
arformaður útgáfufyrirtækisins,
sem gefur út blaðið U.S. News and
World Report, fékk í gær að ræða
við Daniloff í Lefortovo-fangelsinu,
þar sem sá síðamefndi er hafður í
haldi. Sagði Zuckerman við frétta-
menn á eftir, að hann hefði fullan
huga á að fá að taka Daniloff, sem
er blaðamaður við blað hans, með
sér er hann héldi á brott frá Sov-
étríkjunum á fímmtudag.
„Þetta mál hefur ekkert með
njósnir að gera,“ sagði Zuckerman.
„Daniloff á að láta lausan þegar í
stað.“
Larry Speakes, talsmaður Hvíta
hússins í Washington, sagði í gær,
að Reagan forseti hefði bragðizt
reiður við handtöku Daniloffs.
Bandaríska stjómin myndi þó halda
áfram að vinna að fundi æðstu
manna Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna. Því yrði undirbúningsviðræð-
um undir slíkan fund haldið áfram
þrátt fyrir þetta atvik nú, sem yrði
vissulega ekki til þess að bæta sam-
búð risaveldanna.