Morgunblaðið - 03.09.1986, Side 27

Morgunblaðið - 03.09.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 27 Eiturlyfjasali handtekinn í London: Fékk skilaboð frá Margréti prinsessu London, AP. LÖGREGLUMENN, sem gerðu húsleit hjá eiturlyfjasala, athuguðu símsvara mannsins og reyndist hann initihalda skilaboð um að hringja i Margréti prinsessu. Dagblöð i London skýrðu frá þessu i gær en lögðu áherslu á að ekkert benti til þess að Margrét hefði átt við- skipti við eiturlyfjasalann. Talsmenn konungsQölskyldunn- ar vildu ekkert segja um málið og hið sama gilti um leynilögregluna bresku Scotland Yard. Eiturlyfjasalinn heitir Tony Ey- ers og starfar við hljómplötuútgáfu. A mánudag var hann dæmdur til að greiða 2.500 punda sekt auk þess sem hann hlaut skilorðsbund- inn fangelsisdóm. Við húsleit hjá honum fannst mikið magn af kók- aíni og þótti sannað að hann hefði dreift eitrinu. Maðurinn sagðist hafa lofað að annast upptöku á nokknim lögum eftir frænda Margrétar prinsessu og því hefði hann þurft að ræða við hana. „Einn starfsmanna kon- ungsfjölskyldunnar hringdi í mig og bað mig um að hafa samband við Margréti prinsessu vegna upp- tökunnar," sagði Tony Eyers þegar dómur hafði verið kveðinn upp yfir honum. „Hér er verið að þyrla upp moldviðri algjörlega að óþörfu," bætti hann við. Harmleikurinn í Kamerún: Koltvísýringur og brenni- steinsvetni orsök slyssins samkvæmt niðurstöðum bandarískra sérfræðinga Yaounde, Kamerún, AP. HÓPUR bandarískra vísindamanna afhenti í gær stjórnvöldum í Kamerún skýrslu sína um atburði þá, sem áttu sér stað í síðustu viku, er yfir 1.500 manns létu lífið af völdum eitraðra gastegunda, sem komu úr vatninu Nios. í skýrslunni er því haldið fram, að öll fómarlömbin hafi dáið úr öndunar- og hjartatruflunum af völdum koltvísýrings og brenni- steinsvetnis, sem hvort tveggja eru banvænar lofttegundir. Jafnframt var talið útilokað að jarðskjálftar eða eldfjallavirkni hefðu verið með- al orsakanna að slysinu. „Við erum um það bil 95% vissir um, að skýrslan felur í sér rétt mat á því, sem gerðist," var í gær haft eftir dr. Michael Clark, sjúkdóma- fræðingi hjá bandaríska flotanum. Clark og þrír starfsbræður hans voru fengnir til þess af bandaríska utanríkisráðuneytinu að kynna sér orsakir og samsetningu gasskýsins, sem steig upp af Nios-vatninu. Eit- urskýið lagðist yfir þijú nálæg þorp með þeim afleiðingum, að "flestir íbúanna dóu í svefni. Bandarísku sérfræðingamir dvöldust tvo daga í norðvesturhluta Kamerúns, þar sem þeir rannsök- uðu Nios-vatnið, kmfu lík og tóku skýrslur af þeim, sem lifðu eitmnina af í þorpunum Wum og Nkambe. Skýrsla þeirra er sú fyrsta sinnar tegundar, sem lögð verður fyrir stjómvöld í Kamerún. Hópur ít- alskra sérfræðinga, sem fór fi-á Kamerún á sunnudag, mun einnig leggja fram skýrslu sína í þessari viku. Þá er þess að vænta að ísra- elskir, franskir og japanskir vísindamenn leggj bráðlega fram niðurstöður sínar, en þeir dveljast enn við rannsóknir í Kamerún. Bandarísk umhverfisverndarsamtök; Krafist stöðv- unar tilraunar með eiturvopn Washington, AP. BANDARISK umhverfisverndarsamtök undirbúa nú málsókn gegn bandaríska varnarmálaráðuneytinu, þar sem þess er krafist að til- raunum með efnavopn, sem unnin eru úr lífrænum efnum verði hætt þangað til að rannsókn á áhrifum tilraunanna á umhverfið hefur farið fram. Samtökin höfðuðu mál gegn hernum á sama grund- velli og gekk dómur í málinu þeim í vil. Samtökin hafa einnig sett á stofn n'kisstjórnum að rannsaka með sjóð, en markmið sjóðsins er að örva vísindamenn til þess að láta í té upplýsingar um ólöglegar rann- sóknir. Samtökin hafa á undan- förnum árum einbeitt sér að athugun á þróun líffræði- og erfða- verkfræði og telja þau hlutverk sitt vera að veita upplýsingum til al- mennings um afleiðingar þessara þróunar á umhverfi, efnahag og stjórnmál. í samningi frá árinu 1972, sem Bandaríkjamenn og Sovétríkin eru aðili að auk rúmlega 100 annarra ríkisstjórna, eru líffræðitilraunir til árásarhernaðar með öllu bannaðar. Samningurinn leyfir hins vegar hvaða hætti megi veijast slíkum vopnum. Bandaríkjamenn hafa ásakað Sovétríkin fyrir að bijóta þennan samning á undanförnum árum og nú halda umhverfisvernd- arsamtökin því fram að tilraunir Bandaríkjamanna séu komnar langt út fyrir þann ramma sem samning- urinn setur. Fara þau fram á að tilraunir verði stöðvaðar þar til rannsókn hefur farið fram á áhrif- um þeirra á umhverfið, en lög í Bandaríkjunum kveða á um að slík rannsókn skuli fara fram áður en hægt sé að framkvæma slíkar til- raunir. Japan: V arnarmálaráðherra heimsækir Bandaríkin herra, sigraði með yfirburðum í þingkosningunum 6. júlí sl. Talsrnaður japönsku stjórnarinn- ar sagði í gær að nokkrir banda- rískir þingmenn krefðust þess, að Japan yki framlög sín til vamar- mála í kjölfar sigurs Fijálslynda lýðræðisflokksins. Japanir hefðu hins vegar sjálfir sínar áætlanir varðandi uppbyggingu á vörnum lands síns og myndu ekki „láta ein- hliða undan kröfum Banda- ríkjanna". YUKO Kurihara, varnarmála- ráðherra Japans, hyggst halda til Bandaríkjanna í dag í því skyni að „draga úr ýktum von- um“ sumra þingmanna þar um aukna hernaðaruppbyggingu Japana. Kurihara verður fyrsti ráðheira japönsku stjornarinnar til þess að heimsækja Bandai'íkin eftir að Fijálslyndi Iýðræðisflokkurinn, flokkur Nakasones forsætisráð- Frumsýnir meistaraverk Spielbergs PURPURALITURINN The Ccdor Furple Hún er um lífiÖ, ástina og okkur sjálf Einhver mest umtalaða og best sótta kvikmynd seinni ára. Myndin hlaut 11 til- nefningar til Oscarsverðlauna, en var sett út í kuldann af Akademíunni. Almenn- ingur var á annari skoðun og í Bandaríkjunum sáu um 20% fleiri þessa mynd en Jörð í Afríku (Out of Africa). ,— ----- ~~7Za { Banda- ^rnar vc. ^ heildara09»-^--amer Bro9 S83«2.3« Bönnuð börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5 og 9. Hækkað verð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.