Morgunblaðið - 03.09.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTÉMBER 1986
Hjónaminning:
Rósa Ingimarsdóttir
og Guðni Jónsson
Rósa Ingimarsdóttir fæddist 18.
júlí árið 1900. Hún lést 21. ágúst
sl. Foreldrar hennar voru hjónin
Ingimar Friðfinnsson og Rannveig
Jónsdóttir. Þau bjuggu allan sinn
aldur í Eyjafirði, ýmist í hús-
mennsku eða eigin búi og þá á
Hrísum í Saurbæjarhreppi.
Rósa fæddist á Möðruvöllum í
Saurbæjarhreppi og þótti henni
ákaflega vænt um þann stað og
fjörðinn sinn allan. Systkini Rósu
voru 8, 3 dóu ung, hin fóru snemma
að hjálpa til, voru lánuð á bæi og
sagði Rósa mér að átta ára gömul
hefði hún verið sumarlangt á bæ
þar í sveit, átti að passa barn, elda
mat og gera ýmiss konar innanhúss
störf. Var þetta mikið og erfitt starf
fyrir átta ára barn og þætti varla
við hæfi nú til dags. Um tólf ára
aldur fór hún til frænku sinnar,
Kristínar Sigfúsdóttur skáldkonu,
og manns hennar, Pálma Jóhannes-
sonar, sem bjuggu í Kálfagerði,
Saurbæjarhreppi. Hjá þeim undi
hún hag sínum vel og dvaldi þar
fram til tvítugsaldurs. Um þetta
fólk sitt talaði hún oft og þótti
ákaflega vænt um það. Rósa vann
svo við ýmiss konar sveitastörf
næstu árin. Var um tíma á vegum
kvenfélags Saurbæjarhrepps, sem
sá um að útvega stúlkur til að að-
stoða á heimilum þar sem veikindi
voru. Þótti hún natin við sjúka. Hún
var ráðskona á vertíðum og lengst
þtjá vetur í Hrísey, þar sem hún
kynntist manni sínum, Guðna Árna-
syni frá Borgarfirði eystra.
Guðni Ámason fæddist 20. októ-
ber árið 1900. Hann lést 25. sept
árið 1972.
Guðni fæddist í Bakkakoti, Borg-
arfirði eystra. Foreldrar hans voru
hjónin Árni Steinsson, bóndi og
hreppstjóri, og kona hans, Ingibjörg
Jónsdóttir. Þau hjón hófu búskap í
Brúnavík í Borgarfirði en fluttust
til Bakkagerðis árið sem Guðni
fæddist.
Árni faðir hans var hreppstjóri í
Borgarfjarðarhreppi í mörg ár. Þau
hjón eignuðust 14 börn og var
Guðni meðal þeirra yngstu. Sum
systkinin létust í bernsku en fleiri
komust þó til fullorðinsára og urðu
mesta dugnaðar- og myndarfolk.
Aðeins ein systir, Gyða, lifir ennþá
af þessum stóra hópi. Guðni ólst
því upp á mannmörgu og gest-
kvæmu heimili þar sem oft var glatt
á hjalla og mikið sungið og var
Guðni söngmaður góður eins og
mörg þeirra systkina. Var heimili
foreldra hans rómað fyrir gestrisni
og var fjölskyldan vinsæl.
Þegar Guðni var 15 ára var hann
lánaður í vinnu til frændfólks síns
í Vopnafirði, en þá tíðkaðist það
garnan að lána fólk ef svo bar und-
ir. Guðni var þarna í þrjú ár og var
þessi tími honum oft erfiður. Að
þessum tíma liðnum fer Guðni aftur
heim til Borgarfjarðar og næstu ár
stundar hann sjóinn á sumrin ásamt
tveim bræðrum sínum en á vetuma
fer hann á vertíðir suður á land,
til Sandgerðis og Vestmannaeyja,
þar til hann breytir um og fer til
Hríseyjar þar sem hann er þrjá
vetur. í Hrísey kynnast þau Rósa
eins og áður segir. Skömmu eftir
að þau hjón fluttust til Reykjavíkur
hóf Guðni störf hjá Olíuverslun ís-
lands og starfaði þar meðan heilsa
leyfði. Var Guðni mjög vinsæll og
DÚNÚLPURð
dúndur góðu verði
Efni: Sterk nylonefni með glansáferð.
Fylling: 100% dúnn.
Hetta: Dúnfyllt hetta sem hægt er að fela inni íkraga.
Litlr: Dökkblátt — rautt — grátt.
Verð: 4900.- stærðir 128 og 140. 5300.- stærðir 152—164.
5780.- stærðir S—XXL.
SPORTVÖRUVERSLUWIN _
El^íiLjÍM
Laugavegi 49, sími 12024. Póstsendum
__ ' samdægurs.
45
vel tiðinn af samstarfsmönnum
sínum sem og öðrum sem kynntust
honum. Hann las mikið, fylgdist vel
með lands- og heimsmálum. Var
verkamaður góður og smviskusam-
ur með afbrigðum. Hann var manna
glaðastur á góðri stund, hafði ákaf-
lega gaman af að spila og þau hjón
bæði, svo oft var gripið í spil á
heimili þeirra.
Þau Rósa og Guðni gengu í
hjónaband í október 1931 á Akur-
eyri og þar hófu þau búskap. Þeim
varð ekki barna auðið en fengu
fyrir kjördóttur ídu Borgijiirð, syst-
urdóttur Guðna. Kún kom til þeirra
8 mánaða gömul í febrúar 1934.
Árið 1935 fluttust þau til Siglu-
Qarðar og bjuggu þar til ársins
1941 að þau flytja austur í Borgar-
fjörð. Þar dvelja þau aðeins í V/z
ár og 1943 setjast þau að í
Reykjavík þar sem þau bjuggu eftir
það, síðast á Þórsgötu 19.
Rósa vann lengst af jafnt utan
heimilis sem innan og þá að mestu
við ræstingar, fyrst í Laugames-
skóla og síðan hjá Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins í Borgartúni.
En segja má að Rósa væri
sívinnandi. Hún var mikil handa-
vinnukona, heklaði mikið og fagur-
lega, saumaði gjarnan fyrir fólk og
var ákaflega þrifin og reglusöm.
ída dóttir þeirra giftist árið 1952
Braga Eggertssyni og bjuggu ungu
hjónin í sambýli við Rósu og Guðna
öll sín hjúskaparár og féll enginn
skuggi þar á. Þau eignuðust tvö
böm, Rósu Guðnýju og Jón Eggert.
Urðu þau augasteinar afa og ömmu
og þeim ætíð til gleði og ánægju.
Árið 1966 urðu þau Rósa og Guðni
fyrir mestu sorg lífs síns, er þau
misstu einkadótturina og áttu að
vonum erfitt með að komast yfir
það. En dótturbömin þeirra voru
eftir og þeirra hamingja hafði allt
að segja fyrir þau.
Ég kynntist þessum góðu og
elskulegu hjónum er ég giftist
tengdasyni þeirra og að öllum öðr-
um ólöstuðum í stórri fjölskyldu
voru engir sem tóku mér betur. Var
vinátta okkar gagnkvæm og stóð
svo meðan þau lifðu Rósa og Guðni.
Ég á þeim því ákaflega mikið að
þakka og bið þeim blessunar guðs
fyrir vináttu þeirra við mig.
Olík voru þau hjón að eðlisfari.
Rósa var skapmiki! kona og sterkur
persónuleiki, eða cins og systir
hennar, Sigrún, sagði: „Það var
alltaf hægt að leita til Rósu, hún
gaf manni svo mikinn styrk og
veitti alltaf meira en hún tók.“
Guðni var glettinn maður og
skemmtilegur, dálítið stríðinn og
bitnaði það e.t.v. helst á konu hans
og á góðum stundum sagði Guðni
gjarnan við vini sína: „Fáðu þér
einn til lífsins bróðir." Annars vom
þau hjón samhent um flesta hluti
og ekki síst ef þau gátu greitt götu
einhvers eða veitt þeim sem minna
máttu sín. Þau voru vina og frænd-
mörg, gestrisin eins og þau áttu
kyn til og urðu margir til að sækja
þau heim og njóta þess að dvelja á
heimili þeirra um lengri eða
skemmri tíma. Þau hjón höfðu gam-
an af að ferðast, og auk þess að
ferðast talsvert um sitt eigið land
fóru þau tvisvar í utanlandsferðir
sem þau hiifðu mikla ánægju af.
Eftir að Guðni lést bjó Rósa
áfram á Þórsgötu 19 meðan hcilsa
leyfði. Árið 1981 flutti hún til dótt-
urdóttur sinnar og hennar manns,
sem hún mat mikils. Rósa dvaldi
hjá þeim um tíma, en heilsunni
hrakaði og síðustu árin dvaldi hún
á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund, þar sem hún lést þann 21.
ágúst sl. Hún var til moldar borin
á höfuðdaginn, 29. ágúst. Dóttur-
Ixirnin þakka afa og ömmu alla
umhyggjusemi og við kveðjum þau
með þessu versi.
Ég bið, og bænin mín
með blessun aftur snýr,
ei bregðast orðin þín,
að opnast þeim sem knýr.
Þá heyrir helgan hljóm
frá himni sálin mín,
sem dijúpi dögg á blóm
er, Drottinn, miskunn þín.
(Ó.A.)
Blessuð sé minning þeirra.
Kristín I. Tómasdóttir
Nú geta áskrifendur og aug
lýsendur greitt reikninga
sina með greiðslukortum
frá VISA eða EURO.
VERIÐ VELKOMIN í GREIÐSLUKORTA VIÐSKIPTI.
Auglýsingadeild, " Áskrift Afgreiðsla,
sími 22480. 691140 — 691141 sími 83033