Morgunblaðið - 03.09.1986, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
53
Sölutækni I
Wl
Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
• Zola Budd í fararbroddi i 1500 metra hlaupi kvenna. Nœst henni koma Tatjana Samoilenko, sem vann
silfurverðlaun, og sigurvegarinn Rawilja Agletdinowa, báðar frá Sovétríkjunum. Nœst sovézku stúlkunum
kemur Doina Melinte, Rúmeníu, sem varð þriðja.
Göhr er „afurð“
íþróttakerfisins
Þetta námskeið hefur átt miklum vinsældurri að fagna,
en tilgangur þess er að veita þátttakendum innsýn I
heim sölu- og samskiptatækninnar. Þátttakendur fá
einnig þjálfun I sölumennsku og lýsingu á íslenska
fyrirtækjamarkaðnum.
Efnk______________________________________
• islenskt markaðsumhverfi.
• Uppbygging og mótun sölustefnu.
• Vöruþróun, æviskeiö vöru o. fl.
• Uppbygging sölubréfa.
• Val á markhópum.
• Starfsaðferöir sölufólks.
• Samskipti og framkoma.
• Söluhræösla.
• Markaðsrannsóknir og áætlanagerð.
Leiðbeinandi: Haukur Haraldsson, sölu- og markaösrððgjafi.
■
Marlies Göhr er einhver mesti
afreksmaður austur-þýzkra
íþrótta fyrr og síðar. Hún er jafn-
framt dæmigerð „afurð“ kerfis
íþróttanna þar í landi.
Marlies Göhr er 28 ára gömul
og hefur verið afar sigursæl í
spretthlaupum í áratug. Afrekalist-
inn er glæsilegur. Fyrsta stórmótið
sem hún vann var úrsiitakeppni
Ervópubikarkeppninnar árið 1977.
Árið eftir varð hún Evrópumeistari
í 100 metrum. Hún vann bæöi í
Evrópu- og heimsbikarkeppnunum
árið 1979; árið 1981 Evrópubikar-
keppninni, 1982 varð hún aftur
Evrópumeistari í 100 og ári seinna
heimsmeistari. Árin 1983 og 1985
vann hún jafnframt sigur í sérgrein
sinni á Evrópu- og heimsbikar-
keppnunum. Loks vann hún gull-
verðlaun í 100 metrunum í
Stuttgart í síðustu viku.
Þessu til viðbótar hefur Göhr
verið í sveitum Austur-Þýzkalands,
sem sigruðu í 4x100 metra boð-
hlaupum á tvennum ólympíuleik-
um, tveimur Evrópumeistaramót-
um og á heimsmeistaramótinu í
Helsinki 1983.
Eina stórmótið, sem Göhr hefur
tapað í 100 metra hlaupi, eru
ólympíuleikarnir í Moskvu, þar sem
hún var hundraðshluta úr sekúndu
frá sigri.
Marlies Göhr hóf iðkun frjáls
íþrótta aöeins 10 ára. Þegar hún
var 13 ára (1971) var hún tekin í
sérstakan íþróttaskóla fyrir út-
valda efnilega unglinga. Þar hlaut
hún þjálfun hjá Horst-Dieter Hille,
sem þjálfaði þá m.a. Renötu Stec-
her ólympíumeistarann í 100
metra hlaupi 1972 og 1976.
Þegar Stecher hætti keppni tók
Göhr við hlutverki hennar, sem
bezti spretthlaupari Austur-Þýzka-
lands. Hefur hún ailan tímann
notið þjálfunar Hille og fylgir hann
henni á hvert einasta mót. Þjálfar
hann allar fremstu spretthlaupa-
konur A-Þjóðverja, m.a. Ingrid
Auerswald og Sabine Rieger, sem
voru í sveitinni, sem setti heims-
met í 4x100 metrum í fyrra. Þær
kepptu og allar í Stuttgart.
í Austur-Þýzkalandi hafa
fremstu íþróttamenn þjóöarinnar
íþróttirnar að aðalstarfi. Venjulega
eru þeir þó í námi einnig, eða í
herþjónustu. Bókalesturinn þarf
þó ekki að íþyngja þeim og náminu
venjulega dreift yfir mikið lengri
tíma en ella þyrfti. Samhliða
íþróttaæfingum hefur Göhr stund-
að sálfræðinám við háskólann í
Jena og á enn talsvert eftir af því,
þótt orðin sé 28 ára gömul.
Þegar íþróttaferlinum lýkur þarf
Marlies Göhr ekki að óttast sult
og seyru, afrek hennar á íþrótta-
sviðinu hafa orðið til þess að vel
verður fyrir henni séð. Hún hefur
nú iðkað frjálsíþróttir í 18 ár og
sagði í Stuttgart að óhjákvæmilega
kæmi aö því að hún drægi sig í
hlé. í blaðamannamiðstöðinni gekk
sú saga að Göhr og Marita Koch,
einnig afburöakona í spretthlaup-
unum í heilan áratug, hefðu verið
neyddar „af kerfinu" til að keppa
í Stuttgart; hvorug hefði viljað
keppa í sumar. Víst var Koch langt
frá heimsmetinu, sem hún setti
seint í fyrrahaust, en Göhr var
betri en undanfarin tvö sumur,
sem er ekki til þess að styrkja orð-
róminn.
Göhr sagði hins vegar á blaða-
mannafundi að enda þótt hún hefði
síst á móti því að bæta ólympíu-
gulli í safnið þá væru tvö ár í næstu
leika og það væri mjög langur tími
fyrir hlaupara, sem kominn væri
yfir sitt bezta.
Námskeiðið hentar sérstaklega sölufólki I söludeildum
heildverslana, iðnfyrirtækja,. tryggingafélaga, ferða-
skrifstofa og annarra þjónustufyrirtækja, einnig sölu-
fólki sem vinnur að sölu á hráefni og þjónustu til fyrir-
tækja og stofnana.
Stjómunarfelag
islands
UTFLUTNING5 OG
MARKAÐSSKÓU ÍSLANDS
Ánanaustum 15-101 fíeykjavlk • S 91 -621063 -Tlx 2085
Arena
sigurvegarinn
frá Madrid
Markow öruggur
í þrístökkinu
Búlgarinn Christo Markow
sýndi mikið öryggi f þrístökk-
skeppni Evrópumeistaramótsins.
Voru öll stökk hans að einu und-
anskildu yfir 17,30 metra og var
hann ekki fjarri nýsettu Evrópu-
meti sínu.
„Takmarkið er að stökkva yfir
18 metra og helzt að verða fyrstur
til þess. Ég held það búi meira í
mér,“ sagði Markos í samtali við
blaðamenn eftir þrístökkskeppn-
ina. Hann er 21 árs nemandi í
íþróttafræðum. Nítján ára gamall
setti hann unglingaheimsmet,
17,42 metra. í fyrra setti hann svo
Evrópumet, stökk 17,77 metra i
Búdapest. Musijenko sló það met
í sumar, stökk 17,77 metra, en
Markow endurheimti metið með
17,80 metra stökki skömmu fyrir
Evrópumeistaramótið, einnig I
Búdapest.
Markow náði lengsta stökkinu í
fyrstu umferöinni og það gerði
Maris Bruziks einnig. Sovétmaður-
inn Nikolai Musijenko, sem stökk
17,79 í júní sl. og setti Evrópu-
met, varð aðeins sjötti og nær
einum metra frá sínu bezta.
Aðstæður voru erfiðar til
þrístökks þar sem aðhlaupsbrautin
var of stutt fyrir stökkvarana.
Þurftu þeir að byrja aðhlaupið á
grasbletti utan brautarinnar og
koma í sveig inn á hana. Afrek
Markows er fyrir vikið örlítið betra
en tölurnar gefa til kynna.
ÚrslK:
1. Christo Markow, Búlgaria 17,66
2. Maris Bruziks, Sovétrikin 17,33
3. Oleg Prozenko, Sovétrikin 17,28
4. Georgi Pomaschki, Búlgaia 16,99
5. Dirk Gamlin, A-Þýzkaland 16,89
6. Nikolai Musijenko, Sovétr. 16,86
7. Volker Mai. A-Pýzkaland 16,74
8. Didier Falise, Belgia 16,74
Verðlauna- peningar Arena 1 Diana
Gull 27 S|
Silfur 26 12 3
Brons 22 18 ► 1
Samtals 75 þ> 44 4
Heildsölubirgðir^s; 10330
SPORTVÖRUVERSLUN
JNGOLFS
ÓSKARSSONAR
Klapparstíg 40.
Á H0RNI KlfiPPfijRSTtGS
06 GRETTISGÖTU
S:if783 \
c