Morgunblaðið - 03.09.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 03.09.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986 55 Pétur löglegur — Dómstóll KSÍ staðfesti dóm ÍBH DÓMSTÓLL KSÍ tók Pétursmálið fyrir á fundi sínum í gærkvöldi og staðfesti þar dóm íþrótta- bandalags Hafnarfjarðar sem áfrýjað var til KSÍ. Það þýðir að Pétur Pétursson hafi verið lögleg- ur í leik FH og ÍA og standa úrslit leiksins því óbreytt. í dómstól KSÍ sem kvað upp þennan dóm sitja Jón Steinar Gunnlaugsson, sem er formaður, Jón G. Zoéga og Gestur Jónsson. Að sögn Árna Gunnarssonar, formanns knattspyrnudeildar Þórs, sagðist hann reikna með að þeir myndu draga kæru sína gegn ÍA til baka. „Ég sé enga ástæðu til að þumbast þetta lengur,“ sagði Árni, en þeir höfðu einmitt kært ÍA til ÍBA á sama grundvelli. Þorbergur Karlsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, sagði að þeir hjá UBK myndu skoða þetta mál í vikunni og ákveða síðan framhaldið. Ekki náðist í forráðamenn knatt- spyrnudeildar Vals vegna þessa máls. ÞRÍR leikmenn fyrstu deildar liða verða í leikbanni um næstu hetgi er næst si'ðasta umferðin verður leikin. Ingi Björn Albertsson þjálf- ari og leikmaður FH, Sigurður Lárusson fyrirliði nýkrýndra bik- armeistara Skagamanna og Bergur Ágústsson frá Vest- mannaeyjum. Kristján Olgeirsson, Völsungi, og Atli Einarsson úr Víkingi verða einnig í leikbanni í leikjum sinna liða um helgina en þá eru einmitt mjög þýðingarmiklir leikir fyrir þessi lið i toppbaráttunni í 2. deild. Fyrsta tap Atla og félaga síðan í mars í vetur Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttarrtara Morgunblaðsins í Þýskalandi. LEVERKUSEN trónir nú á toppi Bundesligunnar f knattspyrnu eftir leikina i gærkvöldi. Liðið sigraði Köln með fjórum mörkum gegn einu. Bayer Uerdingen tap- aði fyrir Shalke, 1:2 og er það fysti tapleikur liðsins í deildinni síðan í mars. Úrslit leikja urðu sem hér segir: M. Gladbach - W. Bremen 1:2 Dortmund - Homburg 3:0 Dusseldorf - Mannheim 2:0 Köln - Bayer Leverkusen 1:4 Schalke - Bayer Uerdingen 2:1 Hamburger - Frankfurt 2:1 Leverkusen hefur forystu með 7 stig eftir fjóra leiki, Hamburger er einnig með sjö stig og síðan kemur Bremen með 6 stig. Niirn- berg, Gladbach, Köln og Homb- urg hafa aðeins hlotið eitt stig hvert félag. • Pétur Ormslev leikur ekki með Fram gegn Vfði á laugardaginn. Hann meiddist í bikarúrslitaleiknum gegn ÍA á sunnudaginn. Óvíst um framhaldið. Pétur meiddur Landsliðsmiðherjinn Pétur Ormslev úr Fram meiddist í bikar- úrslitaleiknum gegn Skagamönn- um á sunnudaginn og er ekki víst að hann geti leikið með Fram sfðustu tvo leikina f deildinni af þeim sökum. Hnykkur kom á vinstra hné Pét- urs og var hann mjög slæmur eftir leikinn en heldur skárri í gær. Hann fór til sérfræðings í gær og á að fara aftur í dag. „Ég verð örugg- lega ekki með á móti Víði um næstu helgi og það er spurning um leikinn á móti KR. Þetta er spurning um liðþófann, ef hann er ekki rifinn þá gæti ég orðið góður fyrir síðasta leik en þetta verður bara að koma í Ijós á næstu dögum. Það er leiðinlegt að þetta skuli koma fyrir núna á versta tíma,“ sagði Pétur Ormslev í sam- tali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Þetta kemur sér illa fyrir Fram sem nú er að berjast um íslands- meistaratitilinn. Einnig getur þetta komið sér illa fyrir íslenska lands- liðið sem leikur gegn Frökkum í næstu viku. Pétur hefur átt þar fast sæti. Enska knattspyrnan: Nýliðarnir átoppinn Frá Bob Hennessy, fréttaritara Morgun blaðsins á Englandi. NYLIÐARNIR í ensku 1. deildinni í knattspyrnu, Wimbledon, skut- Morgunblaðiö/Börkur • Piltalandsliöið í Ihandknattleik sem heldur utan í dag. Efri röð frá vinstri: Friðrik Guðmundsson, fararstjóri, Geir Hallsteinsson, þjálfari, Árni Friðleifsson, Óskar Helgason, Héðinn Gilsson, Guðmundur Guðmundsson, Páll Ólafsson, Halldór Ingólfsson, Guðmundur Pálmason, Guðmundur Skúli Stefánsson, sjúkraþjálfari, Karl Rafnsson, liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Þorsteinn Guðjónsson, Davíð Gíslason, Grímur Hergeirsson, Konráð Ólafsson, Bergsveinn Bergsveinsson, Sigtryggur Albertsson, Bjarni Frostason, Sigurður Sveinsson og Ingi Stefánsson. ust í efsta sæti deildarinnar með sigri sínum á Charlton, 1:0, í gærkvöldi. Tottenham og West Ham töpuðu bæði í gærkvöldi. Arsenal sigraði Sheffield Wed- nesday á Highbury 2:0. Niall Quinn og Tony Adams skoruðu fyrir heimamenn. Dennis Wise skoraði sigurmark Wimbledon gegn hinum nýliðunum í 1. deild, Charlton oo skaust þar með í efsta sæti deild- arinnar. Chelsea og Coventry gerðu markalaust jafntefli í frekar slökum leik. Chelsea er enn án sigurs í deildinni. Everton sigraði Oxford á Goodi- son Park 3:1. Mörk Everton gerðu Trevor Steven, Alan Harper og Langley. Southampton sigraði Tottenham á heimavelli 2:0. Það voru þeir Colin Clarke og Danny Wallace sem skoruöu. Peter Shil- ton varði ' mark Southampton meistaralega. Fimm leikmenn voru bókaðir í þessum grófa leik. West Ham tapaði sínum fyrsta leik í vet- ur eins og Tottenham gegn Nott- ingham Forest 1:2. Franl^^ McAvenny náði forystunni fyrii^ West Ham í fyrri hálfleik en Nigel Clought og Nigel Webb skoruðu fyrir Forest með tveggja mínútna millibili í seinni hálfleik. Fimm leikir fóru fram í 2. deild Leikbönn Handknattleikur: Piltalandsliðið til Noregs ÍSLENSKA piltalandsliðið i hand- knattleik tekur þátt í 4-liða móti í Noregi sem hefst á morgun, fimmtudag. Liðið hélt utan í dag. Mótið fer fram í Sarpsborg sem er rétt fyrir utan Osló. Auk íslands taka Norðmenn, Vestur-Þjóðverj- ar, Frakkar og norska liðiö Fred- riksborg/ski, sem Helgi Ragnars- son þjálfar, þátt í mótinu. íslensku piltarnir leika fyrsta leik sinn gegn Fredriksborg/ski á morgun. Geir Hallsteinsson, þjálfari, hef- ur valið eftirtalda leikmenn til fararinnar: Sigtryggur Albertsson, Gróttu, Bergsveinn Bergsveins- son, FH, Bjarni Frostason, HK, Héðinn Gilsson, FH, Óskar Helga- son, FH, Halldór Ingólfsson, Gróttu, Árni Friðleifsson, Víkingi, Davíð Gíslason, Gróttu, Grímur Hergeirsson, Selfossi, Guðmundur Guðmundsson, Val, Páll Ólafsson, KR, Guðmundur Pálmason, KR, Þorsteinn Guðjónsson, KR, Sig- urður Sveinsson, Aftureldingu, Konráð Ólafsson, KR og Ingi Stef- ánsson, KR. Liðsstjóri er Karl Rafnsson og sjúkraþjálfari Guðmundur Skúli Stefánsson. Aðalfararstjóri er Frið- rik Guðmundsson, landsliðsnefnd- armaður. í gærkvöldi og urðu úrslit sem hér segir: Barnsley-Leeds 0:1 Hull City-Portsmouth 0:2 Ipswich-Oldham 1:1 Sheffield Utd. - Millwall 2:1 Stoke-WBA 1:1 Þróttarar * AÐALFUNDUR handknattleiks- deildar Þróttar verður haldin i kvöld í Þróttheimum og hefst hann klukkan 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.