Morgunblaðið - 07.09.1986, Blaðsíða 5
NÝTT ÚTLIT
f
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
5
40
ARA
AFMÆLIS
HÁTÍÐ
VIÐ EIGUNIAFMÆLI!
Þórscafé á 40 ára afmæli um þessar mundir. Á þessum merku tímamótum ætlum við að halda upp á
afmælið í heila viku! og bjóða til okkar fjölda fólks á öllum aldri. Flestir ættu að finna kvöldstund
við sitt hæfi enda yfirskrift vikunnar „eitthvað fyrir alla“. Á afmælisárinu hafa farið fram talsverðar
breytingar og endurbætur á salarkynnum hússins, þannig að segja má að allt og alhr séu með hátíðar-
svip. Láttu endilega sjá þig.
DAGSKRÁ AFMÆLISVIKUNNAR:
SUNNUDAGUR 7. SEPT.
Afmælisvikan hefst með boði til heiðurs leigubif-
reiðastjórum, enda hafa þeir í gegnum árin veitt
gestum ÞÓRSCAFÉ ómetanlega þjónustu.
Takk fyrir bílstjórar! Þeir sem vilja samfagna okk-
ur með leigubílstjórunum ættu endilega að láta sjá
sig. Húsið opnar kl. 22.00. Stanslaust fjör til kl.
01.00.
ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPT.
Þetta kvöld er tileinkað ellilífeyrisþegum úr ýms
um verkalýðsfélögum tengdum veitingarekstri.
Við bjóðum sérstaklega velkomna eldri félaga
ásamt mökum í Félagi starfsfólks í veitingahús-
um, Félagi Matreiðslumanna, Félagi framreið-
slumanna og Félagi íslenskra Hljómlistar
manna. Kaffíveitingar í boði hússins og
vönduð skemmtidagskrá. Húsið opnið frá kl. 20.00 - 23.00.
MIÐVIKUDAGUR 10. SEPT.
Nú mæta unglingarnir á þrumukvöld, hlaðið tón-
list og skemmtiatriðum. Hljómsveit hússins og
unglingahljómsveitir troða upp, óvænt skemmti-
atriði og diskótek á tveim hæðum. Húsið verður
opið frá kl. 20.00 - 24.00. Veitingar í boði hússins.
Boðsmiðar handa þrælhressum unglingum fást
afhentir í félagsmiðstöðvum borgarinnar.
FIMMTUDAGUR 11. SEPT.
Huggulegt skemmtikvöld sem stendur frá kl.
21.00 - 01.00. Opið á báðum hæðum hússins.
Landsþekktir skemmtikraftar skemmta, hljóm-
sveitir spila uppi, danssýning og margt fleira. Nú
koma allir snemma því fjörið byrjar strax. Aðgang-
ur ókeypis meðan að húsrúm leyfir og þeir sem J
koma fyrir kl. 23.00 fá óvæntan glaðning.
FOSTUDAGUR 12. SEPT.
Tekið á móti matargestum með fordrykk kl. 19.30
stundvíslega. Þetta kvöld verður sérstakur hátíðar-
matur fram borinn. Sérstök hátíðarskemmtidag-
skrá með þátttöku margra af okkar þekktustu
skemmtikröftum. Aðgangur ókeypis til miðnættis
og allir gestir sem koma fyrir miðnætti fá óvæntan
glaðning. Skemmtun sem enginn gleymir!!!
Nú er öllu til tjaldað og allir í hátíðarskapi.
Óvænt uppákoma um miðnætti. Dansað til
kl. 03.00. Matargestir, athugið að panta borð
tímanlega hjá veitingastjóra í síma: 23335.
LAUGARDAGUR 13. SEPT.
Afmælisdagur hússins. Boðsgestir mæta til sér-
staks hátíðarkvöldverðar. Húsið opnað fyrir
almenning kl. 22.00. Aðgangur ókeypis til mið-
nættis og þeir sem koma fyrir miðnætti fá óvæntan
glaðning. Landsfrægir skemmtikraftar koma fram
á miðnætursviðinu, óvæntar uppákomur.
Mætum öll snemma í hátíðarskapi og tökum
þátt í vandaðri hátíðarskemmtun sem lengi verður
í minnum höfð.!!!
-AR/VŒ
"AFWELIST
HÁTÍÐ
SUNNUDAGUR 14. SEPT.
Hátíðisdagur fjölskyldunnar í ÞÓRSCAFÉ. Opið
hús, aðgangur ókeypis meðan að húsrúm leyfir frá
kl. 15.00-18.00. Börnin fá sælgætispoka og gos-
drykki og fullorðna fólkið slappar af og fær sér
kaffiveitingar í boði hússins. Diskótekið dunar á
neðri hæðinni, hljómsveit hússins leikur á þeirri
efri. Skemmtiatriði og heilmikið glens og gaman.
Ósvikin skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
ÞÓRSCAFÉ; 40 skemmtileg ár
í 200 ára skemmtilegri borg.
PORS
BRAUTARHOLT 20
198ó\
SÍMI 23335
☆ ☆ ☆ ☆s T
☆ ☆ ☆