Morgunblaðið - 07.09.1986, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 07.09.1986, Blaðsíða 68
50 ótemj- ur seldar til útlanda Á VEGUM Félagfs hrossabænda (> ^ og búvörudeildar SÍS verða flutt- ir út 500 hestar með gripaflutn- ingaskipi til Evrópu í byrjun október. Með skipinu verða send- ir um 200 reiðhestar til lífs og 300 sláturhross. í lífhestahópn- um verða líklega 50 ótamin hross, sem er nýmæli í hrossaút- flutningi síðustu ára. Sigurður Ragnarsson sölufulitrúi í búvörudeild SIS segir að kaupend- ur í Danmörku og Þýskalandi hefðu sýnt áhuga á að kaupa 50 ótamin hross, til að flytja út með hrossa- skipinu. Hann sagði að það mál væri í athugun, en taldi sjálfsagt að gera þessa tilraun fyrst markað- urinn væri fyrir hendi. Sigurður _ sagði að kaupendumir ætluðu að frumtemja hestana og selja þá þannig í Danmörku og Þýskalandi. Hrossaskipið fer frá Þorlákshöfn í byijun október og siglir með hross- in á hafnir í Noregi, Danmörku og Belgíu. Þýzk-íslenzk viðskiptanefnd l UNDANFÖRNU hefur nefnd á vegum Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra starfað að tillögugerð, með hvað hætti megi auka og treysta viðskiptasam- bönd íslands og Vestur-Þýska- lands, einkum með tilliti til stöðugs og öruggs ferskfisk- framboðs í Vestur-Þýskalandi. Sjávarútvegsráðherra sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins, að þessi nefnd hefði verið skipuð í framhaldi við- ræðna hans og Werner Lenz, viðskipta- og iðnaðarþingmanns Bremen í Vestur-Þýskalandi í Þýskalandi í sumar. Halldór sagði að fleira kæmi til reina en útflutningur á ferskum Tiski. Til dæmis væri vélafram- leiðslufyrirtækið Baader starfandi í Bremen og fulltrúar þess fyrirtæk- is hefðu haft áhuga á nánara samstarfí við íslendinga, en eins og kunnugt væri keyptu íslendingar mikið af vélum frá Baader. „Það hefur m.a. komið til tals, að eitt- hvað af framleiðslu Baader verði hér á landi," sagði sjávarútvegsráð- herra. Síldarsölusamningar: Rússar selja mörg ný skilyrði fyrir viðræðum AD SÖGN síldarsaltenda hafa Sovétmenn á undanförnum mán- uðum sett fram mörg ný skiiyrði fyrir því að taka upp viðræður um saltsíldarkaup frá. Islandi. Síldarútvegsnefnd og stjórnir saltendafélaganna eru sammála um að ekki komi til greina að ræða sum þessi nýju skilyrði, þar sem útilokað sé að fallast á þau. Dótturfyrirtæki SHI Grimsby: -Söluaukning fyrstu 8 mánuðina 45,3% Dótturfyrirtæki Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna í Grimsby í Bretiandi, Icelandic Freezing Plants Ltd., hefur á fyrstu átta mánuðum þessa árs selt verk- miðjuframleiddar vörur, flök og nnað, fyrir 20,2 milljónir punda. Salan á sama tíma í fyrra nam 13,9 milljónum punda, þannig að söluaukningin í ár er 45,3% að verðmætum. Icelandic Freezing Plants Ltd. rekur verksmiðju og söluskrifstofur í Grimsby. í ágústmánuði sl. seldi fyrirtækið fyrir 816 þúsund pund, miðað við 541 þúsund pund í ágúst 1985, og er þar um 50% aukningu að ræða á milli ára. Sala í flökum og öðru í sama mánuði var fyrir 2,4 milljónir punda, miðað við 1,7 milljónir punda í ágúst 1985, og er þar um tæplega 40% aukningu að ræða. Fyrstu 8 mánuði ársins í fyrra seldi fyrirtækið verksmiðjufram- leiddar vörur fyrir 4,3 milljónir punda, en fyrstu 8 mánuði ársins í ár fyrir 6,4 milljónir punda, en það jafngildir 49,5% aukningu á milli ára. Aukningin í sölu flaka og annars varð heldur minni á sama tíma, því flök á árinu 1985 fyrstu 8 mánuðina voru seld fyrir 9,6 millj- ónir punda, en í ár fyrir 13,7 milljónir punda, sem jafngildir 43,3%. Heildarsalan fyrstu 8 mán- uði ársins í fyrra var 13,9 milljónir punda, en í ár 20,2 milljónir punda, sem jafngildir, eins og áður segir, 45,3%. Síldarsaltendur eru þeirrar skoð- unar að með þessum nýju skilyrðum séu Sovétmenn að reyna að losna undan þeim ákvæðum viðskipta- samnings landanna að kaupa héðan saltsíld. Einn síldarsaltandi sagði að ástæðumar fyrir þessari tregðu Sovétmanna væru margþættar: í fyrsta lagi hefðu síldveiðar Sovét- manna stóraukist á undanfömum árum; í öðru lagi hefðu Kanada- menn tilkynnt sovéskum stjórn- völdum, að þeir fengju ekki að stunda áfram bolfiskveiðar í kanadískri landhelgi, nema þeir féll- ust á að kaupa verulegt magn af saltsíld framleiddri í Kanada; í þriðja lagi hefðu Sovétmenn neitað að kaupa síld frá öðrum löndum, nema beint úr veiðiskipum viðkom- andi landa til söltunar um borð í verkefnalitlum verksmiðjuskipum Sovétmanna og þá á mjög lágu verði og með óhagstæðum greiðslu- kjömm; í fjórða lagi væri um alvarleg gjaldeyrisvandræði að ræða hjá Sovétmönnum, m.a. vegna stórfelldrar lækkunar á olíuverði og gengisfellingar Bandaríkjadoll- ars, en öll olían er seld í þeitn gjaldmiðli. Á fundum sem Síldarútvegs- nefnd hefur haldið með stjórnum saltendafélaganna í sumar hefur m.a. komið fram að Sovétmenn hafi tilkynnt að ef til samningavið- ræðna komi, verði íslenska síldin að seljast á „markaðsverði", sem Sovétmenn telja langtum lægra en íslenska söluverðið var á síðustu vertíð. Sovétmenn miða þá við það verð sem Kanadamenn og Norð- menn hafa verið að bjóða í skjóli mikilla ríkisstyrkja. íslendingar telja aftur á móti að hækka þurfi verðið verulega, vegna mikillar gengisfellingar Bandaríkjadollar, en öll viðskipti landanna fara fram í þeim gjaldmiðli. Gunnar Flóvenz framkvæmda- stjóri Sfldarútvegsnefndar kvað það rétt vera að Sovétmenn hefðu sett fram ýmsar nýjar kröfur sem útilok- að væri að ganga að, en kvaðst telja rangt að ræða þessi mál frek- ar fyrr en að loknum hinum almennu viðskiptaviðræðum land- anna sem hefjast í Reykjavík í fyrramálið. I fimm ára viðskiptasamningi Islendinga og Sovétmanna er kveð- ið á um kaup þeirra á 200.000— 250.000 tunnum á ári, 1986—1990. í fyrra keyptu þeir af okkur 200.000 tunnur, að verðmæti um 800 milljónir króna. Morgunblaðið/RAX Stærsta hlaupið í 14 ár - segir Ragnar Stefánsson í Skaftafelli JÖKULHLAUPIÐ í Skeiðará hefur ekki náð hámarki. Ragn- ar Stefánsson, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, sagði að um há- degisbilið i gær hafi áin enn virst í vexti, og sést greinilegur munur á henni dag frá degi. Hann telur að hlaupið sé þegar orðið stærra en hlaupin árin 1972 og 1976. Áin rennur nú yfir alla sumarfarvegi sína, og undir allt brúarhafið. Nokkrir litlir ísjakar eru farnir að ber- ast fram á sandinn. Á föstudag kom hlaup í Súlu sem rénaði um nóttina. Að sögn Gylfa Júlíussonar verkstjóra hjá Vegagerðinni í Vík er áin aftur komin í sama horf. Svo virðist sem þetta hafi verið dreggjar af síðasta hlaupi úr Grænalóni. Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, tók þessa mynd af Skeiðará á föstudag. Skeiðar- árbrúin er fremst á myndinni, í norðri sést Skaftafell og Skafta- fellsjökull.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.