Morgunblaðið - 07.09.1986, Side 9
9
sufWuÖÁGtftt1^ Sí^PteiSéÉít'íéöé
HUGVEKJA
Verið ekki
áhyggjufull
- eftir ÓSKAR JÓNSSON
I„Hvað stoðarþað manninn, að eignast
allan heiminn ogfyrirgiöra sálu sinni. “
Matt. 16,26.
segir: „En leitið fyrst ríkis hans
Texti: Matt. 6, 24-34.
Enginn getur þjónað tveimur
herrum ... Þér getið ekki þjónað
Guði og mammon.
Því segi ég yður: „Verið ekki
áhyggjufullir um líf yðar, hvað
þér eigið að eta eða drekka, né
heldur um líkama yðar, hverju þér
eigið að klæðast. Er lífið ekki
meira en fæðan og líkaminn meira
en klæðin?"
Lærisveinamir höfðu ekki úr
miklu að moða, og voru því
á-hyggjufullir yfir morgundegin-
um. Það er tákn lítillar trúar að
hafa áhyggjur vegna fæðis og
klæða. Jesús bendir þeim á fugl-
ana og blómin og segir: „Lítið til
fugla himinsins. Hvorki sá þeir
né uppskera né safna í hlöður og
faðir yðar himneskur fæðir þá.
Eruð þér ekki miklu fremri þeim?
Og hver yðar getur með áhyggjum
aukið einni spönn við aldur sinn?
Og hví eruð þér áhyggjufullir
um klæði? Hyggið að liljum vallar-
ins, hversu þær vaxa. Hvorki
vinna þær né spinna. En ég segi
yður: Jafnvel Salómon í allri sinni
dýrð var ekki búinn sem ein
þeirra. Fyrst Guð skrýðir svo gras
vallarins, sem í dag stendur, en á
morgun verður í ofn kastað, skyldi
hann þá ekki miklu fremur klæða
yður, þér trúlitlir."
Martin Lúther sagði að ræðu-
maðurinn hans væri litli fuglinn
fyrir utan gluggann sinn. Texti
hans væri: „Yðar himneski faðir
veit, að þér þarfnist alls þessa."
Áhyggjur ræna okkur gleðinni
og gera dagana dapra og leiðin-
lega, ræna okkur jafnvel svefni
um nætur og þjá okkur á marg-
víslegan hátt. Margir reyna að
losna við áhyggjumar og kasta
sér út í skemmtanalífið, drekka
áfengi og nota margskonar vímu-
gjafa. En það hjálpar síður en
svo. Hver getur hjálpað og losað
okkur við áhyggjumar. Guð get-
ur!!
Verið ekki hugsjúkir um neitt,
heldur gjörið í öllum hlutum óskir
yðar kunnar Guði með bæn og
beiðni og þakkargjörð. Og friður
Guðs, sem er æðri ölium skiln-
ingi, mun varðveita hjörtu yðar
og hugsanir yðar í Kristi Jesú.
„Fil. 4, 6. „Þegar þér leitið mín
af öllu hjarta, vil ég láta yður
fínna mig — segir Drottinn." Jer.
29, 13. „Því að hver sá öðlast,
sem biður, sá finnur sem leitar,
og fyrir þeim sem á knýr, mun
upplokið verða.“ Lúk. 11,10. Jes-
ús heldur áfram með textann og
og rettlætis, þá mun allt þetta
veitast yður að auki. Hafið því
ekki áhyggjur af morgundeginum.
Morgundagurinn mun hafa sínar
áhyggjur. Hveijum degi nægir sín
þjáning."
Við að leita Guðs og ríkis hans
munum við öðlast allt sem nauð-
synlegt er fyrir þetta líf og fyrir
eilífa lífið einnig. Hvflíkt fyrirheit!
Losnum við áhyggjurnar út af
morgundeginum, fæði og klæði
að auki.
Hví reiðið þér silfur yðar fyrir
það, sem ekki er brauð, og gróða
yðar fyrir það, sem ekki er til
saðnings? Hlýðið á mig, þá skuluð
þér fá gott að eta og sálir yðar
gæða sér á feiti — Leitið Drott-
ins, meðan hann er að fínna,
kallið á hann, meðan hann er
nálægur!" Jes. 55, 2—6.
Ég skrapp norður á Strandir í
sumar og dáðist að fegurð náttúr-
unnar. Ég sá margar jarðir sem
voru komnar í eyði, en sem búið
var á þegar ég sem stráklingur
var þar í sveit. Ég held að það
hafí oft verið ástæða fyrir fólkið
að vera áhyggjufullt út af framtíð-
inni. Sérstaklega hugsaði ég til
hjóna sem áttu stóran barnahóp.
Þau bjuggu í litlum torfbæ, túnið
var lítið og þýft. Eitt sinn fór
bóndinn með einu kúna sem þau
áttu erfiða leið í kaupstað, því
kýrin var veðsett og ekkert til að
borga með. Bóndinn vildi standa
í skilum og rölti því af stað með
kúna þessa erfiðu leið. Mikið held
ég að hann hafí talað við Drottin
sinn á leiðinni og beðið um að
börnin þyrftu ekki að líða skort.
Hjónin höfðu lært að varpa
áhyggjum sínum á Drottin og
hann brást þeim ekki. Það var
unun að sækja þessi hjón heim,
þau voru svo gestrisin, góð og
kærleiksrík, blessuð sé minning
þeirra.
Upphaf textans í dag er: „Eng-
inn getur þjónað tveimur herrum
... Þér getið ekki þjónað Guði
og mammon.
Hversu mikils virði er það ver-
aldlega, sem mennirnir sækjast
eftir, í samanburði við að bjarga
sálu sinni? Jesús sagði: „Hvað
stoðar það manninn, að eignast
allan heiminn og fyrirgjöra sálu
sinni.“ Matt. 16,26.
FIAMCJeep UMBOÐIÐ
Höfum undanfarið tekið upp
magn varahluta í AMC JEEP
mikið
AMC WAGONEER
AMC CHEROKEE
AMC EAGLE
AMC CONCORD
AMC WILLYS
JEPPA
TD.:
BODDÝHLUTI
RAFKERFI
UNDIRVAGN
STÝRISGANG
O.FL.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77395
ri
A
M
C
J
E
E
riAMCJeep riAMCJeep riAMCJeep riAMCJeep riAMCJeep riAMCJeep riAMC P
^ FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
VERDBREFAMARKAÐURINN
VfÐ BJÓÐUM ÞÉR HÆRRl VEXTI EN RÍKISSJÓÐUR
s
BYÐUR MEÐSKIPTIBREFUM” SINUM!
Fjárfestingarfélagið getur verið þér innan
handar við innlausn spariskírteina. Sér-
fræðingar félagsins innleysa fyrir þig Spari-
skírteini Ríkissjóðs og aðstoða við val á
nýjum sparnaðaríeiðum, sem henta þér
betur.
f jármál þín - sérgrein okkar
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn
ÖSA/SlA