Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
%
Hættuleg leit að
sannleikanum
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Til bjargar krúnunni (Defence
of the Realm). Sýnd í Regn-
boganum. Stjörnugjöf: ★ ★ ★
Bresk. Leikstjóri: David Drury.
Handrit: Martin Steliman. Fram-
leiðendur: Robin Douet og Lynda
Myles. Framkvæmdastjóri: David
Puttnam. Helstu hlutverk: Gabri-
el Byrne, Greta Scacchi, Den-
holm Elliott og Ian Bannen.
I fyrstu virðist ekkert samband
geta verið á milli atburðanna:
Sprenging í Ankara, dauði ungs
drengs á flótta frá betrunarhæli og
afsögn þingmanns Verkamanna-
flokksins. Ólíkir atburðir sem þessir
eiga sér varla neitt sameiginiegt.
Og þó. En það verður að þagga
niður með ráðum og dáð. Það gæti
orðið til að skaða krúnuna ef upp
kæmist og krúnuna skal vemda
með ráðum og dáð. Hneykslið má
ekki ná til almennings. Yfírhylming
er nauðsynleg. Gerið það sem gera
þarf.
Bretar eru vanir hneykslismál-
um. Sovétnjósnarar eru sífellt að
koma í ljós annað slagið á æðstu
stöðum; framhjáhöld, trúnaðar-
brestir, afsagnir, niðurlæging,
skömm. Blöðin og aðrir fjölmiðlar
gera sér eins mikinn mat úr þessu
og þau mögulega geta, gott
hneyksli getur aukið söluna upp úr
öllu valdi. Það er í þessum jarðvegi
stjómmálanna sem hinn pólitíski
þriller, Til vamar krúnunni (De-
fence of the Realm), fínnur sér
farveg. Það er ekki síst siðferði
blaða og blaðamanna sem þar er
til umfjöllunar og hvemig hægt er
að nota blöð til að klekkja á mönn-
um. Og hún er um einn blaðamann
í hættulegri leit að sannleikanum.
Dagblað í Bretlandi bendlar þing-
mann Verkamannaflokksins,
Dennis Markham (Ian Bannen), við
Gabriel Byrne í hlutverki blaða-
mannsins í myndinni Til vamar
krúnunni.
austur-þýskan KGB-mann og einn
af blaðamönnum blaðsins, Nick
Mullen (Gabriel Byme), fær upplýs-
ingar frá ónafngreindum heimildar-
manni í gegnum síma, sem festir
þingmanninn enn frekar í net
hneykslisins. Samstarfsmaður Mul-
lens, Vemon Bayliss (Denholm
Elliott), kannar málið eftir sínum
eigin leiðum og grunar að verið sé
að leika með þingmanninn sem er
vinur hans. Vernon biður Mullen
að bíða með að birta nýju upplýsing-
amar svo honum gefíst tími til að
sanna að þingmaðurinn er ekki
svikari en Mullen er þrjóskur og
metnaðarfullur blaðamaður. „Ég
get ekki setið á þessu. Þetta er góð
frétt,“ segir hann. „Jæja, láttu bara
ekki sannleikann skemma fyrir þér
fréttina," svarar Vemon bitur.
Fréttin fer í blaðið og vegna hennar
segir þingmaðurinn af sér. Skömmu
seinna deyr Vemon og Mullen tekur
að gruna að ekki sé allt með felldu.
Það er ekki rétt að segja öllu
meira til að eyðileggja ekki góða
skemmtun. Til varnar krúnunni er
önnur mynd leikstjórans Davids
Drury í fullri lengd en hann hefur
helst fengist við gerð heimilda-
mynda hingað til. Hann er enn einn
hæfíleikamaðurinn sem framleið-
andinn David Puttnam hefur dregið
fram í dagsljósið á síðustu árum
og Puttnam hefur ekki skjátlast
frekar en fyrri daginn.
Drury og handritshöfundurinn
Martin Stellman gefa sögunni góð-
an tfma til að þróast og vinda upp
á sig. Smátt og smátt einangrast
Mullen frá umhverfí sínu eftir því
sem hann kafar dýpra í málið þar
til hann getur engum treyst lengur.
Hann festir sig í vef hlerana, yfír-
hylminga, svika pg pretta og brátt
fær myndin á sig Örwellskan blæ
með þunglamalegum stofnunum og
ímynd stóra-bróðurs og lögreglu-
ríkis, sem vakir yfír þér dag og
nótt. Gabriel Byme leikur blaða-
manninn Mullen fjarska vel og er
nær heimaslóðum en þegar hann
lék Kólumbus í samnefndum sjón-
varpsmyndaflokki. Hér leikur hann
Muílen, þijóskan og metnaðarfullan
en líka samviskusaman og ákveðinn
í leit að sannleika sem æðstu menn
krúnunnar vilja fyrir alla muni fela.
Aðrir leikarar eru einnig trúir leik-
stjóranum og efninu: Denholm
Elliott er óborganlegur í hlutverki
Vemons, Greta Scacchi er í hlut-
verki ritara Markhams þingmanns,
Ian Bannen í hlutverki þingmanns-
ins og Fulton Mackay leikur
Kingsbrook, eiganda blaðsins sem
leggur æm þingmannsins í rúst.
Til vemdar krúnunni er dæmi
um breska kvikmyndagerð þegar
hún er upp á sitt besta. Góður leik-
ur, góð saga og góð meðhöndlun
hennar gerir myndina að einum
besta samsærisþriller sem hér hefur
sést lengi.
Lada Samara er meðalstór,
3ja dyra rúmgóður og bjartur
blH. Hann er framdrifinn,
með tannstangarstýri,
mjúkri og langri fjöðrun og
það er sérstaklega hátt undir
hann. Sem sagt sniðinn fyrir
íslenskar aðstæður.
Lada Samara hefur 1300 cm3,
4ra strokka, spræka og spar-
neytna vél, sem hönnuð er
af einum virtasta bíiafram-
leiðanda Evrópu. Bensín-
eyðsla er innan við 61 á hundr-
aðið í langkeyrslu, en við-
bragðstími frá 0-100 km hraða
er þó aðeins 14,5 sek.
Lada Samara er 5 manna og
mjög rúmgóður miðað við
heiidarstærð. Aftursætið má
leggja fram og mynda þannig
gott flutningsrými. Hurðirnar
eru vel stórar svo allur um-
gangur er mjög þægilegur.
Það er leitun að sterkbyggð-
ari bíl. Sérstök burðargrind er
f öllu farþegarýminu, sílsareru
sérstyrktir og sama er að segja
um aðra burðarhluti. Lada
Samara hentar jafn vel á mal-
bikuðum brautum Vestur Evrópu,
sem á hjara norðurslóða.
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf
Suöurlandsbraut 14 Sfmi 38600 - 31236